Morgunblaðið - 04.07.2001, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 11
BÆNDAFERÐIR KYNNA:
HAUST 5 25.-28. okt.
Flug snemma dags til Dublínar. Þaðan verður ekið til Waterford á
S-Írlandi. Þar verður gist í þrjár nætur. Farnar skoðunarferðir. Í Water-
ford er verðlag með því hagstæðasta sem gerist á Írlandi.
Nokkur sæti laus í eftirtöldum ferðum:
SUMAR 10 3.-16. sept.
Austurríki-Sviss-Frakkland-Þýskaland (Svartiskógur og Rín). 4 sæti.
HAUST 3 18.-29. okt.
Þýskaland og Ítalía. 6 sæti.
HAUST 4 28. okt.-4. nóv.
Mosel og Rín. 12 sæti.
Verð ferða frá kr. 48.000 til kr. 84.600
Nánari upplýsingar um ferðirnar í símum
533 1335 og 588 6506.
Bændaferðir, Byggðarenda 2
HAUST 5
HAUST 3
SUMAR 10
HAUST 4
EKKI er grundvöllur fyrir alhliða
verslun nema á 4-5 stöðum á landinu,
að mati Jóhannesar Jónssonar, kaup-
manns í Bónusi, en hann flutti fram-
söguerindi á ársfundi Byggðastofn-
unar á Selfossi í gær. Hann rakti þar
framtíðarsýn sína í verslun hér á landi
og vöktu ýmis ummæli Jóhannesar
athygli á fundinum og hleyptu þau af
stað fjörugum umræðum.
Svæðin sem Jóhannes hafði í huga
voru suðvesturhornið, að Suðurlandi
og Vesturlandi meðtöldu, Vestfirðir
með Ísafjörð sem miðpunkt, Akureyri
sem miðpunktur Norðurlands og
Egilsstaðir fyrir Austfirði.
Að hans mati getur matvöruversl-
un á borð við Bónus ekki gengið nema
í 4-6 þúsund manna byggðarlagi, ef
bjóða á upp á sanngjarnt verðlag. Tel-
ur Jóhannes að verslun í 800 til 1000
manna byggðarlagi með 8 milljóna
króna veltu geti ekki borið sig og eina
úrræðið sé að koma upp netverslun
með dagvörur til fámennari staða á
landinu.
„Ef mannlíf á að geta þrifist í
hinum dreifðu byggðum þá held ég að
fólk verði að getað náð í sínar daglegu
lífsnauðsynjar á hentugan og örugg-
an hátt. Innan Baugs höfum við verið
að þróa netverslun með dagvörur sem
gæti orðið staðreynd seinna á árinu.
Við ættum þá að geta dreift dagvöru
vítt og breitt um landið eftir því sem
ferðir gefast,“ sagði Jóhannes.
Hugmynd Baugs er að setja upp
stöðvar víðs vegar um land, í sam-
starfi við fyrirtæki sem einstaklinga,
sem fólk getur leitað til, farið yfir
vörulista og pantað það sem til heim-
ilisins vantar. Greiðsla færi þá fram
með rafrænum hætti. Jóhannes sagði
að þetta væri hið eina sem sér dytti í
hug til að gera mannlífið bærilegra á
fámennari stöðum á landinu.
„Við hjá Baugi höfum fullan hug á
því, og teljum okkur það skylt í krafti
stærðarinnar, að gera eitthvað í þessa
veru til að efla mannlíf á sem breið-
ustum grunni um allt land,“ sagði Jó-
hannes ennfremur.
Að erindi sínu loknu fékk Jóhannes
margar fyrirspurnir, m.a. frá stjórn-
armönnum Byggðastofnunar og þing-
mönnum á landsbyggðinni, núverandi
sem fyrrverandi, sem hugnaðist ekki
framtíðarsýn kaupmannsins.
Þannig sagði sr. Gunnlaugur Stef-
ánsson að Heydölum og stjórnarmað-
ur í Byggðastofnun, að hugmyndir
Jóhannesar um netverslunina minntu
sig á gamla tíma þegar fólk til sveita
gat pantað vörur úr kaupfélaginu af
sérstökum lista og sótt vörurnar svo á
brúsapallinn daginn eftir eða síðar.
Gunnlaugur sagði að þetta gæti ekki
verið að endurtaka sig, að „brúsa-
palli“ í formi netverslunarstöðvar yrði
komið fyrir í hverju þorpi. Fólk vildi
versla meðal fólks og komast í snert-
ingu við vöruna sem það keypti.
Auðvelda mætti fyrirtækjum
aðgang að lánsfé
Guðmundur Kr. Tómasson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Íslands-
banka, flutti einnig erindi á ársfund-
inum. Hann fjallaði þar m.a. um
áherslur bankans í lánveitingum og
sagði hann staðsetningu fyrirtækja
engu skipta um hvort þau fengju lán
eða ekki. Bankinn ynni eftir stöðluðu
ferli í þeim efnum. Viðskiptalegar for-
sendur lægju þar að baki, ekki
byggðasjónarmið.
„Eitt af markmiðum í starfsemi
Byggðastofnunar er að styrkja eða
jafna stöðu landsbyggðarinnar gagn-
vart höfuðborgarsvæðinu. Í ljósi þess
mætti e.t.v. velta fyrir sér hvort sú
leið væri að einhverju marki fær að
Byggðastofnun veitti innlendum
bönkum ábyrgð á lánum til minni fyr-
irtækja á landsbyggðinni eða fyrir-
tækja með stutta eða enga rekstrar-
sögu. Slíkt fyrirkomulag gæti
auðveldað fyrirtækjum aðgang að
lánsfjármagni. Önnur leið að sama
marki væri að Byggðastofnun tæki
meiri áhættu í lánveitingum sínum til
fyrirtækja en bankar og sparisjóðir,
með því að fallast á 10-20% hærra
veðhæfi en bankarnir gera,“ sagði
Guðmundur.
Netverslun fyrir
fámenna staði
Jóhannes Jónsson í Bónus hleypti af stað fjörugum
umræðum á ársfundi Byggðastofnunar
VEIÐI hófst í Svartá eftir hádegið á
sunnudaginn og á hádegi í gær lauk
fyrsta hollið veiðum. Lágu þá sex
laxar í valnum, þar af tveir 11–12
punda. Þetta þykir mönnum allgóð
byrjun í Svartá, sem oft er sein til.
Allir laxarnir veiddust uppi í á,
þ.e.a.s. enginn veiddist í Ármótum,
þar sem áin fellur í Blöndu, en þar
er iðulega einna drýgst að veiða.
Þar sáu menn fiska einungis
stökkva. Aðeins er veitt á flugu í
Svartá og gaf gamla góða Frances
þrjá laxa.
Ýmis tíðindi
Búðardalsá var opnuð síðdegis á
sunnudag og veiddust þrír laxar
þar í opnun. Fyrsti laxinn er einnig
kominn á land úr Miðá í Dölum, 5
pundari sem tók rauða Frances ör-
túpu númer 16 með keilukolli.
Þetta ku lofa góðu, en lítið vatn er
þó í ám vestur í Dölum.
Straumfjarðará er að koma til, að
sögn eins leigutakans, Ástþórs Jó-
hannssonar í Dal. „Þetta hefur ver-
ið erfitt, en það er að lyftast brúnin
á mönnum og kominn fiskur um
allt, meira að segja upp fyrir nýja
laxastigann,“ sagði Ástþór.
Veiðileyfasala á Netinu
Það færist mjög í vöxt að menn
geti fest sér veiðileyfi á Netinu. Hjá
nat.is er unnið að því að ná inn sem
flestum veiðileyfasölum og þar eru
nú þegar komnir Veiðiþjónustan
Strengir og Lax-á.
„Ég stefni að því að á einum stað
geti menn séð allan markaðinn.
Þessir aðilar eru flestir með þetta
efni inni á síðum sínum, en stefnan
er að á nat.is geti menn séð allan
pakkann,“ sagði Birgir Sum-
arliðason hjá nat.is í samtali við
Morgunblaðið.
Þess má geta í sömu andrá, að
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hef-
ur sett upp netverslun með sín
lausu veiðileyfi og þar er slóðin
www.svfr.is.
Veiði byrjar vel
í Svartá
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Pálmi Gunnarsson þreytir væna bleikju í ármótum Brunnár og Sandár.
FJÖGUR ungmenni á aldrinum
17–18 ára, þrír piltar og ein
stúlka, voru handtekin af lögregl-
unni í Selahverfi í Kópavogi um
klukkan rúmlega þrjú aðfaranótt
þriðjudags vegna gruns um inn-
brot í bifreið og þjófnað.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar í Kópavogi náðust ung-
mennin skammt frá vettvangi og
fannst þýfið m.a. í bifreið þeirra.
Voru þau yfirheyrð í gærdag og
telst málið upplýst en tveir pilt-
anna eru þekktir hjá lögreglunni.
Fjögur ungmenni hand-
tekin fyrir innbrot