Morgunblaðið - 13.03.2001, Síða 12

Morgunblaðið - 13.03.2001, Síða 12
FRÉTTIR 12 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ BÚNAÐARÞINGI 2001 lauk á Hót- el Sögu um helgina þar sem um 40 mál hlutu afgreiðslu. Meðal þeirra ályktana sem samþykktar voru var áskorun á landbúnaðarráðherra og yfirdýralækni að taka einarða af- stöðu gegn innflutningi kjöts og kjötvara frá löndum þar sem alvar- legir búfjársjúkdómar finnast. Þá telur Búnaðarþing nauðsynlegt að endurskoða reglur og efla eftirlit með innflutningi á unnum kjötvör- um. Skorað er á Alþingi að sett verði í lög að allar innfluttar matvörur, sem innihalda dýraafurðir, verði tryggilega merktar upprunalandi og innihaldslýsingu á íslensku, neytendum til glöggvunar. Innflytj- endur beri ábyrgð á að gæði vör- unnar séu í samræmi við innihalds- lýsingu. Á þinginu var einnig samþykkt áskorun á stjórnvöld að stórefla Að- fangaeftirlitið með framlagi á fjár- lögum og gefa þeirri stofnun þá burði sem þarf til að sinna því vörsluhlutverki sem henni er ætlað. Minnt er á ályktun Búnaðarþings 2000 um þetta efni. „Mælt er gegn hækkun eftirlits- gjalda þar sem starfsemi þessarar stofnunar er ekki eingöngu mál bænda heldur stuðlar hún einnig að vernd fyrir neytendur. Hendi það slys að inn í landið berist hættulegir dýrasjúkdómar eða alvarleg meng- andi efni yrði ríkissjóður fyrir veru- legum fjárútlátum og/eða tekju- missi. Beita þarf öllum tiltækum ráðum svo ekki berist smitefni með fóðri til landsins. Einnig er vaxandi innflutningur á ýmsum tegundum áburðar, það skapar hættu á þung- málmamengun sé eftirlit ekki nægi- lega virkt. Ítrekuð er sú krafa að innihaldslýsingar á fóðri, áburði og sáðvöru séu tæmandi, yfirfarnar af Aðfangaeftirliti og aðgengilegar kaupendum,“ segir í ályktuninni. Búnaðarþingið samþykkti einnig að beina því til yfirdýralæknis að settar verði reglur um lágmarks- tíma frá komu manna til landsins þar til farið er í gripahús. Fiskimjölsbann ESB verði ekki framlengt Fiskimjölsbann Evrópusam- bandsins, ESB, var einnig til um- ræðu meðal bændaforystunnar. Samþykkt var að beina því til stjórnvalda að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að koma í veg fyrir að bann ESB á notkun fiskimjöls í jórt- urdýrafóðri verði framlengt. Mótuð verði framtíðarstefna um notkun próteinfóðurs í landbúnaði. Þingið fól stjórn Bændasamtakanna að fylgja málinu fast eftir þar sem miklir hagmunir væri í húfi fyrir ís- lenska bændur. Í greinargerð með þessari álykt- un kom fram að fiskimjölsbannið hefði alvarleg áhrif á samkeppnis- stöðu íslensks landbúnaðar. Vís- indaleg rök fyrir banninu væru afar veik. Fram kom að stjórnvöld þyrftu að hindra óupplýsta umræðu. Búnaðarþing fjallaði um lög um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim Eftirlit verði hert með inn- flutningi á unnum kjötvörum Morgunblaðið/Golli Ari Teitsson, annar frá hægri, var endurkjörinn formaður Bændasamtaka Íslands á Búnaðarþingi, sem lauk um helgina. Ari situr hér við háborðið ásamt stjórnarmönnunum Gunnari Sæmundssyni og Hrafnkatli Karlssyni, sér á hægri hönd, og Jóhannesi H. Ríkharðssyni, þingfulltrúa og ráðunauti. Gunnar hlaut endurkjör í stjórn en Hrafnkell gaf ekki kost á sér áfram. BÚNAÐARÞING samþykkti um helgina ályktun þar sem skorað er á samkeppnisyfirvöld að fylgjast vel með þeim samruna sem á sér stað á smásölustigi matvöruversl- unar og beita sér gegn enn frekari samþjöppun á því sviði. Einnig skorar þingið á viðskiptaráðherra að tekin verði upp vísitala heild- sölu- og framleiðendaverðs, sam- hliða gildandi vísitölu smásöluverðs. Þingið lýsir einnig yfir áhyggjum yfir þróun mála hjá Samkeppnis- stofnun þar sem svo virðist að sam- runi afurðasölufyrirtækja í land- búnaði sé meðhöndlaður með öðrum hætti en samþjöppun á sviði smásöluverslunar. Mótmælt er þeirri skilgreiningu Samkeppnis- stofnunar að bændur eigi að keppa innbyrðis á markaði. Slíkt sé fátítt og vísað er til sérákvæða um land- búnað í samkeppnislögum annarra landa, s.s. í Danmörku og Frakk- landi. Búnaðarþing fól stjórn Bændasamtakanna að fylgjast náið með framkvæmd og túlkun Sam- keppnisstofnunar á lögum þar sem fjallað er um bann við samkeppn- ishömlum. Eina leiðin að svara í sömu mynt Í greinargerð með þessari álykt- un kemur m.a. fram að Samkeppn- isstofnun hafi að undanförnu lagt mikla krafta í að rannsaka afurða- sölufyrirtæki grænmetis vegna hugsanlegra brota á samkeppnis- lögum. Á sama tíma hafi mikil sam- þjöppun átt sér stað í smásölu án athugasemda Samkeppnisstofnun- ar. „Það er eina leið afurðasölufyr- irtækja landbúnaðarins, sem mörg hver eru í eigu bænda, að svara samþjöppun á smásölustigi í sömu mynt. Að öðrum kosti er hætt við að kraftur stærðar smásöluversl- unarinnar knýi framleiðendur til enn meiri og óeðlilegra verðlækk- anna sem leiði til stórkostlegs tjóns fyrir íslenska framleiðslu. Í allri búvöruframleiðslu er uppi hörð hagræðingarkrafa og nokkuð ljóst að aukinn samkeppni við innflutn- ing er framundan. Áhyggjur Bún- aðarþings koma til af því að þegar skoðuð er skipting neytendaverðs milli framleiðenda, afurðasölufyrir- tækja, smásöluverslana og ríkis kemur í ljós að hlutur smásalans hefur í flestum tilfellum verið að vaxa á undanförnum árum. Sú þró- un á sér stað þrátt fyrir að hlut- verk verslunarinnar, þ.e. að af- henda vöruna yfir borðið, hefur lítið breyst. Niðurstaðan hefur verið verðhækkun til neytenda, en minnkandi afrakstur til framleið- enda,“ segir ennfremur í greinar- gerðinni. Búnaðarþing skorar á samkeppnisyfirvöld Beiti sér einnig gegn sam- þjöppun á matvörumarkaði BÚNAÐARÞING hefur samþykkt að beina því til landbúnaðarráð- herra að í verklagsreglum vegna ráðstöfunar á jörðum í eigu ríkisins og greiðslumarki verði nokkur at- riði höfð í huga. Meðal þess er að þeir njóti forgangs að leigu eða kaupum á viðkomandi jörð sem ætla að stunda búskap og/eða hafa þar fasta búsetu. Einnig vill Búnaðarþing að þegar ábúðarhæf jörð losnar úr ábúð sé hún jafnan auglýst til leigu áður en til sölu kemur. Lagt er til að ríkið hagi viðhaldi jarða sinna, sem ekki eru í ábúð, þannig að það samræm- ist verkefninu „Fegurri sveitir“ og að sölu á þessum jörðum verði jafn- framt hraðað. Þá kemur fram í ályktun Bún- aðarþings um sölu ríkisjarða að sveitarstjórnum verði gefinn kostur á að fylgjast með frá upphafi þegar slík eignaráðstöfun fer fram. Loks beinir þingið því til landbúnaðar- ráðherra að leiguliðum á ríkisjörð- um verði gert kleift að eignast jarð- irnar á kaupleigukjörum. Auðveldar nýliðun Í stuttri greinargerð með álykt- uninni segir að reynsla síðustu ára- tuga sýni ótvírætt að jarðnæði í eigu ríkisins hafi til muna auðveld- að nýliðun í íslenskum landbúnaði og stuðlað þannig að því að við- halda lifandi byggð í sveitum lands- ins. Sala ríkisjarða rædd á Búnaðarþingi Jarðir verði aug- lýstar til leigu áður en sala fer fram BÚNAÐARÞING 2001 vekur at- hylgi á og fagnar þeim árangri sem náðst hefur í kynbótum og ræktun korns og leggur áherslu á að stór- auka hana. Jafnframt er skorað á RALA, Rannsóknastofnun landbún- aðarins, að efla rannsóknir og fræðslu um áburðargjöf, yrkjaval, tækni við þreskingu, verkun og tækni við gjafir. Kornrækt á Íslandi hefur tekið miklum framförum á síðasta áratug, að því er segir í greinargerð með ályktuninni. Með markvissu kyn- bótastarfi RALA hefur tekist að fá yrki sem taka erlendum yrkjum fram í ræktunaröryggi. Kornrækt breiðist út „Nú er svo komið að uppskera korns á Íslandi er síst lakari en víða í okkar nágrannalöndum. Korn er hægt að rækta á miklu stærri hluta landsins nú en áður. Í allri fram- leiðslu búvöru skiptir máli að notað sé fyrsta flokks fóður og korn af ís- lenskri jörð er vafalítið liður í að við- halda hreinleikaímynd okkar fram- leiðslu,“ segir í greinargerðinni. Undanfarin ár hefur verið skorið korn af um 1.600 til 1.900 hekturum lands og framleiðslan um 5 til 7 þús- und tonn. Búnaðarþing telur að þessa framleiðslu sé hægt að auka verulega og framleiða miklu stærri hluta þessa fóðurs en nú er gert. Kornrækt verði efld ÁRSSKÝRSLA Framleiðnisjóðs landbúnaðarins fyrir árið 2000 var lögð fram á nýafstöðnu Búnaðarþingi. Þar kemur m.a. fram að í fyrra námu tekjur sjóðsins um 257 milljónum, þar af nam framlag ríkisins 170 milljónum og 45 milljónir komu vegna sérstaks framlags til loðdýraræktar. Framlög úr sjóðnum og samnings- bundnar greiðslur námu um 230 millj- ónum. Tekjur sjóðsins af fóðurtollum námu 42 milljónum. Rekstrarkostn- aður sjóðsins nam tæpum 16 milljón- um og sjóðurinn skilaði afgangi upp á 2,6 milljónir, samanborið við 30 millj- óna hagnað árið 1999. Framleiðnisjóði bárust alls 269 er- indi á síðasta ári. Af þeim voru 65 um- sóknir vegna atvinnueflingar og ný- sköpunar á bújörðum, 204 töldust til almennra umsókna um nýbreytni á sviði landbúnaðar og erinda sem ekki voru umsóknir um fjárstuðning. Á árinu 2000 afgreiddi sjóðurinn 188 er- indi með fyrirheitum um fjárstuðn- ing, nokkru fleiri en árið áður þegar 168 erindi voru afgreidd. Af þessum 188 erindum voru 40 vegna atvinnu- eflingar og nýsköpunar á bújörðum en 148 almenn verkefni. Alls var 45 erindum hafnað og 13 erindi fólu ekki í sér beiðni um fjárstuðning. Í ársskýrslunni kemur einnig fram að könnun var gerð á árangri verk- efna sem hlutu stuðning á árunum 1989–1999. Úrtakið náði til þriggja sýslna; Borgarfjarðarsýslu, S-Þing- eyjarsýslu og V-Skaftafellssýslu. Í ljós kom að 80% verkefnanna komust á legg en 20% ekki. Framleiðnisjóður landbúnaðarins 230 milljónir í framlög árið 2000 ♦ ♦ ♦ BÚNAÐARÞING samþykkti um helgina að tilraunainnflutningi á fósturvísum úr norskum kúm yrði frestað eftir að töku fósturvísanna í Noregi lýkur, en þá verða þeir settir í frysti þar til annað verður ákveðið. Lagt var til að nefnd sú er kúabænd- ur og landbúnaðarráðherra höfðu skipað legði fram áætlun um fram- kvæmd tilraunarinnar sem yrði tilbúin í síðasta lagi fyrir 20. júní næstkomandi. Lagt var til að stjórnir Bænda- samtakanna og Landssambands kúabænda leituðu samráðs um und- irbúning að almennri atkvæða- greiðslu meðal kúabænda. Svari meirihluti í þeirri atkvæðagreiðslu neitandi um innflutninginn verði hætt alfarið við verkefnið. Búnaðar- þing ályktaði að við kynningu fyrir atkvæðagreiðsluna yrði leitast við að sem flest sjónarmið í málinu kæmu fram. Búnaðarþing samþykkir að fresta inn- flutningi fósturvísa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.