Morgunblaðið - 28.02.2001, Page 42
DAGBÓK
42 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Lag-
arfoss kemur og fer í
dag. Helgafell og Rem-
öy koma í dag. Dettifoss
fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Lagarfoss fór frá
Straumsvík í gær.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48, Reykjavík.
Skrifstofan er opin
miðvikud. kl. 14–17. S.
551-4349. Fataúthlutun
og fatamóttaka er opin
annan og fjórða hvern
miðvikud. í mánuði, kl.
14–17 s. 552-5277.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í s. Krabba-
meinsráðgjafarinnar,
800-4040, kl. 15–17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9 klippi-
myndir, útsaumur o.fl.,
kl. 13 smíðastofan opin
og spilað í sal. Farið
verður í Óperuna sjá La
Boheme 9. mars.
Fulltrúi frá skattstjóra
aðstoðar við skatt-
framtöl, skráning í
félagsmiðstöðinni.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
12 vefnaður, kl. 9–16
handavinna, kl. 10 banki,
kl. 13 spilað og vefnaður.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Sundtímar á Reykja-
lundi kl. 16 á miðvikud.
Kóræfingar hjá Vorboð-
um, kór eldri borgara í
Mos. á Hlaðhömrum á
fimmtud. kl. 17–19.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9 og
kl. 13 opin handa-
vinnustofan.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl.
16.30–18.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 10
verslunin opin til kl. 13,
kl. 13 handavinna, kl.
13.30 enska, byrjendur.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ. Í dag, ösku-
daginn, verður
íþróttahátíð í Aust-
urbergi kl. 14–16, rúta
frá Kirkjulundi kl. 13.
Fimmtud. 2. mars
félagsvist í Holtsbúð kl.
13.30. Mánudaginn 5.
mars kl. 15, leiðbein-
ingar um vísnagerð í
Kirkjulundi, stjórnandi
Ragnar Ingi Aðal-
steinsson. Spiluð félags-
vist á Álftanesi 8. mars
kl. 19 30.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli.
Línudans kl. 11. Byrj-
endur velkomnir. Mynd-
mennt kl. 13. Píla kl.
13.30. Á morgun púttæf-
ingar í Bæjarútgerð kl.
12. Opið hús í boði
Rótarýklúbbs Hafn-
arfjarðar og Innerwheel
kl. 14.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Göngu-
Hrólfar fara í göngu frá
Hlemmi kl. 9.45. Línu-
danskennsla kl. 19.15.
Leikhópurinn Snúður og
Snælda sýnir „Gamlar
perlur“, þættir valdir úr
fimm gömlum þekktum
verkum. Sýningar eru á
miðvikud. kl. 14 og
sunnud. kl. 17. Miða-
pantanir í s. 588 2111,
568-9082 og 551-2203.
Góugleði á vegum FEB
og Heimsferða verður
haldin föstud. 2. mars
nk. Hátíðina setur Ólaf-
ur Ólafsson. Feðgarnir
Örn Árnason og Árni
Tryggvason skemmta,
kórsöngur, upplestur,
ferðavinningar. Veislu-
stjóri Sigurður Guð-
mundsson. Hljómsveit
Hjördísar Geirs leikur
fyrir dansi. Sala að-
göngumiða á skrifstofu
FEB, kl. 10–16, s. 588-
2111.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9 opin
vinnustofa, postulíns-
málun, kl. 13.30 sam-
verustund.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
salur opinn, Tónhornið
fellur niður. Kl. 14
íþróttahátíð, „leikdagur
aldraðra“ í íþróttahús-
inu við Austurberg á
vegum FÁÍA, m.a. dans-
sýning, hnerripolki, um-
sjón Helga Þórarins-
dóttir. Aðstoð frá
skattstofunni verður
veitt miðvikud. 21. mars
(ath. breytt dagsetning),
skráning hafin. Ferða-
gleðin á Hótel Sögu.
„Kátir dagar, kátt fólk“
sunnud. 4. mars. Nokkr-
ir miðar til sölu hjá
félagsstarfinu. Allar
upplýsingar á staðnum
og í s. 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
kl. 10.30 boccia, kl. 13
félagsvist, hringdansar,
kl. 17 bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.10 og 10.10 leikfimi, kl.
10 ganga, kl. 13 ker-
amikmálun, kl. 13.30
enska. Kl. 14 kynning á
fæðubótarefnum.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur, kl. 9–
12 útskurður, kl. 11
banki, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
keramik, tau- og silki-
málun og jóga, kl. 11
sund, kl. 14 dans-
kennsla, kl. 15 frjáls
dans, kl. 15 teiknun og
málun. Kl. 15 verður
Rebekka Kristjánsdóttir
með ferðakynningu á
vegum Úrvals-Útsýnar
happadrætti.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
hittast á morgun,
fimmtudag, kl. 10, að
Korpúlfsstöðum. Púttað,
kaffi og spjallað. Upp-
lýsingar veitir Ingibjörg
í s. 545-4500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
12.30 útskurður, kl. 9–
16.45 handavinnustof-
urnar opnar, kl. 10 sögu-
stund, kl. 13–13.30 bank-
inn, kl. 14 félagsvist.
Vesturgata 7. Kl. 8.30
sund, kl. 9.15 myndlist-
arkennsla og postulíns-
málun, kl. 13–16 mynd-
listarkennsla,
glerskurður og postu-
línsmálun, kl. 13–14
spurt og spjallað. Í dag
28. feb.: Íþróttahátíð,
leikdagur aldraðra í
íþróttahúsinu Aust-
urbergi í Breiðholti á
vegum FÁÍA, m.a. dans-
sýning, leikfimi, söngur
og fleira. Sýningin verð-
ur frá kl. 14–16. Lagt af
stað frá Vesturgötu kl.
13.30. Skráning í s. 562-
7077.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 bankaþjónusta,
kl. 10 morgunstund,
bókband og bútasaum-
ur, kl. 13 handmennt og
kóræfing, kl. 13.30 bók-
band, kl. 14.10 versl-
unarferð.
Bústaðakirkja, starf
aldraðra, miðvikudaga
kl. 13–16.30 spilað,
föndrað og bænastund.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Félagsvist kl. 19.30.
Barðstrendingafélagið.
Spilað í kvöld í Konna-
koti, Hverfisgötu 105, 2.
hæð kl. 20.30.
Hringurinn Hafn-
arfirði. Aðalfundurinn
verður fimmtud. 1. mars
í Hringshúsinu, Suð-
urgötu 72, Hf. Venjuleg
aðalfundarstörf, kaffi og
bingó. Nýir félagar vel-
komnir.
Hana-nú Kópavogi.
Fundur í bókmennta-
klúbbi í kvöld kl. 20. Þeir
sem eiga í fórum sínum
ljóð eða sagnir um
grænmeti og ávexti eru
vinsamlegast beðnir að
koma með það. Önnur
dagskrá í samræmi við
ákvörðun síðasta fundar.
Rangæingar – Skaftfell-
ingar. Síðasta spila-
kvöld vetrarins í kvöld
kl. 20 í Skaftfellingabúð
á Laugavegi 178. Góð
verðlaun og heild-
arverðlaun vetrarins af-
hent.
Félag kennara á eft-
irlaunum. Árshátíðin
verður haldin í Félags-
heimilinu Skipholti 70
laugard. 3. mars kl. 19.
Tilkynna þarf þátttöku á
skrifstofu Kennara-
sambands Íslands í s.
595-1111 í síðasta lagi
fimmtud. 1. mars.
Dagskrá: Veislumáltíð.
Hlaðborð, árshátíð-
arræða: Ólafur H. Jó-
hannsson lektor.
EKKÓ-kórinn syngur.
Línudansflokkur sýnir.
Dans. Ólafur B. Ólafs-
son annast tónlistar-
flutning.
Orlofsnefnd húsmæðra
í Reykjavík. Kynning á
ferðum sumarsins verð-
ur haldin mánudaginn 5.
mars kl. 20, Víkingasal
Hótel Loftleiða. Allar
húsmæður velkomnar.
Í dag er miðvikudagur 28. febrúar,
59. dagur ársins 2001. Öskudagur.
Orð dagsins: Trúin er fullvissa um
það, sem menn vona, sannfæring um
þá hluti, sem eigi er auðið að sjá.
(Hebr. 11, 1.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
ÖLDRUÐ kona hafði sam-
band við Morgunblaðið
vegna greinar sem birtist ný-
lega eftir Maríu Hrafnsdótt-
ur lækni. Í greininni fullyrðir
læknirinn að engin lækning
sé til við mígreni en reynsla
mín er önnur. Ég stundaði
kennslu um langt árabil en á
fertugsaldri fór ég að fá
slæm mígreniköst sem engin
lyf unnu á. Þetta var mjög
bagalegt því að kennsludag-
urinn varð ónýtur þegar
köstin komu. Þá kynntist ég
ungri konu sem þjáðist af
þrálátum höfuðverk en hafði
við þeim lyf, svonefndar ca-
ca töflur sem þá fengust í
apótekum. Ég prófaði eina
hjá henni og verkurinn var
liðinn hjá eftir klukkutíma.
Eftir þetta hafði ég þessar
töflur alltaf í fórum mínum
þangað til þær fengust ekki
lengur en þá var ég líka hætt
að fá mígreniköst. Þetta rifj-
aðist upp fyrir mér þegar ég
sá ummæli Maríu Hrafns-
dóttur og þar sem ég skrifaði
á sínum tíma hjá mér sam-
setningu lyfsins vil ég gjarn-
an koma því á framfæri ef
það gæti gagnast þeim sem
leggja stund á lyfjarann-
sóknir. Uppskriftin er eftir-
farandi: Koffeini-pulver:
50mg. Lidhil-cath: 100mg.
Ac-acetylsal 400mg.
Ég heyrði einhvern tím-
ann að Helgi Tómasson pró-
fessor hefði þróað þetta lyf
en hef það ekki staðfest.
Hetjudáð!
MIKLA „hetjudáð“ drýgði
sá sem ók hratt eftir Álfa-
tanga í Mosfellsbæ laust eft-
ir kl. 18:00 fimmtudaginn
22. febrúar sl. og sveigði upp
að gangstéttarbrúninni til
að geta skvett úr drullupolli
yfir 6 ára dreng sem var þar
á gangi. Blessað barnið stóð
þar eftir hágrátandi og
rennblautt og hafði fengið
skólpið bæði í augu og í
munn. Mikið hlýtur þessum
einstaklingi að líða illa á sál-
inni að skeyta svona skapi
sínu á saklausu barni. Ég
vona að hann geti leitað sér
hjálpar hið bráðasta.
Sigrún V. Ásgeirsdóttir,
Leirutanga 5, Mosfellsbæ.
Um Alþingi
Íslendinga
MAÐUR undrast stórum,
þegar maður horfir á sjón-
varp frá Alþingi á umræður
um lagaráð. Því er nú þann-
ig varið, að ef frumvörp
koma ekki frá ríkisstjórn-
inni eða þeim sem styðja
hana, þá þykjast ráðherrar
og áhangendur ríkisstjórn-
arinnar hvorki skilja upp né
niður. Þetta vekur athygli
þeirra sem á horfa. Það er
eins og íslensku þjóðinni sé
stjórnað í krafti einræðis og
meirihluta á Alþingi. Allt
þetta horfir þjóðin uppá,
þegar hún horfir á sjónvarp
frá Alþingi Íslendinga.
Þetta minnir mann á lítið
barn í sandkassa, ef ég næ
ekki mínu fram þá fer ég í
fýlu eða læst ekki skilja það
sem um er að vera. Því mið-
ur blasir við þjóðinni þessi
mynd af hinu háa Alþingi.
Landsmenn verða að spyrja
sig þeirrar spurningar,
hvers vegna erum við að
kjósa okkur slíka fulltrúa?
Menn verða að fara að átta
sig á því á að þeir eru ekki
einir í heiminum, eins og
Palli forðum. Alþingismenn
og ráðherrar eru fulltrúar
fólksins í landinu, en ekki
einræðisherrar.
Kjósandi.
Vogue í Skeifunni
MIG langar til að koma á
framfæri þakklæti til starfs-
fólks Vogue í Skeifunni fyrir
frábæra þjónustu og sér-
stakar þakkir til hennar
Helgu, sem er alveg sér-
stakur persónuleiki.
Júlíana.
Tapað/fundið
Svört kápa tekin
í misgripum
SÚ, sem tók svarta ein-
hneppta kápu í misgripum
föstudaginn 12. jan.sl. hjá
Sigga Hall, vinsamlega hafi
samband við Elínu í síma
555-0844, vinnusíma 565-
1011 eða við veitingastaðinn
hjá Sigga Hall sími 511-
6677.
Svört kvengleraugu
töpuðust
SVÖRT kvengleraugu töp-
uðust á göngubraut fyrir ut-
an Breiðholtsskóla, mánu-
daginn 26. febrúar sl. Skilvís
finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband í
síma 557-2925.
Svart veski og
gleraugu töpuðust
18. JÚNÍ sl. tapaðist í frí-
höfninni í Keflavík svart
veski með tveimur rennilás-
um og gleraugu. Vinsamleg-
ast hafið samband í síma
555-0260.
Orðsending
VIÐ útför Ísleifs Ingvars-
sonar 3. febrúar sl. tók ég í
misgripum í kirkjunni í
Vestmannaeyjum brúna
loðhúfu. Húfan sem ég tók
er ómerkt, en innan í húf-
unni er merki um að hún sé
úr bísamrottuskinni. Mig
langar að leiðrétta þessi
mistök ef hægt er. Vinsam-
legast hringið í Sigurð Jóns-
son í síma 554-1668.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Mígreni
Víkverji skrifar...
ENDURSKOÐUN á stjórnsýsluvirðist nú fara fram æ oftar í
ríkiskerfinu og hefur Ríkisendur-
skoðun öðru hverju gefið út álit sitt á
hinum ýmsu stofnunum og fyrir-
tækjum ríkisins. Virðist þar farið of-
an í alla þætti og málin krufin og
bent á leiðir til úrbóta.
Nýlega var gefin út slík skýrsla
um Landhelgisgæsluna og hefur
nokkuð verið fjallað um hana í fjöl-
miðlum. Þar var tilgreint að Land-
helgisgæslan hefði staðið vel að
verki í fjölbreyttum störfum sínum
en einnig bent á að hugsanlega
mætti koma þar einu og öðru fyrir á
annan veg en nú er enda margt
breyst í umhverfi þessarar nauðsyn-
legu stofnunar síðustu árin. Er í
skýrslunni bent á nokkur verkefni
sem mætti kannski senda annað,
flytja stofnunina hugsanlega frá
dómsmálaráðuneyti í samgöngu-
ráðuneyti og hugsanlega færa gæsl-
unni ný og fleiri verkefni sem henni
henta vel.
Það eru þessar ábendingar sem
Víkverji staldrar við. Er ekki öllum
stofnunum og fyrirtækjum hollt að
skoða reglulega hvernig starfsemin
gengur, hvort eitthvað mætti betur
fara og kannski stæra sig um leið af
því sem vel er gert? Á fræðimáli
stjórnkænskunnar mun vera talað
um að greina styrkleika, veikleika,
ógnanir og tækifæri og fleira í þeim
dúr og talið mikilvægt að hvert og
eitt fyrirtæki hafi þessi atriði öll á
hreinu og geri sér grein fyrir stöðu
sinni. Er þetta dæmi um nýja hugs-
un og nýjar aðferðir við að reka nú-
tímaþjóðfélag á öllum sviðum.
Spurning er hvort einstaklingarnir
verða ekki að taka sjálfa sig svona
taki líka öðru hverju. Staldra við og
spyrja hvernig hefur gengið með hitt
og þetta í lífinu, hvað má laga og
hvað er gott hjá sjálfum sér, í eigin
rekstri og samskiptum við aðra. Slík
sjálfsskoðun hlýtur að vera öllum
brýn og kannski ekki síður að velta
fyrir sér hvort ástæða er til að
breyta einhverju. Ekki er víst að sú
verði raunin en sé svo eiga menn
bæði völina og kvölina.
x x x
ALDUR er afstæður og hann erlíka sígilt umræðuefni og oft
efni til stríðni og gríns manna á með-
al. Ekki síst verður þetta tilefni um-
fjöllunar á tímamótum í lífinu,
kannski aðallega merkilegri afmæl-
isáföngum þegar menn taka að full-
orðnast. Víkverji sér fram á slíkan
áfanga nálgast í lífi sínu og veltir
stundum fyrir sér hvort hann valdi
einhverjum straumhvörfum, afmæl-
isdagarnir rjúka fram hjá án þess að
hann fái rönd við reist.
Annars hefur Víkverja aldrei
fundist hann vera gamall. Kannski
ekki heldur síungur en þokkalega
brattur samt. Hann var nefnilega
ekki nema tvítugur þegar hann var
fyrst kallaður „kallinn“ af smástrák-
um í fótboltaleik í sumarbúðum þar
sem hann vann á árum áður. Hann
var sem sagt orðinn „kall“ um tví-
tugt. Eftir að hafa náð sér af þessari
nöturlegu nafngift sem honum þótti
á þeim árum er honum alveg sama
hvað öðrum finnst og hefur ákveðið
að vera næsta síungur upp frá því.
Hann huggaði sig líka við það hér um
árið að strákapeyjarnir sem sögðu
„kallinn“ voru bara hálfgerðir óvitar
og allir sem voru þremur árum eldri
en þeir voru „kallar“ og „kellingar“.
Víkverji hætti líka fyrir fjórum árum
að tala um „afa“ í umferðinni þar
sem honum fannst það bara geta átt
við um aldraða menn. Núna verður
hann frekar að tala um langafa ef
hann ætlar að segja eitthvað um
hægfara ökumenn.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 fara eftir, 4 hindra, 7
hakan, 8 veiðarfærum, 9
beita, 11 húsagarður, 13
blóðmörskeppur, 14 vaf-
inn, 15 þvættingur, 17
klæðleysi, 20 mann, 22
malda í móinn, 23 muldr-
ir, 24 dýrsins, 25 gegnsæ-
ir.
LÓÐRÉTT:
1 aðstoð, 2 skerandi
hljóð, 3 kvenmannsnafn,
4 þyngdareining, 5 óða-
gotið, 6 sárar, 10 æða, 12
álít, 13 greinir, 15 orða-
senna, 16 koma að not-
um,18 ólyfjan, 19 lifir, 20
fíkniefni, 21 numið.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 keimlíkur, 8 skinn, 9 aggan, 10 gil, 11 rella, 13
annar, 15 fagna, 18 ussar, 21 sýn, 22 stúta, 23 daunn, 24
ósannindi.
Lóðrétt: 2 ekill, 3 manga, 4 Ítala, 5 ungan, 6 ásar, 7 anar,
12 lin, 14 nes, 15 foss,16 grúts, 17 asann, 18 undri, 19
stund, 20 röng.