Morgunblaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu VW Passat 1800 Turbo 4
dyra, nýskráður 07.01.2000, ekinn
10.000 km, leðurinnrétting, topp-
lúga, spoiler framan og aftan,
tölvukubbur, 18 tommu álfelgur.
Ásett verð 2.670.000.
SÆSILFUR ehf. hefur nú fengið
úthlutað rekstrarleyfi frá veiði-
málastjóra til sjókvíaeldis á laxi í
Mjóafirði en Hollustuvernd ríkis-
ins gaf út starfsleyfi til handa fyr-
irtækinu í ársbyrjun. Starfsleyfið
gildir til ársins 2007 og miðast við
átta þúsund tonna framleiðslu að
hámarki á hverju ári. Stefnt er að
því að stöðin nái fullum afköstum
árið 2005.
Guðmundur Valur Stefánsson,
framkvæmdastjóri Sæsilfurs, segir
að nú verði hafist handa í vor við
uppbyggingu sjókvíaeldisins í
Mjóafirði. Um 250.000 seyði verða
þá sett í nokkrar kvíar og er ætl-
unin að fá reynslu af því hvernig
þessum seyðum reiðir af fyrsta ár-
ið. Seiðin koma frá Stofnfiski og
eru af kynbættum eldisstofni af
norskun uppruna. Að sögn Guð-
mundar er reiknað með að slátrun
hefjist seinni hluta næsta árs og
slátrað verði síðan flesta virka
daga eftir árið 2003.
40 ársverk
við vinnsluna
Til að byrja með fylgja eldinu
ekki mörg störf en þegar fram-
leiðslan nær átta þúsund tonnum á
ári má reikna með 6–8 ársverkum
við sjálft fiskeldið og um 40 árs-
verkum við vinnsluna, auk starfa
sem til verða við þjónustu í kring-
um laxeldisstöðina. Vinnslan mun
fara fram í Síldarvinnslunni í Nes-
kaupstað, en auk Síldarvinnslunn-
ar eru Samherji, Hraðfrystihús
Þórshafnar og ýmsir einkaaðilar
eigendur Sæsilfurs. Guðmundur
segir að kostnaður við uppbygg-
ingu eldisstöðvarinnar nemi um
einum og hálfum milljarði króna.
Nokkuð hefur borið á gagnrýn-
isröddum vegna leyfisveitinga til
sjókvíaeldis í fjörðum á Íslandi.
Auk rekstrarleyfis til handa Sæ-
silfri í Mjófirði hefur veiðimála-
stjóri jafnframt gefið út rekstr-
arleyfi til handa Salar Islandica til
sjókvíaeldis á laxi í Berufirði og
verður sú stöð svipuð í sniðum og
eldisstöð Sæsilfurs. Guðmundur
segir að öll umræðan um hættuna
sem geti stafað af sjókvíaeldi á laxi
hafi hjálpað mikið til og gert að
verkum að stjórnvöld hafi víða
leitað fanga við öflun upplýsinga
og áliti sérfræðinga.
„Við sjáum í raun ekki neina
hættu af slíku eldi fyrir laxveiðiár
landsins. Það er búið að gera
ákveðið skipulag sem er ákaflega
skynsamlegt miðað við t.d. í ná-
grannalöndunum þar sem menn
óðu af stað án þess að vera með
heildarskipulag gagnvart umhverf-
inu. Nú er búið að taka út svæðin
þar sem náttúrulegi laxinn er og
þar verður ekki fiskeldi. Síðan eru
svæði þar sem ekki eru náttúru-
legar laxveiðiár og þar má leyfa
fiskeldi og Austfirðirnir eru
kannski þar númer eitt.“
Að sögn Guðmundar eru vanda-
málin fyrst og fremst til staðar þar
sem laxveiðár renna í firðina þar
sem sjókvíaeldi fer fram. Þá væri
langstærsta vandamálið, laxalúsin,
frekar bundin við hlýjan sjó eins
og við Suður-Noreg og Skotland.
„En þegar komið er í kaldari sjó
eins og við Tromsö, Finnmörku og
Ísland er laxalús ekki vandamál og
allra síst þar sem ekki eru lax-
veiðiár á sama svæði.“
Óðinn Sigþórsson, formaður
Sambands veiðifélaga, segir ljóst
að innan veiðifélaganna hafi menn
miklar áhyggjur af sjókvíaeldi á
laxi. Í fyrsta lagi hafi menn verið
andsnúnir því að norski laxastofn-
inn yrði settur í eldi í sjó og í öðru
lagi hefðu menn áhyggjur af því
hve stórar þessar eldiskvíar væru í
sniðum. Að sögn Óðins hafa menn
miklar áhyggjur af heilbrigðismál-
um og laxalús, sem sé viðvarandi
vandamál alls staðar þar sem eldi
fer fram af slíkri stærðargráðu.
„Síðan eru það þessir strokufiskar,
sá möguleiki að það sleppi fiskur
og hann fari upp í árnar og spilli
bæði hrygningu og fiskinum sem
fer í árnar og hann blandist okkar
stofnum.“
Búnaðarþing hvetur til
aðgátar við laxeldi í sjó
Þá segir Óðinn að heyrst hafi
áhyggjuraddir bæði hjá veiðileyfa-
sölum og veiðimönnum erlendis
frá sem þekki það frá sínum
heimalöndum að laxeldi hafi haft
slæm áhrif á laxveiði í ám. „Síðan
er það líka þannig að framtíðin
mun skera úr um hvort þetta kem-
ur til með að hafa viðvarandi áhrif
eða áhrifin af þessu fiskeldi verði í
þá áttina að veiðin hjá okkur
minnki. Þá verður af þessu gríð-
arlegt tjón fyrir okkur, það fer
ekkert á milli mála.“
Á nýafstöðnu Búnaðarþingi var
samþykkt bókun þar sem hvatt er
til þess að farið verði með fyllstu
gát í áformum um kvíaeldi á
norskættuðum kynbættum laxi við
strendur landsins.
„Þingið telur að öll slík áform
skuli fara í mat á umhverfisáhrif-
um ef ársframleiðsla þeirra er
meiri en 200 tonn, sbr. viðauka 2 í
lögum um umhverfismat. Ef eldi
verður leyft verði þess gætt í hví-
vetna að það valdi ekki skaða á ís-
lenskum laxa- og silungastofnum.
Gera þarf forrannsóknir og setja
ströng og skýr lagaákvæði um eld-
ið sem fylgt verði eftir með virku
eftirliti. Einnig telur þingið nauð-
synlegt að banna laxeldi á þeim
stöðum sem telja má sérlega við-
kvæma gegn þessari starfsemi.“
Veiðimálastjóri veitir Sæsilfri rekstrarleyfi fyrir kvíaeldi á laxi í Mjóafirði
Reiknað með 8 þúsund
tonna framleiðslu árið 2005
Veiðifélög hafa áhyggjur af áhrifum
sjókvíaeldis á náttúrulega laxastofna
Hægt að
opna allt
svæðið ef
snjóaði í
sólarhring
STEFNT er að því að hafa stóla-
lyftuna í Kóngsgili í Bláfjöllum
opna almenningi í dag, þriðjudag.
Snjóleysi í Bláfjöllum býður ekki
upp á meiri þjónustu að svo
stöddu og segir Grétar Þórisson,
rekstrarstjóri Bláfjalla, að að-
stæðurnar á skíðasvæðinu henti
einungis vönu skíðafólki.
Byrjendur verða að bíða
Byrjenda- eða diskalyftur eru
því miður enn lokaðar vegna snjó-
leysis
Það sem af er vetri hefur verið
opið í um tíu daga í Bláfjöllum og
hefur aðsókn þessa fáu daga verið
viðunandi, að sögn Grétars.
„Brettakrakkarnir okkar eru
langduglegastir,“ segir hann.
Vilja suðaustanátt með
almennilegri snjókomu!
Sá snjór sem hefur safnast fyrir
í Bláfjöllum í vetur er mjög
traustur þótt í litlu magni sé og er
ólíklegt að skíðafólk verði svipt
honum, a.m.k. á miðju skíða-
tímabili. Ljóst er að ekki þurfi
mikið til svo hægt verði að bjóða
upp á fulla þjónustu við skíðafólk
í Bláfjöllum.
„Við þurfum góða suðaustanátt
sem gæfi okkur almennilega snjó-
komu. Þær suðaustanáttir sem
komið hafa í vetur hafa einkum
fært okkur rigningu. Ef snjóaði í
einn sólarhring gætum við opnað
allt svæðið meira eða minna. Það
er því góður möguleiki á því að
það verði hægt að komast á skíði
um páskana.“
Mikið er hringt í Bláfjöll og
spurst fyrir um aðstæður og segir
Grétar marga óþreyjufulla að
komast á skíði – og bretti. Enn
verði þó að bíða eftir suðaust-
anátt með snjókomu í stað rign-
ingar.
Ekki er unnt að gangsetja margar lyftur á meðan verulegan snjó vantar í brekkurnar.
Morgunblaðið/Þorkell
Þótt snjór sé í lágmarki í Bláfjöllum virðist ánægjan í hámarki meðal
þeirra sem gera sér lítið að góðu.
Bláfjöll
LÖGREGLAN í Reykjavík
stöðvaði á föstudagskvöld
sýninguna „Íslenskt lamba-
kjöt“.
Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu fór sýningin
þannig fram að litskyggnum
af nöktum eða lítið klæddum
stúlkum á aldrinum 9-10 ára
var varpað á glugga húss í
Þingholtunum. Sýningin hafði
verið auglýst með veggspjöld-
um í miðborginni.
Lögreglan lagði jafnframt
hald á 30-40 litskyggnur. Sá
aðili sem stóð fyrir sýning-
unni hefur verið kærður fyrir
að brjóta gegn ákvæðum laga
um blygðunarsemi.
Lögreglan
stöðvar
sýningu
LÖGREGLAN í Kópavogi hafði í
gær afskipti af tveimur mönnum
sem grunaðir eru um akstur undir
áhrifum fíkniefna eða lyfja.
Sá fyrri var stöðvaður um kl. 5 í
gærmorgun eftir að hann hafði ekið
utan í og upp á umferðareyju. Lög-
reglumönnum þótti ástæða til að
gruna manninn um að vera undir
áhrifum fíkniefna. Fíkniefni fundust
þó hvorki í fötum mannsins né í bíl.
Um kl. 10.30 kom lögreglan að bif-
reið sem ekið hafði verið utan í sorp-
tunnur við Digranesveg. Ökumaður-
inn var meðvitundarlaus í bílnum en
hann er grunaður um að hafa verið
undir áhrifum fíkniefna eða róandi
lyfja. Tæki til fíkniefnaneyslu fund-
ust við leit í bíl hans.
Á sunnudag fékk lögreglan til-
kynningu um undarlegt aksturslag
bifreiðar. Hún stöðvaði bílinn stuttu
síðar en ökumaður hans, karlmaður
á níræðisaldri, er grunaður um ölv-
un. Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni var hann verulega ölvaður.
Frá föstudegi þar til síðdegis í gær
stöðvaði lögreglan í Kópavogi 43
ökumenn fyrir of hraðan akstur.
Lögreglan í Hafnarfirði stöðvaði
27 ökumenn vegna hraðaksturs frá
laugardagsmorgni til mánudags-
morguns. Lögreglan lagði ennfrem-
ur hald á 5 grömm sem fundust við
leit í bifreið í Lækjargötu aðfaranótt
sunnudags. Fjórir ungir menn sem
voru í bílnum voru færðir til yfir-
heyrslu á lögreglustöð. Þeim var
sleppt um morguninn eftir yfir-
heyrslur. Málið telst upplýst.
Grunur um
akstur
undir áhrif-
um fíkniefna