Morgunblaðið - 28.02.2001, Side 36
36 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Gleraugnaverslun
á Stór-Reykjavíkursvæðinu
auglýsir eftir starfsfólki hálfan daginn til af-
greiðslustarfa. Ath. reyklaust fyrirtæki.
Umsókn með mynd sendist auglýsingadeild Mbl.
fyrir 1. mars nk., merkt: „Gleraugu — 2001“.
Háskólakennarar
Háskólinn á Akureyri er sterk stofnun í örri
þróun og hefur mótandi áhrif á umhverfi sitt
og menntun í landinu. Háskólinn á Akureyri
býður góða starfsaðstöðu í metnaðarfullu um-
hverfi á Akureyri. Háskólinn á Akureyri stuðlar
að jafnrétti kynjanna og hvetur konur jafnt sem
karla að sækja um laus störf.
Háskólinn á Akureyri hyggst hefja kennslu í
tölvunarfræði til BS prófs haustið 2001.
Auglýstar eru til umsóknar ein til tvær stöður
háskólakennara (prófessor/dósent/lektor) í tölv-
unarfræði og upplýsingatækni.
Gert er ráð fyrir því að samhliða kennslu við
HA verði háskólakennararnir starfsmenn Ís-
lenskrar erfðagreiningar á Akureyri og taki þar
þátt í starfi og rannsóknum fyrirtækisins eins
og henta þykir.
Grunnlaun eru samkvæmt kjarasamningi Fé-
lags háskólakennara á Akureyri en jafnframt
mun Íslensk erfðagreining bjóða launakjör til
samræmis við markaðslaun.
Menntunar- og hæfniskröfur:
● Háskólamenntun, a.m.k. meistaragráða í
viðkomandi fræðigrein
● Forystuhæfileikar við uppbyggingu nýrrar
þekkingar.
● Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu
í uppbyggingu kennslu og rannsókna í tölvu-
og upplýsingafræðum.
Umsækjendur láti fylgja umsókn sinni rækilega
skýrslu um námsferil, vísindastörf, kennslu-
störf, stjórnunarstörf og önnur störf. Með um-
sóknum skulu send eintök af þeim vísindalegu
ritum sem umsækjendur vilja láta taka tillit til.
Nauðsynlegt er að í umsókn komi fram hvaða
verkefnum og rannsóknum umsækjendur hafa
unnið að, hverju þeir eru að sinna og hver eru
áform þeirra ef til ráðningar kemur. Ætlast er
til að umsækjendur láti fylgja nöfn og síma-
númer minnst tveggja aðila sem leita má til
um meðmæli.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Gestsson, HA,
helgig@unak.is .
Vinsamlegast sendið umsóknir til Háskólans
á Akureyri, skrifstofu rektors, v/Norðurslóð,
600 Akureyri, fyrir 19. mars 2001.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur Barra hf.
verður haldinn í Hótel Valaskjálf fimmtudaginn
8. mars kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Nánari upplýsingar liggja fyrir á skrifstofu fé-
lagsins, Kaupvangi 19, Egilsstöðum.
Aðalfundur Bakkavör
Group hf. 2001
Aðalfundur Bakkavör Group hf. vegna starfs-
ársins 2000 verður haldinn á Radisson SAS
Hótel Sögu, fundarsal A, v/Hagatorg, Reykjavík,
miðvikudaginn 7. mars og hefst hann kl. 16.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til kaupa félagsins á eigin
hlutum allt að 10% samkvæmt 55. gr. hluta-
félagalaga.
3. Tillaga um breytingar á samþykktum:
Heimild til stjórnar félagsins að auka hlutafé
félagsins um allt að 200 milljónir króna að
nafnverði og að hluthafar falli frá forkaups-
rétti sínum sbr. 3. mgr. 34. gr. laga um hluta-
félög.
4. Önnur mál löglega upp borin.
Ársreikningur félagsins ásamt skýrslu stjórnar
og endurskoðenda mun liggja frammi á skrif-
stofu félagsins í Hamraborg 10, 200 Kópavogi,
7 dögum fyrir aðalfund.
Fundargögn verða afhent við upphaf fundar.
Atkvæðaréttur hluthafa miðast við stöðu hlut-
hafaskrár að morgni 7. mars 2001.
Að loknum aðalfundarstörfum verður hluthöf-
um boðið upp á léttar veitingar.
Stjórn Bakkavör Group hf.
KENNSLA
Eiturefnanámskeið
Námskeið um notkun eiturefna og hættulegra
efna í landbúnaði, garðyrkju og við garðaúðun
verður haldið dagana 22. og 23. mars 2001.
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem vilja
öðlast réttindi til þess að mega kaupa og nota
efni í X og A hættuflokkum og/eða starfa við
garðaúðun.
Þátttaka í eiturefnanámskeiði veitir ekki sjálf-
krafa leyfisskírteini til kaupa á efnum í X og
A hættuflokkum, heldur verður að sækja um
það sérstaklega. Einnig verður að sækja sér-
staklega um leyfi til að starfa við garðaúðun.
Námskeiðið verður haldið hjá Rannsóknastofn-
un landbúnaðarins á Keldnaholti, Reykjavík.
Þátttökugjald er kr. 20.000.
Tilkynna skal þátttöku sem fyrst og eigi síðar
en 8. mars til Hollustuverndar ríkisins á sér-
stöku umsóknareyðublaði. Umsóknareyðublað
og dagskrá námskeiðsins má finna á heimasíðu
Hollustuverndar ríkisins, www.hollver.is . At-
hugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður og
verða þeir skráðir inn eftir tímaröð umsókna.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Hollustu-
vernd ríkisins í síma 585 1000.
Hollustuvernd ríkisins,
Rannsóknastofnun landbúnaðarins,
Vinnueftirlit ríkisins.
TILKYNNINGAR
Fræðslu- og menningarsvið
Innritun nýrra nemenda
Seltjarnarnesbær
22
00
.8
2
Innritun sex ára barna, f. 1995, fer fram á skrif-
stofu Mýrarhúsaskóla laugardaginn 3. mars n.k.
kl. 10:00-12:00.
Innritun í heilsdagsvistun Mýrarhúsaskóla - Skóla-
skjólið fer ennfremur fram á skrifstofu skólans
laugardaginn 3. mars n.k. kl. 10:00-12:00.
Innritun nemenda sem flytjast frá öðrum bæjar-
félögum og þeirra sem koma úr einkaskólum
fer fram í Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla
mánudaginn 5. mars og þriðjudaginn 6. mars
kl. 10:00-15:00.
Ekki þarf að innrita
nemendur sem flytjast úr
Mýrarhúsaskóla í
Valhúsaskóla.
Skólaskrifstofa
Seltjarnarness
Leiklistarstarfsemi
í Borgarleikhúsinu
Samkvæmt samkomulagi Leikfélags Reykjavík-
ur og Reykjavíkurborgar skal Leikfélag Reykja-
víkur „tryggja hið minnsta tveimur öðrum leik-
flokkum afnot af húsnæði í Borgarleikhúsinu
til æfinga og sýninga eins verkefnis á hverju
ári. Leikflokkarnir skulu hafa endurgjaldslaus
afnot af húsnæði en greiða útlagðan kostnað
L.R. vegna vinnu þeirra í Borgarleikhúsinu. Val
þeirra leikflokka skal ákveðið af leikhússtjóra
Leikfélags Reykjavíkur og fulltrúa sem sam-
starfsnefnd tilnefnir.“
Samkvæmt ofangreindu er hér með auglýst
eftir umsóknum leikflokka. Með umsókn skal
senda greinargerð um verkefnið þar sem greint
er skilmerkilega frá verkefninu, aðstandendum
þess, framkvæmdaaðilum, listrænum stjórn-
endum og þátttakendum öllum. Einnig skal
vönduð fjárhagsáætlun fylgja umsókninni sem
berist leikhússtjóra Leikfélags Reykjavíkur,
Listabraut 3, 103 Reykjavík, eigi síðar en mánu-
daginn 26. mars 2001. Nánari upplýsingar um
fyrirkomulag allt fást hjá leikhússtjóra Leik-
félags Reykjavíkur í síma 568 5500.
UPPBOÐ
Listmunauppboð
Næsta listmunauppboð verður haldið á Hótel
Sögu sunnudagskvöldið 18. mars. Erum að
taka á móti verkum. Fyrir viðskiptavini leitum
við að góðum verkum gömlu meistaranna.
Gallerí Fold
Rauðarárstíg 14—16,
sími 551 0400.
ÝMISLEGT