Morgunblaðið - 13.03.2001, Side 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 25
RÉTTARHÖLDIN í spilling-
armáli Rolands Dumas, fyrr-
verandi utanríkisráðherra
Frakklands, hófust að nýju í
gær og búist var við að Alfred
Sirven, einn sakborninganna,
myndi veita nýjar upplýsingar
um málið.
Vitnisburði Sirvens var
frestað um klukkustund eftir
að lögfræðingar hans héldu því
fram að hann hefði verið leidd-
ur fyrir rétt með ólöglegum
hætti. Þeir sögðu að franski
dómstóllinn gæti ekki dæmt
Sirven þar sem hann hefði búið
í Sviss þegar hann er sagður
hafa skipulagt ólöglegar
greiðslur úr leynilegum sjóði
risaolíufyrirtækisins Elf. Sirv-
en, sem var handtekinn á Fil-
ippseyjum 2. febrúar, hefur
einnig haldið því fram að hann
hafi ekki fengið nægan tíma til
að búa sig undir réttarhöldin.
Sirven á að bera vitni um
hvers vegna hann réð hjákonu
Dumas, Christine Deviers-
Joncour, þegar hann var að-
stoðarforstjóri olíufyrirtækis-
ins. Talið er að vitnisburður
hans geti reynst mjög skaðleg-
ur fyrir Dumas, Deviers-Jonc-
our og fjóra aðra sakborninga
sem eru sakaðir um að hafa
misnotað sjóði Elf.
Fékk nóg
af reynslu-
leysi Pútíns
FYRRVERANDI njósnari
sovésku leyniþjónustunnar
KGB hefur skýrt frá því í fyrsta
sinn hvernig það var að starfa
undir stjórn Vladímírs Pútíns
þegar hann skipulagði njósnir
KGB í Austur-Þýskalandi um
miðjan níunda áratug síðustu
aldar. Njósnarinn fyrrverandi
kveðst hafa orðið svo reiður
vegna reynsluleysis Pútíns að
hann hefði næstum sagt skilið
við leyniþjónustuna.
„Njósnari M“, fyrrverandi
rannsóknarlögreglumaður í
Austur-Þýskalandi, kvaðst hafa
verið á mála hjá KGB í tíu ár
þegar hann hefði hitt Pútín í
fyrsta sinn í íbúð í Dresden.
„Pútín var nýliði og verið var að
setja hann í starfið. Hann hafði
augljóslega litla reynslu. Þetta
var fyrsta verkefni hans er-
lendis,“ sagði „M“, sem nýtur
nafnleyndar.
„M“ kvaðst hafa orðið bálreiður
skömmu síðar þegar Pútín
hefði ekki mætt á fund sem
hafði verið undirbúinn með
mikilli fyrirhöfn. „Það að
gleyma slíkum fundi er mjög al-
varlegt glappaskot og getur
kostað njósnarann lífið. Ég
sagði Pútín að ég myndi hætta
störfum fyrir KGB strax ef
hann bætti ekki ráð sitt.“
Stjórnarand-
stæðingar
handteknir
ÍRÖNSK öryggissveit handtók
um 40 stjórnarandstæðinga á
sunnudagskvöld, nokkrum
klukkustundum eftir að
Mohammad Khatami Íransfor-
seti hvatti til aukins lýðræðis
og málfrelsis í landinu. Stjórn-
arandstæðingarnir voru á fundi
á heimili Mohammads Bast-
ehnegars, er tengist Írönsku
frelsishreyfingunni, þegar ör-
yggissveitin réðst inn í húsið til
að handtaka þá.
STUTT
Sirven
ber vitni
YOSHIRO Mori, forsætisráðherra
Japans, neitaði því í gær að hann
hefði tilkynnt á fundi með fimm
öldruðum
frammámönnum í
flokki sínum á
laugardag að
hann hefði í
hyggju að segja
af sér.
Mori skýrði
fundarmönnun-
um frá því að
hann hygðist
flýta leiðtogakjöri
Frjálslynda lýðræðisflokksins sem
átti að fara fram í september. Jap-
anskir fjölmiðlar töldu að með þess-
ari ákvörðun hefði hann í reynd lýst
því yfir að hann hygðist segja af sér.
„Hvorki ég né frammámennirnir
fimm skildu þessa yfirlýsingu sem
svo að ég hygðist segja af mér. Ég
hef alls ekki í hyggju að lýsa slíkum
áformum yfir,“ sagði Mori á fundi
með fjárlaganefnd efri deildar
þingsins í gær. „Fjölmiðlarnir hafa
alltaf sagt að leynilegt samkomulag
hafi náðst um afsögn mína og þeir
gátu ekki breytt því. Þeir urðu því
að segja að þetta væri í raun afsagn-
aryfirlýsing.“
Mori er einn óvinsælasti forsætis-
ráðherrann í sögu Japans og nýtur
aðeins stuðnings tæpra 10% kjós-
enda. Margir flokksbræðra hans
vilja að hann láti af embætti þar sem
þeir óttast að flokkurinn bíði annars
ósigur í kosningum til efri deildar
þingsins í júlí.
Margir fjölmiðlanna sögðu að
frammámennirnir í flokknum hefðu
náð málamiðlunarsamkomulagi á
bak við tjöldin um að Mori héldi
embættinu í nokkrar vikur og segði
af sér í apríl. Takeshi Noda, fram-
kvæmdastjóri minnsta stjórnar-
flokksins, Nýja íhaldsflokksins, ýj-
aði að því á sunnudag að Mori yrði
ekki í embætti í lok júlí.
Talið er að Mori vilji halda emb-
ættinu að minnsta kosti til 5. apríl
þegar ár verður liðið frá því að hann
tók við því. Málamiðlunarsamkomu-
lagið gerir honum kleift að fara til
Washington á mánudaginn kemur til
að ræða við George W. Bush Banda-
ríkjaforseta og síðan á fund Vladím-
írs Pútíns Rússlandsforseta í borg-
inni Irkutsk í Síberíu 25. mars.
Getur ekki sagt af sér strax
Hiroshi Kawahara, prófessor í
stjórnmálafræði við Waseda-há-
skóla, sagði að Mori gæti ekki sagt
af sér fyrr en þingið afgreiddi frum-
varp stjórnarinnar til fjárlaga þessa
árs en búist er við að það verði sam-
þykkt síðar í mánuðinum. „Enn-
fremur er ráðgert að forsætisráð-
herrann ræði við Bush og Pútín og
segi hann af sér nú getur ekki orðið
af fundunum með þessum mikil-
vægu leiðtogum,“ bætti Kawahara
við.
Susumu Takahashi, prófessor í
stjórnmálafræði við Tókýó-háskóla,
sagði að Mori gæti ekki sagt af sér
strax þar sem ekki hefði náðst sam-
komulag um hver tæki við af honum.
Leiðtogar hinna stjórnarflokk-
anna tveggja, Nýja Kemeito-flokks-
ins og Nýja íhaldsflokksins, vilja að
Hiromu Nonaka, 75 ára fyrrverandi
framkvæmdastjóri Frjálslynda lýð-
ræðisflokksins, verði næsti forsætis-
ráðherra. Nonaka sagði hins vegar í
gær að hann hygðist „alls ekki“ gefa
kost á sér í leiðtogakjörinu.
Junichiro Koizumi, helsti banda-
maður Moris og fyrrverandi heil-
brigðisráðherra, hefur verið nefndur
sem hugsanlegur eftirmaður hans.
Ryutaro Hashimoto, fyrrverandi
forsætisráðherra, Takeo Hiranuma
viðskiptaráðherra og Taro Aso efna-
hagsmálaráðherra eru einnig taldir
koma til greina í embættið.
Tillaga boðuð um vítur
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar
gagnrýndu baktjaldamakk forystu-
manna Frjálslynda lýðræðisflokks-
ins og sögðust ætla að bera fram til-
lögu um vítur á forsætisráðherrann
á þinginu. Mori þarf ekki að segja af
sér verði slík tillaga samþykkt.
„Ef þú tilkynntir afsögn þína eins
og maður væri þessari pólitísku
ringulreið lokið,“ sagði Giichi Tsun-
oda, einn þingmanna Lýðræðis-
flokks Japans.
Mori neitar því
að hann hyggist
segja af sér
Tókýó. Reuters, AFP, AP.
Yoshiro
Mori