Morgunblaðið - 21.07.2001, Síða 38

Morgunblaðið - 21.07.2001, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ VILLTUR trjágróður er af skornum skammti á Íslandi, birk- ið, reynirinn og víðirinn mest áberandi, en ekki má gleyma fjalldrapa og eini þótt minna áberandi séu, og íslenska blæ- öspin vex á örfáum stöðum. En hvað um klifur- og vafn- ingsplöntur? Okkur er tamt að hugsa um klifurplöntur sem trjá- kenndar flækjur sem hanga niður úr greinum annarra trjáa, líkt og við höfum séð í Tarsan-myndun- um. Það er skemmst frá að segja, að þannig plöntur vaxa ekki villt- ar á Íslandi, en þó eigum við okk- ar klifurplöntur og það fleiri en eina tegund. Í fljótu bragði minn- ist ég giljaflækju, baunagrass og umfeðmings, sem öll hafa fjólublá blóm. Af þessum þremur tegund- um er umfeðmingurinn langal- gengastur, vex um svotil allt land og blómgast einmitt í júlí. Hann notar aðrar plöntur sér til stuðn- ings, laufblöðin, sem eru samsett úr mörgum blaðpörum, eru klif- urtækin. Endasmáblöðin eru um- breytt í vafþræði, sem festa plöntuna rækilega við strá og greinar næstu plantna. Hér er einmitt munurinn á klifur- og vafnings- plöntum. Báðar geta verið ýmist einærar eða fjölær- ar, jurtkenndar eða trjákenndar. Klif- urplönturnar klifra með ýmiskonar hjálpartækjum, vafþráðum líkt og umfeðmingurinn, þyrnum eða sogrót- um svo nokkuð sé nefnt. Vafnings- plöntur vaxa fyrst í stað eins og aðrar plöntur upp í loftið, en þeg- ar stilkurinn er orðinn svo langur að hann getur ekki lengur staðið óstuddur leitar hann sér stuðn- ings og hann getur verið dálítið sérvitur á stuðninginn, tekur oft- ast mjóa „hluti“ fram yfir svera, vill t.d. frekar nælonþræði en niðurfallapípur, svo nokkuð sé nefnt. Vafningsjurtir halda sér uppi með því að hringsnúast utan um stuðning sinn, toppur- inn leitar upp eftir ýmist með sólu eða andsælis og það er til lítils að reyna að beina honum í aðra átt en tegundinni er eðlilegt. Í garðinum mínum vaxa nokkrar tegundir vafningsplantna. Skógartoppurinn – Loniceria periclymenum – og ég höfum lengst átt samleið, meira en 20 ár. Reyndar er það nú svo að flestir kalla hann vaftopp, sem heitir Loniceria caprifolium á lat- ínu, en það er hreint ekkert skrít- ið. Lengi vel gerðu garðyrkju- stöðvar ekki mun á, enda eru þessar tegundir fljótt á litið mjög líkar. Blöðin eru gagnstæð, sitja andspænis hvert öðru upp eftir greinunum. Þau eru með heila blaðjaðra – heilrend, egglaga og stilkstutt. Blómin á báðum teg- undunum sitja mörg saman í kransi gul á lit en verða ljósari með aldrinum, jafnvel nær gul- hvít. Áður en blómin springa út geta þau verið töluvert rauðleit að utan, einkum hjá skógartoppi, og ræktendur hafa leitast við að fá fram afbrigði, sem hafa þennan rauða lit í ríkum mæli. Hér hef ég talað um hvað er líkt með skógartoppi og vaftoppi, en þá kem ég að því sem er ólíkt. Hjá vaftoppi eru efstu blaðpörin undir blómkransinum – jafnvel 2–3 blaðpör – samvaxin og mynda eins konar skál undir blómið. Þetta sést aldrei hjá skógartoppi. Skógartoppurinn er miklu blóm- viljugri en vaftoppurinn, sem er ekki að undra ef við vitum að hann vex villtur um suðurhluta Skandinavíu og mestalla Evrópu en vaftoppurinn er suðlægari, frá Mið- og Suður-Evrópu. Báðar tegundirnar ilma alveg yndislega, einkum á kvöldin. Þá fylla þær garðinn af ljúfsætum ilmi og draga að sér fiðrildi og flugur sem eru sólgnar í blóm- safann. Skógartoppur og vaftopp- ur eru báðir harðgerðir og þola dálítinn skugga. Algengast er að sjá vafnings- jurtir og klifurplöntur vaxa upp eftir húshlið, en það má nota ýmsa aðra staði. Nú á dögum asparæðisins, eða and-æðisins mikla, mætti hugsa sér að láta skógartopp eða einhverja aðra klifurplöntu fara upp eftir stúf- unum á krúnustýfðum öspunum og fela þá þannig í stað þess að þeir minni okkur stöðugt á hve skammt er öfganna á milli hjá mannfólkinu og að gróðurinn lendir bæði í meðbyr og mótbyr. S.Hj. Klifurplöntur – vafningsjurtir Skógartoppur. VIKUNNAR BLÓM Um s j ó n S i g r í ð u r H j a r t a r 458. þáttur Spilakvöld landsliðsnefndar kvenna Næsta spilakvöld nefndarinnar verður miðvikudaginn 25.7. í Skeif- unni 11 kl. 19.30. Dagskrá kvöldsins verður lík öðrum spilakvöldum nefndarinnar, sem jafnan hefjast með erindum um tiltekna þætti brids sem keppnisíþróttar. Á miðviku- dagskvöld mun Sveinn Rúnar Eir- íksson flytja erindi um keppnisbrids, nauðsyn og eðli bridslaganna, hlut- verk keppnisstjórans auk þess að ræða framkomu keppnisspilarans og borðsiði. Sveinn Rúnar hefur mörg undanfarin ár verið aðalkeppnis- stjóri á mótum Bridgesambands Ís- lands auk þess að hafa verulega reynslu sem keppnisspilari og hefur verið fyrirliði og þjálfari landsliða í brids. Að loknu erindi Sveins verður spilað og farið yfir spilin líkt og á undanförnum spilakvöldum. Næsta spilakvöld landsliðsnefndarinnar verður síðan miðvikudaginn 29. ágúst. BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Veitingahús í Hafnarfirði auglýsir eftir matráði sem vinnur aðra vikuna frá kl. 10 til 14 en hina frá kl. 18 til 22 og aðra hvora helgi. Ennfremur vantar tvo starfskrafta til aðstoðar í eldhúsi og afgreiðslu í sal. Upplýsingar í síma 691 7854. Bílstjórar — vélamenn J.V.J verktakar óska eftir að ráða vana bílstjóra á malarflutningabíla. Einnig góða vélamenn á beltagröfur og hjólagröfu. Óskum einnig eftir mönnum í sumarafleysingar. Upplýsingar á skrifstofu í síma 555 4016 og hjá verkstjóra í síma 893 8213. R A Ð A U G L Ý S I N G A R HÚSNÆÐI Í BOÐI Í nágrenni Smárans 300 fm iðn. húsn. í nýju húsi til sölu eða leigu. Viðhaldsfrítt að utan. Gott útisv. Tvær inn- keyrsludyr og tvær gönguh. ásamt gl. Lofth. 4 m. Kjörið fyrir fyrirt. sem lagerpl. Einnig kæmi til greina að vera með starfsm. og taka lager fyrir fleiri fyrirtæki ásamt útk. Uppl. í sím- um 588 9490, 553 9424 og 897 8265. NAUÐUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Grænamýri, ásamt tilheyrandi réttindum Norður-Héraði, þingl. eig. Eysteinn Geirsson, gerðarbeiðendur Olíufélagið hf., og Vátrygginga- félag Íslands hf., miðvikudaginn 25. júlí 2001 kl. 15.00. Miðvangur 1, kjallari, Egilsstöðum, þingl. eig. Bæjarás ehf., gerðar- beiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., miðvikudaginn 25. júlí 2001 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði, 20. júlí 2001. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Ólafsvegi 1, Ólafsfirði, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Ólafsvegur 20, eignarhluti, Ólafsfirði, þingl. eig. Þóranna Guðmunds- dóttir, gerðarbeiðendur Kreditkort hf. og Landsbanki Íslands hf. höfuðst., miðvikudaginn 25. júlí 2001 kl. 10.00. Pálsbergsgata 1, Ólafsfirði, þingl. eig. Sigvaldi Þorleifsson ehf., gerð- arbeiðandi Byggðastofnun, miðvikudaginn 25. júlí 2001 kl. 10.00. Strandgata 5, neðri hæð, Ólafsfirði, þingl. eig. Þorleifur Gestsson, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður sjómanna og Lögreglustjóraskrifstofa, miðvikudaginn 25. júlí kl. 10.00. Sýslumaðurinn á Ólafsfirði, 17. júlí 2001. TILKYNNINGAR Tilkynning Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 86. gr. laga nr. 60/1994 um vátryggingastarfsemi er vakin athygli á tilkynningu frá Fjármálaeftirlitinu í Lögbirtingablaðinu 17. júlí sl., þar sem óskað er eftir skriflegum athugasemdum vátrygginga- taka og vátryggðra við yfirfærslu vátrygginga- stofns Vélbátaábyrgðarfélagsins Gróttu til Sjóvá- Almennra trygginga hf. Frestur til að skila athugasemdum til Fjármála- eftirlitsins er einn mánuður frá birtingu tilkynn- ingarinnar. Reykjavík 18. júlí 2001. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Sunnudagur 22. júlí kl. 9.00. 1. Fjallasyrpa Útivistar, 6. ferð Hafnarfjall (844 m y.s.). Um 5 klst. ganga. 2. Straumfjörður á Mýrum. Rölt um fallega strönd. Fjöl- breytt lífríki skoðað og litið á gamlar rústir. Verð í báðar ferðirnar 1.900 kr. f. félaga, 2.100 kr. f. aðra. Brott- för frá BSÍ. Farmiðar í miðasölu BSÍ. Sjá útivist.is . 22. júlí. Sunnudagur Borgar- hólar - Helgufoss – Gljúfra- steinn um 5 klst. ganga. Far- arstjóri Eiríkur Þormóðsson. Verð 1700 en 1400 fyrir félags- menn F.Í. Brottför frá BSÍ kl. 10.30 komið við í Mörkinni 6. Ath. Eigum enn laus pláss í 8 daga ferð um Hornstrandir þann 4. ágúst. Suðurnesjamenn erfiðir heim að sækja Önnur umferð bikarkeppninnar stendur nú sem hæst en lokaspiladag- ur er á sunnudag. Margir spennandi leikir eru í þess- ari umferð og höfum við fregnir af því að sveit Sparisjóðsins hafi annað árið í röð slegið úr sterka sveit SPRON. Leikurinn var spilaður sl. fimmtu- dag. Suðurnesjamenn byrjuðu betur og unnu fyrstu lotu 24-6, aðra lotu 15-6, þá þriðju 17-13 en töpuðu síðasta hálfleiknum 7-32 og hékk sigur þeirra á bláþræði en lokatölur voru 63-57. Árangur Sparisjóðsmanna á heimavelli í bikarkeppninni er athygl- isverður. Þeir hafa ekki tapað leik þar í a.m.k. þrjú ár og oft fengið sterkustu spilara landsins í heimsókn. Golfkúlur 3 stk. í pakka aðeins 850 kr. NETVERSLUN Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.