Morgunblaðið - 13.03.2001, Qupperneq 58
DAGBÓK
58 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Flutningaskipið Haukur
kemur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Kaldbakur, Dimas og
Lagarfoss komu í gær.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun kl.
17–18.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–16.30
opin handavinnustofan,
áhersla á bútasaum, kl.
9–12 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.30 dans-
kennsla, Sigvaldi, kl. 13–
16.30 opin smíðastofa,
trésmíði/útskurður, kl. 9
hár- og fótsnyrtistofur
opnar.
Aflagrandi 40. Enska
kl. 10 og kl. 11.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9–9.45 leikfimi,
kl. 9–12 tréskurður, kl.
9–16 handavinna og
fótaaðgerð, kl. 10 sund,
kl. 13–16 leirlist.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Leikfimi í íþróttasal á
Hlaðhömrum, þriðjud.
kl. 16. Uppl. hjá Svan-
hildi í s. 586 8014 kl. 13–
16. Tímapöntun í fót-,
hand- og andlitssnyrt-
ingu, hárgreiðslu og
fótanuddi, s. 566 8060 kl.
8–16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
hárgreiðsla og böðun,
kl. 10 samverustund, kl.
14 félagsvist.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 13 föndur og handa-
vinna. Kl. 14.45 söng-
stund í borðsal með
Jónu Bjarnadóttur.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðjudög-
um kl. 13.30. Fótaað-
gerðir mánudaga og
fimmtudaga. Ath. nýtt
símanúmer, 565 6775.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Brids og saumur kl.
13.30. Línudans í fyrra-
málið kl. 11, byrjendur
velkomnir. Á fimmtudag
verður aðalfundur kl. 14
í Hraunseli.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeg-
inu. Þriðjudagur: Skák
kl. 13.30 og alkort spilað
kl. 13.30. Miðvikudagur:
Göngu-Hrólfar fara í
létta göngu frá Hlemmi,
mæting kl. 9.45. Leik-
hópurinn Snúður og
Snælda sýnir „Gamlar
perlur“, sem eru þættir
valdir úr fimm gömlum,
þekktum verkum. Sýn-
ingar eru á mið-
vikudögum kl. 14 og
sunnudögum kl. 17 í Ás-
garði, Glæsibæ. Ath.
síðustu sýningar. Miða-
pantanir í símum
588 2111, 568 9082 og
551 2203. Silfurlínan op-
in á mánudögum og
miðvikudögum frá kl.
10–12. Ath.: Skrifstofa
FEB er opin frá kl. 10–
16. Upplýsingar í síma
588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, tré-
skurður og fleira, kl. 9–
17 hárgreiðsla, kl. 10
leikfimi, kl. 12.45 Bón-
usferð.
Félagsstarfið, Furu-
gerði 1. Aðstoð við
skattframtal verður 14.
mars. Tímapantanir og
uppl. í sl. 553 6040.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 13 boccia,
veitingar í kaffihúsi
Gerðubergs. Aðstoð frá
skattstofunni verður
veitt miðvikud. 21. mars,
skráning hafin. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Leikfimi kl. 9.05, kl. 9.50
og kl. 10.45, kl. 9.30
silkimálun, handa-
vinnustofa opin, leið-
beinandi á staðnum frá
kl. 10–17, kl. 14 boccia,
kl. 14.30 enska, þriðju-
dagsganga fer frá Gjá-
bakka kl. 14.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 jóga og
ganga, kl. 13–16 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum, kl.
14 boccia.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir og
leikfimi, kl. 9.45 banka-
þjónusta, kl. 13 handa-
vinna og hárgreiðsla.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 postulínsmálun, kl.
9–17 fótaaðgerðir, kl. 9–
12 glerskurður, kl. 9.45
boccia, kl. 11 leikfimi, kl.
12.15 verslunarferð í
Bónus, kl. 13–16.30
myndlist, kl. 13–17 hár-
greiðsla. Fulltrúi frá
skattinum verður með
aðstoð við skattframtöl
miðvikudaginn 14. mars
uppl. í s. 587 2888
Norðurbrún 1. Kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia, kl. 9–16.45 opin
handavinnustofan, tré-
skurður. Aðstoð við
skattframtal verður
miðvikudaginn 21. mars.
Þeir sem voru búnir að
panta tíma halda tím-
unum, nánari uppl. í s.
568 6960.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–12 bútasaumur,
kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 11 leikfimi, kl.
13 bútasaumur, tréút-
skurður og frjáls spila-
mennska. Fulltrúar frá
skattstjóranum í
Reykjavík veita fram-
talsaðstoð miðvikudag-
inn 14. mars. Upplýs-
ingar og skráning í síma
562 7077.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, myndlist
og morgunstund, kl. 10
leikfimi og fótaaðgerðir,
kl. 11 boccia, kl. 13
handmennt og keramik,
kl. 14 félagsvist.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Spilað í kvöld kl.
19. Allir eldri borgarar
velkomnir.
Félag ábyrgra feðra
heldur fund í Shell-
húsinu, Skerjafirði, á
miðvikudögum kl. 20,
svarað í síma 552 6644 á
fundartíma.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
Eineltissamtökin halda
fundi að Túngötu 7 á
þriðjudögum kl. 20.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum,
Laugardalshöll, kl. 12.
Rauðakrossdeildin,
Kópavogi. Aðalfund-
urinn verður í kvöld kl.
20.30 í Sunnuhlíð.
Orlofsnefnd húsmæðra
í Kópavogi verður með
kynningu á orlofsmögu-
leikum sumarsins á veit-
ingastaðum Kaffi Katal-
ínu (Mama Rósa),
Hamraborg, fimmtud.
15. mars kl. 20.
Árshátíð Stokkseyr-
ingafélagsins í Reykja-
vík verður að þessu
sinni haldin í íþróttahús-
inu á Stokkseyri laug-
ardaginn 24. mars og
hefst kl. 20. Nánari upp-
lýsingar og tilkynning
um þátttöku í s.
553 7495, Sigríður; s.
553 7775, Lilja; s.
567 9573, Einar. Vin-
samlega skráið ykkur
sem fyrst.
Sinawik heldur hlátur-
og hattafund í kvöld kl.
20 í Sunnusal Hótels
Sögu. Gestur kvöldsins
er Örn Árnason.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Félagsfundur með
fulltrúum frá öllum
stjórnmálaflokkum
verður í kvöld kl. 20.
Allir velkomnir.
Kvennadeild Flugbjörg-
unarsveitarinnar heldur
fund miðvikudaginn 14.
mars kl. 20. Spilað verð-
ur bingó.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Í dag er þriðjudagur 13. mars, 72.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Jesús sagði við þá: „Ef þér væruð
blindir, væruð þér án sakar.
En nú segist þér vera sjáandi,
því varir sök yðar.“
(Jóh. 9, 41.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 kvenkyns folald, 8 frá, 9
róin, 10 ótta, 11 magrir,
13 hagnaður, 15 ís,
18 skrá, 21 svelgur, 22
hreysið, 23 ber, 24 órétt-
látir.
LÓÐRÉTT:
2 deilur, 3 útlimir, 4 fisk-
ur, 5 landið, 6 reiðir, 7
kvenfugl, 12 reið, 14 sefi,
15 árás, 16 kirtla, 17 fim,
18 á, 19 poka, 20 kven-
dýr.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 nýtni, 4 húmar, 7 fólin, 8 lærin, 9 afl, 11 röng,
13 arga, 14 ættin, 15 fals, 17 nefs, 20 man, 22 lygna, 23
iðjan, 24 arnar, 25 týnir.
Lóðrétt: 1 næfur, 2 tólin, 3 iðna, 4 holl, 5 múrar, 6 renna,
10 fitla, 12 gæs, 13 ann, 15 fulla, 16 lygin, 18 eljan, 19
synir, 20 maur, 21 nift.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
ÉG er að velta því fyrir
mér hvort Umferðarráð
geti beitt sér fyrir því að
búa til stuttar sjónvarps-
myndir sem birtar væru
t.d. í auglýsingatíma sjón-
varpsstöðvanna um atriði
sem betur mega fara í
umferðinni. Þá er ég m.a.
að tala um hvernig gatna-
mótin á Bústaðarvegsbrú
virka þegar beygt er nið-
ur á Kringlumýrarbraut
til suðurs (í átt að Kópa-
vogi), einnig hvernig bílar
geta vikið yfir á vinstri
akrein á tvíbreiðum vegi
ef bíll er að koma inn á þá
hægri, o.s.frv.
Því miður eru alltof
margir Íslendingar svo
dofnir og tregir í umferð-
inni að það þarf virkilega
að sýna þeim hvernig er
hægt að láta hlutina
ganga betur, allavega
finnst mér ekki veita af
því.
Reynir B. Egilsson.
Ástþór Magnússon og
Friður 2000
MIG langar til að fá svar
við eftirfarandi spurningu
frá Ástþóri Magnússyni
og Friði 2000.
Af hverju birtir þú ekki
mánaðarlega vinnings-
númer úr milljónapottin-
um, eins og gert er í öllum
öðrum happdrættum? Það
eru gefin upp símanúmer
frá þessum aðilum, en það
er sama í hvaða númer
hringt er, engin svör fást.
Ef allt er á hreinu hjá
þér, Ástþór Magnússon,
og Friði 2000, þá ætti ekki
að vera neitt mál að birta
vinningsnúmerin.
Svar óskast.
Kt. 171123-4459.
Ægisíðan og Klassík
FM 100,7
ÆGISÍÐAN er ein af
náttúruperlum Reykjavík-
ur, göngustígar meðfram
sjávarsíðunni alla leið út á
Seltjarnarnes. Hefur fólk
gert sér grein fyrir því að
hugmynd sú sem fram
hefur komið um flugvöll á
Lönguskerjum gerir ráð
fyrir að flugvöllur rísi
skammt frá landi við Æg-
isíðuna og meðfram henni
langleiðina að Seltjarnar-
nesi? Getum við fallist á
að þar verði búin til löng
eyja úr grjóti og stein-
steypu og getum við
ímyndað okkur þann há-
vaða og mengun sem það-
an bærist? Er hugsanlegt
að slík framkvæmd á
þessum stað slyppi í gegn
um umhverfismat? 8.
mars sl. skrifar maður í
Velvakanda og fagnar
nýrri djassrás á FM og er
sjálfsagt að samgleðjast
honum með það. Hann er
orðinn leiður á „síbylju-
poppinu“ á hinum stöðv-
unum og „steinrunnu
menningarbaulinu á sov-
étrásinni“ (hlýtur að eiga
við Gufuna). Ef maðurinn
á við klassíska tónlist er
ég ekki sammála honum
því að þar er klassískri
tónlist smeygt inn í stöku
sinnum, stutta stund í
einu, og ekkert á því að
byggja nema vera með
dagskrána uppi alla tíð.
Það er ótrúlegt að RÚV
skuli ekki getað rekið
klassíska rás með allt það
efni sem þar er inni og
alla aðstöðu. Ég skora á
forráðamenn RÚV að taka
þetta til rækilegrar athug-
unar.
Ein klassísk rás er þó
rekin – FM 100,7 – allan
sólarhringinn (ókynnt)
sem bjargar því sem
bjargað verður og er hún
hvorki rekin með afnota-
gjöldum né auglýsingum.
Ég veit hreint ekki á
hverju hún lifir en alla
vega TAKK.
Vesturbæingur.
Tapað/fundið
Reiðhjól hvarf við
Þjóðleikhúsið
REIÐHJÓLIÐ mitt hvarf
frá vinnustað mínum,
Þjóðleikhúsinu, aðfaranótt
mánudagsins 6. mars sl.
en þar stóð það læst síð-
ast um kl. 2 þá sömu nótt.
Hjólið sjálft er auðþekkj-
anlegt, grasgrænt með
grasgrænu framdekki en
svörtu afturdekki og hvít-
um framdempara. Þrí-
hyrnd toppslá er á hjólinu
og eru gular og rauðar
rendur á henni, sem og
annars staðar á hjólinu.
Einnig voru bretti og ljós
á hjólinu. Þar sem ég fer
nánast allra minna ferða á
reiðhjóli, er þetta sár
missir og vona ég því að
einhver góðborgarinn hafi
rekist á það og láti mig
vita í síma 863-0413, ell-
egar lögregluna.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Fyrirspurn til
Umferðarráðs
Víkverji skrifar...
FRÁ því var sagt hér í blaðinu ádögunum að hópur starfsmanna
hugbúnaðarfyrirtækisins Þróunar
hefði sótt dönskunámskeið í Háskóla
Íslands, sem var sérsniðið með þarfir
fyrirtækisins í huga. Þetta vakti at-
hygli Víkverja, sem er ákafur tals-
maður kennslu í dönsku eða öðrum
norrænum tungumálum á Íslandi.
Sérstaklega þótti Víkverja athyglis-
vert að sjá að þarna var á ferð fólk í
tölvugeiranum, þar sem enska er
ráðandi samskiptamál. Margir þeir
sem hafa verið hvað ákafastir í and-
stöðunni við kennslu dönsku í ís-
lenskum skólum hafa meðal annars
beitt þeim rökum að enska sé al-
heimsmálið í tölvu- og netheimum og
þar liggi jú tækifæri framtíðarinnar.
Því sé það tímaeyðsla að kenna ís-
lenskum börnum dönsku.
x x x
NÚ BER alls ekki að skilja Vík-verja svo að hann hafi eitthvað
á móti enskukennslu, síður en svo.
Hann er þvert á móti á þeirri skoðun
að alla tungumálakennslu beri að
efla, á öllum skólastigum og á öllum
brautum, ekki bara málabrautum.
Og ekki einungis á hinu evrópska
tungumálaári, sem nú er nýhafið,
heldur öll ár. Ef eitthvað er ætti að
byrja heldur fyrr, því rannsóknir
hafa sýnt að því fyrr sem börn hefja
tungumálanám þeim mun móttæki-
legri eru þau.
x x x
Í VIÐTALI við Katrínu Guð-mundsdóttur, ráðgjafa og náms-
stjóra Þróunar, kom fram að aukin
umsvif þess í dönskumælandi lönd-
um, þ.e. Danmörku, Færeyjum og
Grænlandi, hefðu leitt í ljós þörf fyrir
að geta átt tjáskipti við erlenda sam-
starfsmenn og viðskiptavini á Norð-
urlandamáli. Ennfremur kom fram
sú skoðun að fyrirtækið myndi án efa
eiga greiðari aðgang að markaði ef
starfsfólkið gæti notað dönsku sem
samskiptatungumál. Því var leitað til
Háskóla Íslands með það í huga að fá
sérsniðið námskeið. Þar á bæ voru
viðbrögðin góð, þarfir fyrirtækisins
voru greindar og útkoman var nám-
skeið sem heimspekideild Háskóla
Íslands hannaði og hélt í samvinnu
við Endurmenntunarstofnun og
Tungumálamiðstöð HÍ. Tæknin var
nýtt til hins ýtrasta við skipulagn-
ingu námskeiðsins, en kennslan fór
að mestu fram innan veggja fyrir-
tækisins sjálfs. Nemendur heimsóttu
þó einnig Tungumálamiðstöðina, þar
sem þeir gátu nýtt sér kennslugögn
og tækjabúnað, t.d. myndbandsefni,
beinar útsendiungar danskra sjón-
varpsstöðva og tölvuforrit til dönsku-
náms. Námið byggðist að miklu leyti
á upplýsingatækni, bæði með áhorfi
og hlustun og gagnvirkum æfingum í
gegnum tölvupóst og síma. Netið var
óspart notað, ekki síst vefir danskra
fjölmiðla og var þá sérstaklega litið á
umfjöllun um dönsk fyrirtæki í tölvu-
iðnaði. Áhersla var lögð á málnotkun
sem tengdist daglegum samskiptum,
meðal annars kurteisisvenjur. Einn-
ig var lögð áhersla á að þátttakendur
næðu betra valdi á tal- og ritmáli og á
fagorðaforða á því sviði sem fyrir-
tækið sérhæfir sig á.
x x x
FRAM kom í greininni að nám-skeiðið hefði í alla staði heppn-
ast vel og haft var eftir Auði Hauks-
dóttur, lektor í dönsku við HÍ, sem
skipulagði námskeiðið, að það hefði
verið bæði ögrandi og skemmtilegt
verkefni. „Fyrir okkur sem skipu-
leggjum tungumálanám við Háskól-
ann skiptir miklu máli að kynnast af
eigin raun þörfum atvinnulífsins fyr-
ir tungumálakunnáttu,“ sagði hún.
Á hátíðarstundum er gjarnan farið
fögrum orðum um tengsl Háskólans
og atvinnulífsins og er óhætt að segja
að umrætt dönskunámskeið sé gott
dæmi um slík tengsl eins og þau ger-
ast best.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16