Morgunblaðið - 13.03.2001, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 13.03.2001, Qupperneq 20
NEYTENDUR 20 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ TILKYNNT nálastunguóhöpp eru í kringum 200 á ári hjá Landspítala – háskólasjúkrahúsi að sögn Ásu St. Atladóttur sýkingavarnahjúkrunar- fræðings. Tíðnin er svipuð frá ári til árs. Stundum segir hún hafa verið um alvarleg óhöpp að ræða og því er mikilvægt að leita hjálpar á spítölum en viðbrögðin felast þá í blóðprufum og hugsanlegum lyfjagjöfum. Flestir þeirra sem verða fyrir nálastungu- óhöppum eru starfsfólk á spítölum og þá aðallega hjúkrunarfræðingar. Nálastunguóhöpp barna eru fátíð og því til staðfestingar segir Ása að ein- ungis eitt slíkt hafi verið tilkynnt á síðasta ári. Fíkniefnaneytendur sem sprauta sig í æð fleygja stundum nálum og sprautum frá sér á víðavangi. Af og til, sérstaklega á þessum árstíma, koma upp tilfelli þar sem börn finna slíkar nálar. Þrátt fyrir að hættan á að barn smitist af alnæmisveiru eða öðrum blóðsmitandi veirum þegar það stingur sig á slíkri nál sé ákaf- lega lítil eru til margar fyrirbyggj- andi aðferðir sem foreldrar og for- ráðamenn ættu að hafa í huga. Árvekni og Landlæknisembættið standa fyrir sérstöku þemaverkefni barna í ár og yfirskrift marsmánaðar er m.a. nálastunguóhöpp. „Landlæknisembættið sendi dreifibréf til heilsugæslustöðva og skólaskrifstofa árið 1999 til varnar gegnnálastunguóhöppum en dreifi- bréfið getur fólk nú skoðað á heima- síðu Heilsugæslunnar í Reykjavík, www.hr.is.,“ segir Herdís Storgaard, framkvæmdastjóri Árvekni, átaks- verkefnis um slysavarnir barna og unglinga. „Í dreifibréfinu sem Har- aldur Briem sóttvarnalæknir gerði er meðal annars að finna fyrirbyggj- andi aðgerðir nálastunguóhappa, bestu aðferðina við að farga nála- sprautum og svar við því hvað skuli gera ef stunguóhapp verður.“ Herdís segir að börn eigi aldrei að leika sér berfætt úti og að brýna eigi fyrir þeim að taka aldrei upp nál eða sprautu sem þau finna á víðavangi. Hvað varðar bestu aðferðina við að farga nálasprautum, segir hún að mikilvægt sé að verða sér úti um plastílát sem er hart þannig að sprautunálar geti ekki rofið það. Mikilvægt er einnig að hafa sam- band við Sorpu um endanlega förgun efnisins. „Ef stunguóhapp á sér stað segir í dreifibréfi Landlæknisembættisins að mikilvægt sé að fjarlæga nálina úr húð barnsins og þrýsta hæfilega á sárið til að fá það til að blæða. Þvo skal svæðið með volgu sápuvatni og setja sótthreinsandi efni og plástur á það. Þá skal fara með barnið til læknis eða á bráðavakt spítala til að fá ráðgjöf,“ segir Herdís. Nálastunguóhöpp barna fátíð Morgunblaðið/ Helgi Jónsson Af og til, sérstaklega á þessum árstíma, koma upp tilfelli þar sem börn finna sprautur á víðavangi. Í SÍÐUSTU viku var fjallað um á neytendasíðu að til stæði að flytja frumvarp í Danmörku um bann við notkun efnisins amalgams í tannfyll- ingar barna og þungaðra kvenna. Þar í landi og í Svíþjóð hefur bar- áttan gegn notkun amalgams aukist jafnt og þétt. Inga B. Árnadóttir, tannlæknir og lektor við tannlæknadeild Háskólans segist ekki vita til þess að til standi að setja fram frumvarp um bann við notkun amalgams hér á landi enda segir hún hættuna fyrst og síðast fel- ast í því hve efnið sé skaðlegt um- hverfinu þegar það er brennt. „Amalgam er besta fyllingarefnið í jaxla í dag miðað við kostnað og á meðan ekkert annað efni kemur á markað sem jafnast á við það að gæðum höldum við áfram að nota það. Ef amalgam væri eins hættu- legt og ýmsir í Svíþjóð og Danmörku vilja meina þá ættu margir Íslend- ingar að vera misþroska vegna þessa og skaddaðir því að tannskemmdar- tíðni var mjög mikil hjá okkur fyrir tuttugu til þrjátíu árum. Svo er hins vegar ekki. Amalgam var einmitt að- alfyllingarefnið þá. Einu hömlurnar á þessu efni er lit- ur þess, en hann er svartur og ljótur, og margir kjósa því frekar tannlit- aðar fyllingar sem eru hvítar en þær eru bara ekki nógu sterkar fyrir jaxla og í þeim finnast einnig skaðleg efnasambönd.“ Amalgam skaðlegt umhverfinu „Amalgam er silfrið sem notað er í tannfyllingar en það samanstendur af málmi og kvikasilfri. Viss hætta er þegar kvikasilfrið er blautt vegna uppgufunar þess, en um leið og það er harðnað, sem tekur einungis stutta stund á tannlæknastofu, verð- ur nánast engin uppgufun,“ segir Inga og bætir við að vegna þessa ætti starfsfólk tannlæknastofa að vera í mestri hættu. Að sögn hennar hefur heilsufarssaga tannlækna- stéttarinnar verið mæld í erlendum rannsóknum og borin saman við aðr- ar stéttir sem umgangast ekki kvika- silfur og tannlæknastéttin hefur síð- ur en svo komið verr út. Það sem Danir og Svíar eru eink- um hræddir við að sögn Ingu er að þar eru öll lík brennd og ef munnur fullur af silfurfyllingum er brenndur myndast kvikasilfursgufa og af því stafar ákveðin umhverfishætta. „Ég er sammála því að við eigum að reyna að vernda umhverfið eins og við getum, en hér á Íslandi eru lík al- mennt ekki brennd heldur jörðuð og ég hef hvergi heyrt að amalgam leys- ist upp í jarðvegi.“ Stendur ekki til að banna amalgam Í DAG mun Hagkaup.is bjóða allri landsbyggðinni að gera inn- kaupin í matvöruverslun Hag- kaups á Netinu. Að sögn Þórs Curtis framkvæmdastjóra hjá Hagkaup.is stóð ekki til að fara strax af stað með þessa þjón- ustu. Hins vegar segir hann að margar fyrirspurnir hafi borist frá fólki um allt land og í kjölfar- ið hafi verið tekin ákvörðun um að flýta þessari þjónustu. „Í fyrstu munum við bjóða upp á sendingar á vissum dögum á hvern stað fyrir sig, t.d. miðviku- daga- og fimmtudaga á Austur- land o.s.frv. Við erum í samstarfi við flutningafyrirtæki sem er með kælibíla til að koma líka kældum og frystum vörum á leiðarenda.“ Hagkaup á Netinu Fólk á lands- byggðinni get- ur nú keypt matvöru BARNAFATNAÐUR Inni/útigallar, kápur. Þumalína, s. 551 2136 GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS mbl.is Professionails naglaskólinn • Alþjóðlegur naglaskóli sem útskrifar nagla- fræðinga með diplóma sem gildir í 20 löndum. • Nýir nemendur teknir inn á hverjum laugardegi. Sveigjanlegur kennslutími — einstaklingskennsla. Upplýsingar í síma 588 8300. Sigrún Helga Guðmundsdóttir Tísku- og ljósmyndaförðun. Naglafræðingur frá Professionails naglaskólanum Umsögn: Hef notið frábærrar leið- sagnar í naglaskóla Professionails. Kennararnir eru tiltækir hvenær sem er til að leysa úr hverju sem upp kem- ur þegar maður er byrjaður að vinna. Rek núna eigið fyrirtæki, Garðasól í Garðabæ, og hef nóg að gera við naglaásetningar og förðun. Mæli eindregið með Professionails naglaskólanum fyrir þær sem vilja fá alvöru diplóma sem gildir í 20 löndum. FörðunarskóliNO NAME Berglind Ósk Guðmundsdóttir Ég lauk 12 vikna námi í Förðunar- skóla No Name í apríl 2000. Mér finnst þetta nám vera mjög skemmti- legt og gagnlegt og það hefur nýst mér mjög vel. Auk þess buðust mér mörg skemmtileg verkefni eftir að ég lauk námi, t.d. Ford, Ungfrú Ísland.is, tískusýningar og myndatökur. Í dag er ég í háskólanámi og vinn við farðanir í hlutastarfi, bæði á snyrtistofu og sjálfstætt. Það er mjög hentugt þar sem vinnutíminn er sveigjanlegur, ég er að vinna við það sem mér finnst skemmtilegt og það tók mig aðeins örfáa mánuði að vinna fyrir skólagjöldunum. Ég mæli al- veg hiklaust með námi í Förðunarskóla No Name. * Útskrifar förðunarfræðinga. * Tísku- og ljósmyndaförðun 6-12 vikur. * Kvikmynda- og leikhúsförðun 13 vikur. * Sumarskóli byrjar 21. maí. Haustskóli 10. sept. Upplýsingar í síma 588 6525. Til sölu er jörðin Skálmholt, Villingaholtshreppi. Um ræðir 230 ha jörð, skammt vestan við Þjórsárbrúar, þjóðveg nr. 1. Leigutekjur eru af sumarhúsalóðum sem leigðar eru frá jörðinni og möguleiki á að fjölga þeim. Ræktað land er um 60 ha. Hús þarfnast viðgerðar. Frábær staðsetning, um 45 mín. akstur frá Rvík. Jörð með margskonar möguleika, t.d til hrossaræktar og ferðaþjónustu. Nánari upplýsingar á skrifstofu, sími 482 2988. Útivistar og ferðaþjónustujörð til sölu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.