Morgunblaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 61
It’s A Wonderful Life (1946)
EF Charles Dickens bjó til hina
klassísku jólasögu með „Christmas
Carol“ gerði Capra hina klassísku
jólamynd með þessu unaðslega æv-
intýri um lífsferil manns (James
Stewart) og allt það góða sem hann
lætur af sér leiða en til einskis að
því er virðist. Þegar hann ætlar að
fremja sjálfsmorð kemur til hans
engill sem sýnir honum hvernig
smábærinn hans liti út ef hans
hefði ekki notið við. Notalegar, ljúf-
ar tilfinningar skína úr hverjum
ramma þessarar einstöku myndar
um sigur litla mannsins á ofurefl-
inu. Lýstar með töfrabrögðum og
einstakri frásagnargáfu Capra og
góðum leik Stewarts.
You Can’t Take It With You
(1938) SÍGILD og síung gamanmynd
sem hlaut Óskarinn sem besta
mynd ársins, ásamt Frank Capra
fyrir leikstjórnina. Segir af við-
skiptum Vanderhof-fjölskyldunnar
(höfuð hennar leikur Lionel Barry-
more), er elsta dóttirin (Jean Arth-
ur) fellur fyrir ungum manni (Jam-
es Stewart), syni auðmanns sem
ásælist eigur hinna sérvitru Vand-
erhofa. Þegar þessar ólíku fjöl-
skyldur ná að lokum saman, verður
það til hins góða. Meðlimirnir fara
að sjá út fyrir naflann sinn og verða
að betri mönnum fyrir bragðið.
Ósvikinn Capra, einsog honum
tekst best upp.
Mr. Deed Goes To Town
(1936) EIN vinsælasta gaman- og al-
vörumynd Capra, er ótrúlega góð
skemmtun enn þann dag í dag og
boðskapurinn jafnsígildur. Gary
Cooper leikur sveitamann sem erfir
offjár og heldur í bæinn. Jean Arth-
ur leikur harðsnúna blaðakonu sem
leggur sig fram við að finna veikar
hliðar á hrekklausu góðmenninu og
gantast að barnslegri framkomu
hans í illvígum greinaskrifum. Mik-
il skemmtun, ein af hinum sígildu
gamanmyndum, kenndum við
Capra. Stjörnurnar skína skært og
aukaleikarar, einsog Lionel Stand-
er, gefa þeim lítið eftir.
SÍGILD MYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 61
Prag
26. mars
frá kr. 13.950
Nú býðst þér ótrúlegt tækifæri til að heimsækja þessa
heillandi borg á verði sem hefur aldrei sést fyrr. Þú bókar 2
sæti til Prag, en greiðir bara fyrir 1, og kemst til fegurstu
borgar Evrópu á frábærum kjörum. Hjá Heimsferðum get-
ur þú valið um gott úrval 3 og 4 stjörnu hótela og farar-
stjórar Heimsferða bjóða þér spennandi kynnisferðir á
meðan á dvölinni stendur. Farið verður út 26. mars, og
komið heim 29. mars.
Verð kr. 13.950
Flugsæti p. mann, m.v. 2 fyrir 1.
27.900/2 = 13.950.
Skattar kr. 2.820, ekki innifaldir.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Forfallagjald kr. 1.800.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Fáðu bæklinginn sendann!
Í ÆVISÖGU sinni, The Name Above
the Title, fer Capra mörgum orðum
um vandamálin við að koma næsta
verkefni á tjaldið. Hét upphaflega
Night Bus, og fjöldi stjarna á borð
við Myrnu Loy, Margaret Sullivan
og Constance Bennett, gáfu það frá
sér. Handritið var að vísu eitthvað
betrumbætt áður en Claudette Col-
bert tók það að sér, einkum þar sem
Harry Cohn borgaði henni tvöföld
laun. Hætt er við að Myrna og hinar
leikkonurnar, hafi nagað á sér hand-
arbökin þegar myndin, sem fékk
endanlega nafnið It Happened One
night (’34), varð sú mest sótta um
árabil og tímamótamynd sem varð
fyrst til að hirða öll, helstu Ósk-
arsverðlaunin. Clark Gable var í
ónáð hjá húsbonda sínum, Louis B.
Mayer, hjá MGM. Þess vegna lánaði
hann ofurstjörnu sína til dvergrík-
isins Columbia, sem þótti hálfgerð
hneysa fyrir Gable. Þetta reyndist
engu að síður ein mesta gæfa í lífi
leikarans, sem fékk Óskarinn í
fyrsta og eina skiptið. Þau Colbert
eru óaðfinnanleg saman og myndin
frábær skemmtun enn þann dag í
dag.
Hver Óskarinn á fætur öðrum
It Happened One Night gerði bet-
ur en að vinna öll aðalverðlaunin og
moka inn peningum. Hún lagði
grundvöllinn að því að gera Col-
umbia að alvörukvikmyndaveri og
Capra að einum eftirsóttasta og virt-
asta leikstjóra sögunnar. Hann var
kjörinn forseti kvikmyndaakadem-
íunnar, stöðu sem hann hélt næstu
fjögur árin.
Capra hélt áfram á sigurbraut-
inni. Áður en fjórða áratugnum lauk
hafði hann hlotið tvenn Óskars-
verðlaun til viðbótar, fyrir leikstjórn
Mr Deeds Goes To Town (’36) og
You Can’t Take It With You (’38).
Þrír Óskarar á fimm árum. Enginn
leikstjóri hefur nálgast slíkt afrek,
fyrr né síðar. Auk þess fékk hann og
allar þessar myndir hin eftirsóttu
verðlaun samtaka gagnrýnenda í
New York. Inn á milli kom Horfin
sjónarmið – Lost Horizon (’37), enn
eitt snilldarverkið.
Síðustu gamansömu ádeilurnar
sem Capra leikstýrði áður en Banda-
ríkin héldu í seinna stríðið, Mr.
Smith Goes To Washington (’39) og
Meet John Doe (’41), báru þess
merki að hann væri farinn að end-
urtaka sig, jafnvel taka sig full al-
varlega. Kvikmyndagerð leikritsins
Blúndur og blásýra – Arsenic and
Old Lace (’42) – en ekki frumsýnd
fyrr en ’44), boðaði afturhvarf til
fyrri velgengnistíma gamanmynd-
arinnar.
Í þjónustu hersins
Capra tók því feginshendi að geta
kvatt Hollywood um sinn og lagt lóð
sitt á vogarskálir stríðsátakanna
með stjórn raðar heimildarmynda
sem heita Why We Fight, og gerðar
voru á vegum stjórnvalda. Capra
hafði aldrei komið nálægt slíkum
störfum áður, en tókst, ásamt mögn-
uðu astoðarmannaliði, sögulega vel
upp og vann Óskarsverðlaunin fyrir
fyrstu mynd raðarinnar; Prelude to
War (’42). Í kjölfarið fylgdu World at
War (’42), Battle For Russia, The
Battle of Britain, The Nazi Strike,
Tunisian Victory (allar ’43); The
Battle of China og Negro Soldier
(’44). Bálknum lauk 1945, með D-
Day and The Normandie Invasion,
Appointment in Tokyo og War Com-
es to America, sem var lokapunkt-
urinn.
Eftir stríðið tók Capra upp þráð-
inn þar sem frá var horfið, með
hinni metnaðarfullu og tilfinn-
ingaþrungnu gamanmynd,
It’s a Wonderful Life, sem
færði leikstjóranum og mynd-
inni Óskarsverðlaunatilnefn-
ingar. Hún vann hinsvegar í
þessum flokkum hjá hinum
kröfuhörðu gagnrýnenda-
samtökum í New York. Mynd-
inni var ekkert of vel tekið hjá
almenning, sem hefur síðar
sett hana á stall með bestu
myndum sögunnar og er
sannarlega síðasta stórvirki
meistarans.
Næst leikstýrði Capra þeim
Spencer Tracy og Katherine Hep-
burn í State of the Union (’48). Töfr-
arnir fóru hverfandi, líkt og kom
glögglega fram í Riding High (’50)
og Here Comes the Groom (’51),
tveimur myndum með Bing Crosby.
Síðan liðu átta ár að frumsýningu A
Hole in the Head (’59) og lokamynd-
in, A Pocketful of Miracles, kom á
markaðinn ’62. Ágæt gamanmynd
með Glenn Ford og Bette Davis, en
frumleikann skorti og svanurinn
þagnaði. Capra, sem gæti kallast
konungur fjórða áratugarins, og er
tvímælalaust í hópi 10 bestu leik-
stjóra allra tíma, lést 1991, á 95. ald-
ursári.
Úr You Can’t Take It With You: Edward Arnold og hver annar en uppá-
hald Capra, sjálfur James Stewart.
Lionel Stander, Jean Arthur og Gary
Cooper fara á kostum í hugsjónamynd-
inni Mr. Deed Goes To Town.
James Stewart og Donna Reed í jólamynd allra jólamynda, It’s A Wonderful Life.
FRANK CAPRA II