Morgunblaðið - 28.02.2001, Side 33

Morgunblaðið - 28.02.2001, Side 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2001 33 dag viti hvað kaffimoli er og myndi þykja lítið til hans koma. Ef vel stóð á var kaffibollunum hvolft að kaffinu loknu og síðan spáð í bollann. Ef spáin var góð var hún drukkin úr bollanum, því að þá átti hún að rætast. Ég man spár eins og gleðiglompur, sendibréf, jafnvel pakka, svo og gesti og fjöl- menni. Halldór bróðir minn drukknaði í júní 1957, þá nýorðinn 50 ára. Stef- anía varð fimmtug á útfarardegi hans. Þetta var þungt áfall fyrir fjölskyld- una. Börnin voru þá öll í heimahúsum. Stefán, sem er yngstur, aðeins átta ára gamall. Stefanía efldist við þessa raun. Hún hélt uppi reisn heimilisins og samheldni systkinanna var mikil. Halldór Einar, sem er elstur systk- inanna varð nokkurs konar heimilis- faðir og var mömmu sinni mikil stoð og stytta sem og börnin öll. Árið 1969 var Stefanía aftur slegin þungu höggi við ótímabært andlát Þorsteins sonar hennar, hann hafði þá nýlokið námi og hafið störf í samræmi við það. Stefanía stóð af sér þetta áfall eins og það fyrra. Stefanía var góðum gáfum gædd og nýtti þær vel. Menntun hlaut hún fyrst í barnaskóla og í uppeldi sínu á heimili fósturforeldranna á Vopna- firði, þeirra Elínborgar Sólveigar Vigfúsdóttur og Einars Runólfsson- ar, síðan einn vetur að Laugum í Þingeyjarsýslu. Eitt ár var hún við störf í Danmörku fyrir giftingu þeirra Halldórs. Hún bjó ætíð að þeirri vist. Þetta reyndist henni góður grunnur, sem hún nýtti til hins ýtrasta. Stef- anía var heimavinnandi húsmóðir þar til börnin höfðu hlotið sína menntun. Á fullorðinsárum starfaði hún um margra ára skeið við gæslu á Þjóð- minjasafni Íslands. Þar var sannar- lega réttur maður á réttum stað og hún naut sín þar meðal þess þjóðar- arfs sem þar var að finna. Um svipað leyti gafst henni loksins tími til að sinna hugðarefnum sínum við hand- mennt hvers konar og lestur góðra bóka. Margt væri hægt að rifja upp og margs er að minnast eftir löng kynni. Ég geymi aðrar minningar í þakklát- um huga. Alltaf hef ég farið fróðari af hennar fundum, hvort sem spjallað hefir verið í návígi eða talast við í síma, minni hennar var einstakt. Ég get ekki lokið þessum minningabrot- um mínum um Stefaníu án þess að þakka þær stundir, sem hún varði við að skapa alla þá handavinnu sem prýðir heimili mitt. Ég veit að hún hefir notið þeirra stunda og ekki talið þær eftir. Því sælla er að gefa en þiggja. Margir hafa undrast og dáð hand- bragð hennar og smekkvísi. Ég veit líka, að ég og mínir erum ekki ein um að njóta afraksturs iðju hennar. Allar aðrar gjafir hennar voru einnig valdar af vandvirkni og smekkvísi. Lækkar lífsdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, fegin hvíldinni verð. Guð minn gefðu þeim frið, gleddu og huggaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (H. Andrésdóttir.) Ég finn, að þannig var hugur Stef- aníu við lok langrar ævi. Ég er rík af arfi þeim sem ég á í sjóði minning- anna af kynnum mínum af Stefaníu mágkonu minni. Ég minnist hennar með gleði og þakklæti. Hið góða hugarfar hennar hafði bætandi áhrif á umhverfið. Gengin er góð kona. Guð geymi hana og alla ástvini hennar. Herborg Halldórsdóttir. Elsku amma Stefanía er dáin. Til- hugsunin um að fá aldrei aftur að njóta hinnar hlýju návistar hennar hér á þessari jörð er svo erfið. En svona er nú einu sinni lífsins gangur. Við reynum því að brosa í gegnum tárin og þakka fyrir hversu dæma- laust heppin við vorum að fá að hafa hana ömmu svona lengi hjá okkur. Þó svo að við hefðum hlegið að henni þegar hún bað Guð að forða sér frá því að verða 100 ára, þá var henni örugglega alvara og nú er hún loksins komin til afa, Þorsteins og allra hinna ástvinanna sem hún hefur misst á sinni löngu lífsleið. Lífið var svo sannarlega enginn dans á rósum fyrir hana ömmu en aldrei heyrðum við frá henni minnstu stunu eða kvein og þó svo að hún hefði ekki mikið á milli handanna var hún ávallt gjafmildust af öllum. Í hvert skipti sem gesti bar að garði hlóð hún í þá kræsingum og hafði ætíð áhyggj- ur af því að þeir fengju ekki nóg. Það var alltaf mikið tilhlökkunarefni að fá að fara í hádegismat til ömmu, þar sem á borðum voru meðal annars allt- af linsoðin egg og svo ís í eftirmat. Amma var heill hafsjór af fróðleik. Hún kunni hundruð vísna og það má með sanni segja að fáir hafi komist með tærnar þar sem hún hafði hæl- ana í þeim efnum. Hún var alla tíð mikill lestrarhestur, nýtti bókasafns- kortið sitt til fullnustu og oft á tíðum skorti hana samt sem áður lesefni. Hún amma var alltaf mjög áhugasöm um það sem við barnabörnin tókum okkur fyrir hendur og lærðum. Hún var svo dæmalaust stolt af öllu menntafólkinu í fjölskyldunni, en þeg- ar öllu er á botninn hvolft voru það sennilega fæstir sem slógu gáfum hennar við. Amma Stefanía var alveg einstök og yndisleg kona; alltaf svo falleg og fínleg og vel tilhöfð, meira að segja nánast hrukkulaus, vel komin á tíræð- isaldurinn. Við hin sitjum eftir, miklu fátækari en áður, og yljum okkur við hlýjar minningarnar; þær sem við geymum í hjartanu og svo hinar ver- aldlegu sem hún skildi eftir handa okkur. Fallega hvíta rúmteppið sem hún heklaði fyrir okkur yljar okkur þannig ekki einungis um tærnar, heldur líka um hjartaræturnar. Elskulega amma Stefanía skildi eftir sig fallega slóð hér á jörðinni. Halldór Már, Lilja Björk og Árni Freyr. Kæra amma, mig langar til að skrifa nokkur orð til að kveðja þig. Á sunnudaginn fyrir viku spurðu mamma og pabbi hvort ég vildi koma og heimsækja þig. Ég sem var frekar þreyttur eftir erfiðan morgun ákvað að koma seinna. Ég vissi hins vegar ekki að þetta yrði síðasta heimsóknin til þín. Daginn eftir varð ég fyrir miklu áfalli þegar ég frétti að þú hefð- ir dáið. Þetta var þó örugglega ekki stórt áfall fyrir þig þar sem þú varst orðin gömul og þreytt og færð í stað- inn að hitta afa. Þrátt fyrir að þú vær- ir orðin öldruð, varstu ávallt brosandi þegar ég kom í heimsókn og áttir allt- af eitthvað gott að drekka eða borða. Þegar ég var lítill og var í pössun hjá þér átti ég það til að vera stundum óþekkur en aldrei misstir þú þolin- mæðina og varst alltaf góð. Þegar ég varð eldri man ég eftir þegar við kom- um á sunnudögum í heimsókn í Asp- arfellið og fengum hjá þér harðfisk og soðin egg sem gerast vart betri. Elsku amma mín, ég mun ávallt muna eftir þér sem góðri persónu sem vildi manni alltaf gott. Trausti. Við systkinin minnumst ömmu Stefaníu með mikilli hlýju enda er vart hægt að hugsa sér góðhjartaðri manneskju. Það var alltaf gaman að heimsækja ömmu Stefaníu. Hún tók ávallt innilega á móti manni með hlýju faðmlagi og kvaddi í sömu mund. Hún var mjög gestrisin og átti alltaf nóg af kökum og öðru sælgæti en afsakaði samt alltaf hvað lítið væri á boðstól- um. Þegar við vorum krakkar átti amma alltaf nóg af alls kyns leikföng- um og litabókum og undantekningar- laust var mikið fjör þegar við frænd- systkinin vorum öll komin saman. Margar af okkar bestu stundum átt- um við heima hjá ömmu. Amma Stefanía var sérstaklega hógvær og nægjusöm manneskja sem hugsaði ekki mikið um veraldleg gæði. Amma var trúrækin kona. Það var mjög notalegt að gista hjá ömmu, hún kenndi okkur bænir og söng barnasálma, sem fyllti mann ró fyrir svefninn. Amma var mikill listamaður í sér. Fyrir utan að prjóna og hekla sótti hún fundi eldri borgara í Gerðubergi þar sem hún bjó til fallega muni. Þeg- ar hún fluttist í Seljahlíð hélt hún ótrauð áfram og átti leirlistin þá eink- um hug hennar. Þessa muni gaf hún síðan fjölskyldu sinni í jóla- og afmæl- isgjafir. Þessir listmunir prýða nú heimili okkar og eru góð minnismerki um listhæfileika hennar. Framan af tók hún virkan þátt í félagslífinu í Seljahlíð, m.a. í sýningum á listmun- um vistmanna og í tískusýningum sem þar voru haldnar. Hún hafði ætíð gaman af þessu starfi og sinnti því eins lengi og kraftar leyfðu. Amma Stefanía var á 94. aldursári þegar hún lést. Hin síðustu misseri var hún tekin að þreytast og fannst að sinn tími ætti að fara að koma. Það var hennar ósk að fá að fara með reisn. Þessa ósk fékk hún uppfyllta þegar hún sofnaði sínum síðasta svefni. Fyrir það erum við þakklát. Við kveðjum þig, elsku amma, með orðum Davíðs Stefánssonar og þökk- um um leið fyrir allar stundirnar sem við áttum með þér. Þei, þei og ró. Þögn breiðist yfir allt. Hnigin er sól í sjó. Sof þú blíðri ró. Við höfum vakað nóg. Værðar þú njóta skalt. Þei, þei og ró. Þögn breiðist yfir allt. Þorsteinn Örn Finnbogason, Björg Finnbogadóttir, Hildur Finnbogadóttir. Nú er hún farin frá okkur. Ævin til enda gengin. Þá er ekki annað að gera en lygna aftur augum og hugsa til alls þess sem Stefanía færði okkur fallegt í lífinu. Það var svo margt. Gáfuð, gjafmild, háttprúð og væn. Söngelsk og allra manna flinkust að muna og fara með lausavísur. Auk þess ól hún svo væn börn í þennan heim, sem leiddi til þess að við fengum að njóta þeirrar gæfu að kynnast Stefaníu. Takk fyrir góða samfylgd. Gréta, Trausti, Sesselja og börn. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. %        !   4>:1  3 )   9 - ' "     !0&    # #(( 5      ,  !    ! 8  )  ,&  !0&  ;    &   !  4&2 :  ',&" 1 " 9 "6  '( 5)":"' " "6  '( 4&2 ?"6  '( 5)":"'" ''( ,! 4& ',&" 4&2 ':"'" ''( + 0) 9',&" ")6(:"'" ',&"  :"'" ''(   2"-5"',&"/ 8      $4 : $011 !  !')" )9-''( - @<, )  )9-',&" ?"   " ''( / %     <=140  6"  #"' "  " ))# " ! 3',  !0& '  #(( 5      ,      !    *  3',&" (9)'), /           /4$011 ?6  7A  ! !,       3'  !2   !  $ #((   , 6 (6  6 / ;    B5 $  &*   !,     <=>   # 3' ,    5 ))65 ))# ,''( /                 0 40$011 5  6.7C  ! - (D 9"-" !  ?      !@ *      / #7 8  ,'     '  #$ <'"5/"-''( 5)"<'"''( 5)  "9',&" "- ,*'<'"''( )! 65 )3 ',&" <',!'<'"',&" :"'   3''( 12(  2) + 2) (6  6 /

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.