Morgunblaðið - 04.07.2001, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 43
DAGBÓK
STAÐAN kom upp á EM
einstaklinga er lauk fyrir
skömmu í Ohrid í Makedón-
íu. Búlgarski ofurstórmeist-
arinn, Kiril Georgiev (2676),
hafði svart gegn Roman
Slobodjan (2529). 20...Hxe3!
Laglegt og gam-
alkunnugt stef.
21.b3 21.Bxe3
kom til álita en
eftir 21...Dxg3
22.Bxd3 Rxe3+
23.fxe3 Dxh3+
24.Dg2 Dxg2+
25.Kxg2 cxd3
26.Hxd3 Kf8 er
svarta staðan
unnin. 21...Rxf2!
22.Be1 Dxg3
23.Hxd5 Dxh3+
24.Kxf2 Hce8! og
hvítur gafst upp
enda fátt til varn-
ar eftir 25.Hd2
cxb3 26.Db2 Dh2+ 27.Kf1
Hxe2 28.Hxe2 Dxe2+
29.Dxe2 Hxe2 30.Kxe2 b2.
Skákin tefldist í heild sinni:
1.c4 Rf6 2.Rc3 e5 3.Rf3 Rc6
4.e3 Bb4 5.Dc2 Bxc3 6.Dxc3
De7 7.a3 d5 8.d4 exd4
9.Rxd4 Re5 10.cxd5 Rxd5
11.Dc2 O-O 12.Be2 c5 13.Rf3
Bg4 14.h3 Bxf3 15.gxf3 Hfe8
16.Kf1 Hac8 17.Bd2 c4
18.Hg1 Rd3 19.Hd1 Dh4
20.Hg3 o.s.frv.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
ÞAÐ er nánast afbrigðilegt
að taka upp 28 punkta hönd
og fá ekki að vera sagnhafi.
En það er einn af mörgum
heillandi þáttum iþróttar-
innar að sá með „dauðu spil-
in“ kemur oft til með að
leika aðalhlutverkið.
Norður
♠ Á
♥ ÁD72
♦ ÁKD2
♣ ÁKD2
Vestur Austur
♠ 9765 ♠ KD842
♥ 965 ♥ K1084
♦ 985 ♦ 3
♣1075 ♣984
Suður
♠ G103
♥ G3
♦ G10764
♣G63
Hér er norður gjafari og
vekur á sterku laufi. Suður
afmeldar með einum tígli og
eftir langa og stranga sagn-
röð endar suður sem sagn-
hafi í sex tíglum.
Greinilega er ekki vanda-
mál að sópa saman tólf slög-
um og sá þrettándi virðist
velta á svíningu fyrir hjarta-
kóng. En keppnisformið er
tvímenningur og því skiptir
yfirslagurinn miklu máli.
Vestur trompar út og sagn-
hafi tekur tromp þrisvar og
endar heima. Spilar síðan
hjartagosa. Vestur hikar
hvergi og það bendir til að
hann eigi ekki kónginn. Ind-
verjinn Vivek Bahad var í
sæti suðurs og hann hafnaði
svíningunni og ákvað að
reyna við yfirslaginn á ann-
an hátt. Hann drap með
hjartaás og tók öll laufin:
Norður
♠ Á
♥ D72
♦ D
♣ Á
Vestur Austur
♠ 9765 ♠ KD8
♥ 96 ♥ K108
♦ -- ♦ --
♣-- ♣--
Suður
♠ G103
♥ 3
♦ G7
♣--
Laufásinn setur austur í
óþolandi pressu. Sagnhafi
mun henda hjarta og reyna
að trompa niður kónginn
þriðja. En þar eð austur á
hjónin í spaða líka, getur
hann enga björg sér veitt –
sagnhafi fær þrettánda slag-
inn á þann lit sem austur
hendir.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
LJÓÐABROT
SPRETTUR
Ég berst á fáki fráum
fram um veg.
Mót fjallahlíðum háum
hleypi ég.
Og golan kyssir kinn.
Og á harða, harða spretti
hendist áfram klárinn minn.
Það er sem fjöllin fljúgi
móti mér,
sem kólfur loftið kljúfi
klárinn fer.
Og lund mín er svo létt,
eins og gæti eg gjörvallt lífið
geisað fram í einum sprett.
Hannes Hafstein.
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 4.
júlí, verður sextug Ester
Haraldsdóttir, Krosseyrar-
vegi 8, Hafnarfirði. Hún
tekur á móti gestum í sam-
komusal Hraunholts, Dals-
hrauni 15, Hafnarfirði,
föstudaginn 6. júlí á milli kl.
17 og 20.
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 4.
júlí, verður fimmtugur Þor-
steinn Árnason vélfræðing-
ur, Ártúni 15, Selfossi. Af
því tilefni býður hann og eig-
inkona hans, Arndís Ásta
Gestsdóttir, til veislu laug-
ardaginn 7. júlí í Pósthúsinu
á Laugarvatni frá kl. 19.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Digraneskirkju af
sr. Guðmundi Karli Brynj-
arssyni Agnés Tarassenko
og Baldur Hallgrímur
Ragnarsson. Heimili þeirra
er að Klyfjaseli 21, Reykja-
vík.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 7. apríl sl. í Bessa-
staðakirkju af sr. Sigurði
Grétari Helgasyni Björg
S.A. Þórðardóttir og Hjalti
Nielsen.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert þrautgóður á rauna-
stund og vinir og vanda-
menn eiga öruggt skjól í þín-
um ranni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert einfari í eðli þínu, en
þarft í starfi að eiga sam-
skipti og samstarf við aðra.
Sýndu þeim starfi þeirra og
tillögum þeirra fullan sóma.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er í góðu lagi að hugsa til
framtíðarinnar og reyna að
skipuleggja hana eitthvað, ef
þú ert raunsær og lætur
draumsýnir ekki blinda þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú þarft að gefa þér tóm til
þess að hugleiða hlutina. Ör-
væntu ekki þótt lausnirnar
liggi ekki á borðinu, það tek-
ur tíma að koma auga á þær.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Hlutirnir geta breyst skyndi-
lega, þannig að það sem þér
féll í gær getur verið þér á
móti skapi í dag. Láttu þetta
ekki slá þig út af laginu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Mundu að þótt þú viljir sýna
öðrum samstöðu máttu ekki
ganga svo langt að gera
þeirra vandamál að þínum.
Þá verður þú til lítils gagns.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er engin ástæða til þess
að láta syndir heimsins
þurrka brosið af andlitinu.
Það eina sem gildir er að líta
jafnan á björtu hliðarnar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur verið svo upptekinn
í vinnunni að vinir og vanda-
menn hafa þurft að sitja á
hakanum. Nú skaltu söðla
um og gefa þeim meira af
tíma þínum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Í öllu samstarfi má búast við
einhverjum núningi. Það er
hins vegar út í hött að láta
einhver smáatriði skemma
fyrir. Það þarf að ræða hlut-
ina.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Reyndu að njóta sem mestr-
ar útiveru. Þótt þér finnist
enginn tími til slíks, skaltu
hugsa málið og drífa þig í
gönguferð á meðan.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er aldrei til góðs að eyða
fé fyrirhyggjulaust, jafnvel
þótt góðir tímar séu. Finndu
þér eitthvað gagnlegt að
gera í tómstundum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Því fylgir mikil ábyrgð að
aðrir skuli leita til þín um
ráð. Settu þig ekki á háan
hest gagnvart þeim sem hafa
misstigið sig né nokkrum
öðrum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér getur reynst erfitt að
standa við allar þær
skuldbindingar sem þú hefur
tekið að þér. Segðu bara nei,
þar til þú hefur tæmt skrif-
borðið.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FRÉTTIR
STYRKUR unga fólksins 2001 er að
hefjast að nýju og verður hann nú
haldinn í Menntaskólanum við Sund
dagana 5.– 8. júlí næstkomandi.
Þeir sem þar fram koma eru
meðal annars Dj Youze, The fifth
element-breakhópur, rapparar frá
Englandi og GenX-danshópurinn
svo einhverjir séu nefndir. Sókn
gegn sjálfsvígum stendur á bak við
mótið og er hugsjónin sú að hafa
fjörugar uppákomur með jákvæðum
boðskap, líf og gleði þar sem ungt
fólk getur skemmt sér undir for-
merkjum frelsis og vímuleysis, segir
í fréttatilkynningu.
Mótið er þannig skipulagt að öll
kvöldin, 5.– 8. júlí, kl. 21:00 verða
tónleikar þar sem einnig verða sýnd-
ir dansar og leikþættir og munu þá
þeir sem fyrr eru nefndir troða upp
og halda fjörinu gangandi eitthvað
fram eftir kvöldi. Tekið skal fram að
aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
Einnig verða þann 6. – 8. júlí á
daginn kl 17:00 – 19:00 í gangi dans-
skóli, rappskóli, Dj-skóli, breakdans-
skóli og graffitiskóli. Skráning er
hafin fyrir alla aldurshópa, konur og
karla. Að kvöldi 8. júlí verður pizza-
veisla fyrir alla í boði Hróa Hattar.
Styrkur unga
fólksins í MS
„UNGIR jafnaðarmenn í Reykjavík
telja að Ísland eigi að ganga í Evr-
ópusambandið og myntbandalag
Evrópu,“ segir m.a í fréttatilkynn-
ingu frá Félagi ungra jafnaðar-
manna í Reykjavík.
„Fyrst skal telja að kostnaður
okkar Íslendinga við að halda úti
okkar eigin mynt er allt að 120 millj-
arðar á ári ef marka má útreikninga
Samtaka iðnaðarins. Þetta jafngildir
um hálfri milljón á hvert mannsbarn
í landinu. Seðlabankinn ver miklum
fjárhæðum til að verja gengi krón-
Vilja að Ísland
gangi í Evrópu-
sambandið
unnar gegn markaðsöflunum en þar
hefur lítið áunnist. Saga krónunnar
er saga gengisfellinga, verðbólgu og
óstöðugleika. Ef Íslendingar gengju
á hinn bóginn í Evrópusambandið
myndi margt ávinnast. Eitt mikil-
vægasta atriðið í því sambandi er
þau tækifæri sem evran veitir okkur
Íslendingum, bæði fjölskyldum og
fyrirtækjum,“ segir þar jafnframt.
KAUPMENN á Laugavegi standa
fyrir lengri afgreiðslutíma á fimmtu-
dagskvöld í tengslum við bæjarferð.
Götuleikhúsið mun leika listir sínar á
Laugavegi. Verslanir verða með opið
til kl. 20.
Langur laugardagur verður nú 7.
júlí næstkomandi og verða verslanir
opnar til kl. 17. „Þennan Langa laug-
ardag er fyrirhugað að vera með
skemmtilegar uppákomur fyrir alla.
Danshópurinn Komdu að dansa
tjúttar niður Laugaveg og sýnir m.a.
vals, djæf og fl.
Opið til 20 á
Laugavegi á
fimmtudag
EINS og undanfarin ár mun Ferða-
málahópur Borgarfjarðar eystra
standa fyrir hátíð um verslunar-
mannahelgina sem ber nafnið Álfa-
borgarséns.
„Fjölmargt verður til skemmtun-
ar þetta árið. Af helstu dagskrárlið-
um má nefna hagyrðingamót og
dansleik á föstudagskvöld, ævintýra-
ferð fyrir börn, knattspyrnumót og
dansleik með hljómsveitinni Nefnd-
inni á laugardag og knattspyrnu-
skóla, grill, varðeld og dansleik með
Jónasi Sigurðssyni sólstrandagæja
og Kvöldgestum hans á sunnudegi,“
segir í fréttatilkynningu.
Tjaldsvæði við Álfaborg eru
ókeypis, Álfasteinn hefur verslun
sína opna alla helgina eins og ný-
lenduvöruverlsun KHB og Veitinga-
salan Fjarðarborg.
Víkurnar sunnan við Borgarfjörð
eru vinsæll áningarstaður ferða-
manna og gistiaðstaða í boði þar.
Álfaborgarséns
um verslunar-
mannahelgina
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
KARLMAÐUR frá Litháen
óskar eftir íslenskum
pennavinum af báðum kynj-
um. Hann safnar óstimpluð-
um frímerkjum með fiskum
og Europa cept. Einnig
safnar hann nýjum peninga-
seðlum og símakortum.
Lætur sama á móti.
D. Aminas,
Seskinés 13-60,
LT-2010 Vilnius-10,
Lithuania.
Þýskur karlmaður vill
eignast vini hér á Íslandi,
með frímerki sem áhuga-
mál. Skrifar á ensku og
þýsku.
Lorenz Petersen,
Schwennaustr. 5C,
24960 Glücksburg,
Germany.
Karlmaður á besta aldri
óskar eftir pennavinum af
báðum kynjum. Áhugamál
ný og notuð frímerki, eink-
um Norðurlönd en fleiri
lönd koma til greina.
Henry Trans,
Tarphagevej 26,
Sædding,
DK - 6710 Esbjerg,
Danmark.
Pennavinir