Morgunblaðið - 04.07.2001, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.07.2001, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isOlga Færseth setti nýtt markamet / B1 Stefnt á A-riðil á Evrópumótinu í golfi / B1 4 SÍÐUR Sérblöð í dag FJÖLSKIPAÐUR dómur Héraðs- dóms Reykjavíkur dæmdi í gær karlmann í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun og líkamsmeiðingar á sambýliskonu sinni í sumarhúsi í Helgafellssveit sumarið 1999, sem og fyrir innbrot og eignarspjöll á íbúðarhúsnæði við Hólaberg í Reykjavík. Honum var auk þess gert að greiða konunni eina milljón króna í miskabætur auk sakarkostnaðar. Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa valdið konunni líkamsmeiðingum en neitaði að hafa þröngvað henni til kynmaka. Dómurinn taldi hins vegar framburð konunnar og önnur gögn benda til annars. Þá játaði maðurinn að hafa brotist inn í íbúðarhúsnæðið og valdið þar tjóni. Fram kemur í dómnum að brotaþoli hafi borið öll merki alvarlegs líkamlegs og kyn- ferðislegs ofbeldis og því var þeirri varnarástæðu ákærða, að hann hefði lifað miklu og hörðu kynlífi með brotaþola, með öllu hafnað. Ákærði á að baki langan sakaferil og hefur hann frá árinu 1992 hlotið 20 refsidóma fyrir ýmiss konar af- brot. Héraðsdómur var skipaður Valtý Sigurðssyni dómsformanni og hér- aðsdómurunum Helga I. Jónssyni og Kristjönu Jóndóttur. Fyrir hönd ákæruvaldsins sótti málið Sigríður Jósefsdóttir saksóknari en verjandi ákærða var Kristján Stefánsson hrl. Fangelsi í 3 ár fyrir nauðgun og líkamsmeiðingar BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam- þykkti í gær að fela fjármáladeild borgarinnar að endurskoða álagn- ingarprósentu fasteignagjalda, með það að markmiði að endurskoðað fasteignamat leiði ekki til þess að heildarálögur á Reykvíkinga hækki. Þá beinir borgarráð því til við- skiptaráðherra að afskrift bruna- bótamats, eins og hún er útfærð í endurskoðuðu mati á grundvelli lagabreytingar frá 1999, verði tekin til endurskoðunar. Brunabótamat fasteigna í Reykjavík lækkar um 13% að meðaltali í endurskoðuðu mati. Á fundi borgarráðs í gær var lagt fram minnisblað fjármáladeildar um áhrif endurskoðaðs fasteignamats sem kynnt var í síðustu viku og tek- ur gildi þann 15. september nk. Meðalhækkun fasteignamats í Reykjavík var 15%. Fasteignamat lóða hækkar í nýju mati um 27% og fasteignamat húsa um 13%. Endurmatið hefur áhrif á tekjur borgarsjóðs hvað fasteignaskatt, lóðaleigu og holræsagjald varðar. Miðað við óbreytta álagningarpró- sentu myndu tekjur af fasteigna- sköttum íbúðarhúsnæðis hækka um 16,6%, eða rúmar 70 milljónir króna og um tæp 13% af atvinnuhúsnæði eða 22 milljónir. Þá myndi lóðarleiga af íbúðarhúsnæði hækka um tæp 60% en lækka um rúm 2% af at- vinnuhúsnæði. Holræsagjald myndi hækka um rúm 16% af íbúðarhús- næði og um 13% af atvinnuhúsnæði. Heildarálögur á borgarbúa aukist ekki Álagningarprósenta fasteignagjalda endurskoðuð „KRUMMI veit greinilega hverjum hann má treysta,“ sagði Jón Gunn- ar Ottósson, forstjóri Nátt- úrufræðistofnunar, en hrafnapar hefur undanfarna daga athafnað sig á húsþakinu á heimili Jóns og Margrétar Frímannsdóttur alþing- ismanns við Íragerði á Stokkseyri. Hrafninn útbjó sinn laup í tækjasamstæðu við hraðfrysti- húsið á Stokkseyri skammt frá heimili Jóns og Margrétar og fyrir 10 dögum kom hann með ungana þegar þeir urðu fleygir en það mun vera háttur krumma að flytja ungana úr hreiðrinu í um 500 metra fjarlægð þegar þeir eru orðnir fleygir. „Hann kemur með ungana um hálfsjö eða sjö á kvöldin, sest með þeim á þakið og kemur þeim fyrir þar. Hann fylgist síðan með þeim úr fjarlægð og fer síðan. Þarna húktu þeir síðan án þess að hreyfa sig þangað til þeir voru sóttir á morgnana, alltaf á sama tíma, klukkan hálfsex. Þá voru ógurleg læti á þakinu, fagnaðarlæti í ung- unum sem síðan fóru með foreldr- unum rétt fyrir klukkan sex. Svo sá maður þá koma hingað aftur næsta kvöld,“ sagði Jón Gunnar Ottósson. Hann fylgdist vel með hegðun krumma sem er í merki Nátt- úrufræðistofnunar og var nýlega settur á válista yfir fugla í útrým- ingarhættu. Vel má vera að krummi sé að launa Jóni Gunnari þessa liðveislu. „Foreldrarnir láta ungana vera eina á nóttunni og það virðist vera til þess að ýta undir sjálfstæði þeirra og sjálfsbjargarviðleitni. Það er vitað að foreldrarnir eru með ungunum í 3-4 vikur eftir að Hrafnsungar á þaki húss forstjóra Náttúrufræðistofnunar Krummi veit hverj- um má treysta Morgunblaðið/Jón Sig Jón Gunnar Ottósson við hrafnshreiðrið. þeir eru orðnir fleygir. Mér finnst gaman að þessu, að hann skyldi velja mitt hús þar sem hann er jú í merki stofnunarinnar. Það hefur svo aftur flogið í gegnum hugann að ef þetta hefði gerst fyrr á öld- um væri sennilega búið að brenna mann fyrir galdrakukl,“ sagði Jón Gunnar Ottósson, krummavinur á Stokkseyri. Stokkseyri. Morgunblaðið. Í GÆR var kveðinn upp úrskurður í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli sem upp kom vegna synjunar sýslu- mannsins í Reykjavík um lögbanns- beiðni þess efnis að Jóhann Óli Guð- mundsson nýti þau hlutabréf í Lyfjaverslun Íslands hf., eða ráðstafi þeim til annarra, sem hann fékk 20. síðasta mánaðar í skiptum fyrir fyr- irtækið Frumafl hf. Sækjendur í málinu, þeir Lárus L. Blöndal, Aðalsteinn Karlsson og Guðmundur A. Birgisson, gerðu kröfu um það fyrir dómnum að ákvörðun sýslumannsins um að synja lögbannsbeiðninni yrði felld úr gildi og að lagt yrði fyrir sýslumann að leggja lögbann á í samræmi við fyrirliggjandi beiðni þar um. Hér- aðsdómur hafnaði kröfunni en felldi niður málskostnað. Verðmatið einstaklingsbundið Í rökstuðningi með dómnum segir að stjórn Lyfjaverslunar hafi full- nægt lagaskilyrðum um verðmat á andvirði Frumafls. Þar segir enn fremur að sönnunarbyrðin fyrir því að sérfræðiskýrsla, sem stjórn Lyfjaverslunar hafi látið gera um verðmæti Frumafls, sé röng, hvíli á sækjendum málsins. Dómurinn get- ur þess að þeir hafi vísað í álitsgerð- ir, meðal annars álit Helga V. Jóns- sonar, hæstaréttarlögmanns og löggilts endurskoðanda, um að greiðsla Lyfjaverslunar fyrir Frum- afl sé í engu samræmi við raunvirði félagsins. En dómurinn segir: „Ekkert af því sem sóknaraðilar hafa lagt fram, hnekkir í raun sér- fræðiskýrslu þeirri, sem stjórn [Lyfjaverslunar Íslands] lét gera. Um er að ræða mat á ýmsum ófjár- hagslegum verðmætum, s.s. við- skiptavild og viðskiptasamböndum, samkeppnisforskoti, stækkunar- möguleikum o.s.frv. Því gefur augaleið, að mat á þess- um verðmætum hlýtur að verða ein- staklingsbundið.“ Dómurinn fjallar einnig um tvo stjórnarfundi, annan haldinn 11. og hinn 20. júní. Hann gerir ekki at- hugasemdir við fundinn 11. júní, sem haldinn var í gegnum síma, en segir að seinni fundurinn orki fremur tví- mælis. Þetta var sá fundur þar sem ákvörðun var tekin um að afhenda Jóhanni Óla Guðmundssyni hluta- bréfin í Lyfjaversluninni í skiptum fyrir Frumafl. Dómurinn segir hins vegar að stjórnarformaður félagsins hafi metið aðstæður svo, að nauðsyn- legt hafi verið að halda fundinn og beri honum að svara fyrir þá ákvörð- un sína á fyrirhuguðum hluthafa- fundi í félaginu. Þá segir dómurinn að á það beri að líta að varnaraðili hafi engan hlut átt að boðun á stjórn- arfundinn. Af þessum sökum þykir dómnum ekki tilefni til að ógilda ákvörðun stjórnarfundarins 20. júní. Jón Steinar Gunnlaugsson er lög- maður sækjenda málsins og segir hann að rík efni séu til að kæra úr- skurð Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar og að það hafi þegar verið gert. Í því felist að hann telji að úrskurðurinn standist ekki og á því sé byggt í kærunni. Vegna kaupa á Thorarensen lyfj- um ehf. og Frumafli hf. hefur stjórn Lyfjaverslunar Íslands hf. gefið út nýtt hlutafé að nafnvirði 220 m.kr. Hið nýja hlutafé hefur verið skráð á Aðallista Verðbréfaþings Íslands. Skráð hlutafé Lyfjaverslunarinnar eftir hækkunina er 600 milljónir króna að nafnvirði. Lokagengi hlutabréfa í Lyfja- versluninni var 5,20 á Verðbréfa- þingi Íslands í gær. Markaðsvirði félagsins er því 3.120 milljónir króna. Lögbannsbeiðnin fer fyrir Hæstarétt Synjun um lögbann ekki felld úr gildi  Verðmæti/17

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.