Morgunblaðið - 13.03.2001, Page 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
JÓN Ólafsson, bóndi í
Eystra-Geldingaholti í
Gnúpverjahreppi, lést
sl. fimmtudag á hjarta-
deild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss, rúm-
lega áttræður að aldri.
Jón fæddist í Eystra-
Geldingaholti 15. októ-
ber 1920. Foreldrar
hans voru Ólafur Jóns-
son og Pálína Guð-
mundsdóttir. Jón
kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni,
Margréti Eiríksdóttur,
árið 1950 og hófu þau
búskap í Eystra-Geldingaholti sama
ár.
Jón og Margrét eignuðust fimm
börn, þau Eirík, Ólaf, Árdísi, Sig-
rúnu og Sigþrúði.
Jón vann alla tíð ötullega að
félagsstörfum fyrir sveitina sína og
að landbúnaðarmálum
og sat m.a. á Búnaðar-
þingi. Einnig sinnti
hann ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. Eitt
helsta hugsjónamál
Jóns var verndun
Þjórsárvera og vann
hann að þeim málum
allt fram í andlátið.
Hann var sæmdur
hinni íslensku fálka-
orðu 1993.
Jón í Eystra-Geld-
ingaholti var fréttarit-
ari Morgunblaðsins um
áratugaskeið. Að leiðarlokum þakk-
ar Morgunblaðið störf Jóns og send-
ir ástvinum hans samúðarkveðjur.
Útför Jóns fer fram frá Skálholts-
kirkju á laugardaginn kemur, 17.
mars, og verður hann jarðsettur á
Stóra-Núpi.
Andlát
JÓN ÓLAFSSON
MAGNÚS Jón Árna-
son, fyrrverandi bæjar-
stjóri í Hafnarfirði, lést
í Hafnarfirði 11. mars
s.l. á 54. aldursári.
Magnús fæddist á
Akureyri þann 30. nóv-
ember 1947 og voru
foreldrar hans Árni
Magnússon, plötu- og
eldsmiður og Inga
Halldóra Jónsdóttir
húsmóðir.
Magnús lauk prófi
frá Flensborgarskólan-
um í Hafnarfirði árið
1964 og kennaraprófi
þremur árum seinna. Frá þeim tíma
gegndi hann kennarastörfum, lengst
af í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði þar
sem hann var yfirkennari þar til í
fyrra. Síðasta árið var hann í náms-
leyfi í Bandaríkjunum en varð frá að
hverfa um jólin vegna veikinda.
Magnús gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir kennarasamtökin og
var meðal annars í stjórn Kennara-
félags Reykjaness og í
fulltrúaráði og samn-
inganefnd Kennara-
félags Íslands. Þá
gegndi hann fjölmörg-
um störfum fyrir skáta-
hreyfinguna.
Magnús tók virkan
þátt í sveitarstjórnar-
málum fyrir Alþýðu-
bandalagið í Hafnar-
firði. Hann var
bæjarfulltrúi í Hafnar-
firði frá 1986 – 1998 og
var bæjarstjóri 1994
–1995. Hann tók virkan
þátt í undirbúningi og
stofnun Samfylkingarinnar og var í
framboði til Alþingis fyrir hana árið
1999.
Eftir Magnús liggja nokkrar
kennslubækur. Einnig ritaði hann
greinar í blöð og tímarit um árabil.
Magnús lætur eftir sig dóttur.
Eftirlifandi eiginkona hans er Jó-
hanna Axelsdóttir en hún á tvo syni
af fyrra hjónabandi.
MAGNÚS
JÓN ÁRNASON
LAUNANEFND sveitarfélaga
skrifaði undir nýjan kjarasamning
við 13 félög starfsmanna hjá sveitar-
félögum aðfaranótt sunnudags. Hins
vegar ákváðu 6 félög að draga sig úr
viðræðunum og hafna undirskrift
samninga en þessi 19 félög hafa haft
með sér samstarf í kjaraviðræðum
undanfarin 13 ár. Ágreiningur um
ákvæði símenntunar og röðun í
launaflokka varð þess valdandi að
félögin sex drógu sig út úr viðræðun-
um.
Í fréttatilkynningu frá launanefnd
sveitarfélaga segir að launahækkanir
í samningnum séu í samræmi við al-
menna kjarasamninga sem gerðir
hafi verið undanfarið á vinnumarkaði
og mikil áhersla hafi verið lögð á sí-
og endurmenntun í samningnum.
Auk þess er fyrirhugað að taka upp
nýtt starfsmatskerfi við árslok 2002
en samningurinn gildir til 31. mars
2005. Þegar upp úr viðræðunum
slitnaði aðfaranótt sunnudags stofn-
uðu 13 félög samstarfsvettvang undir
heitinu Kjarni og gengu frá samningi
á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs frá
launanefnd. Þetta eru starfsmanna-
félögin á Akureyri, Dalvík, Húsavík,
Ólafsfirði, Skagafirði, Fjarðabyggð,
Siglufirði, Borgarbyggð, Dala- og
Snæfellssýslu, Seltjarnarnesi og
félögum opinberra starfsmanna á
Austurlandi, Húnavatnssýslum og
Vestfjörðum. Félögin sex sem höfn-
uðu tilboði launanefndar eru starfs-
mannafélögin í Kópavogi, Hafnar-
firði, Akranesi, Árborg og
Vestamannaeyjum auk Félags opin-
berra starfsmanna á Suðurlandi.
Elín Björg Jónsdóttir, formaður
FOSS og talsmaður þeirra félaga
sem ekki skrifuðu undir, segir að
ágreiningur um símenntunarkafla
samninganna hafi orðið þess valdandi
að félögin gátu ekki fellt sig við tilboð
launefndar. Samkvæmt því hafi verið
ljóst að breytingar milli launaflokka
sem starfsmenn höfðu áunnið sér
samkvæmt eldra kerfinu myndu ekki
nýtast þeim í nýja kerfinu. „Okkur
fannst það óásættanlegt. Við hefðum
viljað sjá að fólkið sem var búið að
ávinna sér launaflokka samkvæmt
eldra kerfinu héldi þeim áfram.
Ágreiningurinn snerist bara um
það.“
Félögin tóku ákvörðun hvert
fyrir sig um samþykki
Að sögn Elínar er meginmunurinn
á félögunum sá að þau eru misjafn-
lega uppbyggð og misjafnt hversu
stórir hópar í hverju félagi hafi verið
að nýta endurmenntunarákvæði í
samningum. „Það eru mjög mörg góð
atriði í þessum kjarasamningi sem
var verið að lenda en þetta atriði var
óásættanlegt hjá okkur gagnvart
okkar félagsmönnum. Hvers vegna
þessi félög standa fastar á þessum
þætti en önnur verður síðan hver og
einn að meta fyrir sig,“ sagði Elín.
A. Jakobína Björnsdóttir, formað-
ur Starfsmannafélags Akureyrar-
bæjar, segir að félögin hafi tekið
ákvörðun um það hvert fyrir sig að
hafna eða skrifa undir eftir að hafa
hvert í sínu lagi skoðað tilboðið sem
lá fyrir frá launanefnd sveitarfélaga.
„Þannig hefur það alltaf verið í
Samflotinu að hvert félag fyrir sig
hefur ákveðið hvort það ætlar að
skrifa undir eða ekki og þetta hafa
verið félagslegar ákvarðanir hverju
sinni. Samflotið er til enn þá, það á
eftir að semja við ríkið og mun halda
sinn aðalfund á Ísafirði í maí.“
Félögin eru nú að kynna samning-
inn hvert og eitt sínum félagsmönn-
um og sagðist Jakobína ekki vilja tjá
sig efnislega um innihald samnings-
ins á þessu stigi. Hún segist meta það
svo að tilviljun hafi ráðið því hvaða
félög skrifuðu undir og hvaða félög
drógu sig úr viðræðunum.
Samflot starfsmannafélaga hjá sveitarfélögum klofnaði
Þrettán skrifuðu undir
en sex slitu viðræðum
NÝ B757-200 þota Flugleiða, sem
kom til landsins í gær, fékk nafnið
Guðríður Þorbjarnardóttir við at-
höfn á Keflavíkurflugvelli síðdeg-
is. Er þetta tíunda 757 þota félags-
ins af þessari gerð, níu eru notaðar
í farþegafluginu og ein í fraktflugi.
Flugvélin ber skrásetningarstaf-
ina TF-FIV og var henni flogið
beint frá Seattle í gær. Flugstjóri
var Hallgrímur Jónsson. Guðný
Hansdóttir, yfirflugfreyja og
fulltrúi starfsmanna, gaf þotunni
nafn Guðríðar en nýjar þotur Flug-
leiða bera nú nöfn landnámsmanna
og landkönnuða. Nýja B757-200
þotan er af sömu gerð og sú sem
Flugleiðir fengu afhenta í apríl á
síðasta ári og ber hún 189 farþega.
Ný þota af þessari gerð kostar nú
um 4,5 milljarða króna.
Tenglar fyrir fartölvur
Þotan er með þeirri nýjung að á
viðskiptamannafarrými eru raf-
magnstenglar í öllum sætum fyrir
fartölvur. Þá er í vélinni sérstakt
upplýsingakerfi þar sem farþegar
geta séð á skjám hvernig fluginu
vindur fram, flugleiðina, áætlaðan
flugtíma til áfangastaðar, hraða
þotunnar og flughæð.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, og Guðný Hansdóttir yfirflugfreyja sem gaf vélinni nafn.
Hlaut nafn-
ið Guðríður
Þorbjarn-
ardóttir
Ný Boeing 757-200 þota bættist í flugflota Flugleiða í gær
ÞRÍTUGUR maður var dæmd-
ur í fimm mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir kynferð-
isbrot gegn tvítugri stúlku í
Héraðsdómi Vestfjarða í gær.
Dómurinn taldi að leggja
yrði framburð kæranda til
grundvallar og taldi með hon-
um sannað að ákærði hefði að
morgni 28. nóvember 1999 farið
inn í gestaherbergi í íbúð sinni
á Ísafirði, þar sem kærandi svaf
á dýnu á gólfi ásamt öðrum
manni, sem hafði sofnað þar
mjög ölvaður, og káfað á og sett
fingur inn í kynfæri stúlkunn-
ar. Hann var talinn hafa not-
fært sér það að ákærandi gat
ekki spornað við verknaðinum
sökum ölvunar og svefndrunga.
Í dóminum, sem Erlingur
Sigtryggsson dómstjóri kvað
upp, segir að ákærði hefði ekki
verið stöðugur í sínum fram-
burði en framburður kæranda
hefði verið stöðugur og skýr.
Ákærði var dæmdur til að
sæta fangelsi í fimm mánuði en
fullnustu refsingarinnar verður
frestað og hún látin falla niður
að liðnum þremur árum frá
uppsögu dómsins haldi ákærði
almennt skilorð. Þá var ákærði
dæmdur til að greiða stúlkunni
200 þúsund kr. með dráttar-
vöxtum og allan sakarkostnað.
Fimm mán-
aða fangelsi
fyrir kyn-
ferðisbrot