Morgunblaðið - 13.03.2001, Page 41

Morgunblaðið - 13.03.2001, Page 41
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 41 NÚ ER flestum orð- ið ljóst að aðalágrein- ingurinn um stjórn fiskveiða snýst um eignarhaldið á auðlind- inni. Þrátt fyrir stöðug- an áróður stjórnvalda hefur þeim ekki tekist að hagga þjóðinni frá andstöðu sinni gegn því jafngildi einkaeign- arréttar sem núgild- andi skipan er. Sátt í þessu mikla deilumáli getur aldrei orðið nema með því að af- létta einkaréttinum og tryggja sameign þjóð- arinnar á auðlindinni og jafnræði í framtíðinni til að nýta hana. Loforð um þjóðarsátt Í aðdraganda síðustu kosninga voru sjávarútvegsmálin mjög í um- ræðunni. Gagnrýni á gildandi eign- arhaldsfyrirkomulagi var afar há- vær og þeir stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar sem undanfarin ár hafa varið þessa skipan mála, það er þáverandi og núverandi stjórnar- flokkar, áttu undir högg að sækja vegna málsins. Samfylkingin hafði þá mótað sína stefnu í grundvallar- atriðum. Sem er að áfram verði byggt á aflamarkskerfinu en veiði- heimildir verði kallaðar kerfisbundið inn og aðgangur að þeim verði á jafnræðisgrundvelli. Þetta mál var mikilvægasta kosningamál Samfylk- ingarinnar. Frjálslyndi flokkurinn kom inn á sjónarsviðið með það sem aðalgrundvöll að fyrirkoma bæði eignarhaldinu og aflamarkskerfinu sem fiskveiðistjórn. Um vinstri græna vissu menn ekkert í eignar- haldsmálinu og vita ekki enn en þeir vilja hins vegar umfangsmiklar breytingar á stjórnkerfinu. Um tíma virtist stefna í að kosn- ingarnar myndu snúast um þetta mál að það miklu leyti að það gæti laskað stjórnarflokkana verulega. Þeir brugðust við með því að lýsa því yfir að þeir myndu beita sér fyrir þjóðarsátt í þessu máli. Þeir höfðuðu til kjósenda og sögðu að þeim væri einum treystandi til að leiða fram slíka sátt. Þeir bentu mjög á svokall- aða auðlindanefnd sem þá var að störfum og hennar umfjöllun um hvernig farið skuli með nýtingu auð- linda í þjóðareign sem skyldi verða grundvöllur að sáttinni. Leiðirnar tvær og þjóðarsátt við hvern? Niðurstaða auðlindanefndar ligg- ur fyrir og nú er farið að reyna á hvort einhver innistæða hafi verið fyrir yfirlýsingunum um að menn vilji leita sátta. Það er reginmunur á þeim tveimur leiðum sem auðlindanefndin bendir á. Önnur þeirra leysir úr aðalágreiningnum sem er eignarhaldið á auðlindinni og afléttir í framtíðinni séraðstöðu þeirra sem fyrir eru í útgerð en hin leiðin við- heldur ástandinu með auðlindagjaldi sem stjórnvöld ákveða á hverjum tíma. Það er auðvitað hverjum manni ljóst að eigi að leita sátta við þjóðina um málið er fyrningar- leiðin það ráð sem þarf að grípa til. Ef sáttin á hins vegar að vera við LÍÚ er veiðigjaldsleiðin vænlegri. Það hefur verið að koma í ljós að undanförnu hvaða afstöðu stjórn- málaöflin í landinu hafa til þeirra leiða sem auðlindanefnd lagði til. Frumvarp Samfylkingarinnar með útfærðum tillögum hefur legið fyrir frá því í fyrravetur en þar er gert ráð fyrir fyrningarleið sem er í fullu samræmi við tillögur auðlinda- nefndar. Í umræðum um þetta frum- varp Samfylkingarinnar nú í vikunni kom fram að frjálslyndir telji að sátt geti fundist á grundvelli fyrningar- leiðarinnar. Framsóknarmenn, með formann þingflokks Framsóknar- flokksins í fararbroddi, berjast fyrir fyrningarleið innan flokksins. Það mun koma í ljós á flokksþingi þeirra á næstunni hvaða leið verður ofan á. Vinstri grænir tóku ekki þátt í þeirri umræðu en það hefur áður komið fram að þeir vilja skoða lausn á grundvelli fyrningarleiðarinnar. En það hefur hins vegar komið skýrt fram með ýmsum hætti að for- ysta Sjálfstæðisflokksins vill fara veiðigjaldsleiðina. Sjálfstæðisflokk- urinn vill greinilega ná sátt við LÍÚ en ekki þjóðina en margir kjósendur hafa áreiðanlega misskilið þessa stefnu flokksins í aðdraganda kosn- inga. Það undrar marga að sjá að sjálf- stæðismenn sem telja sig helstu tals- menn markaðar og samkeppnis- lausna skuli vilja niðurnjörfuð einkaleyfi og ríkisforsjá í stað frjáls- ræðis og jafnræðis. Þeim sem þetta ritar er þó kunn- ugt um marga sjálfstæðismenn sem eru vægast sagt óhressir með af- stöðu forystunnar í þessu máli. Sú óánægja á örugglega eftir að koma upp á yfirborðið ef ekki verður breyting þar á. Nú reynir á sáttaviljann Það er ekki hægt að spá um það nú hvort einhver niðurstaða næst í þessum málum nú í vetur en sú nið- urstaða, hver sem hún verður, mun ekki skapa sátt nema að hún tryggi í framtíðinni sameign þjóðarinnar á auðlindinni og jafnræði til að nýta hana. Slíkt jafnræði er hægt að tryggja með lausn á grundvelli fyrn- ingarleiðarinnar ef forystumenn stjórnarflokkanna standa við þjóð- arsáttarloforðin. Fyrningarleið- in getur leyst vandann Jóhann Ársælsson Kvótinn Jafnræði er hægt að tryggja, segir Jóhann Ársælsson, með lausn á grundvelli fyrningar- leiðarinnar. Höfundur er alþingismaður og fulltrúi Samfylkingarinnar í sjávarútvegsnefnd Alþingis. NÝTT SÍMANÚMER 511 3000 FAX 511 3001 ÞAÐ hlýtur að vera öllum ljóst, að flugvöll- ur verður að vera í Vatnsmýri, en hann er úr sér floginn og far- lama. Þess vegna hend- um við honum og búum til nýjan. Þeir sem eru þessu andvígir vilja að Tjörnin þorni upp. Þeir vita ekki hvað það verð- ur notalegt að eiga tvo stóra flugvelli með 50 kílómetra millibili, og einn pínulítinn mitt á milli fyrir æfinga- snertilendingakennslu- flug, hvað sem það nú er. Flugvöllur verður að vera í Vatnsmýri af því að spítali er við Hringbraut, og höfuðstöðvar ríkis- spítala verða að vera við Hringbraut af því að flugvöllur er í Vatnsmýri. Þess vegna er líka bráðnauðsynlegt að færa Hringbrautina. Er ekki kjánalegt að vera með beina braut alveg frá sjónum vestast í Vestur- bænum og upp í sveit? Er ekki miklu flottara að láta Hringbrautina hlykkjast svolítið svo að hún verði al- veg við flugbrautarendann þar sem flugvélin fórst hér um árið? Þá fær starfsfólk spítalans fáein bílastæði í viðbót. Þetta kostar að vísu sitt, en hvað með það? Því miður er Land- spítalinn orðinn svo stór, að vinstri höndin veit ekki hvað sú hægri gjör- ir, og eru þó báðar góðar. Það er út í hött, að höfuðstöðvar ríkisspítalans verði framvegis að Vífilsstöðum. Þar er hundgamalt hús og alltof mikið pláss. Starfsfólk og sjúklingar gætu fengið víðáttubrjálæði. Það kemur heldur ekki til greina að búa til flugvöll þarna rétt hjá, landið er svo dýrmætt og landrými allt of mik- ið. Þar eru engin hús til að fljúga yf- ir, og ekki heldur miðbær eða Öskju- hlíð. Þar gætu alls konar flugvélar lent og hafið sig til flugs í allar áttir hvenær sem er sólarhringsins. Þar er alltaf rok, sem sérfræðingar hafa mælt og vegið. Var veðrið þar 4–11% verra en í Vatnsmýrinni fyrir 30 ár- um. Við vitum, að veðrið fyrir sunn- an Hafnarfjörð breytist ekki þótt það hafi breyst annars staðar í heim- inum síðustu misserin. Nýjustu fregnir frá Þýskalandi herma, að hliðarvindur sé 1,5% meiri í hraun- inu en í Vatnsmýrinni, og hallar á hraunið um önnur 1,5% í samanburð- inum vegna minna skyggnis og lægri skýjahæðar, að sögn þýðverskra. Ekki var þess getið hvaðan vindur- inn blæs, frá vinstri eða hægri. Það sem skiptir þó mestu máli er, að það er svo spennandi að hafa flug- völlinn þar sem hann er. Þegar flug- slys verða gerist eitthvað, sem á ekki að geta gerst. Við vit- um, að spurningin er ekki hvort, heldur hve- nær, flugvél hrapar í miðbæinn. Hún gæti þá lent á Alþingi eða Arn- arhvoli, Hæstarétti eða Hafnarhvoli, Seðla- banka eða súlustöðum, leikskóla eða leikhús- um, fuglum eða forseta, styttum eða Stjórnar- ráði, Ráðhúsi eða rík- inu, skólum eða Skatt- stofu, bönkum eða börum, kirkjum eða kaffihúsum. Aðflugs- lína er mitt á milli Ráð- húss og Alþingishúss. Þar eru spennufíklar, sem bjóða hættunni heim. Sssssss, við skulum ekki rifja upp hörmuleg slys og fjöldamörg óhöpp, sem orðið hafa á og við flug- völlinn, og ekki heldur tilvik þegar litlu hefur munað, að stórslys yrðu. Aðrar þjóðir öfunda okkur af því að eiga flugvöll í hjarta höfuðborg- arinnar. Þær eiga bara járnbrautarstöðv- ar, og járnbrautir geta ekki flogið. Það er bagalegt, að flugtak er tak- markað yfir miðbæinn, og furðulegt, að það megi ekki lenda að nóttu til, en þær reglur eru gamlar og úreltar og tími til kominn að leyfa það sem sjálfsagt er. Það er líka hallærislegt, að þotur megi ekki lenda í Reykja- vík. Að vísu veitti Flugmálastjórn Flugmálastjórn undanþágu fyrir þotu sína fyrir nokkrum árum, og fá- einir vinir mega lenda þotum sínum við Loftleiðahótelið því að þeim finnst það svo gott. Flugmálastjóri hefur réttilega bent á þá staðreynd, að engin þróun verður í smíði flugvéla, sem þurfa púkalega stuttar brautir. Þess vegna notum við almennilegar þotur fram- vegis. Hvað er þessi Stefán Ólafsson að vilja upp á dekk, einhver prófessor í Háskóla Íslands, skrifar heilmikla skýrslu um málið, fullyrðir að flug- völlur geti verið annars staðar en í mýri? Setji hann upp á sér stýri. Veit hann ekki, að málið er afar flókið, umfangsmikið og margslungið? Hvernig leyfir hann sér að skipta sér af því, sem honum kemur ekkert við? Við erum örfáir hollvinir hagsmuna, sem höfum vit á þessu máli. Það yrði ömurlegt ef fyrirhugaður æfingasnertilendingakennsluflug- völlur mætti verða svolítið stærri strax, ef arkitektar, verkfræðingar og flugáhugafólk fengi tækifæri til að búa til nýja miðstöð fyrir innan- landsflug og kennsluflug í hrauninu fyrir sunnan Hafnarfjörð. Svæðið gæti orðið álíka viðurstyggilegt og Bláa lónið, sem ferðamenn forðast og hafa ímugust á. Úr hrauninu er fimmtán mínútna akstur til höfuð- borgarinnar þar sem Þjóðmenning- arhúsið er. Sveitarstjórnarmenn þyrftu þá að breyta áætlunum sín- um, þegar þeir skreppa suður á fund, og fara í bíó um leið. Ferðamennska mun hrynja. Grænlandsflug og Færeyjaflug mun leggjast af. Hættum þessum deilum sí og æ. Allir kostir hafa sína kosti, og galla líka. Tryggjum að flugvöllurinn verði áfram þar sem hann er. Þar eru ræt- ur flugs á Íslandi og vagga. Þar eru Rauðhólar grafnir og ljúfar minning- ar um indælt stríð. Eyðum mörgum miljörðum í hann svo að engum detti í hug að leggja hann niður næstu þúsöldina. Fjarlægjum strax norður- suður brautina og leggjum nýja áður en mönnum snýst hugur. Komum í veg fyrir, að Vatnsmýrin breytist í fallega viðbót við gamla miðbæinn. Þar gæti jafnvel komið breiðgata eins og í útlöndum. Þar gæti Hljóm- skálagarðurinn hríslast áfram suður í Nauthólsvík. Reykjavík gæti orðið alvöru höf- uðborg, sem landsmenn allir yrðu stoltir af. Það yrði ekki gott. Tryggjum að Vatnsmýri verði Þotumýri með þýð- um þotuhljómum til eilífðarnóns. Þotumýri Jón Krisjánsson Flugvöllur Tryggjum að Vatnsmýri verði Þotumýri, segir Jón Kristjánsson, með þýðum þotuhljómum til eilífðarnóns. Höfundur er kaupmaður, lög- fræðingur og sjálfstæðismaður í Reykjavík. verslunarmiðst. Eiðstorgi, sími 552 3970. Stretchbuxur St. 38–50 - Frábært úrval

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.