Morgunblaðið - 21.07.2001, Page 1
BJÖRGUNARMENN leituðu í gær
að fimm mönnum sem óttast var að
væru í rústum þriggja hæða húss
sem hrundi í Tottenham í norður-
hluta London.
Þrír íbúar hússins, hjón og ungt
barn þeirra, voru fluttir á sjúkra-
hús með minniháttar meiðsli. Einn
björgunarmannanna slasaðist einn-
ig lítillega.
Björgunarmenn sögðu að allir
íbúar hússins hefðu fundist en fimm
verkamanna væri saknað. Þeir eru
allir Tyrkir og voru að rífa niður
vegg í verslun á jarðhæð hússins
þegar það hrundi.
Hús hrynur í London
Reuters
164. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 21. JÚLÍ 2001
LEIÐTOGAR átta helstu iðnríkja
heims samþykktu á fundi sínum í
Genúa í gær að stofna nýjan sjóð
sem á að nota í baráttunni gegn út-
breiðslu alnæmis og fleiri smitsjúk-
dóma í þróunarlöndunum.
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, sagði að leiðtogarnir
hefðu samþykkt að leggja fram 1,2
milljarða dala, andvirði rúmra 120
milljarða króna, í nýja sjóðinn.
„Við sjáum nú í fyrsta sinn fram á
viðbrögð við þessum banvæna sjúk-
dómi sem nálgast það að vera í sam-
ræmi við umfang faraldursins,“
sagði Kofi Annan, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna. Hann
bætti þó við að stofnfé sjóðsins
nægði ekki því hann þyrfti að nema
7-10 milljörðum dala (700-1.000
milljörðum króna) til að hægt yrði
að grípa til aðgerða sem dygðu í
baráttunni gegn alnæmi og fleiri
smitsjúkdómum í þriðja heiminum.
Iðnríkin hafa deilt um hverjir eigi
að stjórna sjóðnum. Stofnframlag
Bandaríkjanna nemur 200 milljón-
um dala, andvirði rúmra 20 millj-
arða króna, og George W. Bush
Bandaríkjaforseti sagði að stjórn
sín myndi ekki leggja til meira fé
fyrr en sýnt yrði fram á að sjóð-
urinn bæri tilætlaðan árangur.
Spá auknum hagvexti
Í yfirlýsingu leiðtoganna um efna-
hagsmál sagði að skatta- og vaxta-
lækkanirnar í Bandaríkjunum
sýndu að þarlend stjórnvöld gerðu
allt sem í valdi þeirra stæði til að
binda enda á afturkippinn í efnahag
Bandaríkjanna. Þeir spáðu því að
þessar aðgerðir myndu stuðla að
efnahagsbata í Bandaríkjunum á
næstu mánuðum og „leggja traust-
an grunn að auknum hagvexti“ í
heiminum.
Leiðtogar iðnveldanna spá efnahagsbata í heiminum
Lofa 1,2 milljörðum
dala til alnæmisvarna
Genúa. AP.
Samþykkt að stofna/20
LÖGÞINGSMENN í Færeyjum
sæta þessa dagana harðri gagnrýni
af hálfu almennings og fulltrúa
verkalýðssamtaka, eftir að í ljós kom
að stjórnmálamennirnir hafa sam-
þykkt nýtt lífeyriskerfi sem ekki ein-
göngu er þeim sjálfum mjög hag-
stætt heldur bætir svo um munar
kjör fyrrverandi landstjórnarmanna,
og það allt aftur til ársins 1951.
Mótmælin gegn þessum breyting-
um á eftirlaunakjörum stjórnmála-
manna hafa orðið til þess að nú hafa
nokkrir lögþingsmenn sagzt vilja að
hið nýsamþykkta lífeyriskerfi verði
endurskoðað. Hafa sumir nefnt að
óskandi væri að tekið yrði upp fyr-
irkomulag að íslenzkri fyrirmynd,
þar sem óháður kjaradómur er látinn
um að taka ákvarðanir um kjör þing-
manna og ráðherra.
Lífeyriskerfið sem nú sætir mestri
gagnrýni í Færeyjum gildir fyrir alla
þá sem sæti hafa átt í færeysku land-
stjórninni. Það var samþykkt meðal
margra annarra þingmála á síðasta
starfsdegi Lögþingsins fyrir sum-
arhlé í lok maímánaðar. Viðbrögð al-
mennings í Færeyjum við þessu
komu fyrst fram í þessari viku, í kjöl-
far þess að í þætti í færeyska sjón-
varpinu var vakin athygli á því hverj-
ar afleiðingar hins nýja kerfis yrðu.
Ofbauð sumum Færeyingum svo,
að hrint var af stað undirskriftasöfn-
un þar sem þess er krafizt að fyrrver-
andi ráðherrar lúti sambærilegum
reglum um eftirlaun og aðrir laun-
þegar.
Í hinu nýsamþykkta kerfi munu
stjórnmálamenn, sem eiga eða hafa
átt sæti í landstjórninni, geta reiknað
með að fá sem nemur um 307.000 ísl.
krónum á mánuði í eftirlaun eftir að
þeir ná 67 ára aldri. Mun eftirlauna-
breytingin auka álögur á færeyska
skattgreiðendur um sem nemur um
14 milljónum ísl. kr. á ári.
Færeyjar
Deilt um
eftirlaun
ráðherra
Þórshöfn. Morgunblaðið.
TVÍTUGUR mótmælandi var skot-
inn til bana í átökum sem blossuðu
upp milli lögreglumanna og óeirða-
seggja í Genúa á Ítalíu í gær þegar
leiðtogafundur átta helstu iðnríkja
heims hófst í borginni. Um 150
manns særðust, þeirra á meðal ung
kona sem var sögð „á milli heims og
helju“.
Um 20.000 lögreglu- og hermenn
voru á götum Genúa þegar tugir þús-
unda andstæðinga alþjóðavæðingar
gengu um miðborgina til að mótmæla
leiðtogafundinum sem var haldinn í
höll frá miðöldum. Skipuleggjendur
mótmælanna sögðu að um 100.000
manns hefðu tekið þátt í aðalmót-
mælagöngunni.
Lögreglan lokaði níu ferkm svæði
umhverfis höllina og átök blossuðu
upp á nokkrum stöðum við jaðar
þess. Hundruð óeirðaseggja réðust á
öryggissveitirnar, köstuðu götustein-
um, flöskum og bensínsprengjum.
Kveikt var í bílum, rúður brotnar og
að minnsta kosti einn banki rændur.
Margir óeirðaseggjanna voru með
brynjur, skildi og gasgrímur.
Óeirðaseggirnir reyndu að ryðjast
framhjá vegartálmum lögreglunnar
umhverfis fundarstaðinn og lögregl-
an beitti táragasi, vatnsþrýstibyssum
og kylfum til að stöðva þá. Hörðustu
átökin voru um 300 m frá fundarstað
leiðtoganna.
Særður lögreglumaður
skaut í sjálfsvörn
Um 55 lögreglumenn, 113 mót-
mælendur og átta fréttamenn urðu
fyrir meiðslum. Einn lögreglumann-
anna þurfti að gangast undir skurð-
aðgerð en var ekki talinn í lífshættu.
Ung kona frá Þýskalandi særðist lífs-
hættulega.
Að sögn ítalskra sjónvarpsstöðva
lá tvítugur Ítali í valnum. Ítalskir
embættismenn og sjónarvottar
sögðu að særður lögreglumaður, sem
óeirðaseggir hefðu króað af, hefði
skotið manninn í sjálfsvörn. Frétta-
stofan AFP hafði eftir sjónarvotti að
maðurinn sem beið bana hefði ráðist
á jeppa lögreglumannsins sem hefði
hleypt af byssu. Jeppanum hefði síð-
an verið ekið yfir manninn þegar lög-
reglumaðurinn og félagar hans hefðu
reynt að flýja.
Þetta er fyrsta dauðsfallið í
tengslum við mótmæli andstæðinga
alþjóðavæðingar frá því þau hófust í
Seattle í Bandaríkjunum fyrir 19
mánuðum.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
og fleiri leiðtogar á fundinum sögðust
harma ofbeldið og dauða unga
mannsins.
Óeirðirnar stóðu í rúmar fimm
klukkustundir. Friðsamlegt var á
götum miðborgarinnar í gærkvöldi
en til átaka kom nokkrum sinnum á
öðrum stöðum í borginni.
Boðuð voru frekari mótmæli í dag.
Leiðtogafundinum á að ljúka á morg-
un.
Óeirðir blossa upp nálægt fundarstað leiðtoga átta helstu iðnríkja heims
Mótmælandi skotinn til
bana og 150 særðust
AP
Óeirðaseggir standa andspænis lögreglumönnum í miðborg Genúa. Þar kom til átaka í gær þegar andstæð-
ingar alþjóðavæðingar mótmæltu fundi leiðtoga átta helstu iðnríkja heims.
Genúa. AFP, AP.