Morgunblaðið - 04.07.2001, Side 42

Morgunblaðið - 04.07.2001, Side 42
DAGBÓK 42 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Brú- arfoss kemur og fer í dag. Akraberg og Trinket koma í dag, Dettifoss, Rán og Fine Spirit fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sissimut og Atlantice Peace komu í gær. Orl- ik og Olshana koma í dag. L. Novospasskiy og Nikol. Afanasyev fóru í gær. Olshan og Brúarfoss fara í dag. Viðeyjarferjan. Tíma- áætlun Viðeyjarferju: Mánudaga til föstu- daga: til Viðeyjar kl. 13, kl. 14 og kl. 15, frá Við- ey kl. 15.30 og kl. 16.30. Laugardaga og sunnu- daga: Fyrsta ferð til Viðeyjar kl. 13 síðan á klukkustundar fresti til kl. 17, frá Viðey kl. 13.30 og síðan á klukku- stundar fresti til kl. 17.30. Kvöldferðir eru föstu- og laugardaga: til Viðeyjar kl. 19, kl. 19.30 og kl. 20, frá Viðey kl. 22, kl. 23 og kl. 24. Sér- ferðir fyrir hópa eftir samkomulagi. Viðeyj- arferjan sími 892 0099. Lundeyjarferðir dag- lega, brottför frá Við- eyjarferju kl. 10.30 og kl. 16.45, með viðkomu í Viðey u.þ.b. 2 klst., sími 892 0099. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sól- vallagötu 48. Skrif- stofan er opin alla mið- vikudaga kl. 14–17. S. 551 4349. Fataúthlutun og fatamóttaka er opin annan og fjórða hvern miðvikudag í mánuði, kl. 14– 17 s. 552 5277. Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra. Svarað er í síma Krabbameinsráðgjaf- arinnar, 800 4040 frá kl. 15–17. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–12 opin handavinnustofan, kl. 13 frjáls spila- mennska, kl. 13-16.30 opin smíðastofan, kl. 10-16 púttvöllurinn op- inn. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–16 al- menn handavinna og fótaaðgerð, kl. 9.30 morgunkaffi/dagblöð, kl. 10 banki, kl. 11.15 matur, kl. 13 spiladag- ur, kl. 15 kaffi. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18–20. Kl. 9 böðun og hárgreiðslu- stofan opin. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Orlofið í Hótel Reyk- holt í Borgarfirði 26.- 31. ágúst nk. Skráning og allar upplýsingar í símum ferðanefndar 555-0416, 565-0941, 565- 0005 og 555-1703 panta þarf fyrir 1. ágúst. Félagsheimilið Hraun- sel verður lokað vegna sumarleyfa starfsfólks til 12. ágúst. Félag eldri borgara Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl. 16.30–18. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 10 hársnyrting og verslunin opin til kl. 13, kl. 11.30 matur, kl. 13 föndur og handa- vinna, kl. 15 kaffi. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er opin virka daga frá kl. 10 til 13. Matur í hádeg- inu. Miðvikudagur: Göngu-Hrólfar fara í létta göngu frá Hlemmi kl. 9.45. Dagsferð 10. júlí: Þórsmörk – Langi- dalur. Stuttar léttar göngur. Nesti borðað í Langadal. Leiðsögn Þórunn Lárusdóttir og Pálína Jónsdóttir. Brottför frá Ásgarði Glæsibæ kl. 8. Ferð í Álfamörk, Hvammsvík 10. júlí kl. 13, þar sem eldri borgarar og ung- lingar gróðursetja plöntur í reitinn sinn. Ókeypis far en takið með ykkur nesti. Brott- för frá Ásgarði Glæsibæ kl. 13. Dagsferð 14. júlí: Gullfoss – Geysir – Haukadalur. Fræða- setrið skoðað. Leiðsögn Sigurður Kristinsson og Pálína Jónsdóttir. Skráning hafin. Ath. Þeir sem hafa skráð sig í ferðina Eyjafjörður – Skagafjörður – Þing- eyjarsýslur, 6 dagar 26.-31. júlí, þurfa að staðfesta fyrir 7. júlí vegna mikillar eft- irspurnar. Silfurlínan er opin á mánu- og mið- vikudögum frá kl. 10 til 12 f.h. í síma 588-2111. Upplýsingar á skrif- stofu FEB frá kl. 10 til 16 í síma 588-2111. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Kl. 9 opin vinnustofa, postulíns- málun og fótaaðgerð, kl. 13 böðun kl. 13.30 sam- verustund. Gerðuberg, félagsstarf. Púttvöllurinn er opinn alla virka daga kl. 9–18, mánudaga og miðviku- daga. Kl. 13–14.30 leið- beinir Hermann Vals- son. Kylfur og boltar í afgr. sundlaugarinnar til leigu. Hermann er á vellinum í dag. Lokað vegna sumarleyfa frá 2. júlí til 14. ágúst. Hraunbær 105. Kl. 9– 16.30 bútasaumur, kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 11 banki, kl. 11–12 pútt, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 böðun, fótaaðgerðir, hárgreiðsla. Vesturgata 7. Kl. 8.25 sund, kl. 9 dagblöð og kaffi, fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 11.45 matur, kl. 14.30 kaffi. Vitatorg. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 al- menn handmennt, kl. 10 morgunstund og fótaað- gerðir kl. 11.45 matur, kl. 13 kóræfing, kl. 14.30 verslunarferð, kl. 14.30 kaffi. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, kl. 10.30 boccia, kl. 13 félagsvist, kl. 17 bobb. Gullsmári Gullsmára 13. handavinnustofan opin kl. 9-16 Leiðbein- andi á staðnum. Norðurbrún 1. Fótaað- gerðastofan opin frá kl. 9–14, kl. 9–12.30 út- skurður, Handavinnu- stofur lokaðar í júlí vegna sumarfría. kl. 13– 13.30 bankinn, kl. 14 félagsvist, kaffi og verð- laun. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Minningarkort Minningarkort Sjálfs- bjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, eru afgreidd í síma 551- 7868 á skrifstofutíma og í öllum helstu apótek- um. Gíró- og kred- itkortagreiðslur. Félag MND-sjúklinga selur minningarkort á skrifstofu félagsins á Norðurbraut 41, Hafn- arfirði. Hægt er að hringja í síma 565-5727. Allur ágóði rennur til starfsemi félagsins. Landssamtökin Þroskahjálp. Minningarsjóður Jó- hanns Guðmundssonar læknis. Tekið á móti minningargjöfum í síma 588-9390. Minningarsjóður krabbameinslækninga- deildar Landspítalans. Tekið er við minningar- gjöfum á skrifst. hjúkr- unarforstjóra í síma 560-1300 alla virka daga milli kl. 8 og 16. Utan dagvinnutíma er tekið á móti minningargjöfum á deild 11-E í síma 560- 1225. Hrafnkelssjóður (stofn- að 1931) minningarkort afgreidd í símum 551- 4156 og 864-0427. Minningarkort Minn- ingarsjóðs Maríu Jóns- dóttur flugfreyju eru fáanleg á eftirfarandi stöðum: Á skrifstofu Flugfreyjufélags Ís- lands, s. 561-4307/fax 561-4306, hjá Halldóru Filippusdóttur, s. 557- 3333 og Sigurlaugu Halldórsdóttur, s. 552- 2526. Minningarkort Minn- ingarsjóðs hjónanna Sigríðar Jakobsdóttur og Jóns Jónssonar á Giljum í Mýrdal við Byggðasafnið í Skógum fást á eftirtöldum stöð- um: Í Byggðasafninu hjá Þórði Tómassyni, s. 487-8842, í Mýrdal hjá Eyþóri Ólafssyni, Skeiðflöt, s. 487-1299, í Reykjavík hjá Frí- merkjahúsinu, Laufás- vegi 2, s. 551-1814 og hjá Jóni Aðalsteini Jónssyni, Geitastekk 9, s. 557-4977. Í dag er miðvikudagur 4. júní, 185. dagur ársins 2001. Orð dags- ins: Gjör braut fóta þinna slétta og allir vegir þínir séu staðfastir. (Orðskv. 4, 26.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 brotsjór, 8 stika, 9 lykt, 10 skaut, 11 láta af hendi, 13 jarðeign, 15 búa litlu búi, 18 matarsamtíning- ur, 21 blóm, 22 erfiðið, 23 hagur, 24 egghvasst plógjárn. LÓÐRÉTT: 2 hljóðfæri, 3 búa til, 4 ökumaður, 5 barin, 6 lof, 7 megna, 12 hestur, 13 bókstafur, 15 hörfa, 16 tóg, 17 rík, 18 yfirhöfn, 19 ílát, 20 numið. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 kúgar, 4 kenna, 7 útlát, 8 fífls, 9 tel, 11 asna, 13 bann, 14 kalla, 15 bana, 17 kepp, 20 ann, 22 læpan, 23 aldan, 24 iðrar, 25 garri. Lóðrétt: 1 kjúka, 2 golan, 3 rótt, 4 kufl, 5 nefna, 6 ausan, 10 eðlan, 12 aka, 13 bak, 15 belti, 16 napur, 18 eldur, 19 penni, 20 anar, 21 nagg. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Víkverji skrifar... AF OG til heyrir heyrir Víkverjiþað hjá fólki, sem ekki hefur komið til Vestfjarða, að þangað sé svo langt að fara, vegir slæmir, þar sé lít- ið að sjá og lítil ástæða til ferða þang- að. Af öllum þessum sökum veigri það sér við að leggja þangað. Þetta þykir Víkverja hinn mesti misskilningur. Í fyrsta lagi eru Vest- firðir rómaðir fyrir náttúrufegurð á alla kanta og margt er þar að finna, stórt og smátt, lifandi og dautt, sem menn geta unað sér við vel og lengi. Það finnst að minnsta kosti Vestfirð- ingum! Í öðru lagi fara vegir batandi með hverjum mánuði því alltaf er ver- ið að tosast áfram með kafla með bundnu slitlagi. Lætur nærri að helmingur leiðarinnar milli Hólma- víkur og Ísafjarðar um Djúpið sé nú lagður bundnu slitlagi. Og þetta eru heldur ekki nema rúmlega 200 km og ekkert nema ánægja í því fólgin að aka út og inn firði og stundum upp og ofan hálsa og alltaf í góðu veðri. Eða oftast. Í þriðja lagi má sjá af þessu að það eru margvíslegar ástæður sem liggja til þess að menn ættu að huga að för til Vestfjarða. Kannski hafa einhverjir komið auga á þennan möguleika um síðustu helgi þegar vakin var sérstök athygli á Vestfjörð- um með kynningarátaki í Hafnarfirði. Ekki veit Víkverji af hverju Hafnar- fjörður varð fyrir valinu, kannski af því að þar búa hæfilega margir til að hægt sé að taka á móti þeim öllum með góðu móti á einu sumri. x x x EITT af því sem er á undanhaldi íþjóðvegakerfi landsmanna eru einbreiðu brýrnar. Slíkar brýr eru ekki lengur lagðar á aðalþjóðvegun- um, þær eru alltaf hafðar með tveim- ur akreinum þannig að hægt er að mætast þar og þannig dregið úr árekstrahættu. Þetta er eitt af því sem batnar hægt og sígandi á þjóð- vegunum. Hitt sem Vegagerðin hefur líka al- veg horfið frá er einbreitt, bundið slitlag eins og tíðkaðist á árum áður þegar nauðsynlegt var að fara spar- lega með vegagerðarféð. Þetta hefur líka trúlega reynst vafasamur sparn- aður því svona mjótt slitlag slitnar á köntunum, er aldrei til friðs og veldur hættu þegar aka þarf út fyrir það að hálfu til að mæta bíl. Þá fer grjótinu að rigna yfir og menn geta átt það á hættu að fipast við aksturinn. Núna er þessi háttur í vegagerð orðinn liðin tíð og betra að fresta lagningu svona slitlags og hafa bara malarveg fremur en þennan gamla hátt. x x x OG ÚR því fjallað er um ferðalög.Nýlega frétti Víkverji af drasli við hverasvæðið í Krísuvík. Þar voru til skamms tíma leifar af skúr, und- irstöður og annað drasl sem ein- hvern tíma hafa gegnt einhverju hlutverki. Því er greinilega löngu lokið og því full ástæða til að fjar- lægja þetta drasl. Spurning er á hvers könnu það er og varpar Vík- verji því áfram til þeirra sem eiga. Ekki hefur Víkverji neina vitn- eskju eða kannað það sérstaklega en hann hefur á tilfinningunni að umgengni við landið sé heldur að batna. Varla sést nokkur maður lengur fleygja drasli út um bíl- glugga og yfirleitt er gengið þokka- lega um fjölfarna staði. Enda vita menn að umgengni lýsir innra manni og þeir sem sýna af sér hirðu- leysi í þessum efnum kunna náttúr- lega bara ekki almennilega manna- siði. UM síðustu helgi las ég viðtal við Pétur Pétursson knattspyrnumann og fyrr- verandi þjálfara KR. Að mínu mati var greinin ein- staklega vel skrifuð og frá- bærlega vel útfærð. Þetta var ágætis persónulýsing á Pétri og hann sjálfur hreinskiptinn og ærlegur í svörum. Ég mæli með því að byrjendur í blaða- mennsku taki þessa grein sér til fyrirmyndar. Hún er á við það besta sem ég hef lesið í erlendum og viður- kenndum tímaritum. Pétur hefur í þessu blaðaviðtali sagt söguna um uppsögn sína eins og hún er og var og kveðið þar með niður sögusagnir um að brott- hvarf hans hafi verið með einhverjum öðrum hætti. Takk fyrir góða grein. Gangi þér allt í haginn Pét- ur í framtíðinni. Bjarni knattspyrnu- áhugamaður. Kvikmyndahús og elliheimili eiga enga samleið MIG langar að koma á framfæri hvernig lög og reglur eru sniðgengnar hér í borg. Eflaust eru allir orðnir þreyttir á að heyra eitt- hvað um opnunartíma en látum oss sjá. Hver hefði trúað því að kvikmyndahús sambyggt elliheimili fengi að vera með miðnætursýningar og trufla þar með svefn eldri borgara sem þar dveljast ásamt því að gera næstu nágrönnum mikið ónæði. Þetta gerist hvergi nema á Íslandi held ég. Verst er og veit ég það fyrir satt að dvalarheimil- isgestirnir þora ekki að kvarta því þeim er gefið í skin að segi þeir eitt orð geti þeir bara farið. Ég veit að þetta eru stór orð en ég get staðið við þau og þykist vita að margir þekki sams- konar dæmi. Lesandi. Mjólk/sojamjólk GAMAN væri að fá svör við því hvers vegna 14% virðisaukaskattur er á mjólk en hins vegar er hann 24,5% á sojamjólk sem er erlend framleiðsla. Er hér kannski um vernd- arvirðisaukaskatt að ræða? Flestir þeirra sem drekka sojamjólk gera það af heilsufarslegum ástæð- um, annað hvort mega þeir ekki eða vilja ekki drekka kúamjólk sem er jú einkum ætluð hraðvaxandi kálfum. Þessi hái virðisauka- skattur, auk aðflutnings- gjalda af ýmsu tagi, gerir að sojamjólkin er meira en helmingi dýrari en kúa- mjólk og er það allt of mik- ill munur og of hátt verð á hollustuvöru. Auðvitað á að jafna virð- isaukaskatt af öllum mat niður á við og helst fella hann alveg niður til að reyna að koma matarverði aðeins nær því sem tíðkast í þeim löndum sem við vilj- um bera okkur saman við. Heidi. Nú auglýsir Síminn mikið að „Frelsið sé yndislegt“ ÞAÐ sem vekur athygli mína er að í þessari auglýs- ingu eru lög um notkun ör- yggisbelta brotin. Mín spurning er því, hvort Frelsið sé svo ynd- islegt að ekki þurfi að fara að lögum? Er í lagi að unga fólkið fórni lífinu fyrir Frelsið? Er í lagi að brjóta lög við gerð auglýsinga sem sérstaklega eru ætlað- ar ungu fólki? Það er greinilegt að dæmið hefur ekki verið hugsað til enda. Kveðja, Unnsteinn Jónsson. Dýrahald Fressköttur í óskilum Í BERJARIMA er staddur ungur fressköttur, um 4–5 mánaða gamall. Hann rat- ar ekki til síns heima og er algerlega ómerktur. Hann er grábröndóttur með hvíta sokka á fótum, svart trýni og ljósgráhvítan smekk. Einstaklega blíður og fallegur kettlingur. Þeir sem kannast við lýsinguna á þessum týnda kisa eru vinsamlega beðnir að hafa samband í síma 587-6087. Svört labradortík í óskilum SVÖRT labradortík er í óskilum að Hundahótelinu Leirum. Eigandi er vin- samlegast beðinn að vitja hennar strax. Upplýsingar í síma 566-8366 eða 698- 4967. Tinni er týndur TINNI hvarf fyrir þrem vikum úr Hraunbæ. Hann er svartur köttur með hvítar tær, hvíta rönd á kvið og hvíta blesu. Upp- lýsingar í síma 587-5298. Brandur er týndur GULBRÖNDÓTTUR köttur, frekar smár, með appelsínugula hálsól merkta Brandur er týndur. Hann hefur verið týndur í nokkra daga og þeir sem gætu hafa séð hann, eru beðnir að hringja í síma 899-1218 eða 551-8190. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Gott viðtal við Pétur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.