Morgunblaðið - 13.03.2001, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.03.2001, Qupperneq 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ SVÍNALYKT veldur Kjal- nesingum miklum óþægind- um og eru dæmi um að börn hafi ælt vegna hennar, bæði í leikskólanum og grunnskól- anum. Alls 67% íbúa á svæð- inu telja lyktina valda mikl- um eða frekar miklum óþægindum og 69,5% telja hana draga úr möguleikum á útivist. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar Heilbrigðiseftirlits Reykja- víkur á umfangi svínalyktar á Kjalarnesi, sem gerð var í lok síðasta árs. Þá gengu starfsmenn Heilbrigðiseftir- litsins í hús þar og könnuðu hug íbúanna til svínabúanna að Brautarholti og Vallá. Af- markaðist könnunarsvæðið af Dalsmynni í aðra áttina og Enni í hina. Ein manneskja var spurð í hverju húsi, oft- ast sú sem kom til dyra. Alls fengust svör í 56 húsum, og voru 33 í hverfinu sjálfu, 12 í nágrenni Brautarholts og 11 í sveitinni í kring. Lyktarmengunin virðist stöðugust við Brautarholt en 50% nágranna svínabúsins þar kváðust verða varir við svínalykt við hús sitt einu sinni í viku eða oftar og 66% þeirra töldu lyktina aukin- heldur hafa aukist í síðustu tveimur árum. Lyktarmeng- un frá svínabúinu Vallá virð- ist þó hafa meiri áhrif á svæðinu í heild. Á meðal athugasemda sem fram komu var t.d. að þvo þyrfti föt og hár gestabarna áður en þeim væri skilað í bæinn og að á verstu dögum geti börnin ekki komið upp til að anda í sundinu og fólk svíði í háls, nef og augu. Eins var nefnt, að erfitt væri að hengja út nýþveginn þvott, því skyndilega gysi lyktin upp og þá væri ekkert annað að gera en taka allt hið nýþvegna inn í hús og þvo aftur. Og ein athuga- semdin var á þá leið, að meira að segja hundurinn hefði veigrað sér við að ganga með eiganda sínum eftir ströndinni einn ólykt- ardaginn. Flestir viðmælenda sögðu þó, að þeir hefðu ekkert á móti því að hafa svínabúin á Kjalarnesi, ef hægt væri að draga úr lyktarmenguninni. Þess má geta, að alls eru 40 svínabú starfandi á Ís- landi; fimm þau stærstu eru í Brautarholti á Kjalarnesi, á Minni-Vatnsleysu, Hraukbæ í Eyjafirði, Vallá á Kjalar- nesi og Hýrumel í Borgar- firði. Þessi bú eru með helm- ing af öllum gyltum á landinu. Tæp 70% íbúa Kjalarness telja svínalykt til óþæginda og draga úr möguleikum á útivist Dæmi eru um að börn hafi ælt vegna ólyktarinnar                     !"    ##$% &$" ' ()    ( *+ # # (#   # , #  -,.   -,    /   0  #  0    1,2 3,42 5,42 6,42 72 132 152 32 42 3,42 6,42 5,42 3,42 82 42 12 12 5,42 ()    ( *+ # # (#   # , #  9  "  :   "  :   #  "   #  "      2 682 62 7,42 132 152 72 1,42 4,2 ,2 63,42 112 72 ()    ( *+ # # (#   # , #  - 0   342 362 82 882 42 152 152 2   11 ;      ##" .  # &# ##  '  7 <  #& # " #     ## 4,2 7,42 132     = . <)  # #>     #    ) ?   Kjalarnes INGIBJÖRG Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri tók á fimmtudaginn fyrstu skóflu- stungur að nýjum viðbygg- ingum tveggja grunnskóla, annars vegar Foldaskóla og hins vegar Selásskóla. Fyrir skömmu var tekin skóflu- stunga að nýrri viðbygg- ingu Álftamýrarskóla og 7. mars að nýrri viðbyggingu Hólabrekkuskóla. Er þetta allt liður í átaki til að ljúka einsetningu grunnskóla í borginni, eins og áður hef- ur komið fram. Foldaskóli Viðbygging við Folda- skóla verður 1.200 m2 að flatarmáli og mun tengjast kjallara eldri bygginga að suðvestanverðu og fellur inn í landið að hálfu. Einnig verða leiksvæði þar stækk- uð og gert ráð fyrir að þeim verði komið fyrir á þaki viðbyggingarinnar og framan við hana. Í viðbygg- ingunni verður mynd- menntastofa, sérdeild, fjöl- notastofa, tvær raungreina- stofur og leikfimisalur ásamt tilheyrandi búnings- klefum og baðaðstöðu. Áætlað er að útboð vegna byggingarinnar fari fram vorið 2001 og að kennsla þar hefjist haustið 2002. Auk framkvæmda við við- bygginguna er einnig áformað að vinna við breyt- ingar í eldri hluta skólans. Áætlaður kostnaður við hina nýju viðbyggingu er 220 milljónir króna og við breytingar á eldra húsnæði 20 milljónir króna. Arki- tektar að þessum fram- kvæmdum eru ARKÍS ehf og Hallur Kristvinsson ehf, Klapparstíg 16 í Reykjavík, og Landslag ehf, Þingholts- stræti 27 í Reykjavík. Selásskóli Viðbygging Selásskóla verður 1.519m2 að flat- armáli, steinsteypt og á tveimur hæðum. Húsið verður byggt við norðurhlið 1. áfanga núverandi skóla- húss. Fyrirkomulag innan- húss tekur mið af meiri opnun rýma en algengt er. Í viðbyggingunni verða fimm stórar heimastofur opnar fram á gang og þrjár hefðbundnar heimastofur, tölvuver, bókasafn, stór sameiginleg vinnuaðstaða kennara og fjögur minni herbergi þar sem aðstaða verður fyrir tvo til þrjá kennara, ásamt salernum, geymslum og lyftu. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist nú í vor og verði lokið í lok sumars árið 2002 og verður Selásskóli þar með einsetinn. Einnig er fyrirhugað að breyta nokk- uð innra skipulagi núver- andi skólahúss í tengslum við einsetningu skólans. Áætlaður kostnaður við við- bygginguna er 250 milljónir króna og við breytingar á eldra húsnæði 40 milljónir króna. Arkitektar eru Teiknistofan ehf, Ármúla 6 í Reykjavík. Skóflustunga tekin við Foldaskóla og Selásskóla Morgunblaðið/Þorkell Og ekki var gleðin minni við Selásskóla. Borgar- stjóri með börnunum. Morgunblaðið/Jim Smart Það var hálfgerð þjóðhátíðarstemmning hjá börnum og starfsfólki við Foldaskóla á fimmtudag, þegar fyrsta skóflustungan að nýrri viðbyggingu var tekin. Grafarvogur/Selás FLOSI Eiríksson, bæjar- fulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir hugmynd um bryggjuhverfi við Kársnes alla athygli verða. Margrét Björnsdóttir, nefndarmaður í skipulagsnefnd og frumkvöð- ull hugmyndarinnar um bryggjuhverfi á Kársnesi, segir að með landfyllingunni verði bætt úr tilfinnanlegu aðstöðuleysi um 300 félags- manna í Siglingaklúbbnum Ými í Kópavogi. Flosi Eiríksson sagðist ekki hafa skoðað hugmyndina nákvæmlega en við fyrstu sýn þætti sér gert ráð fyrir mikilli byggð en miðað er við 350-400 íbúðir, sem Flosi seg- ir að þýði 1.000-1.500 manna byggð. Menn eigi eftir að leysa hvernig eigi að þjónusta þá byggð hvað varðar um- ferð, skóla og leikskóla. Hann sagði að Kópavogur væri varla búinn að ná því stigi að þjónusta skóla og leikskóla í bænum gæti talist viðunandi fyrir þá byggð sem fyrir er. Hins vegar væri hann sammála því að þetta svæði yrði tekið og skipulagt og byggt upp sem íbúða- byggð. Aðstaða stendur starfi klúbbsins fyrir þrifum Margrét Björnsdóttir á sæti í skipulagsnefnd bæjar- ins og er einn af stofnfélögum siglingaklúbbsins Ýmis og hefur verið virk í starfi klúbbsins. Hún sagðist hafa fundið tilfinnanlega fyrir að- stöðuleysi félagsmanna, ekki síst barna og unglinga. Að- staðan á hafnarsvæðinu standi starfinu fyrir þrifum, ekki síst börnum og ungling- um sem vilji stunda æfingar og keppni. „Mér fannst þurfa að gera eitthvað hratt og örugglega,“ Flosi Eiríksson segir bryggjuhverfi við Kársnes allrar athygli vert Bætt úr tilfinnanlegu að- stöðuleysi siglingamanna Kópavogur sagði Margrét. Hún setti sig í samband við BYGG sl. haust – sama fyrirtæki og stóð að bryggjuhverfinu við Grafar- vog og sækja nú um bryggju- hverfi við Arnarnesvog – og vakti athygli á mögu- leikanum. Afleiðingarnar voru þær að tillagan er nú komin til umfjöllunar í bæj- arkerfinu. „Þessi hugmynd losar bæj- arfélagið undan miklum fjár- útlátum. Aðstaða fyrir sigl- ingaklúbbinn myndi kosta að minnsta kosti 60 m.kr. og þetta var vænlegasta leiðin. Bærinn lætur lóðina en verk- takarnir byggja höfn og að- stöðu til starfsins í staðinn. Þannig gengur þetta fljótar fyrir sig og er hagstæðara fyrir bæjarfélagið,“ sagði Margrét. Hún sagði að áhugi á sigl- ingum væri vaxandi og nú væru um 300 manns sem stunduðu þeta sport innan Ýmis á ári. Nokkuð er um að fjölskyldur sameinist um sigl- ingarnar, að sögn Margrétar, og eru þær hentug fjöl- skylduíþrótt. ÞESSA dagana stendur yfir í Tjarnarsal Ráðhúss Reykja- víkur kynningarvika í tengslum við atkvæðagreiðslu um framtíð Vatnsmýrarsvæð- isins og flugvallarins. Er kynningarvikan liður í því að greiða aðgang borgarbúa að upplýsingum áður en gengið verður til atkvæða um framtíð svæðisins og vallarins. Settir hafa verið upp sýningarbásar þar sem hagsmunasamtök og áhugaaðilar kynna áherslur sínar og framtíðarsýn, auk þess sem fjórir opnir fundir eru haldnir í Tjarnarsalnum. Yfirlitssýning Af þessu tilefni hefur Reykjavíkurborg einnig sett upp yfirlitssýningu þar sem með kortum og öðru myndefni er gefin innsýn í þau mál sem kjósa á um. M.a. er varpað ljósi á sögu skipulags á Vatns- mýrarsvæðinu og í borginni í heild. Auk þess eru kynntar hugmyndir og tillögur um svæðisskipulag fyrir allt höf- uðborgarsvæðið og endur- skoðun á aðalskipulagi borg- arinnar. Þau hagsmunasamtök og áhugahópar sem þátt taka í kynningarvikunni eru, auk Reykjavíkurborgar, alls sjö talsins: Betri byggð, Hollvinir flugvallarins, Flugfélag Ís- lands, 102 Reykjavík, Áhuga- hópur stúdenta um flugvallar- málið, Umhverfis- og bygg- ingaverkfræðiskor Háskóla Íslands og Flugmálastjórn. Tveimur opnu kynningar- fundanna er lokið en hinir verða í dag og á morgun. Rafræn kosning Atkvæðagreiðsla utan kjör- fundar stendur til 17. mars. Annars er nú í fyrsta sinn kos- ið með rafrænum hætti, á tölvu, og er kjörskráin mið- læg, þannig að kjósandi getur kosið á hvaða kjörstað sem er. Kosningin krefst ekki sér- stakrar tölvukunnáttu hjá kjósendum. Sérstakur búnað- ur verður fyrir fatlaða og verð- ur sérbúin kosningatölva fyrir blinda og sjónskerta í Ráðhús- inu. Þeir sem ekki velja að kjósa á tölvu geta nýtt sér at- kvæðagreiðslu utan kjörfund- ar. Einnig er þeim sem ekki komast á kjörstað 17. mars bent á að nýta sér kosninga- réttinn með þessum hætti. Kynningarvikunni lýkur á morgun. Reykjavík Sjón er sögu ríkari Flugvallar- málið kynnt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.