Morgunblaðið - 13.03.2001, Síða 53
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 53
SR. BRAGI Skúlason sjúkrahús-
prestur mun fjalla um missi, sorg
og sorgarviðbrögð og lýsa starfi
umönnunarhópa í safnaðarheim-
ilinu Strandbergi miðvikudags-
kvöldið 14. mars n.k. kl. 20.30 og
svara fyrirspurnum um efnið sem
er einkar þýðingarmikið og sam-
ræmist vel boðskap föstunnar um
von og trú í raun og þraut og upp-
risuboðskap páska. Allir eru vel-
komnir sem áhuga hafa á að fræð-
ast um þetta þýðingarmikla efni í
Strandbergi.
Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa í neðri safnaðarsal kl. 10–
14 í umsjá Þórönnu Þórarinsdótt-
ur. Skemmtiganga kl. 10.30. Júlí-
ana Tyrfingsdóttir leiðir
gönguhópinn. Bæna- og fyrir-
bænastund í kirkjunni kl. 12 í
umsjá Guðrúnar K. Þórsdóttur
djákna. Léttur hádegisverður á
vægu verði eftir stundina. Sam-
vera foreldra ungra barna kl. 14–
16 í neðri safnaðarsal. Tólf spora
hóparnir hittast kl. 19 í neðri safn-
aðarsal.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12.10. Orgelleikur, ritning-
arlestur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheim-
ilinu eftir stundina. Æfing barna-
kórs kl. 17–19.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguð-
sþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum. Passíusálmalestur kl.
12.15.
Háteigskirkja. Fermingarfræðsla
kl. 16. Fundur í Æskulýðsfélaginu
kl. 20. Almoust famous. Námskeið
Leikmannaskóla Þjóðkirkjunnar.
Langholtskirkja. Kirkjan er opin
til hljóðrar bænagjörðar í hádeg-
inu. Nærhópur um úrvinnslu sorg-
ar hittist kl. 20 í Guðbrandsstofu.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45–7.05. Fullorðinsfræðsla kl.
20. Sóknarprestur fræðir um trú.
Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21.
Lofgjörðarstund þar sem Þorvald-
ur Halldórsson leiðir söng við und-
irleik Gunnars Gunnarssonar og
sr. Bjarni Karlsson flytur Guðs
orð og bæn. Fyrirbænaþjónusta kl.
21.30 í umsjá bænahóps kirkjunn-
ar.
Neskirkja. Tíðasöngur kl. 12. Litli
kórinn, kór eldri borgara, kl.
16.30–18. Stjórnandi Inga J. Back-
man. Foreldramorgunn miðviku-
dag kl. 10–12. Fræðsla: Slysavarn-
ir barna. Herdís Storgaard,
fulltrúi hjá Heilbrigðisráðuneyt-
inu.
Seltjarnarneskirkja. Foreldra-
morgunn kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Fríkirkjan í Reykjavík. Bæna-
stund í kapellunni í safnaðarheim-
ilinu 2. hæð kl. 12. Koma má bæn-
arefnum á framfæri áður en
bænastund hefst eða með því að
hringja í síma 552-7270 og fá bæn-
arefnin skráð. Safnaðarprestur
leiðir bænastundirnar. Að bæna-
stund lokinni gefst fólki tækifæri
til að setjast niður og spjalla. Allir
eru hjartanlega velkomnir til þátt-
töku.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn
í safnaðarheimilinu kl. 10–12.
Föndurdagur með börnunum.
Hittumst, kynnumst, fræðumst.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænarefnum má koma til sókn-
arprests í viðtalstímum hans.
Æskulýðsstarf á vegum K.F.U.M.
& K og kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Leikfimi Í.A.K.
kl. 11.20. Samvera, léttur máls-
verður og kaffi. Sr. Frank M. Hall-
dórsson og litli kór Neskirkju
koma í heimsókn. Æskulýðsstarf
KFUK og Digraneskirkju fyrir
10–12 ára stúlkur. kl. 17.30.
Fella- og Hólakirkja. Foreldrast-
undir kl. 10–12. Starf fyrir 11–12
ára stúlkur kl. 17–18.
Grafarvogskirkja. „Opið hús“ fyr-
ir eldri borgara kl. 13.30. Helgi-
stund, handavinna, spil og spjall.
Alltaf eitthvað gott með kaffinu.
„Kirkjukrakkar“ í Engjaskóla kl.
18–19 fyrir börn á aldrinum 7–9
ára.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorg-
unn í dag kl. 10–12 í safnaðarheim-
ilinu Borgum.
Seljakirkja. Foreldramorgnar. Op-
ið hús milli kl. 10–12. Kaffi og
spjall.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús
fyrir 10–12 ára börn í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17–18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
kl. 17–18.30 fyrir 7–9 ára börn.
Vídalínskirkja. Helgistund í
tengslum við félagsstarf aldraðra
kl. 16. Starf fyrir stúlkur 10–12
ára í samstarfi við KFUK kl. 17.30
í safnaðarheimilinu.
Lágafellskirkja. Fjölskyldumorg-
unn í safnaðarheimili, Þverholti 3,
3. hæð frá kl. 10–12. Fundur hjá
kirkjukrökkum frá kl. 17.15–18.15.
Safnaðarheimilið opnað kl. 17.
Keflavíkurkirkja. Kirkjulundur
opinn kl. 13–16 með aðgengi í
kirkjuna og Kapellu vonarinnar
eins og virka
daga vikunnar. Gengið inn frá
Kirkjuteig. Starfsfólk verður á
sama tíma í Kirkjulundi.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10–12.
Borgarneskirkja. TTT, tíu–tólf
ára starf, alla þriðjudaga kl. 17–18.
Helgistund í kirkjunni sömu daga
kl. 18.15– 19.
Útskálakirkja. Safnaðarheimilið
Sæborg. NTT-starf (9–12 ára) er
hvern þriðjudag í vetur kl. 17. All-
ir krakkar 9–12 ára hvattir til að
mæta.
Hvalsneskirkja. Safnaðarheimilið
Sandgerði. NTT-starf (9–12 ára)
er hvern þriðjudag í vetur kl. 17 í
safnaðarheimilinu. Allir krakkar
9–12 ára hvattir til að mæta.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. TTT-starf í
dag kl. 17 í umsjá Ástríðar Helgu
Sigurðardóttur og undirleikari er
Tune Solbakke. Starfið er ætlað
10–12 ára börnum.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á
þriðjudögum kl. 10–12.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Kl. 16.30: KKK – KrakkaKlúbb-
urinn Kirkjuprakkarar, 7–9 ára.
Hvammstangakirkja. Æskulýðs-
fundur í kvöld kl. 20 í Hrakhólum.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir vel-
komnir.
Boðunarkirkjan. Námskeið dr.
Steinþórs Þórðarsonar, Lærum að
merkja Biblíuna, kl. 20 miðviku-
dagskvöld. Mörg spennandi efni
verða tekin fyrir. Efni hvers
kvölds er sjálfstætt og því hægt að
byrja hvenær sem er. Biblían
verður aðgengilegri. Allir vel-
komnir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu-
skóli í kvöld kl. 20.
KEFAS, Kristið samfélag. Bæna-
stund kl. 20.30.
KFUK, aðaldeild. Fundur í kvöld
kl. 20. Biblíulestur í umsjá Höllu
Jóndóttur. Kynnt verða bygging-
aráform í Vindáshlíð. Allar konur
velkomnar.
Safnaðarstarf
Fjallað um áföll
og missi í Hafn-
arfjarðarkirkju
FRÉTTIR
SMÁAUGLÝSINGAR
ÝMISLEGT
■ www.nudd.is
KENNSLA
Keramiknámskeið
Þú getur byrjað þegar þú vilt.
Opið hús fyrir alla á miðviku-
dagskvöldum kl. 20—23.
Keramik fyrir alla,
Laugavegi 48b, s. 552 2882.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F.Rb.1 1503138-9.I*
EDDA 6001031319 I
HLÍN 6001031319 IV/V
FJÖLNIR 6001031319 III
KR-konur KR-konur
Munið styrktarfundinn miðviku-
dagskvöldið 14. mars kl. 20.15.
Mætum allar.
Stjórnin.
AD KFUK, Holtavegi 28
Fundur í kvöld kl. 20.00
Halla Jónsdóttir sér um biblíu-
lestur. Fulltrúar úr stjórn Vindás-
hlíðar kynna byggingaráform í
Vindáshlíð.
Allar konur velkomnar.
www.kfuk.is
Þriðjudagur 13. mars: Í kvöld
kl. 20.00 Vakningaherferðin held-
ur áfram með ofurstunum Inger
og Einari Høyland. Katrín Eyj-
ólfsdóttir stjórnar.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.vegurinn.is .
Myndasýning í FÍ-salnum 14.
mars kl. 20.30. Helgi Arn-
grímsson o.fl. Borgfirðingar
sýna myndir frá Víknaslóðum,
milli Borgarfjarðar og Seyðis-
fjarðar. Gerður Steinþórsdóttir
sýnir myndir úr ferð norður og
vestur fyrir Langjökul.
Allir velkomnir, aðgangseyrir kr.
500, kaffiveitingar.
www.fi.is . Textavarp RUV. bls.
619.
Útivist
Föstudagur 16. mars:
Útivistarskrall í Húnabúð,
Skeifunni 11.
Diskótekið Ó. Dollý sér um fjörið
frá kl. 10—03. Fjölmennið!
Sunnudagsferð 18. mars
kl. 13.00. Krýsuvík — Sveiflu-
háls. Gönguferð.
Jeppaferð 17. mars fellur
niður vegna snjóleysis.
Jeppadeild auglýsir eftir
undanförum og fararstjórum.
Heimasíða: utivist.is og
textavarp bls. 616.
Sími 533 1777
----------------------------------------------
Ráðstefnan
Hærra minn Guð til þín
----------------------------------------------
Robert Maasbach frá
Englandi á Hótel
Sögu: Þri. 13. mars kl.
20 - mið. 14. mars kl.
20. Einnig verður Chris
Vigil með okkur á mið-
vikudagskvöldið.
------------------------------
Chris Vigil frá Banda-
ríkjunum í Verzlunar-
skóla Íslands: Fös. 16.
mars kl. 20 - sun. 18.
mars kl. 17.
----------------------------------------------
Komdu og vertu með!
frelsi.com
STAÐLARÁÐ heldur námskeið um
CE-merkingu véla 21. og 22. mars.
Markmiðið er að þátttakendur verði
færir um að greina hvort vörur falli
undir vélatilskipun ESB og læri
hvernig á að CE-merkja slíkar
vörur.
Óheimilt er að markaðssetja vörur
án CE-merkis á Evrópska efnahags-
svæðinu, heyri þær undir svokallað-
ar nýaðferðartilskipanir Evrópu-
sambandsins. Því er brýnt fyrir
framleiðendur og innflytjendur að
gæta að því hvort vörur þeirra heyri
undir tilskipanirnar og uppfylli kröf-
ur þeirra. Framleiðendur og innflytj-
endur bera sjálfir ábyrgð á að vörur
þeirra séu CE-merktar, ef við á. Eft-
ir að varan hefur verið CE-merkt má
markaðssetja hana án hindrana í öll-
um löndum EFTA og ESB.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 12
manns. Nánari upplýsingar og
skráning hjá Staðlaráði Íslands,
Laugavegi 178.
Námskeið fyr-
ir innflytjend-
ur og fram-
leiðendur véla
NEISTINN, styrktarfélag hjart-
veikra barna, stendur að átaki til
styrktar hjartveikum börnum 14.
mars, á blóðgjafardaginn.
Átakið ber heitið Gefum þeim
von og hægt er að leggja hjartveik-
um börnum og aðstandendum
þeirra lið með fjárstuðningi eða
blóðgjöf. Tvö söfnunarnúmer verða
opin frá 13. mars. Með því að
hringja í 907-2005 er hægt að gefa
500 krónur og 1.000 krónur með
hringingu í síma 907-2001. Blóð-
bankinn verður opinn frá 8-17 mið-
vikudaginn 14. mars.
Á Íslandi greinast árlega um 40-
50 hjartveik börn eða um 1% allra
fæddra barna hér á landi. Um 30
þeirra verða að gangast undir
hjartaaðgerð, sum oftar en einu
sinni. Að jafnaði eru 7 af hverjum
10 aðgerðum framkvæmdar hér á
landi en 10-15 börn eru með svo
erfiðan hjartasjúkdóm að þau
þarfnast aðgerða erlendis.
Átak til
styrktar
hjartveikum
börnum
Rangt starfsheiti
Rangt var farið með starfsheiti
vinningshafa í fréttatilkynningu um
vinningshafa á bás Morgunblaðsins
á íslenska markaðsdeginum en það
var Jóhann Fr. Ragnarsson sem
vann ferð fyrir tvo á einhvern af
áfangastöðum Flugleiða og gegnir
starfi markaðsstjóra hjá Austur-
bakka en ekki sölu- og markaðs-
starfi fyrir Nike hjá Austurbakka
eins og stóð í fréttatilkynningunni.
Sá sem gegnir því starfi hjá Aust-
urbakka er Björn L. Þórisson.
Listasafn Reykjavíkur
Í umfjöllun um sýninguna Heim-
skautslöndin unaðslegu í Lesbók
var ranglega sagt að hún væri í
Listasafni Íslands – Hafnarhúsi.
Hið rétta er að sýningin er í Lista-
safni Reykjavíkur – Hafnarhúsi.
Beðist er velvirðingar á þessu.
Talibanar og konur
Þau mistök urðu við vinnslu á
Viðhorfsgrein Hönnu Katrínar
Friðriksson sl. laugardag, Líkneski
og konur, að merking einnar máls-
greinar breyttist til baga. Þar stóð:
„Alþjóðasamfélagið hefur reyndar
hrist höfuðið yfir ofstækinu í tali-
bönum og vissulega hefur fram-
koma þeirra við konur vakið athygli
þó hún hafi skánað, enda svo margt
annað sem glepur.“ Rétt er máls-
greinin svona: „Alþjóðasamfélagið
hefur reyndar hrist höfuðið yfir of-
stækinu í talibönum og vissulega
hefur framkoma þeirra við konur
vakið athygli þó úr henni hafi dreg-
ið, enda svo margt annað sem glep-
ur.“
Framkoma talibana við konur
hefur sumsé ekki skánað, að mati
höfundar, heldur hefur dregið úr
þeirri athygli, sem hún vakti.
Leiðbeiningarstöð heimilanna
Mistök urðu varðandi greinina
„Veldu af vandvirkni og skynsemi“
sem birt var í Morgunblaðinu föstu-
daginn 9. mars 2001 og skrifuð var
af Hjördísi Eddu Broddadóttur,
framkvæmdastjóra Leiðbeininga-
stöðvar heimilanna. Þar féll niður
texti varðandi það að Leiðbeininga-
stöð heimilanna er rekin af Kven-
félagasambandi Íslands og Hjördís
Edda er jafnframt starfsmaður
þessara samtaka.
LEIÐRÉTT
LAGÐAR hafa verið fram nýjar
tillögur um bryggjuhverfi í Arn-
arnesvogi í Garðabæ. Meðfylgjandi
mynd sýnir hvernig bryggjuhverfið
gæti litið út. Svarta línan sýnir nú-
verandi strandlengju og ljósbláu
línurnar fyrri hugmyndir um stærð
landfyllingar, en nú hefur verið
fallið frá þeim. Þessi mynd er end-
urbirt vegna þess að í blaðinu á
sunnudag birtist kort, sem sýndi
umfang landfyllingar miðað við
fyrri hugmyndir, en ekki nýju til-
lögurnar.
Bryggjuhverfi í
Arnarnesvogi