Morgunblaðið - 04.07.2001, Page 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SKIPTINEMASAMTÖKIN AFS
héldu grillveislu í Heiðmörk sl.
fimmtudagskvöld. Þetta er árlegur
viðburður hjá félaginu og mæta að
öllu jöfnu um 100 manns, sjálfboða-
liðar félagsins og skiptinemar
ásamt fjölskyldum sínum.
10. ágúst koma síðan 36 erlendir
nemar til landsins, og „við erum á
fullu að reyna að finna góða fjöl-
skyldu fyrir sextán þeirra“, segir
Rósa Björg Þorsteinsson hjá AFS,
„en krakkarnir koma frá þrettán
löndum í Norður- og Suður-Amer-
íku, Evrópu og Asíu.“
Að auka víðsýni og skilning
Árlega fara um 10.000 manns um
heim allan til dvalar á vegum sam-
takanna, sem stofnuð voru árið 1947
af bandarískum sjálfboðaliðum sem
óku sjúkrabifreiðum á vígvöllum
Evrópu í fyrri og síðari heimsstyrj-
öldinni á vegum American Field
Service. Þeir trúðu því að nemenda-
skipti væru leið til að auka víðsýni
og skilning milli ólíkra menninga-
heima og þar með leið til að draga
úr líkum á því að hörmungar stríðs-
ins endurtækju sig.
Alþjóðleg fræðsla og samskipti,
AFS á Íslandi, var stofnað árið
1957, en þá fóru fyrstu skiptinem-
arnir héðan til Bandaríkjanna. Síð-
an þá hafa um 2.400 ungmenni farið
til dvalar erlendis á vegum félagsins
og rúmlega 800 erlend ungmenni
komið hingað til lands. Á hverju ári
fara rúmlega 100 íslensk ungmenni
út og hingað koma 35–40 erlendir
nemar í ársdvöl. Þau eru á aldr-
inum 15–18 ára og búa hjá fjöl-
skyldum og ganga í framhaldsskóla.
Sterk tengsl myndast
Hin óformlega menntun er þó
ekki síður mikilvæg. „Fjölskyldur
skiptinemanna segja að þeim finnist
skemmtilegast að hafa upplifa að
vera með manneskju hjá sér sem
sér Ísland á allt aðra vegu, og upp-
lifa þannig sjálfa sig og Ísland á
nýjan hátt. Einnig er spennandi að
kynnast manneskjum frá öðum
menningarheimi, til að átta sig á
hversu mikið menningin, fjölskyld-
an og umhverfið móta mannfólkið,
og sjá hvernig manneskjan frá við-
komandi menningarheimi horfir á
hlutina með öðrum augum,“ segir
Rósa Björg og bætir við að það sé
frábær kostur að eignast fósturbarn
í útlöndum! En viðurkennir svo að
ansi oft séu kveðjustundirnar trega-
fullar enda hafa myndast sterk
tengsl á milli fjölskyldunnar og
nemans.
„Þetta er rosalega skemmtilegt
og þótt þetta sé auðvitað vinna, þá
er sífelld aukning hjá okkur, bæði
af fólki sem tekur til sín nema og ís-
lenskum krökkum sem fara út.
Enda er þetta ómetanlegt tækifæri
fyrir alla. Upphaflega hugmynda-
fræðin er mjög falleg og það er satt
að fólk öðlast meiri skilning og um-
burðarlyndi við að kynnast annari
menningu,“ segir Rósa Björg að
lokum, og bendir á að fyrir þá sem
vilja kynna sér málin betur, má
koma á skrifstofu AFS að Ingólfs-
stræti 3 þar sem allar upplýsingar
liggja fyrir.
Skiptinemar grilla og hafa gaman
Með öðr-
um augum
Páll Ívar Rafnsson og Lena Valdimarsdóttir voru ánægð með Banda-
ríkjadvölina og það voru líka Evrópufararnir Elín Harpa Valgeirsdóttir
sem var í Þýskalandi, Auður Örlygsdóttir sem dvaldi í Frakklandi og
Helgi Davíð Björnsson sem er nýkominn frá Tékklandi.
Þau eru reynslunni ríkari eftir dvölina í Suður-Ameríku, en Ragnheiður
var í Ekvador, Guðmundur Valur í Gvatemala og María Kristín í Brasilíu.
Hjá þessu fólki er ævintýrið rétt að byrja. Mæðginin Áslaug Sturlaugs-
dóttir (t.h.) og Davíð Grímsson (t.v.) eiga von á skiptinema frá Taílandi.
Hjónin Guðmunda Kristinsdóttir og Ómar Ingvarsson ætla að taka á
móti nema frá Venesúela ásamt dætrum sínum Guðrúnu Maríu og Ey-
dísi, en þriðja dóttirin Íris (fyrir miðju) er einmitt á leið þangað.
Morgunblaðið/Arnaldur
ÚTSALAN
HEFST Á MORGUN
í eftirtöldum verslunum
í Kringlunni
s. 533 1740
s. 533 1730
s. 588 0079