Morgunblaðið - 13.03.2001, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 13.03.2001, Qupperneq 46
MINNINGAR 46 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Vigdís Jakobs-dóttir fæddist á Seyðisfirði 14. des- ember 1906. Hún lést 27. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Anna Magnúsdóttir barna- kennari, f. 29. apríl 1879 í Reykjavík, d. 4. janúar 1937, og Jakob Magnússon útgerðarmaður, f. 13. apríl 1877, d. 8. apríl 1909. Þau áttu eina dóttur auk Vig- dísar, Guðrúnu Wat- son, f. 29. júní 1908. Guðrún flutt- ist ung til Skotlands og giftist skoskum lögfræðingi Alistair Wat- son, og bjó þar, hún lést árið 1972. Þau eignuðust þrjú börn sem öll búa í Bretlandi. Jakob dó þegar Vigdís var tveggja ára og fluttist hún þá með móður sinni og systur til Reykjavíkur. Móðir hennar setti á stofn einkabarnaskóla þeim til viðurværis, sem fékk nafnið „háskólinn“, vegna þess að hann var til húsa á efstu hæð að Tún- götu 2 í húsi afa og ömmu Vigdís- ar. Þar ólust þær systur upp með móður sinni. Snemma vaknaði hjá henni tónlistaráhugi og stundaði hún nám í píanóleik hjá Ástu Ein- freð, f. 1975. Stjúpbörn Gísla eru þau Helga Elísabet, f. 1956, Úlfar Ingi, f. 1959, Einar Sveinn, f. 1961, og Þórður Jón, f. 1963. Faðir þeirra var Þórður Jón Úlfarsson, f. 14. júní 1939, d. 18. mars 1963. Einnig á Gísli dóttur, Aldísi Elfu, f. 1955. Móðir hennar er Svana Guð- mundsdóttir. Árið 1968 giftist Anna Finni Björgvinssyni, f. 18. september 1946, og eiga þau þrjú börn, Björgvin, f. 1972, Vigdísi, f. 1973, og Alfreð Örn, f. 1980. Fljót- lega eftir komu þeirra til Keflavík- ur hóf Vigdís píanókennslu og síð- ar stofnaði hún Tónlistarfélag Keflavíkur og var formaður þess í 22 ár. Hún var einnig fyrsti skóla- stjóri Tónlistarskólans, en síðar fékk hún Ragnar heitinn Björns- son til þess starfa. Vígdís tók mik- inn þátt í félagslífi bæjarins, beitti sér fyrir stofnun Sjálfstæðis- kvennafélagsins og var fyrsti for- maður þess og einnig vann hún mikið við Kvenfélagið. Hún rak auk þess kvenfataverslunina Eddu í mörg ár ásamt Þórunni Ólafs- dóttur. Árið 1973 fluttu þau hjónin til Reykjavíkur en Alfreð lést 1976. Eftir það bjó Vigdís að heim- ili sínu að Miklubraut og stundaði píanókennslu þar til sjón hennar fór að gefa sig. Þrátt fyrir háan aldur og bilaða sjón og heyrn, kaus hún að búa ein á Miklubraut, þar sem hún naut aðstoðar heim- ilshjálpar hin síðustu ár. Útför Vigdísar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. arsson og síðar Emil Thoroddsen, hún spil- aði m.a. á dansæfing- um í MR, en hún lauk gagnfræðaprófi það- an 1924. Síðan fór hún til náms til Kaup- mannahafnar og lærði hjá hinum þekkta pí- anóleikara prófessor Haraldi Sigurðssyni. Að námi loknu kom hún heim og starfaði í Hljóðfærahúsinu og auk þess stundaði hún undirleik og kenndi á píanó, en píanó- kennslu stundaði hún nær alla ævi. Hinn 13. september 1931 giftist Vigdís Alfreð Gíslasyni lögfræð- ingi, síðar bæjarfógeta og sýslu- manni í Keflavík, f. 7. júlí 1905, d. 30. maí 1976. Þau fluttust til Kefla- víkur 1938, þar sem Alfreð tók við starfi lögreglustjóra. Eignuðust þau tvö börn, Gísla Jakob, leikara og fyrrverandi þjóðleikhússtjóra, f. 24. janúar 1933, og Önnu Jó- hönnu, ferðafræðing, f. 15. júní 1948. Árið 1962 kvæntist Gísli Juli- ane Alfreðsson, f. 26. janúar 1943, d. 1968, þau skildu. Árið 1967 kvæntist hann Guðnýju Árdal, f. 18. mars 1939, og eiga þau tvö börn, Önnu Vigdísi, f. 1967, og Al- Amma var mér kærust af öllum. Hún var mín fyrirmynd frá því ég var lítil stelpa og bjó hjá henni og afa í Keflavík. Hún var alltaf svo góð við mig. Hún var alltaf svo fín. Hún var frú.... bæjarfógetafrú og allir virtu hana. Ég var nýorðin sex ára þegar ég flutti til ömmu og afa. Ég bjó hjá þeim í þrjú ár. Amma átti þá búðina Eddu. Hún var einnig formaður tón- listarskólans sem hún hafði sjálf átt þátt í að setja á stofn. Hún var virt kona, létt í lund. Það voru margir hlutir sem hún tók alvarlega, en ekki sjálfa sig. Hún sá oft léttu hliðina á hlutunum og gat hlegið manna mest að sjálfri sér. Hún þorði að fara sínar eigin leiðir. Hún elskaði tónlist. Hún kenndi á píanó alla sína tíð. Ég átti þann kost í mörg ár að sitja í stofunni og hlusta á hana spila á píanó. Hún spilaði þangað til hún dó. Ég mun sakna hennar mikið. Við amma höfð- um alveg sérstakt samband. Við gát- um talað saman um hluti sem við vild- um engum öðrum segja. Þegar ég bjó á Íslandi kom ég til hennar daglega. Ég var með lykil að heimili hennar, því hennar heimili var alltaf mitt heimili. Okkar líf var mjög storma- samt í mörg ár og við tókum öldunum saman. Ég kom til Ísland aftur 18 ára göm- ul og bjó þá aftur hjá afa og ömmu. Afi var mjög veikur, með krabba- mein. Við horfðum saman á þennan stolta mann veslast upp og deyja. Þetta þriggja ára tímabil batt okkur en sterkar saman. Á sama tíma var ég í leiklistarskóla og ég átti einnig við önnur sálarstríð að glíma. Systkini mín og móður sem bjuggu í Banda- ríkjunum. Ég kláraði skólann og gift- ist Kristjáni Karlssyni Víkingssyni. Við eignuðumst einn son, Karl Axel Kristjánsson. Fjölskylda mín í Bandaríkjunum flutti til Íslands og voru systkini mín daglegir gestir á okkar heimili. Svo dó Kristján eftir fjögra ára samveru og ég fór harmi slegin til ömmu og var hjá henni þá fyrstu nótt. Það var viðeigandi því ég var hjá henni þegar afi dó. Og svona lék lífið okkur, einn stormur á eftir öðrum og alltaf héldum við sambandi og studdum hvor aðra. Ég fluttist út til að átta mig á lífi mínu. Púsla því saman og fyrir mig þýddi það að ég varð að flytja af landi brott og byrja upp á nýtt einhvers staðar annars staðar. Amma reyndi í mörg ár að fá mig til að flytja aftur heim. Hún vildi einnig að ég fyndi draumaprinsinn. Hún trúði alltaf að það væri draumaprins fyrir mig ein- hvers staðar. Hún trúði því í bæði skiptin sem ég gifti mig á Íslandi og syrgði það jafn mikið og ég þegar illa fór. Öll árin höfðum við reglulegt samband. Hún fylgdist með öllu í mínu lífi þangað til hún dó. Ég var að undirbúa brúðkaup vit- andi af henni veikri. Það var mér mjög erfitt því ég vildi gjarnan vera hjá henni. En hún vildi ekki heyra það. Hún trúði því að eiginmaður minn, sem ég giftist tveimur dögum áður en hún dó, væri draumaprinsinn mikli. Hún var svo hamingjusöm fyrir mína hönd og ég veit að hún var ákveðin í að haldi lífi þangað til brúð- kaupsdagurinn væri um garð geng- inn. Þrátt fyrir að ellin væri að gera út af við hana og ekkert annað væri eftir að lifa fyrir. Hún lifði til að sjá fyrsta og uppáhalds ömmubarnið sitt í góðum höndum með góðum manni. Ég veit að hún var og er og verður með okkur alla tíð. Pabbi og Guðný voru hjá mér, í brúðkaupsveislunni minni að hennar ósk því hún vildi heyra allt í smáatriðum og átti Guðný að taka eftir öllu. Anna frænka ætlaði að koma, amma vildi það. En sem bet- ur fer var Anna hjá ömmu því það var dagaspursmál um hvenær amma færi. Anna sagði henni allt, þótt amma væri í dái. Anna, einkadóttir ömmu, var svo góð við hana og var henni alltaf stoð og stytta. Nú munum við fjölskylda ömmu sitja saman við útför hennar og minn- ast hennar. Alveg eins og hún óskaði. Ég mun alltaf sakna ömmu. Ég mun alltaf biðja fyrir henni, eins og hún gerði alltaf fyrir okkur í fjölskyld- unni. Hún sagði mér að hún bæði bænar á hverju kvöldi fyrir okkur öll- um því það skaðaði engan. Hennar bænir hafa bjargað mér. Meir en nokkur getur vitað. Elfa Gísladóttir. Við systkinin urðum fyrir undar- legri lífsreynslu í síðustu viku, þegar elsku amma okkar, sem alltaf hefur verið til staðar, kvaddi. Þar með misstum við einstaka manneskju sem hefur reynst okkur svo vel, að því fá engin orð lýst. Þótti okkur alltaf gaman að fara í heimsókn til ömmu enda var hún svo hress og vel með á nótunum, fylgdist vel með vinum okkar og hafði hún gríðarlegan áhuga á því sem við vor- um að gera hverju sinni. Til að mynda fannst henni gaman að fylgjast með íþróttunum og skólanum, og var það sérstakt metnaðarmál að standa sig fyrir ömmu. Það var einstakt hvað amma var alltaf hress þegar við kom- um, jafnvel þótt hún væri eilítið þreytt, ljómaði hún öll og gaf okkur ómetanlegan tíma til samræðna, píanóspils, o. fl. Þessum stundum gleymum við ekki. Í heimsóknum okkar til ömmu ræddum við ýmis mál og lumaði hún oft á skemmtilegum sögum og var það hlýlegt að heyra þær aftur þegar hún sagði lang- ömmubörnum sínum þær núorðið. Því sögurnar stóðust tímans tönn eins og amma sjálf. Hún var fín frú með góðan en jafnframt sérstakan smekk, myndaði hún sér ákveðnar skoðanir á öllum heimsins málum og fylgdist vel með öllu til síðasta dags. Eitt sinn voru Björgvin og Vigdís í bíltúr með ömmu að vetrarlagi. Þegar bíllinn staðnæmdist á gatnamótum komu þar að tveir strákar sem ætluðu að hanga aftan í bílnum og dragast með í snjónum. Björgvin benti ömmu á þetta og bað hana að gefa í botn, dæmigert fyrir ömmu þá gerði hún það, svo strákarnir náðu ekki taki. Vorum við einnig sammála um það að amma virtist finna marga hluti á sér og hafði hún býsna oft rétt fyrir sér, þegar hún tjáði hugsanir sínar, m.a. tengdum okkur systkinunum. Ekki alls fyrir löngu var Alfreð upp á spítala hjá ömmu og las fyrir hana ritgerð úr skólanum um stjórnmál. Daginn eftir var amma búin að ráða í ritgerðina og ákveða að Alfreð ætti að fara í stjórnmál og helst verða þing- maður. Amma fór oft á seinni árum til Danmerkur með mömmu, vinkonum sínum og fengu Vigdís og Alfreð stundum að fara með. Í Danmörku var amma í essinu sínu, þar gat hún verslað, notið góða veðursins og rifjað upp gamla tíma. Iðulega fékk hún hálfgert kaupæði og var síðan að hneykslast á sjálfri sér lengi eftir að við vorum komin heim aftur. Þrátt fyrir að amma væri orðin 94 ára gömul og við hefðum reynt að undirbúa okkur fyrir óumflýjanlega burtför hennar, þá brá okkur vissu- lega mikið þegar kallið kom. Einfald- lega vegna þess að hún kenndi okkur svo margt er varðar lífið, var hún ein- staklega góður og skemmtilegur vin- ur sem hægt var að treysta á. Við munum sakna ömmu okkar og minn- ingin um hana mun lifa í hjörtum okk- ar að eilífu. Með virðingu og þakklæti kveðjum við þig, elsku amma. Þín ömmubörn Björgvin, Vigdís og Alfreð. Við kveðjum í dag ömmu okkar, Vigdísi. Amma var alltaf til staðar fyrir okkur og fylgdist vel með hvað við vorum að sýsla hverju sinni enda stór systkinahópur til að fylgjast með og fá nýjustu fréttir af hverju sinni. Það var mjög gott að koma til hennar og spjalla við hana, var þá aðallega spjallað um fjölskyldu og fjölskyldu- vini og alltaf rifjaðir upp afmælisdag- ar en þá mundi hún alla upp á tíu til þess dags er hún kvaddi. Amma var mikil fróðleikskona og alltaf þegar við kynntum hana fyrir nýjum vinum, spurði hún hverra manna þeir væru og oftar en ekki gat hún rakið ættir þeirra til einhvers sem hún þekkti. Ættfræðingur var hún, þó ekki væri menntuð sem slík og fróðleiksnáma um margt. Hún var vel kynnt og alltaf vorum við að hitta fólk sem mundi eftir Dídí í Keflavík, því voru ófáar kveðjurnar sem við skiluðum til ömmu þegar við komum til hennar frá fólki víðsvegar að sem við hittum. Oft þegar maður kom á Miklubrautina var erfitt að ná tali af ömmu enda stoppaði ekki síminn hjá henni, vinir að skiptast á sögum um allt og alla, hún var mikill húmoristi og gaman að heyra hana segja sögur um allt það sem gerðist á hennar yngri árum. Allt iðaði af lífi í kringum ömmu. Ein af þeim föstu venjum sem amma kom á var jólaboðið hjá henni á jóla- dag en þar hittist öll fjölskyldan og borðaði á sig gat og hlustaði svo á ömmu spila jólalög á flygilinn sinn. Minningarnar frá jólaboðum ömmu gleymast okkur aldrei. Ömmu var mikið kappsmál að allir í kringum hana menntuðu sig vel, enda kenndi hún nær öllum barna- börnum sínum og barnabarnabörn- um undirstöðuatriðin í reikningi (Óli á þrjú epli. . .). Það kemur að vísu ekki á óvart enda var hún píanókennari í tugi ára. Og ófá voru þau skiptin sem hún bauð upp á kökur, litla kók í gleri og spilaði svo á píanóið fyrir okkur. Stelpurnar, Guðný Ósk og Guðrún Helga, höfðu alltaf gaman af því að heimsækja langömmu sína og var það orðin sérstök hefð að koma við í sjoppu á leiðinni til hennar og kaupa eitthvert góðgæti handa þeim frá henni. Hefðin var orðin mjög sterk og aldrei mátti breyta út af venjunni. Það var byrjað í eldhúsinu þar sem allir fengu kók í lítilli flösku og eitt- hvert góðgæti með og síðan var farið inn í stofu þar sem annaðhvort stelp- urnar sungu, dönsuðu eða Guðný Ósk spilaði á fiðluna sína fyrir ömmu og síðan spilaði amma á flygilinn fyrir þær. Aldrei mátti breyta út af venj- unni og munu stelpurnar sakna þess- ara stunda með langömmu sinni. Amma fylgdist alltaf vel með og vildi alltaf vita hvað allir væru að gera og aðhafast. Hún hafði mikinn metn- að fyrir hönd allra aðstandenda sinna. Stelpurnar syrgja nú langömmu sína og þeirra missir er mikill. Við fengum líka að kynnast Gíbu- sögunum og öllum hinum sögunum sem amma sagði okkur í æsku í eld- húsinu um leið og hún gaf okkur dí- sætt skyr eða flauelsgraut og kleinur. Æskuminningarnar lifa og ylja okkur barnabörnunum um ókomna tíð- .Minning um glæsilega konu, sem hélt sér alltaf vel til, fór í greiðslu á hverjum föstudegi eins lengi og heils- an leyfði, mun lifa í hjörtum okkar barnabarnanna og barnabarna- barnanna. Anna Vigdís Gísladóttir, Alfreð Gíslason. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. E.) Sumir hafa mikið að gefa sam- ferðamönnum sínum, svo mikið að þegar þeir kveðja þennan heim skilja þeir eftir stórt skarð sem ekki verður auðveldlega aftur fyllt. Þegar slíkra er minnst fyllist hugur manns gleði og hlýju og maður verður þakklátari fyrir þær stundir sem maður átti með viðkomandi. Þannig hugsa ég þegar ég minnist Vigdísar Jakobsdóttur sem kvaddi þennan heim eftir langa ævi. SÞó að kynni okkar hafi verið stutt voru þau góð og mér mjög dýrmæt. Það er ekki á hverjum degi sem maður kynnist manneskju sem er komin yfir nírætt en fer samt í hárgreiðslu, fer í betri fötin og mætir í boð eða spilar eitt tvö lög á flygilinn eins og hún gerði næst- um fram á síðasta dag. Dýrmætustu stundirnar sem ég geymi eru heimsóknirnar á Miklu- brautina, sem voru því miður mun færri en ég hefði viljað sökum búsetu minnar. Yfir kaldri kók í gleri spjöll- uðum við um gamla daga, þegar hún var upp á sitt besta að spila á dans- leikjum og kenna fínum konum að dansa lanciers og þegar hún var að passa barnabörn sín þegar þau voru lítil. Vigdís var mjög áhugasöm um allt sem viðkom barnabörnunum og var alltaf með á hreinu hvar hver var staddur í leik og starfi og fylgdist mjög vel með því sem þau voru að gera hvort sem það var á Íslandi eða á erlendri grundu. Okkur er skammtaður tími í þessu jarðlífi og hennar tími var kominn, hún hafði lifað tímana tvenna og búin að miðla sínu til afkomenda sinna. Samt er það oft einhvern veginn þannig að þó að maður fái tíma til þess að undirbúa sig undir dauðann er skilnaðurinn alltaf erfiður. Þessi tími sem ég var svo heppin að fá að vera í samneyti við jafn full- orðna vel erna konu eins og Vigdísi var einstakur og lærdómsríkur og ég ætla að varðveita hann ásamt minn- ingunni um stutt en góð kynni við yndislega og merka konu. Elsku Anna, Gísli og fjölskyldur, innilegar samúðarkveðjur. Jenný Steinarsdóttir. VIGDÍS JAKOBSDÓTTIR Útfararþjónustan ehf. Stofnuð 1990 Á heimasíðu okkar utfarir.is má finna: Undirbúningur á útför. Myndir af kistum. Myndir af kórum og söngvurum. Listi yfir sálma. Verð á öllu sem lýtur að útför. Símar 567 9110 og 893 8638 runar@utfarir.is Rúnar Geirmundsson útfararstjóri
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.