Morgunblaðið - 04.07.2001, Síða 26

Morgunblaðið - 04.07.2001, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. EVRÓPURÍKIN ákváðu áárinu 1985 að snúa bökumsaman og hefja samstarfum rannsóknir og ný- sköpun í atvinnulífinu undir yfir- skriftinni Evreka. Markmiðið var að styrkja samkeppnishæfni Evrópu gagnvart Bandaríkjunum og Japan. Á þessum vettvangi hafa evrópsk fyrirtæki og rannsóknarstofnanir rutt úr vegi ýmsum hindrunum og hafið samstarf um þúsundir rann- sóknarverkefna sem oft hafa skilað mikilvægum nýjungum á markað. Árlega hittast ráðherrar nýsköpun- armála í aðildarríkjunum á fundi á vettvangi samstarfsins til þess að samþykkja ný verkefni og leggja á ráðin fyrir framtíðina. Á ráðherra- fundinum í síðustu viku í Madríd voru 190 ný verkefni samþykkt en meðal þeirra eru þrjú regnhlífar- verkefni. Hefur verkefnum fjölgað um tæplega 20 frá fyrra ári en alls hafa yfir tvö þúsund verkefni fengið gæðamerki Evreka frá stofnun sam- starfsvettvangsins fyrir 16 árum. Heildarumfang verkefnanna í ár er um 493 milljónir evra, eða tæplega 44 milljarða íslenskra króna, en meirihluti þess rennur til verkefna sem lítil og meðalstór fyrirtæki standa að. Alls hefur yfir 20 millj- örðum evra verið varið til Evreka- verkefna á undanförnum árum. Jafnframt var samþykkt á fund- inum að veita Eistlandi og Slóvakíu aðild að Evreka-samstarfinu. Alls eru aðildarríki Evreka því orðin 31 talsins auk Evrópusambandsins. Aukin tengsl Íslands og Eystrasaltsríkjanna Sveinn Þorgrímsson, skrifstofu- stjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytinu, segir að það sé til augljósra bóta að fá ríki Austur- og Mið-Evr- ópu inn í samstarfið. Íslendingar horfa í auknum mæli til sóknarfæra í þessum löndum og útrás íslenskra fyrirtækja á þessi markaðssvæði lof- ar góðu. Þetta komi vel í ljós í Eystrasaltsríkjunum þar sem Ís- lendingar hafi nú þegar náð góðri fótfestu og njóti þar almennra virð- ingar og velvildar. „Þrátt fyrir að tengslin séu, enn sem komið er, kannski ekki mikil að magni þá er al- veg ljóst viðskipti okkar við þessi lönd munu fara stöðugt vaxandi enda eru möguleikar íslenskra fyr- irtækja og fjárfesta mjög miklir, eins og dæmi eru um. Þessi fjölgun eykur val okkar á samstarfsþjóðum og ekkert annað en jákvætt að þau hafi fengið aðild að Evreka.“ Að sögn Sveins var á fundinum sam- þykkt að koma á nýjum flokki sam- starfsríkja Evreka (Eureka associa- ted countries) í stað þess að hleypa ríkjum utan Evrópu inn í Evreka- samstarfið. Um Evrópusamstarf sé að ræða en vegna þeirrar alþjóða- væðingar sem á sér stað í heiminum þá vilji Evreka-ríkin ekki útiloka samstarf við ríki sem standa fyrir ut- an Evrópu og hafa áhuga á að koma að samstarfi innan Evreka. Því hafi þessi leið verið valin, að þau verði samstarfsríki án beinnar aðildar. Samþykkt var að í byrjun væri farið í samstarf við 12 Miðjarðarhafslönd til þriggja ára. Að sögn Sveins verð- ur þeim boðið upp á að taka þátt í Evreka-verkefnum þó svo þau séu ekki fullgildir meðlimir. Spánverjar og Grikkir hafa lagt mikla áherslu á þetta enda mun þetta eflaust auka samstarf þeirra við sín nágranna- lönd. Sveinn segir að þetta sé mun betri leið heldur en að fjölga beinum aðild- arríkjum Evreka því þá sé sú hætta alltaf fyrir hendi að samstarfið verði of þungt í vöfum og sveigjanleiki þess minnki. Sveigjanleiki Evreka meiri en rammaáætlana ESB Snæbjörn Kristjánsson, verk- fræðingur hjá Rannsóknarráði Ís- lands, Rannís, sem fer með almenn samskipti við Evreka fyrir Íslands hönd, segir að aukin áhersla sé lögð á hlut lítilla og meðalstórra fyrir- tækja á kostnað stórra í Evreka- samstarfinu. Þetta komi sér vel fyrir Íslendinga þar sem skilgreiningin á litlum fyrirtækjum er m.a. sú að starfsmenn þeirra séu 250 eða færri. Því falla flest íslensk fyrirtæki inn í flokk lítilla. Að sögn Snæbjörns kom fram á fundinum í Madríd hversu mikil ánægja er meðal litlu fyrirtækjanna hvað varðar þátttöku í Evreka-verk- efnum. Ekki síst vegna þess sveigj- anleika sem einkennir Evreka ólíkt því orði sem fer af verkefnum á veg- um ESB. Innan Evreka skilgreina fyrirtækin verkefnin og hvernig ætl- unin sé að taka á þeim vandamálum en ef fyrirtæki sækja um styrk til rammaáætlunar Evrópusambands- sins þurfa þau að falli inn í ákveðinn ramma. Sveinn segir að margt hafi breyst á þeim 5–6 árum frá því að hann kom fyrst að Evreka. „Þá höfðu menn miklar áhyggjur af fækkun stórfyr- irtækja í Evreka-verkefnum. Mér þótti þessi þróun aftur á móti til bóta út frá íslenskum hagsmunum enda teljast íslensk fyrirtæki flest til lítilla fyrirtækja. Síðan hefur þjóðum inn- an Evreka-samstarfsins fjölgað og þá ekki síst frá Austur-Evrópu þar sem áhersla er lögð á lítil og með- alstór fyrirtæki. Ég þekki lítillega til nýsköpunarmála í Eystrasaltsríkj- unum og er kunnugt um að þeir hafa á stefnuskrá sinni að auka rann- sókna- og þróunarsamstarf við Norðurlöndin og Ísland þá um leið. Eins hafa stærri ríkin lagt til hliðar áherslur sínar á risaverkefni í Evr- eka-samstarfinu enda er öllum orðið ljóst að vöxturinn í dag er hjá smærri og meðalstórum fyrirtækj- um sem stunda framsækna nýsköp- unarstarfsemi,“ segir Sveinn. Íslensk ferðaþjónustufy eiga fullt erindi í „Eurot Á fundinum kom fram þjónustu er að aukast í verkefnum en áður teng nánast öll iðnaði. Má þar n af regnhlífarverkefnunum þykkt voru og Spánverjar svari fyrir, „Eurotourism fyrirtæki frá 14 aðildarlön eka hafa sýnt verkefninu segir Snæbjörn að íslen þjónustufyrirtæki eigi full að taka þátt í því. „Þó svo efnið sé byrjað er ekkert þ irstöðu að bætast í hópi næsta ári. Ég ætla að kyn verkefni fyrir íslenskum að haust en við erum með nok efni í ferðaþjónustu í gan sem gætu átt heima undi regnhlíf.“ Auk þess að kyn þjónustuverkefnið mun halda kynningarfund um samstarfið og rammaáætl fyrir íslenska aðila í ágúst. Snæbjörn segir að þjónu urinn hafi átt undir högg a rannsóknar- og þróunarvi landi vegna ólíkrar upp heldur en þegar tæki fyrir annað slíkt er þróað og Svipað sé uppi á teningnu staðar í Evrópu. „Nor leggja í Evreka-samstarfi áherslu á þjónustuiðnaðin sérstaklega Finnar. Eins e ingatæknin mjög vaxandi Evreka-samstarfi og í M kynnt nýtt klasaverkefn geira, ITEA sem er und Hollendinga. Á Íslandi h sérstaka markáætlun um ingatækni og umhverfism er möguleika á að koma v á stað sem síðar gætu te klasaverkefnum af þessu ta Ég held að við Íslending að leggja sérstaklega á þessa tvo geira, upplýsinga ferðaþjónustu, því þar eig fyrirtæki mikla möguleika ast í erlent samstarf í gegn eka.“ Hlutfallslega flei íslensk Evreka-verk Snæbjörn segir að íslens irtækjum hafi almennt g eftir að hafa tekið þátt í samstarfi og hlutfallslega h íslensk fyrirtæki tekið þá eka-samstarfi en gengur meðal aðildarríkja Evrek hafa 16 verkefni með íslen töku verið samþykkt frá 19 Sveinn lagði fram tillög inum í Madríd er lýtur að þ Evreka-merkið sýnilegra þekkt meðal framtaksfjárfe ilvægt sé að framtaksfjárfe í auknu mæli með áhætt sprotafyrirtækin og verði m ir um fjárfestingarmögulei felast í þeim verkefnum sem hefur fóstrað. „Ég leg áherslu á að Evreka standi irtækjastefnumóti þar se taksfjárfestar og álitleg sp tæki verði leidd saman. Un ár hefur framboð á áhætt aukist í Evrópu. Þrátt fyrir ur afturkippur sé í fjárfe sprotafyrirtækjum um mundir er það væntanle bundið. Jafnframt er ljóst að f Heildarumfang þeirra 190 verkefna Þekking er mikilvæg- asta eignin Árlegur ráðherrafundur Evreka-rannsóknar- og nýsköpunarsamstarfsins var haldinn í Madríd nýverið. Á fundinum fékk eitt íslenskt verkefni gæðastimpil Evreka. Guðrún Hálfdánardóttir fylgdist með fundinum og ræddi við fulltrúa Íslands á honum. FLOKKAÐ GRÆNMETI SKYNSAMLEGAR TILLÖGUR ALÞÝÐUSAMBANDSINS ALÞÝÐUSAMBAND Íslandshefur kynnt tillögur að að-gerðum til að draga úr verð- bólgunni og hækka gengi krónunn- ar – en hvort tveggja er mikilvægt hagsmunamál launafólks þessa dag- ana. Athygli vekur hversu þunga áherzlu Alþýðusambandið leggur á að stuðla að því að varðveita stöð- ugleikann á vinnumarkaði með fyr- irbyggjandi aðgerðum, í stað þess að hafa í hótunum um uppsögn launaliðar samninga á næsta ári, fari verðbólgan úr böndunum – eins og einhvern tímann hefði verið gert. Þetta er skynsamleg og ábyrg nálg- un hjá forystu sambandsins og til þess fallin að ná árangri. Sú tillaga ASÍ er athyglisverð, að ríkið taki stórt erlent lán til að greiða niður innlendar skuldir sínar og draga þar með úr þrýstingi á vexti og gengi krónunnar, án þess þó að ýtt væri undir neyzlu eða fjár- festingar. Jákvæð áhrif á gengið af slíkri lántöku virðast augljós, þótt eflaust yrði um skammtímaáhrif að ræða og meira yrði að koma til. Fróðlegt verður að sjá viðbrögð stjórnvalda við þessari hugmynd, en Vilhjálmur Egilsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Al- þingis, hefur þegar tekið vel í hana. Tillögur ASÍ um lækkun á opin- berum álögum á benzín og á öðrum óbeinum sköttum, eru sömuleiðis allrar athygli verðar við núverandi aðstæður. Lækkun þeirra gjalda ætti að hafa áhrif í þá átt að draga úr verðbólgunni. Sama má segja um lækkun á innflutningstollum á grænmeti. Margvísleg rök eru fyrir því að fella með öllu niður tolla á grænmeti og leyfa innlendum fram- leiðendum og íslenzkum neytendum að njóta kosta erlendrar sam- keppni. Ef einhvern tímann hefur verið rétti tíminn til að afnema toll- ana er hann nú vegna þeirra já- kvæðu áhrifa sem það myndi hafa á verðlag í landinu. Alþýðusambandið tekur undir gagnrýni Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra á það hvernig sveit- arfélög hafi velt hækkunum á laun- um og öðrum kostnaði yfir á almenning. Það er hárrétt hjá Gylfa Arnbjörnssyni, framkvæmdastjóra ASÍ, að sveitarfélögin gegna ekki síður mikilvægu hlutverki en ríkið við að varðveita stöðugleikann. Þau hljóta að leita hagræðingar í rekstri sínum frekar en að velta hækkunum út í verðlagið. Þá krefst ASÍ þess að sveitarfélögin komi í veg fyrir að endurmat á fasteigna- og bruna- bótamati hækki skatta almennings og er ánægjulegt að sjá að borg- arráð Reykjavíkur skuli hafa tekið ákvörðun þess efnis í gær. ASÍ hvetur til þess að verðlags- aðhald verði tryggt með virkri sam- keppni. Það er sömuleiðis skynsam- leg tillaga og vænlegri til árangurs en að hvetja til einhvers konar op- inberrar verðstýringar. Mestu skiptir að forysta ASÍ hef- ur slegið þann tón að leitast beri við að stuðla að stöðugleika með sam- starfi aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera. Forystumenn laun- þega átta sig greinilega á því að það myndi ekki hjálpa til við núverandi aðstæður að gera kröfu um að taka upp kjarasamningana eftir næstu áramót. Þvert á móti verða allir að leggjast á eitt að ná loftinu úr verð- bólgublöðrunni í stað þess að blása hana enn frekar út með því að krefj- ast óraunhæfra launahækkana. ÞAÐ var framfaraskref þegarSamband grænmetisframleið- enda gaf fyrir skömmu út reglugerð um flokkun grænmetis, þar sem grænmeti er skipt niður í þrjá flokka, úrvalsflokk, fyrsta flokk og annan flokk. Skilgreindar eru gæða- reglur fyrir hvern flokk og leyfileg frávik tilgreind. Verslanir eru ekki skyldaðar til að tilgreina í hvaða flokki grænmeti er sem þær selja og í samantekt í Morg- unblaðinu í gær kom fram að við- brögð við flokkuninni eru mjög mis- munandi. Sumar verslarnir hyggjast byrja að merkja það grænmeti sem í boði er eftir flokkum eins fljótt og auðið er, aðrar eru enn að kynna sér reglurnar og loks segjast fulltrúar nokkurra verslana ekki gera ráð fyr- ir því að merkja grænmeti eftir vöru- flokkum. Er því þá yfirleitt borið við að einungis sé selt grænmeti úr ákveðnum vöruflokki í versluninni og því óþarfi að merkja það sérstak- lega eða þá að stuðst sé við eigin flokkun og gæðaeftirlit. Það má velta því fyrir sér hvort nokkur haldbær rök séu fyrir því að nýta ekki hið samræmda flokkunar- kerfi. Kostur þess að vera með flokk- un af þessu tagi er einmitt sú að hún er samræmd. Hún er trygging fyrir ákveðnum lágmarksgæðum. Vilji verslun ganga lengra í gæðaflokkun er það síðan einungis fagnaðarefni og verður væntanlega til að styrkja stöðu þeirrar verslunar enn frekar. Þeir sem kjósa að merkja grænmeti ekki eftir flokkum verða aftur á móti að sæta því að spurt sé af neytendum hvort þeir treysti sér ekki til að standa við staðhæfingar um að ein- ungis sé selt fyrsta flokks grænmeti. Grænmeti er viðkvæm ferskvara sem yfirleitt er seld dýru verði hér á landi. Neytendur hljóta að gera kröfu til þess að tilgreint sé í hvaða flokki grænmeti er, sem þeir kaupa, fyrst almenn flokkun liggur fyrir. Það sama á að sjálfsögðu við um innflutt grænmeti. Þar ber ekki síð- ur að tilgreina í hvaða flokki græn- metið er og hvert upprunalandið er. Það er sjálfsögð og eðlileg krafa og ættu þeir, sem segjast bjóða upp á gæðavöru og þjónustu við neytend- ur, að sjá sér hag í því að bregðast við með skjótum og afdráttarlausum hætti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.