Morgunblaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 27 HARÐUR heimur kynlífs, eitur- lyfja og rokks og róls á hömlulitlum og ævintýrlegum tímum við upphaf áttunda áratugarins er séður með augum 15 ára stráks í nýjustu mynd Camerons Crowe (Jerry Maguire). Strákguttinn nefnist William (Pat- rick Fugit), og er hann byggður á lífsreynslu leikstjórans og handrits- höfundarins. William er nánast of- virkur unglingur sem er heillum horfinn í popptónlistarheiminn í óþökk móður sinnar (Frances McDormand). Hún óttast nýfengið frelsi ungdómsins, eiturlyfjaneyslu þess, virðingarleysi og annað sem því fylgir. William, sem er farinn að skrifa rokktónlistargagnrýni í stað- arblöð, lætur orð hennar sem vind um eyrun þjóta. Hvattur af Lester Bangs (Philip Seymour Hoffman), kunnum gagnrýnanda og fyrirmynd stráksa, tekur hann boði tónlistar- blaðsins Rolling Stone um að skrifa grein um Stillwater, upprennandi rokkband á hljómleikaferðalagi um Bandaríkin. Það sem við tekur eru villtir tímar í hnotskurn. Hljómsveitarmeðlim- irnir smábæjarstrákar, sem eru á þrepskildinum, „næstum frægir“, sem nægir til að fylla rútuna þeirra, hótelherbergi og lífið á vegum úti, „on the road“, af grúppíum, dópi, tónlist, trylltum partíum. Heimurinn að kollvarpast, gömul gildi fótum troðin, önnur ný í fæðingu. Ekkert skrýtið við það að mamman hafi áhyggjur af drengnum sínum og sé linnulaust að lesa yfir honum þegar hann man eftir símanum. Það er þó ástæðulítið því William, eða „Óvin- urinn“, einsog hljómsveitarmeðlim- irnir kalla hann, er manna skýrastur í kollinum og sér miskunnarlausa at- burðarásina úr vissri fjarlægð. Verð- ur þó bálskotinn í hinni kornungu Penny Lane (Kate Hudson), einni af hjásvæfum rokkaranna. Hún er hinsvegar ástfangin af Russell (Billy Crudup), gítarleikara Stillwater. Til að gera hlutina enn snúnari er Russ- ell sá sem tekur William uppá arma sína. Þau Penny Lane eru leiðarljós Williams í kófinu, ásamt Bangs, sem jafnan er tilbúinn að hjálpa. Crowe þykir að vonum vænt um þessa dýrðartíma, myndin er opin og hreinskilin einsog aðalpersónan William. Slá í gegn er ótrúlega trú- verðug upplifun þar sem saman fer oft safaríkur texti og afburðaleikur og leikaraval. Til að fylla útí ramm- ann er hljóðrásin full af óviðjafnan- legri tónlist snillinga tímabilsins. Allt frá því að Simon og Garfunkel upplýsa William um að hann eigi að fara og upplifa Bandaríkin í perlunni America, heyrum við af og til í Led Zeppelin, Rod Stewart, Cat Stevens, Elton John, Neil Young og þeim höfðingjum öllum. Sjálfsagt höfum við, sem upplifð- um þessi tímamót, mest gaman af Slá í gegn. Hún höfðar þó til flestra því undir niðri, á bak við sukksamt yfirborðið, er gamla, góða þroska- sagan, að vísu í óvenjulegum bún- ingi. Full af eftirminnilegum atrið- um, bæði bráðfyndnum og tregafullum. Crowe tekst best upp við að skapa sláandi augnablik sem rísa uppúr heildinni. Merkileg tilvilj- un að eitt best gerða atriðið, þegar flugvél hljómsveitarinnar er nánast farin með manni og mús, minnir ótrúlega mikið á einn besta kaflann í Villuljósi. Lengst af er maður í nota- legri sæluvímu, enda tónlistin, til- svörin og framvindan óþvinguð og sannfærandi, endursköpun tímanna óaðfinnanleg. Andrúmsloftið eitt- hvað svo hrífandi ósvikið. Það hallar ekki undan fæti fyrr en í blálokin, þegar settur er á svið dúnmjúkur lokakafli, Hollywood happ-í-endinn. Of vemmilegur til að vera sannur. Sem fyrr segir er leikhópurinn skotheldur. Það er erfitt að túlka jafn ótrúlega persónu og hið fimm- tán vetra undrabarn, en Fugit kemst furðu vel frá sínu. Hljómsveitin, með Crudup og Jason Lee (Chasing Amy), í fararbroddi, virkar fullkom- lega ósvikin og Kate Hudson túlkar Penny Lane eins vel og kostur er. Frances McDormand og Philip Seymour Hoffman eru bæði framúr- skarandi að venju. Crowe er alltaf að bæta sig. STJÖRNUBÍÓ K v i k m y n d i r Leikstjóri og handritshöfundur Cameron Crowe. Tónskáld Mary Wilson. Kvikmyndatökustjóri John Toll. Aðalleikendur Patrick Fugit, Kate Hudson, Billy Crudup, Frances McDormand, Philip Seymour Hoffman, Anna Paquin, Jason Lee, Zooey Deschanel. Sýn- ingartími 120 mín. Bandarísk. DreamWorks. Árgerð 2000. SLÁ Í GEGN – ALMOST FAMOUS  Á villtum vegum úti Sæbjörn Valdimarsson „Slá í gegn er ótrúlega trúverðug upplifun þar sem saman fer oft safa- ríkur texti og afburðaleikur og leikaraval.“ HIN sífellda leit áhugaleikfélaga að heppilegum viðfangsefnum hefur að undanförnu leitt nokkur þeirra á vit kvikmyndanna. Þegar svo er komið var auðvitað bara tímaspurs- mál hvenær við fengjum að sjá sviðs- uppfærslu á þeirri ágætu ræmu All- ens, Bullets over Broadway. Sögusviðið er leikhúsheimurinn, nánar tiltekið leikhúsgatan fræga í New York, og tíminn er um 1920. Ungur og metnaðargjarn höfundur fær hátimbraðan harmleik sinn ekki fjármagnaðan nema af mafíunni og með þeim afarkostum að hæfileika- snauð fylgismey mafíuforingjans fái hlutverk. Helsta viðfangsefni verksins er hins vegar hæfileikar og verðleikar, og hvað getur gerst þegar þetta tvennt fer ekki saman. Þar teflir All- en saman leikskáldinu David Shayne sem hefur meiri metnað en hæfi- leika, og morðingjanum Checch sem reynist búa yfir snilligáfu sem fær útrás við að lagfæra leikritið, milli þess sem hann sinnir skyldustörfum sínum fyrir mafíuna. Bullets over Broadway er að mínu viti ein albesta mynd Allens. Djúp, aðgengileg og al- veg morðfyndin. Freyvangsleikhúsið er eitt öflug- asta og vandvirkasta áhugaleikfélag á Íslandi og bera vinnubrögð þeirra við þessa sýningu þess merki, allt frá þeirri natni sem hefur verið lögð í glæsilega búninga og umgjörð yfir í nokkuð jafngóðan leik. Burðarhlut- verkum er öllum vel skilað, Stefán Guðlaugsson er flinkur gamanleik- ari, kannski fullvörpulegur maður til að verða trúverðulega rolulegt leik- skáld, en gerir vel. Ragnar E. Ólafs- son virkaði full unglegur sem gór- illan Cheech, en stóð sig samt með prýði. Helga Ágústsdóttir var hár- rétt í hlutverki prímadonnunnar Helen Sinclair og Halldóra Magnús- dóttir réttilega óþolandi sem hin ást- mærin með leikkonudraumana. Þó það sé skiljanleg freisting að sækja sér viðfangsefni í kvikmyndir þá fylgja því ýmis vandkvæði. Hætt er við að leikarar og leikstjóri sæki um of fyrirmynd í myndina í stað þess að einbeita sér að handritinu; textanum og sögunni sem segja á. Sýning Freyvangsleikhússins ber þessa nokkur merki og fyrir vikið náðu sum atriði ekki að lifa til fulls. Annað vandamál er að atriði í kvikmyndum eru oft örstutt og hægt að flytja persónur milli staða á sek- úndubroti. Klippitækni leikhússins er ekki jafn langt komin. Leikstjóra Bófaleiksins tekst satt að segja lygi- lega að halda snerpu í sýningunni, með hjálp hugvitsamlegrar og smekklegrar leikmyndar. Þó eru skiptingar of margar og flæðið stöðvast of oft. Gaman hefði verið að sjá meiri aðlögun handritsins að hin- um nýja miðli. Einnig er möguleiki að minni tryggð við raunsæi hefði hjálpað. Þrátt fyrir þessi tæknilegu vanda- mál eru það að vanda persónurnar og saga þeirra sem fanga hugann í leikhúsinu, og það gerir þetta makalaust skemmtilega ævintýri Allens í Eyjafjarðarsveit svikalaust. Skemmtileg og fáguð sýning sem með smávegis sjálfstæðisbaráttu gagnvart kvikmyndinni hefði orðið enn betri, til þess hafa aðstandendur hennar augljóslega alla burði. LEIKLIST F r e y v a n g s l e i k h ú s i ð Höfundur: Woody Allen. Þýðendur: Ármann Guðmundsson og Hannes Örn Blandon. Leikstjóri: Hákon Waage. Danshöfundur: Jóhann Arnarsson. Leikmynd: Þórarinn Blöndal. Laugardaginn 10. mars 2001. BÓFALEIKUR Á BROADWAY Líf, dauði og list Þorgeir Tryggvason ELLEFU nemar við Listaháskóla Ís- lands opna sýningu í verslun IKEA við Holtagarða í dag, þriðjudag, kl. 16. Þau sem sýna eru Asami Kaburagi, Daníel Karl Björnsson, Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar, Julia Stein- mann, Hrund Jóhannesdóttir, Hug- inn Þór Arason, Rósa Halldórsdóttir, Tinna Guðmundsdóttir, Þórarinn Hugleikur Dagsson, Þórunn Inga Gísladóttir og Þuríður Elfa Jónsdótt- ir. Sýningin er lokahluti fimm vikna verkefnis sem þau hafa verið að vinna með Hlyni Hallssyni myndlistar- manni. „Framsæknir myndlistarmenn sýna hér einlæga list við kunnar fyr- irmyndir landsmanna sem í senn eru heimur tilbúinna heimilisaðstæðna,“ segir Hlynur. „Listamennirnir vinna með ólíka miðla eins og myndbönd, innsetningar, gjörninga, texta, ljós- myndir, málverk, aðstæður, hljóðverk og skúlptúra / nytjahluti. Tekist er á við hið tilbúna heimilislega umhverfi og það sett í nýtt samhengi,“ segir Hlynur. „Myndlistarmennirnir eru með þessari sýningu að gera heiðarlega tilraun til að koma listinni út til fólks- ins. Nokkrum mikilvægum spurning- um verður velt upp eins og: Er sam- særi búsáhalda að stjórna hversdagsleikanum? Eru krítarkort- in að sljóvga vitund okkar? Á flugvöll- urinn að fara? Hvað sjáum við? Stafar nýjungagirni Íslendinga af minni- máttarkennd vegna legu landsins? Er karlmennskan falin í megabætum og hestöflum? Eru til íslenskar gleðikon- ur? Er stéttskipting í þjóðfélaginu? Er myndlist leiðinleg? Hvað er ég að gera hér?“ Á opnuninni verða gegnumgang- andi gjörningar frá 16 til 18.30 og gestir geta tekið þátt í nokkrum verk- um ef þeir vilja eða bara horft á, hlust- að og skoðað. Sýningin er unnin í samvinnu við starfsfólk IKEA og er opin á versl- unartíma kl. 10–18.30. Hún stendur í tvo daga, til fimmtudagsins 15. mars. Búðartaka listnema SAMHLJÓMUR (Reveal: Harm- onize) er yfirskrift alþjóðlegrar grafíksýningar í Macau Museum of Art í Macau. Fimm Íslendingar eru meðal sýnenda, Gunnar Örn, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Margrét Guð- mundsdóttir og Þorgerður Sigurð- ardóttir. Sýnendur eru 128 listamenn frá 28 löndum og ríkjum og er sýning- arstaðurinn nýtt listasafn sem tek- ið var í notkun 1999. Á netinu er hægt að skoða sýn- inguna, sem stendur til 18. mars nk., og kynnast Macau. Slóðin er: www.cityguide.lsm.gov.mo/mg/ mam-c.htm. Fimm Íslend- ingar á alþjóð- legri sýningu ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.