Morgunblaðið - 21.07.2001, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 21.07.2001, Qupperneq 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 9 Neðst við Dunhaga sími 562 2230 15% aukaafsláttur af bolum í dag Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 laug. frá kl. 10-14 Útsalan í fullu fjöri                          Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16. Hlíðasmára 17, Kópavogi, sími 554 7300, (við hliðina á Sparisjóði Kópavogs). TALSVERT rigndi á höfuðborg- arsvæðinu í gær. Hjólreiðamað- urinn sem varð á vegi ljósmynd- reiðatúr. Enda segir máltækið; „Enginn er verri þótt hann vökni.“ ara Morgunblaðsins á Krýsu- víkurvegi lét rigninguna þó ekki aftra sér frá að fara í smá hjól- Morgunblaðið/Þorkell Enginn er verri þótt hann vökni MARGIR ráku upp stór augu er þeir sáu auglýsingu í Morgun- blaðinu um síðustu helgi þar sem óskað var eftir fólki til að keyra ísbíl í Texas í Bandaríkjunum. Blaðamaður sló á þráðinn út til að forvitnast frekar um málið. Eftir að blaðamaður hafði hlust- að á syngjandi Texasmállýsku kom tvítug íslensk stúlka, Brynja Kristjánsdóttir, í símann. Brynja starfar í sumar sem ís- bílstjóri í borginni Laredo í Tex- as, en borgin liggur á landamær- um Bandaríkjanna og Mexíkó. Þar er Brynja ásamt Maríu Stef- aníu Stefánsdóttur, vinkonu sinni. „Það var íslenskur strákur, bú- settur í Danmörku, sem vann hér í apríl og hann auglýsti á Íslandi. Við sóttum um vinnu og vorum komnar út í byrjun júní. Við er- um búnar að vera hér síðan og þetta er mjög fínt,“ segir hún og lýsir hvernig standi á þessu óvenjulega sumarstarfi. „Við verðum til 27. ágúst og erum að vonast til að einhver komi fyrir þann tíma, þannig að við getum sýnt út á hvað þetta gengur.“ Þær stöllur vilja líta í kringum sig áður en þær halda heim, en á Íslandi bíður þeirra áframhald- andi framhaldsskóli. Brynja út- skrifast um jólin en María Stef- anía eftir ár. „Við erum sem sagt að fara heim í skóla og þetta er svona óvenjulegt sumarævintýri. Við sögðum þegar við vorum tíu ára að við ætluðum að gera eitt- hvað öðruvísi þegar við yrðum tvítugar. Það rættist,“ segir Brynja. Pabbi kaus Nordjobb En hvernig ætli fólkinu heima hafi litist á sumarplön stelpn- anna? „Texas hljómar ekki vel í eyr- um Íslendinga, en þessi bær er voðalega vinalegur. Það er mexíkanskur bragur yfir öllu og það eru allir spænskumælandi, en allt fólk undir fimmtugu talar líka ensku,“ segir Brynja og gef- ur lítið út á tungumálaerfiðleika. Allt skiljist á endanum. Hún segir að hún og María Stefanía hafi sótt um Nordjobb til að hafa eitthvað í bakhöndinni, en þær ákváðu að láta reyna á Texas, þótt pabbi Brynju spyrði hvort þær vildu nú ekki bara fara í Nordjobb. Að sögn Brynju eru þær einu útlendingarnir í fyrirtækinu núna. Eigandinn, Edward Barr- era, hefur átt ísbílafyrirtæki í 27 ár og sækist hann helst eftir að fá Evrópubúa í vinnu. Þeir séu duglegri heldur en innfæddir, sem flestir séu Mexíkanar. Unnið í 40 gráðu hita Brynja segir að hitinn sé yf- irleitt í kringum 40 gráður, en það sé síður en svo óbærilegt, enda sé vinnan fremur auðveld. Þær fái borgað daglega 25% af sölu dagsins. „Okkur finnst þetta rosalega spennandi. Eitthvað sem við eigum aldrei eftir að gleyma. Ég myndi segja að þetta væri stórsniðugt fyrir fólk frá 18 ára og til svona þrítugs, en fólk þarf auðvitað að vera með bíl- próf,“ segir Brynja og telur að um tuttugu og fimm fyrirspurnir hafi borist vegna auglýsingarinn- ar nú. Hún segir að það taki fimm til tíu mínútur fyrir þær vinkonur að keyra niður í bæ. Þar geti þær lagt bílnum og gengið yfir til Mexíkó. „Það er mjög fínt að fara þangað, sérstaklega á daginn. Þar er mikið af ferðamönnum, en það er ekkert um þá hérna meg- in. Straumurinn liggur í gegnum borgina á hraðbrautinni,“ segir Brynja. Að hennar sögn er stefnan að ferðast í tvær vikur áður en þær halda heim. Fara um Texas og kíkja aðeins yfir landamærin til Mexíkó. Það fari hins vegar eftir því hvort einhver komi og taki við af þeim. „Annars ætlum við að sjá til, það er ekkert ákveðið. Við eigum bara eftir að líta á Atl- asinn og svo eigum við flug heim 27. ágúst,“ segir þessi unga æv- intýrakona. Tvær tvítugar íslenskar stelpur eru í öðruvísi sumarvinnu Keyra ísbíl í hit- anum í Texas JAFNINGJAFRÆÐSLAN, for- varnarverkefni ungs fólks gegn fíkniefnum, leggur í hringferð um landið á mánudag og er ætlunin að fræða unglinga á öllu landinu um skaðsemi fíkniefna. Jafningjafræðslan hefur starfað um nokkurt skeið á höfuðborgar- svæðinu og vinnur meðal annars með unglingum í Vinnuskóla Reykjavíkur að forvörnum, en Reykjavíkurborg hefur styrkt átakið síðustu sumur. Nú á hins vegar að leggja í fræðslu- ferð til að ná til fólks sem starfsmenn Jafningjafræðslunnar hafa aldrei náð til áður. Svona ferðalag hefur staðið lengi til en ekki orðið að veru- leika fyrr sökum skorts á fjármagni. Landsbankinn og ESSO eru styrkt- araðilar ferðarinnar og er ætlunin að skipta starfsmönnum Jafningja- fræðslunnar í tvo hópa sem fara hvor sinn hringinn í kringum landið uns þeir mætast á miðri leið. Alls er búist við að þeir muni ná til um 650 ung- linga á þessum tíma. Að sögn Sylvíu Kristínar Ólafs- dóttur, starfsmanns Jafningja- fræðslunnar, er draumurinn að eftir 5 ár þurfi ekki að leggja í svona ferð, heldur verði Jafningjafræðslan út- breidd um land allt. Hún segir að til- gangur ferðarinnar sé því í raun tví- þættur, í fyrsta lagi eigi að reyna að fræða sem flesta og í öðru lagi að vekja sveitarfélög til umhugsunar um forvarnarstarfsemi, þannig að þau skipuleggi eitthvað í líkingu við Jafningjafræðsluna. Ætla að hitta 650 ung- menni í hringferðinni Morgunblaðið/Arnaldur Hluti hópsins sem ætlar að ferðast um landið og fræða ungmenni um fíkniefnavandann. Jafningjafræðslan fræðir unglinga á ferð um landið STOFNAÐUR hefur verið minning- arsjóður í tilefni af því að liðin eru 10 ár frá láti prófessors Jóns Steff- ensens með það að markmiði að styrkja einn háskólanema á ári til rannsókna á sviði sögu heilbrigðis- mála. Í tilkynningu frá Þjóðminja- safni Íslands segir að safnið, Nes- stofusafn og Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar standi að sjóðnum og hafi tekið ákvörðun um stofnun hans. Auglýst verður eftir umsóknum um styrkinn í haust en að sögn Sigurborgar Hilmarsdóttur, safnvarðar, nemur hann 200 þúsund krónum. Fram kemur í tilkynningunni að það sé ötulu starfi Jóns Steffensens að þakka að til er gott safn lækn- ingamuna, Nesstofusafn, sem er deild í Þjóðminjasafni Íslands. Sýn- ingar eru reglulega í Nesstofusafni en næstkomandi sunnudag kl. 14 verður leiðsögn um safnið. Aðgangs- eyrir er 200 krónur en börn og ellilíf- eyrisþegar fá ókeypis aðgang. Sjóður til styrktar háskólanemum ÓVENJUMARGIR, eða 24 bílar, voru teknir fyrir of hrað- an akstur í Kópavogi í fyrra- dag. Að sögn lögreglunnar fóru radarmælingar fram á nokkrum stöðum í bænum. Einn ökumaður var tekinn á 101 km hraða þar sem há- markshraði er 50. Búast má við því að hann missi ökurétt- indin í einn til þrjá mánuði í kjölfar þessa. Á tvöföld- um há- markshraða Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00. 15% aukaafsláttur Engjateigi 5, sími 581 2141. MORGUNBLAÐINU hefur borist tilkynning þess efnis að bæjarráð Akraness ítrekar samþykkt bæjar- stjórnar Akraness frá 14. september 1999 þar sem lagt er til að flutningur á olíum og bensíni um Hvalfjarðargöng verði bannaður. Þar segir orðrétt: „Samkvæmt umferðarlögum er lögreglustjóra heimilt að banna flutn- ing hættulegra efna um jarðgöng ef ástæða þykir til. Bæjarráð bendir á nýlegt atvik þar sem bensín lak í Hvalfjarðargöngunum með augljósri hættu fyrir vegfarendur.“ Kemur einnig fram að samþykktinni hafi ver- ið komið á framfæri við Lögreglu- stjórann í Reykjavík og dómsmála- ráðuneytið. Lagt til að flutningur á olíu og bensíni verði bannaður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.