Morgunblaðið - 13.03.2001, Page 11

Morgunblaðið - 13.03.2001, Page 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 11 TANTRA LISTIN AÐ ELSKA MEÐVITAÐ Símar 435 6810 GSM 891 6811 Netfang: gulli@hellnar.is Þessi einstaka bók er komin aftur í verslanir. Sl. sunnudag hófst á Skjá 1 röð 10 þátta um þessa fornu list í umsjá Guðjóns Bergmanns, þýðanda bókarinnar. Náðu þér í eintak því bókin er fyrir þá sem vilja tileinka sér þessi einstöku fræði um listina að elska meðvitað. Fæst í öllum helstu bókaverslunum. FRAMKVÆMDIR við suðurhluta norður-suður-flugbrautar Reykja- víkurflugvallar hófust fyrir nokkru. Verður í sumar unnið að endurnýjun brautarinnar að brautarmótunum og síðan haldið áfram við norðurhlutann næsta sumar. Hermann Hermannsson er tæknilegur verkefnastjóri fyrir hönd Flugmálastjórnar og segir hann stefnt að því að ljúka end- urnýjun brautarinnar um mitt næsta sumar eða í júlí-ágúst. Einnig er lögð ný akstursbraut fyrir flugvélar vestan við þennan hluta brautarinnar í stað gam- allar, sem orðin var ónýt. Unnt er að nota nyrðri hluta norður- suður-brautarinnar þrátt fyrir framkvæmdirnar en aðallega er austur-vestur-brautin notuð svo og norðaustur-suðvestur-brautin en hún er talsvert styttri. Fram- kvæmdir hafnar við norður-suð- ur-brautina Morgunblaðið/Jim Smart Framkvæmdir eru nú í fullum gangi við endurnýjun á suðurhluta norður-suður-brautarinnar. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær Ferðaskrifstofuna Príma ehf. til að greiða hjónum til baka staðfestingargjald fyrir ferð sem þau afpöntuðu þar sem talsverð aukagjöld bættust við ferðakostnað eftir að þau greiddu staðfestingar- gjaldið. Í niðurstöðum dómsins segir að ferðaskrifstofan verði að bera hallann af því að hafa ekki gert þeim ótvírætt ljóst hver raunverulegur kostnaður við ferðina væri. Hjónin pöntuðu rúmlega tveggja vikna ferð til Ítalíu með ferðaskrif- stofunni í maí árið 2000 og greiddu þá 60.000 krónur í staðfestingar- gjald. Þá fengu þau yfirlit um eft- irstöðvar. Í byrjun júlí barst þeim bréf frá ferðaskrifstofunni þar sem fram kom að nokkrum kostnaðarliðum hefði verið bætt við upprunalegt verð ferðarinnar sem var 188.400 krónur á manninn. Það sem bættist við voru fimm máltíðir á völdum veitingastöðum, kynnisferðir, óperu- sýning í Veróna og aukagjald fyrir einbýli. Viðbótarkostnaðurinn, 98.000 krónur á mann, hafði ekki komið fram á yfirlitinu sem fólkið fékk við greiðslu staðfestingar- gjaldsins. Hápunktar ferðarinnar Í bréfinu kom eftirfarandi fram varðandi þessa kostnaðarliði: „Ferð- in má teljast samfelld skoðun lands og listar og er það innifalið í grunn- verði ferðar en aðgangseyrir að mörgum merkustu söfnum heimsins kostar sitt og verður að innheimta sérstaklega. [...] Reynslan hefur leitt í ljós, að sameiginlegar máltíðir hópsins eru með mestu hápunktum ferðalagsins sem enginn vill missa af [...] Ekki er hægt að kaupa einstak- ar ferðir né máltíðir úr þessum pakka og reynslan er sú, að enginn vill missa af neinu sem til boða stendur. Fullri greiðslu á ferða- kostnaði skal lokið eigi síðar en 12. júlí nk. að meðtöldum aukagjöld- um.“ Fyrir dómi sagðist eiginmaðurinn þá hafa haft samband við starfs- mann ferðaskrifstofunnar og spurt hvort nauðsynlegt væri að greiða þessi gjöld og fengið þau svör að svo væri. Nokkrum dögum síðar afpant- aði hann ferðina. Fólkinu ekki skylt að taka þátt í þessum liðum ferðarinnar Ferðaskrifstofan hélt því fram að í verðskrá hefði komið skýrt fram hvað væri innifalið í grunnverði ferðarinnar og þar væru hvorki málsverðir né aðgangur að söfnum og óperum innifaldir. Ferðaskrif- stofan taldi því að hjónin hefðu ekki réttmæta ástæðu til að hafa ætlað að þessir liðir væru innifaldir og geti því ekki borið það fyrir sig að for- sendur fyrir ferðinni hafi brostið. Þá hafi fólkinu ekki verið skylt að taka þátt í þessum liðum ferðarinnar. Ferðaskrifstofan lagði fram verðskrá þar sem grunnverð ferð- arinnar er tilgreint. Enn fremur koma aukagjöldin þar fram. Í ferðabæklingi ferðaskrifstof- unnar er verð hins vegar ekki til- greint en fólk hvatt til að leita sér nánari upplýsinga um kostnað í verðskrá. Héraðsdómur taldi ekki sannað að fólkinu hefði verið afhent þessi verðskrá við pöntun. Ferðaskrifstofan Príma var því dæmd að greiða hjónunum staðfest- ingargjaldið til baka með vöxtum og 70.000 kr. í málskostnað. Arngrímur Ísberg héraðsdómari kvað upp dóminn. Kostnaðarliðir bættust við eft- ir ferðapöntun Ferðaskrifstofa dæmd til að endurgreiða staðfestingargjald ÍSLENSKA útvarpsfélagið hf., sem m.a. rekur Stöð 2, hefur sagt upp tæplega 10 manns vegna hagræðingar í rekstri félagsins og breytinga á starf- semi fréttastofa þess á Akureyri og Egilsstöðum. Við breyting- arnar voru sameinaðar nokkrar deildir innan Norðurljósa hf., m.a. fjármála- og bókhaldsdeild- ir Skífunnar og ÍÚ. Segir Hreggviður Jónsson, fram- kvæmdastjóri Íslenska útvarps- félagsins, að þetta hafi haft í för með sér fækkun starfa innan félagsins. ÍÚ hefur lagt af starfsemi fréttastofu á Egilsstöðum og verður fréttaritari ráðinn í stað- inn. Sömu sögu er að segja af fréttastofu félagsins á Akureyri, en gengið hefur verið frá þriggja mánaða samningi við Aksjón ehf. um fréttaflutning af Norðurlandi, sem tveir frétta- menn Aksjónar annast. Íslenska útvarpsfélagið Uppsagnir vegna hagræðingar UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ íhugar alvarlega að áfrýja til Hæsta- réttar dómi Héraðsdóms Reykjavík- ur frá því á föstudaginn, sem felldi á úr gildi úrskurð Sivjar Friðleifsdótt- ur umhverfisráðherra þess efnis að stækkun svínabús Stjörnugríss hf. að Melum í Borgarfjarðarsýslu skyldi sæta mati á umhverfisáhrif- um. Að sögn Magnúsar Jóhannessonar ráðuneytisstjóra umhverfisráðu- neytisins kom dómurinn ráðuneyt- inu í opna skjöldu. Hann segir að í honum komi fram ný túlkun á vanhæfiskröfunni í stjórnsýslulög- um. „Við erum að íhuga málið og erum að skoða alvarlega þann kost að áfrýja málinu,“ segir Magnús. „Við höfum ekki komist að niðurstöðu í þeim efnum en það er mat okkar að þessi dómsniðurstaða kalli á breytt vinnubrögð í stjórnkerfinu.“ Í dómi héraðsdóms kom m.a. fram að umhverfisráðherra teldist van- hæfur til að úrskurða í kærumáli því sem Stjörnugrís hf. höfðaði, með því að mæla beinlínis fyrir um afgreiðslu þess á lægra stjórnsýslustigi, hjá heilbrigðisnefnd Vesturlands. Heilbrigðisnefndin fjallar um málið í vikunni Í þessari viku mun heilbrigðis- nefnd Vesturlands fjalla um umsókn Stjörnugríss um stækkun svínabús- ins sem áformað er að hýsi að með- altali 8 þúsund grísi í stað þriggja þúsunda. Forráðamenn Stjörnugríss vildu ekki tjá sig um niðurstöðu dómsins á þessu stigi, þegar rætt var við þá í gær. Dómur í máli Stjörnugríss kom ráðuneytinu í opna skjöldu Íhuga að áfrýja til Hæstaréttar SAMNINGANEFND Starfs- mannafélags ríkisstofnana (SFR) og Samninganefndar ríkisins (SNR) funduðu í gær og sagði Jens Andr- ésson, formaður SFR, að gerð nýs kjarasamnings væri langt komin. Hann sagðist jafnvel búast við því að skrifað yrði undir nýjan samning á næstu dögum. Að sögn Jens gerir SFR m.a. kröfu um upphafshækkun frá 1. janúar á þessu ári, en annars er ver- ið að semja um svipaða hluti og aðrir hafa gert. Félagsmenn SFR eru um 5.000 talsins og koma úr mörgum starfs- greinum og eru með ólíka menntun og bakgrunn. Konur eru í miklum meirihluta eða um 70% félags- manna. Þokast í samkomu- lagsátt hjá SFR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.