Morgunblaðið - 28.02.2001, Síða 49

Morgunblaðið - 28.02.2001, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2001 49 Snorrabraut 37, sími 551 1384 FYRIR 1090 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit nr.188. Sýnd kl. 6. E. tal.Vit nr. 187. FRÁ HÖFUNDI BAD BOYS EDDIE GRIFFIN ORLANDO JONES Dúndur stuð frá höfundum Bad Boys með Orlando Jones (Bedazzled) og Eddie Griffin (Deuce Bigalow, Armageddon) í aðalhlutverki. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit nr. 197. www.sambioin.is 1/2 ÓFE hausverk.is 1/2 Kvikmyndir.com 1/2 HL.MBL ÓHT Rás 2 Stöð 2 GSE DV Óskarsverðlauna- tilnefningar3 Sýnd kl. 5.55, 8 og 10.10. B. i. 14. Vit nr. 191. www.sambioin.is Kringlunni 4 - 6, sími 588 0800 EINA BÍÓIÐ MEÐ THX DIGITAL Í ÖLLUM SÖLUM FYRIR 1090 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ FRÁ HÖFUNDI BAD BOYS EDDIE GRIFFIN ORLANDO JONES Dúndur stuð frá höfundum Bad Boys með Orlando Jones (Bedazzled) og Eddie Griffin (Deuce Bigalow, Armageddon) í aðalhlutverki. Sýnd kl. 3.50 og 5.55. Ísl. tal. Vit nr. 194. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 197. 1/2 HL.MBL  ÓHT Rás 2  Stöð 2  GSE DV Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14. Vit nr. 191. Óskarsverðlaunatilnefningar3 Spennandi ævintýramynd fyrir börn á öllum aldri Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 204. 1/2 Kvikmyndir.com Miði í Regnbogann gildir sem happadrættismiði fyrir PS2 Mel Gibson Helen Hunt Frábær gamanmynd. Loksins... maður sem hlustar. Vinsælasta mynd Mel Gibson til þessa. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Ísl texti. Skríðandi tígur, dreki í leynum Sjötti dagurinn Sýnd kl. 6, 8 og 10. 1/2 Kvikmyndir.is / ÓHT Rás 2 What Women Want Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Óskarsverðlauna- tilnefningar 10 l r EMPIRE ÓFE hausverk.is Óskarsverðlaunatilnefningar0 MARGIR útlendingar virðast sjá Ís- land í hillingum sem furðulegt land ólíkt öllum öðrum – sem það er að sjálfsögðu. Einkum virðast dægurtónlistar- menn vera hrifnir og hafa margir þeirra farið í skottúra til landsins og notið sín hér óáreittir, skroppið hringinn eða stikað upp Laugaveg- inn – fjarri glaumi og glysi. Fyrir stuttu var framkvæmda- stjóri skosku síðrokkssveitarinnar Mogwai, Colin Hardie, staddur hér- lendis, en sveitin sú er með vinsælli hljómsveitum í þeim geiranum um þessar mundir. Tilgangurinn var sá að kanna hvaða tónleikastaðir væru fýsilegir fyrir hljómsveitina til að spila á, en hún er væntanleg hingað til lands 13. mars. Einhverra hluta vegna vildu meðlimir byrja hér tón- leikaferðalag sem farið er til að kynna nýjustu plötu sveitarinnar, Rock Action, sem kemur út 22. apríl, á Íslandi. Tónleikarnir verða tvennir og eru hugsaðir sem kynningartón- leikar. Hausinn fýkur „Upprunalega átti þetta að vera á Gauknum,“ segir Colin. „En okkur fannst hann of lítill fyrir það sem okkur langaði til að gera. Okkur langar til að koma með strengjasveit og Gruff og Cian úr Super Furry Animals ætla að koma og syngja með okkur. Sveitin hefur ekki spilað á tónleikum síðan í júlí þannig að við viljum hafa allt á hreinu.“ Hann segir að þeim lítist vel á að byrja tónleikaferðalagið hér. Við taki svo tónleikar í Bandaríkjunum, Jap- an og Evrópu. „Það þótti nauðsyn- legt að senda mig á undan svo að allt væri 100%. Ég þekki tónleikastaði í stærri borgum eins og París og Berl- ín en Reykjavík er óræð stærð. Þannig að hausinn á mér mun fjúka af ef það er eitthvert klúður,“ segir Colin brosandi og grínast áfram. „Síðan þurfti náttúrlega að athuga baðaðstöðuna í Bláa lóninu áður en strákarnir koma hingað. Ég er nú hræddur um að hún sé aðeins of opin fyrir þá. Ég efast um að nokkur mað- ur vilji sjá þessa menn nakta.“ Bla bla bla En af hverju Ísland? „Þeir hafa lengi haft mikinn áhuga á að koma hingað,“ svarar Colin. „Vegna staðsetningarinnar, vegna jarðfræði landsins. Síðan langar þá líka til að nota tækifærið og sjá nýja staði. Þegar þú ert í hljómsveit hef- urðu ágætis færi á slíku.“ Colin er ekkert endilega á því að Ísland sé svo „sérstakt“, en margir fjölmiðlar hafa gaman af því að draga upp slíka mynd af landinu; hverir, jöklar, eldgos, bla, bla, bla. „Þetta er farið að verða svolítið of- notað,“ álítur Colin. „Menn vita voðalega lítið um landið í rauninni. Ég held líka að þegar blaðamenn eru kostaðir til landsins hætti þeim til að draga upp svolítið ýkta mynd af landi og þjóð með það að markmiði að eiga auðveldara með að selja sög- una. Eina ástæðan fyrir því að Mogwai er að koma hingað og spila er af því að þá langar til að spila hér. Það hefði verið auðveldara að gera þetta einhvers staðar annars staðar en okkur langaði bara til hafa þetta sérstakt.“ Hann heldur áfram. „Einu sinni var Glasgow tónlistarhöfuð- borg Bretlands einhverra hluta vegna. Það er nú bara þannig að ef fjölmiðlar ákveða að búa til einhverja bólu þá bara gera þeir það. Fremur lök blaðamennska að mínu mati.“ Tónleikarnir verða eins og áður segir tvennir, 13. og 14. mars, og fara fram í Iðnó. Það er skynsamlegt að tryggja sér miða í tíma því að ein- ungis verða seldir 200 miðar á hvora tónleika. Miðaverð er 2.900 kr. en miðasalan hefst mánudaginn 5. mars kl. 12 í Iðnó. Mogwai á leið til landsins Er eitthvað í vatninu hérna? Síðrokkssveitin skoska Mogwai er á leið hingað til lands og skrapp því fulltrúi sveitarinnar hingað á dögunum og kannaði aðstæður. Arnar Eggert Thoroddsen spurði Mogwai-mann- inn: Af hverju Ísland? Mogwai: Ísland var það, heillin! ÞAÐ er ekkert smáskemmtilegt að fá að stíga á Bláa hnöttinn. Stíga inn í undraveröldina sem lifnar við á sviði Þjóðleikhússins á sunnudögum. Þar sem börn búa ein, ráða öllu og allt leikur líka í lyndi þar til fullorðni furðufuglinn Gleðiglaumur flýgur þangað í ryk- sugunni sinni. „Það er svo gaman þegar ryksugan byrjar,“ voru átta til tíu ára nemendur í Vesturbæj- arskóla sammála um þegar þau fengu að stíga á svið, hitta leik- arana og kíkja á bakvið tjöldin að leiksýningu lokinni. Og þau sem ekki vissu voru fljót að fatta að leikhúsið er í rauninni allt í plati. „Ég veit að það gerist allt í plati, en samt fattaði ég ekki alveg hvernig börnin geta flogið,“ gall í einni stuttri sem var síðan fljót að gera tilraun sjálf til að fljúga þeg- ar tækifærið gafst. – „En hvernig kom eiginlega úlfurinn?“ spyr einn lítill. – „Sérðu gluggann þarna sem rauða ljósið er? Þar var látin mynd af úlfi speglast yfir á vegg- inn,“ útskýrir sá stóri sem hefur oftar farið í leikhús og sá því við leikmyndahönnuðinum. – „Hér er óskasteinninn! Maður kveikir bara á honum!“ hrópar einn upp yfir sig og hleypur í hringi með bláan glitrandi stein á lofti. Gleðiglaumur sýndi þeim inn í ryksuguna og í ljós kemur að eld- urinn á jörðinni er ekkert eldur. Svona uppgötvuðu krakkarnir margt nýtt á þessum nýja hnetti. Og ekki nóg með það heldur fór sviðið skyndilega að snúast einsog um alvöru hnött væri að ræða! Þá urðu sumir svolítið ringlaðir. Valgeir Valgeirsson er tólf ára nemandi í Vesturbæjarskóla, sem hafði fylgt litla bróður sínum á leiksýninguna. Valli var til í að prófa flest á sviðinu, og við- urkenndi að hann vildi gjarna verða leikari þegar hann yrði stór. „Það yrði gaman að verða fræg- ur, svo er líka gaman að vera allt- af að leika sér svona í búningum.“ En það getur líka verið erfitt að vera leikari. Leikaranir á Bláa hnettinum voru allir orðnir dauð- þreyttir enda búnir að leika tvær leiksýningar þennan sama dag. Það eina sem bjargaði þeim frá að verða örmagna var að áhorfend- urnir voru svo rosalega skemmti- legir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Glaðbeitt börn á bláum hnetti. Góðir gestir á Bláa hnettinum Allt í plati í leik- húsinu „Ég fékk bókina um Bláa hnöttinn lánaða hjá vin- konu minni,“ sagði Birna Mjöll. Krakkar! Viljiði passa puttana! Ryksugan og Gleðiglaumur þóttu mjög áhugaverð. Valgeir naut virðingar viðstaddra um leið og hann setti upp kórónuna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.