Morgunblaðið - 21.07.2001, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 45
DAGBÓK
LJÓÐABROT
ÚR MARÍULYKLI
Drottning æðsta, dýr af ættum,
drottins móðir, jungfrú góða,
Máría skærust, dyggða dýrust,
dáðaprýddust, full af náðum,
veittu mér, að eg verða mætta
vonarmaðr, sem allir aðrir,
þína mjúka miskunn leika,
mætust brúður himnasætis...
Hef eg hrellda sál
(hún þarf líknarmál).
Gerir brennheitt bál
beiskt glæpatál.
Mæt María, snú
mér á rétta trú.
Nóg er þörf, að þú
í þrautum dugir nú.
Jón prestur Maríuskáld Pálsson.
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Ámorgun sunnudag-
inn 22. júlí, verður áttræður
Sveinn Hróbjartur Magnús-
son, fv. lögregluþjónn og
handavinnukennari, Hvít-
ingavegi 10, Vestmannaeyj-
um. Eiginkona Sveins er
Sigríður Steinsdóttir frá
Múla. Í tilefni afmælisins
mun Sveinn halda opið golf-
mót sem hefst á afmælisdag-
inn kl. 13. Leikinn verður 18
holu höggleikur og eru öll
verðlaun mótsins gerð af af-
mælisbarninu. Að loknu
golfmótinu mun hann taka á
móti gestum í Golfskálanum
frá kl. 18-20.
60 ÁRA afmæli. Nk.mánudag 23. júní
verður sextugur Bjarni
Guðmundsson, Klettahlíð 8,
Hveragerði. Bjarni verður
með kaffi á könnunni sunnu-
daginn 22. júlí kl. 16-20 í
Völundi, Austurmörk 23,
Hveragerði.
STAÐAN kom upp á EM
einstaklinga sem
haldið var í Ohrid í
Makedóníu. Hvítt
hafði hollenski stór-
meistarinn Loek
Van Wely (2670)
gegn Armenanum
Ashot Anastasjan
(2574) 21.Rxd5! og
svartur gafst upp
enda allt að hruni
komið eftir 21...exd5
22.Dxd5+ De6
23.Dxe6+ Hxe6
24.Hxc8. Skákin
tefldist í heild sinni:
1.d4 d5 2.c4 c6 3.Rc3
Rf6 4.Rf3 a6 5.cxd5 cxd5
6.Bg5 Rc6 7.e3 e6 8.Bd3 Be7
9.O-O O-O 10.Hc1 Bd7
11.Re5 Hc8 12.f4 h6 13.Bxf6
Bxf6 14.Dh5 Rxe5 15.dxe5
Be7 16.Hf3 f5 17.exf6 Hxf6
18.Hg3 Bb4 19.Bb1 Be8
20.Dd1 Db6? o.s.frv.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
75 ÁRA af-mæli. Á
morgun, sunnu-
daginn 22. júlí,
verður 75 ára
Steindór Hjörleifs-
son, leikari. Eigin-
kona hans, Mar-
grét Ólafsdóttir,
leikkona, varð sjö-
tug 12. júní sl. og
gullbrúðkaup
þeirra hjóna er
einnig á næstu
grösum. Í tilefni af
öllu þessu vilja þau
gjarnan sjá vini og
vandamenn á
heimili sínu, Lauf-
ási 7, Garðabæ,
sunnudaginn 22.
júlí milli kl. 16 og
19.
„Ég er bara mannlegur,“
viðurkennir Eddie Kantar
og það þýðir aðeins eitt –
hann hefur fengið vont spil.
Norður
♠ 92
♥ Á1043
♦ 942
♣ K765
Vestur Austur
♠ D54 ♠ 76
♥ KD762 ♥ G985
♦ 106 ♦ G753
♣ D94 ♣ Á108
Suður
♠ ÁKG1083
♥ --
♦ ÁKD8
♣ G32
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 spaði
Pass 1 grand Pass 3 tíglar
Pass 3 grönd Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Útspil: Hjartakóngur.
Kantar var í austur og
góður vinur hans í suður,
„sem á það til að spila með
speglum“. Sagnhafi var
David Sacks frá Los Angel-
es. Hann drap á hjartaás
(henti laufi heima) og notaði
innkomuna til að svína í
trompinu. Vestur drap á
spaðadrottningu og fór út á
smáu hjarta. Sacks tromp-
aði og tók nokkur tromp í
viðbót og ÁK í tígli. Leit svo
í hliðarspeglana:
Norður
♠ --
♥ 104
♦ --
♣ K76
Vestur Austur
♠ -- ♠ --
♥ D7 ♥ G
♦ -- ♦ G7
♣ D94 ♣Á10
Suður
♠ 8
♥ --
♦ D8
♣ G3
Tígultían hafði ekki farið
framhjá David og hann þótt-
ist hafa stöðuna á hreinu.
Hann spilaði síðasta tromp-
inu og henti laufi úr borði.
Hvað á austur að gera? Ekki
má hann henda tígli, svo
mikið er víst. Ef austur kast-
ar hjartagosa má senda
hann inn á tígul og þá vakn-
ar laufkóngurinn til lífsins.
Kantar taldi skást að kasta
lauftíu, en Sacks dúkkaði þá
lauf og ásinn sló vindhögg.
Kantar fékk vissulega slag á
hjartagosa, en það var síð-
asti slagurinn. Svona er að
vera mannlegur.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira.
Árnað heilla, Morg-
unblaðinu, Kringlunni
1, 103 Reykjavík
Það er bara það að
vera samtaka.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert gæddur góðri skipu-
lagsgáfu og því er oft til þín
leitað, þegar eitthvað er á
döfinni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú mátt ekki gleyma að láta
þá sem þér þykir vænt um
vita af því. Það eru einmitt
litlu hlutirnir sem geta sagt
svo margt og tjáð tilfinning-
ar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það kann að hvessa á vinnu-
stað þínum og þá er þér holl-
ast að halda þig til hlés. Þegar
óveðrinu slotar verður litið til
þín um forystuhlutverk.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er í góðu lagi að hafa
sterka sannfæringu fyrir
hlutunum. Gættu þess hins
vegar þegar þú talar um þá að
velja orð þín af kostgæfni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er nauðsynlegt eftir
langa lotu að fá tækifæri til
þess að kasta mæðinni. Þótt
starfið sé krefjandi máttu
ekki ganga fram af þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Nú sér loksins fyrir endann á
verkefni þínu og samstarfs-
manna þinna. Geymdu samt
öll fagnaðarlæti þangað til
málið er komið í höfn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú nærð engum tökum á
starfinu meðan þú forgangs-
raðar ekki verkefnunum.
Breyttu um vinnulag og þá
munu hjólin fara að snúast
þér í hag.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Nú er lag til þess að skjóta á
fundi með vinum og vanda-
mönnum. Undirbúðu hann
vandlega og mundu að hafa
dagskrána í lagi og alla á léttu
nótunum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það eru einhverjar blikur á
lofti, en þú þarft ekkert að
óttast meðan þú lætur ekki
fljótfærnina ná tökum á þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ferðalög eru þínar ær og kýr
og þú skalt bara láta það eftir
þér að skipuleggja drauma-
ferðina hvað sem hver segir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er rétt að gangast við
mistökum sínum og taka af-
leiðingunum af þeim. Reyndu
ekki að slá ryki í augu fólks
eða koma þínum verkum yfir
á aðra.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú kemst ekkert áleiðis upp á
eigin spýtur. Brjóttu odd af
oflæti þínu og fáðu þér sam-
starfsmenn svo verkinu miði
eitthvað áleiðis.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Gefðu gaum að heilsu þinni.
Hlustaðu á líkamann og huns-
aðu ekki þær viðvaranir sem
hann gefur. Undirstaða lífs-
ins er heilbrigð sál í hraustum
líkama.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Gullsmiðir
Hugheilar þakkir sendi ég öllum þeim fjölmörgu
sem heiðruðu mig og glöddu með margvíslegum
hætti á 90 ára afmæli mínu 13. júlí sl.
Vinsemd ykkar og hlýhugur er okkur hjónum
mikils virði. Guðs blessun fylgi ykkur.
Bestu kveðjur.
Ásgrímur Hartmannsson,
Ólafsfirði.
HS Bólstrun ehf.
www.bolstrun.is/hs
M
EI
ST
AR
AF
ÉLAG BÓLSTRA
R
A
STOFNAÐ 1928