Morgunblaðið - 13.03.2001, Síða 10

Morgunblaðið - 13.03.2001, Síða 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ 87. fundur. Dagskrá Alþingis þriðjudaginn 13. mars 2001 hefst kl. 13:30. 1. Almannatryggingar, atkvgr. 2. Stofnun hlutafélags um Hitaveitu Suðurnesja, atkvgr. 3. Stjórn fiskveiða, atkvgr. 4. Rafrænar undirskriftir, 1. umr. 5. Stofnun hlutafélaga um Lands- banka Íslands og Búnaðarbanka Íslands, 1. umr. 6. Eigendur virkra eignarhluta í fjármálafyrirtækjum, 1. umr. 7. Viðskiptabankar og sparisjóðir, 1. umr. GEIR H. Haarde fjármálaráð- herra sagði á Alþingi í gær að nýjar tölur um viðskiptahalla valdi vonbrigðum og menn hafi gert sér vonir um betri niður- stöðu. Varaði hann þó við að of dökk mynd væri dregin upp af ástandinu. Fjármálaráðherra lét þessi ummæli falla við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylkingarinnar, sem benti á að nýjar tölur sýndu viðskiptahalla upp á 69 milljarða kr. en það nálgaðist 10% af landsframleiðslu og ljóst væri að efnahagsstefna stjórnvalda hefði brugðist. Spurði hann ráðherra hvort hinn mikli halli væri þess valdandi að vextir fengjust ekki lækkaðir. Geir H. Haarde sagði mikil- vægt að menn gerðu sér grein fyrir eðli viðskiptahallans og hversu ólíkur hann væri því sem gerst hefði á árum áður þegar ríkissjóður hefði verið rekinn með halla. Nefndi hann þrjár ástæður fyrir verri stöðu nú, hækkun olíuverðs, aukinn innflutning landsmanna og hærri vaxtagreiðslur til útlanda vegna gengisbreytinga. Viðskiptahallinn hamlar vaxtalækkun „Þessi viðskiptahalli er ekki með ríkisábyrgð eins og var hér lengst af á árum áður. Hann er vissulega vandamál en ég vara við því að menn geri meira úr honum en ástæða er til,“ sagði Geir. Hann bætti við að viðskipta- hallinn, eins og hann er nú, hamli því að hægt sé að lækka vexti en sagðist sannfærður um að Seðlabankinn muni beita sér í þeim efnum við fyrsta mögu- lega tækifæri. Þessar tölur greiði hins vegar ekki fyrir því. Össur henti svar ráðherrans á lofti og sagði að yfirlýsing hans væri ákaflega mikilvæg. „Í fyrsta skipti gerist það að einn af fulltrúum ríkisstjórnar- innar viðurkennir að viðskipta- hallinn er verulegt vandamál og hann hamlar því að hægt sé að lækka vexti. Og nýju tölurn- ar hjálpi ekki upp á sakirnar. Staðan er einfaldlega þannig að ríkisstjórninni hefur mistekist við stjórn efnahagsmála,“ sagði Össur. Fjármálaráðherra hafnaði því alfarið að efnahagsstefna stjórnvalda hafi brugðist og sagði merkilegt að Össur Skarphéðinsson gæti ekkert annað bent á en viðskiptahall- ann þegar hann væri að þrá- stagast um efnahagsmálin. Lagði hann áherslu á að fyrir- tækin og einstaklingar í land- inu hefðu ákveðið þá stærð sem viðskiptahallinn væri og engin ástæða væri til að bregðast sér- staklega við nú. Geir H. Haarde fjármálaráðherra Viðskipta- hallinn vonbrigði JÓHANNA vakti í ræðu sinni at- hygli á verulegri aukningu á yfir- dráttarlánum sem bera háa vexti. Velti hún því fyrir sér hvort vanskil hjá heimilum og fyrirtækjum gætu verið falin í mikilli aukningu þessara yfirdráttarlána. Þá nefndi hún aukna greiðsluerfiðleika ungs fólks, aukn- ingu á árangurslausu fjárnámi, tvö- földun umsókna til Íbúðalánasjóðs um greiðsluerfiðleikalán; og spurði forsætisráðherra hvort ekki væri nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að lækka skuldabyrði heimila og fyr- irtækja og ef svo væri, þá hverra. „Hefur skuldsetning heimilanna ekki verið jafnmikil í að minnsta kosti tvo áratugi,“ sagði Jóhanna og sagði að í það stefndi að 500 fjöl- skyldur misstu heimili sín á árinu. „Eru þetta ekki hættumerki sem ber að taka alvarlega og má líka ætla að vanskil heimila geti verið falin í mik- illi aukningu yfirdráttarlána?“ spurði Jóhanna og bendi orðum sínum til forsætisráðherra. Sagði hún engan undrast að heimilin og fyrirtækin í landinu hrópuðu í sameiningu á vaxtalækkun og velti því upp hvort Seðlabankinn og ríkisvaldið ætluðu áfram að láta fyrirtækin og heimilin „engjast í spennitreyju hávaxta- stefnunnar,“ eins og hún orðaði það og bætti síðan við: „Sú þróun á fjár- málamarkaðnum sem við höfum ver- ið að ganga í gegnum er satt að segja óþægilega lík þeirri fjármálakreppu sem varð fyrir um áratug á hinum Norðurlöndunum.“ Vanskil í sögulegu lágmarki Davíð Oddsson forsætisráðherra svaraði því til að þótt einhverjir ein- staklingar kynnu að hafa vanmetið greiðslugetu sína við lántökur væri ekki að sjá að mikill misbrestur hefði orðið því svo virtist sem vanskil í lán- astofnunum hefðu verið í sögulegu lágmarki að undanförnu og það ætti jafnt við um einstaklinga og fyrir- tæki. Þá sagðist hann ekki óttast að fjármálakreppa væri í nánd; hann teldi engar líkur á því. Davíð sagði að neyslan hefði á und- anförnum misserum vaxið örar en tekjur, sem þýddi að almenningur hefði ákveðið að taka aukin lán og verja með þeim hætti þeim tekjum strax sem hann ætti eftir að afla í framtíðinni. Hann sagði að nú gæfust fjölbreyttari kostir í lánafyrir- greiðslu sem og sparnaði. Því væri ekki rétt að einblína á ákveðna fyr- irgreiðslu, eins og yfirdráttarlán, og kjörin á þeim. Horfa þyrfti á mynd- ina í heild. Fyrirtæki og einstakling- ar hefðu í hendi sér hvernig þau fjár- mögnuðu fjárfestingar og væru vakandi fyrir nýjungum og sam- keppni á fjármagnsmarkaði. Þá sagði Davíð að tölur um inn- flutning bentu til þess að fólk væri að draga úr útgjöldum. Ofþenslan sem einkennt hefði þjóðarbúið hefði náð hámarki árið 2000 og verðbólgan náð hámarki í apríl það ár. Hann sagði að því ætti sér nú stað aðlögun að breyttum tímum. „Fólk veit vel hvað það er að gera og óþarfi er að láta eins og fólk kunni ekki fótum sínum forráð,“ sagði Dav- íð ennfremur. Ögmundur Jónasson, Vinstri grænum, sagði hins vegar margt benda til þess að vanskil væru að aukast samfara markvissri útlána- aukningu ár frá ári. Sakaði hann for- sætisráðherra um að tala af ótrúlegu óraunsæi um þessi mál, vonandi væri hér ekki um ábyrgðarleysi að ræða. „Erlendar skuldir þjóðarinnar hafa aldrei verið meiri og stefna í 800 milljarða,“ sagði hann ennfremur og sagði brýnt að fundnar yrðu leiðir til að komast út úr þessum vanda. Páll Pétursson félagsmálaráð- herra sagði að skuldir hefðu yfirleitt haldist í hendur við innstæður í líf- eyrissjóðum. Hann sagði að vanskil hjá Íbúðalánasjóði hefðu verið 0,3% af heildarlánum þann 1. janúar í ár en voru 1% á árunum 1994 til 1997. Þá sagði hann að fjöldi nauðungar- uppboða á vegum sjóðsins hefði náð sögulegu lágmarki árið 1999 eða 299 en verið 628 árið 1995. Þá sagði hann að umsóknir vegna greiðsluerfiðleika hefðu verið 233 talsins árið 2000 en 1.545 árið 1995. Fæstar umsóknir voru 1999 eða 159. Félagsmálaráðherra boðar frumvarp með fleiri úrræðum „Víst eru skuldir heimilanna mikl- ar og það er ástæða til að hafa áhyggjur,“ sagði félagsmálaráðherra og boðaði frumvarp á næstu vikum í því skyni að fjölga úrræðum fyrir þá sem lent hafa í greiðsluerfiðleikum, t.d. vegna húsnæðiskaupa. Össur Skarphéðinsson þingmaður Samfylkingarinnar sagði að ef það væri rétt að neysluaukningin hefði verið stöðvuð og þenslan í rénun teldi hann að aðstæður væru til að lækka vexti. Hann sagði að gera ætti Seðla- bankann sjálfstæðan, láta gengið fljóta og lækka vikmörk þess og þá væri hægt að lækka vexti án þess að það hefði mikil áhrif á gengið. Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðis- flokki, benti á ábyrgð einstaklinga á eigin lántökum. Sagði hann ljóst að almenningur hefði tekið fagnandi auknu framboði á lánsfé eftir hálfrar aldar skort. Benti hann á að eignir fólks væru einnig að hækka í verði og því mætti ekki gleyma og mikilvægt væri að vextir yrðu lækkaðir um leið og merki sæjust um minnkandi þenslu. Steingrímur J. Sigfússon þing- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sagði að hávaxta- stefnan væri vissulega þungt ok á herðum margra launþega. Hins veg- ar væri ekki auðvelt að gagnrýna út- lánaþenslu og gagnrýna jafnframt háa vexti. Hann sagði að þjóðin yrði að vinna sig út úr vandanum með ábyrgð og sagði að þessi vandi ætti rætur að rekja til kerfisbundinna mistaka í hagstjórn sem ríkisstjórnin hefði gert. Áhyggjur af afneitun forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir sagðist í lok umræðunnar hafa áhyggjur af þeirri afneitun sem komið hefði fram í orðum forsætisráðherra: það væri enginn vandi til staðar og allt í lagi. Hún spurði hvort ekki væri tímabært að lækka vexti og benti á að himinhár vaxtakostnaður einstaklinga og fyr- irtækja gæti valdið keðjuverkun: greiðsluþroti og afskriftum lána sem aftur kæmu fjármálastofnunum í koll. Spurði hún Davíð Oddsson hvort hann óttaðist ekki að fjármála- kreppa gæti verið í uppsiglingu. Davíð svaraði að á því teldi hann engar líkur. Hann sagðist hafa talið að stjórnarandstaðan myndi fagna því að vanskil væru í lágmarki og sagði þá stjórnarandstöðuþingmenn sem tekið hefðu til máls, nema helst Steingrím J. Sigfússon, hafa sýnt yf- irgripsmikið þekkingarleysi á því hvernig þættir efnahagsmála tengd- ust saman. Benti hann á að Jóhanna Sigurð- ardóttur hefði bent á sem dæmi um alvöru málsins að nú mætti fá lán með einu símtali. „Samfylkingin hlýtur auðvitað að koma málum í það far sem þau voru í gamla daga þegar ég var að kaupa mér íbúð í fyrsta skipti og þurfti að standa úti í rign- ingunni fyrir utan Landsbankann með öðrum sem voru að biðja þar um lán. Þegar inn var komið var þar 20 manna hópur þannig að maður varð að koma aftur og standa í rigning- unni og fá ekki svar strax heldur eftir hálfan mánuð. Og þá var búið að skera lánsbeiðnina niður um tvo þriðju. Þessu hlýtur Samfylkingin að breyta og koma þessu aftur í sama farið, þessi mikli afturhaldsflokkur,“ sagði hann. Davíð Oddsson forsætisráðherra varð fyrir svörum. Morgunblaðið/Þorkell Jóhanna Sigurðardóttir, málshefjandi umræðunnar. Engar líkur á fjármála- kreppu Davíð Oddsson telur engar líkur á að fjármálakreppa sé í nánd og bendir á að vanskil séu í sögulegu lágmarki hér á landi. Þetta kom fram í umræðu utan dagskrár á Alþingi í gær um skuldsetningu heimilanna og fyrirtækja, en málshefjandinn, Jóhanna Sigurðardóttir, sagði að forsætisráðherra væri í afneitun. Hún vill að þegar verði brugðist við og vextir m.a. lækkaðir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.