Morgunblaðið - 21.07.2001, Side 31
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 31
ÞAÐ þarf útsjónar-
semi og aðhald til að
takast á við bæði há-
skólanám og barnaupp-
eldi. Börnin þurfa sinn
tíma eins og bækurnar
og leggja þarf rækt við
hvort tveggja eigi vel að
takast til. Stúdentaráð
Háskóla Íslands hefur,
undir forystu Röskvu,
unnið ötullega að því að
auðvelda foreldrum að
stunda nám við háskól-
ann. Margvíslegur ár-
angur hefur náðst en
aðstöðuleysið er rót
stærsta hluta þess
vanda sem margir foreldrar glíma við
í háskólasamfélaginu.
Fjölgun dagvistunarrýma
Á síðustu tíu árum hefur Félags-
stofnun stúdenta byggt þrjá leik-
skóla í húsnæði stúdentagarðanna og
þar eru nú vistuð rúmlega 150 börn.
Fyrir skemmstu ákvað
stjórn FS að stækka
leikskólann Sólgarð og í
kjölfarið mun leikskóla-
plássum fjölga um tæp-
lega 30. Þá er í gildi
samningur á milli Stúd-
entaráðs, FS og
Reykjavíkurbogar um
300 forgangspláss fyrir
börn stúdenta og þá er
stefnt að því að opna
nýjan leikskóla í hús-
næði Efri-Hlíðar með
20-30 leikskólaplássum
til viðbótar.
Þessi árangur er
mjög mikilvægur enda
er dagvistun grundvöll-
ur þess að foreldrar geti stundað nám
við Háskóla Íslands og er þessi aukn-
ing dagvistarrýma því til mikilla
hagsbóta.
Kennt á laugardögum
Þrátt fyrir þessar breytingar til
batnaðar eru enn ýmis ljón í veginum
sem geta gert foreldrum sem stunda
nám við skólann erfitt um vik. Al-
mennt er leikskólum lokað kl. 17 en
þá stendur oftar en ekki enn yfir
kennsla í mörgum kennslustofum há-
skólans. Væntanlega kysu flestir há-
skólanemar að vera búnir fyrr á dag-
inn en þetta kemur einna verst niður
á barnafólki. Háskólinn býr hins veg-
ar yfir svo litlu rými miðað við nem-
endafjölda að flestir helstu fyrir-
lestrasalir eru fullnýttir frá 8 á
morgnana og langt fram eftir degi.
Þess eru dæmi að verklegir tímar
og dæmatímar í ýmsum áföngum eru
kenndir á laugardögum sem augljós-
lega skapar mikil vandræði fyrir for-
eldra. Ástæðan fyrir kennslu á laug-
ardögum er ýmist sú að ekkert rými
er í byggingu háskólans á öðrum tím-
um eða að verið er að nýta aðstöðu
hjá fyrirtækjum úti í bæ, þar sem há-
skólinn býr ekki yfir nægilegum
tækjabúnaði.
Þá skapast vandræði þar sem próf-
töflur í háskólanum birtast ekki fyrr
en um miðja önn. Ástæða þess er enn
og aftur plássleysi. Háskólayfirvöld
verða að vita fyrir víst hversu margir
nemendur komi til með að þreyta
próf í annarlok áður en uppröðun
prófa er skipulögð. Af þessum sökum
er nauðsynlegt að bíða þar til frestur
til að segja sig úr prófum rennur út
þannig að plássið nýtist sem best.
Aðstöðuleysið rót vandans
Af framansögðu má sjá að þau
vandamál sem barnafólk glímir við
eiga rætur sínar að rekja til fjársvelt-
is og aðstöðuleysis Háskóla Íslands.
Röskva hefur barist af krafti fyrir úr-
bótum á þessu sviði og fór m.a. af stað
með átak gegn aðstöðuleysi á síðasta
ári sem vakti mikla athygli almenn-
ings á vandamálinu. Vel heppnaður
fundur var haldinn í hálfkláruðu
Náttúrufræðahúsinu og á þriðja þús-
und háskólanema skrifuðu undir
póstkort og skoruðu þannig á yfir-
völd að bregðast við. Baráttunni fyrir
auknu fjármagni og áframhaldandi
uppbyggingu Háskóla Íslands verður
haldið áfram nú á 90 ára afmæli skól-
ans.
Hinn 17. júní sl. hleypti Stúdenta-
ráð af stokkunum þjóðarátaki í þágu
Háskóla Íslands. Þetta átak tekur á
hinum ýmsu málefnum, þar á meðal
eru stjórnvöld hvött til að gera vel við
skólann á afmælisári hans.
Búum að barnafólki
Á vormánuðum ákvað rektor Há-
skóla Íslands að setja á fót vinnuhóp
sem hefur það hlutverk að móta fjöl-
skyldustefnu háskólans og munu eiga
þar sæti fulltrúar nemenda og skól-
ans. Röskva fagnar þessari ákvörðun
rektors og er vongóð um að með mót-
un heildstæðrar stefnu í málefnum
fjölskyldunnar innan HÍ verði búið
enn betur að foreldrum sem stunda
nám við skólann.
Auðveldum foreldr-
um að stunda nám
Kolbrún
Benediktsdóttir
Nám
Af framansögðu má sjá
að þau vandamál sem
barnafólk glímir
við, segir Kolbrún
Benediktsdóttir, eiga
rætur sínar að rekja til
fjársveltis og aðstöðu-
leysis Háskóla Íslands.
Höfundur situr í Stúdentaráði fyrir
hönd Röskvu og á sæti í starfshópi
um mótun fjölskyldustefnu HÍ.
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ
VALUR
Fjölskylduhátíð Vals
að Bjarnastöðum í Borgarfirði
laugardaginn 28. júlí 2001
Tjaldað, grillað og varðeldur
Dagskrá laugardags kl. 14.00
• Hlaupið í skarðið, húlahopp, limbó
• Naglaboðhlaup og pokahlaup
• Snóþotukeppni, skeifukast
• Eggjaboðhlaup og Brennó
• Hestar fyrir yngstu börnin
Grillað að hætti Valsmanna kl. 18.00
• Allir grilla saman
Varðeldur kl. 21.00
• Söngur og línudans
Sunnudagur kl. 10.00 - 12.00
• Morgunganga fyrir hraustar sálir, (leiðsögumaður) ævintýraferð, vaðið er yfir grunnar ár og
gengið í gegnum stórbrotið landslag gróðurs, hrauns og fossa.
Útbúnaður: Góðir skór, handklæði, auka sokkar, orkudrykkir, áttaviti, kort og minnisblokk
Afþreying að Bjarnastöðum
• Veiði í Hvítá, silungur og lax
• Hestaleiga stuttar ferðir inn í skóginn
• Handverkshúsið að Bjarnastöðum
Kaffiveitingar, gos og ís
• Gönguleiðir inn með Hrauná og Lambá
Rútuferðir frá Valsheimilinu kl. 10.00 á laugardaginn
Skráning í síma: 551-2187 GSM: 860-7372
Allir Valsmenn í útilegu, þar sem fjölskyldan er í 1. sæti !!
Málefni sem við látum okkur varða
Knattspyrnudeild Vals
skorar á
handboltadeild Vals
í pokahlaup!
Treystum fjölskylduböndin!
ALÞJÓÐA náttúru-
verndarsjóðurinn,
WWF, hefur lengi haft
góð samskipti við ís-
lensku þjóðina í mörg-
um málum sem varða
náttúruvernd og ég er
viss um að framhald
verður á því. Við fögn-
um góðum tengslum við
Ísland sem er svo ríkt af
stórfenglegum náttúru-
auðlindum og óspilltri
náttúru. WWF hefur nú
hins vegar miklar
áhyggjur af tilraun Ís-
lendinga til að staðfesta
aftur alþjóðasamning-
inn um stjórnun hval-
veiða (ICRW) – og ganga þar með aft-
ur í Alþjóðahvalveiðiráðið (IWC) –
með fyrirvara um ákvörðun sem hef-
ur lengi verið í gildi hjá hvalveiði-
ráðinu.
Eins og lesendur blaðsins vita var
Ísland áður aðili að Alþjóðahvalveiði-
ráðinu en sagði sig úr því árið 1992.
Íslendingar hafa nú tilkynnt að þeir
hyggist ganga aftur í ráðið en með
„fyrirvara“ um bann þess við hval-
veiðum í atvinnuskyni, jafnvel þótt
þeir hafi ekki mótmælt banninu á
þeim 90 dögum sem aðildarríkin gátu
andmælt því eftir að hvalveiðiráðið
samþykkti veiðibannið árið 1982.
Bannið tók gildi árið 1986. Í bréfi, sem
íslensk stjórnvöld sendu Bandaríkja-
stjórn sem vörsluríkisstjórn alþjóð-
lega hvalveiðisamningsins 8. júní sl.
kemur skýrt fram að „fyrirvari“
þeirra er órjúfanlegur þáttur í aðild
Íslands að hvalveiðisamningnum.
WWF myndi örugglega ekki leggj-
ast gegn því að Ísland fengi aðild að
Alþjóðahvalveiðiráðinu svo fremi sem
ekki væri reynt að
tengja hana við fyrir-
vara um eina af gildandi
samþykktum ráðsins.
WWF fagnar hverju
ríki sem gengur í Al-
þjóðahvalveiðiráðið og
gegnir jákvæðu hlut-
verki í því að vernda
hvalastofna heimsins.
Við teljum hins vegar að
verði gengið að skilyrð-
um Íslendinga eyðileggi
það alþjóðlega samn-
inginn um stjórnun
hvalveiða og þar með
Alþjóðahvalveiðiráðið á
nokkrum árum.
Ekkert ríki hefur áð-
ur reynt að ganga í Alþjóðahvalveiði-
ráðið og tilkynnt um leið að það skuld-
bindi sig ekki til að virða allar fyrri
ákvarðanir ráðsins. Verði þessum
gjörningi Íslendinga ekki andæft
skapar hann fordæmi sem myndi
koma í veg fyrir að Alþjóðahvalveiði-
ráðið gæti nokkurn tíma tekið bind-
andi ákvarðanir. Öll aðildarríkin gætu
þá sagt sig úr ráðinu og gengið í það
aftur með fyrirvara við hvaða þætti
hvalveiðistjórnunarinnar sem er,
þannig að ráðið glataði öllu valdi sínu.
Í hafréttarsamningi Sameinuðu
þjóðanna eru farhvalir nefndir meðal
þeirra tegunda sem þörf sé á að
vernda og hvatt er til þess að settar
verði alþjóðlegar reglur til að stjórna
hagnýtingu hvala. Verði Alþjóðahval-
veiðiráðið eyðilagt fara þessar reglur
forgörðum með hrikalegum afleiðing-
um fyrir framtíðarstjórnun hvalveiða
og hvalastofna heimsins. Án Alþjóða-
hvalveiðiráðsins gæti hvaða þjóð sem
er hafið stjórnlausar hvalveiðar þar
sem ekki væru til neinar samþykktar
alþjóðareglur um veiðikvóta, eftirlit
og stjórnun veiðanna. Alþjóðanátt-
úruverndarsjóðurinn styður ekki
hvalveiðar í atvinnuskyni en er
hlynntur umræðu innan Alþjóðahval-
veiðiráðsins um ráðstafanir til að
tryggja að þær hvalveiðar sem eiga
sér stað núna lúti alþjóðlegri stjórn.
Þetta væri ómögulegt ef Alþjóðahval-
veiðiráðið gæti ekki lengur sett bind-
andi reglur.
Tilraun Íslendinga myndi reyndar
hafa þær afleiðingar að engin alþjóða-
samtök sem framfylgja samningum
um stjórnun fiskveiða eða annarra
náttúruauðlinda, svo sem CITES
(samningi um alþjóðaverslun með
tegundir villtra dýra og plantna sem
eru í útrýmingarhættu), er hindra
ekki svipaða fyrirvara, myndu aldrei
geta tekið bindandi ákvarðanir, þar
sem aðildarríkin gætu beitt sömu að-
ferð og Íslendingar.
Við væntum þess að það sé ekki
vilji Íslendinga – enda getur það ekki
þjónað hagsmunum þeirra í ljósi af-
leiðinganna fyrir aðra náttúruvernd-
arsamninga – að eyðileggja alþjóðleg
samtök sem þeir ætla að ganga í aftur
og við vonum að íslensk stjórnvöld
endurskoði ákvörðun sína fyrir árs-
fund Alþjóðahvalveiðiráðsins sem
hefst 23. júlí.
Hvalir, Alþjóðahval-
veiðiráðið og WWF
Cassandra
Phillips
Hvalveiðar
WWF hefur nú hins
vegar, segir Cassandra
Phillips, miklar áhyggj-
ur af tilraun Íslendinga
til að staðfesta aftur al-
þjóðasamninginn.
Cassandra Phillips er ráðgjafi hjá
WWF í hvalveiðimálum og málefnum
Suðurskautslandsins.