Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isMarel og Tryggvi í aðalhlut-
verkum í Noregi/B12
Þórey Edda náði besta árangri
Íslendinga í Edmonton/B5
12 SÍÐUR40 SÍÐUR
Sérblöð í dag
JÓN Viðar Matthíasson, aðstoðar-
slökkviliðsstjóri Slökkviliðsins á höf-
uðborgarsvæðinu (SHS), segir að
ákveðið hafi verið endanlega á fundi
með Flugmálastjórn Íslands í gær að
festa kaup á nýjum björgunarbát
með þeim fyrirvara að flugmálaáætl-
un fáist samþykkt á Alþingi í haust.
Segir Jón að flugmálastjórn muni
hafa samvinnu við slökkviliðið um
fjármögnun.
„Þarna er því um að ræða sam-
vinnuverkefni að frumkvæði Flug-
málastjórnar,“ segir Jón.
Reiknað er með að bátskaupin
gætu verið komin í kring í ársbyrjun
2002 en þangað til hyggjast Flug-
málastjórn og slökkviliðið ræða við
Slysavarnafélagið Landsbjörg um
samstarf sem félagið hefur lagt til.
Núverandi björgunarbátur er
ekki talinn standast ýtrustu örygg-
iskröfur og þegar flugslysið í Skerja-
firði átti sér stað fyrir ári liðu átta
mínútur frá því að fyrsti sjúklingur
var kominn um borð þar til endur-
lífgun hófst, en hún hófst ekki fyrr
en sjúklingurinn var kominn í land.
Flugmálastjórn keypti núverandi
bát til að hafa á Ísafirði en tók hann
til afnota fyrir Reykjavíkurflugvöll
eftir að annar bátur sem þar hafði
verið var dæmdur ónýtur fyrir um
þremur árum.
Deilt um hverjir ættu
að greiða fyrir bátinn
Flugmálastjórn og slökkviliðið
gerðu þjónustusamning í júní í fyrra
sem felur í sér að slökkviliðið bregst
við vegna atburða sem ógna öryggi
er varðar eldsvoða, mengun, flugslys
og sambærilega hluti. Frá þeim tíma
sem samningurinn var gerður hafa
fulltrúar slökkviliðsins annars vegar
og Flugmálastjórnar hins vegar rætt
um kaup á björgunarbát á þónokkr-
um fundum frá því í júlí á síðasta ári.
Þar hefur m.a. komið fram að allir
séu sammála um að núverandi bátur
fullnægi ekki ýtrustu öryggiskröfum
en hins vegar hefur verið deilt um
hverjir ættu að greiða fyrir bátinn.
Eins og áður greinir er það nú komið
á hreint.
Jón segir að stefnt sé að því að
leita tilboða um leið og samþykki
liggur fyrir og vonast hann til að það
verði um áramót.
„Fram að þeim tíma höfum við
mikinn áhuga á að ræða við Slysa-
varnafélagið Landsbjörg um aðgang
að þeim búnaði sem þeir hafa.“
Jón Gunnarsson, formaður Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar, segir
að mjög eðlilegt sé að félagið komi
þarna að málum og menn hljóti að
vera sammála um það.
„Það er hvergi í landinu til meiri
þekking eða reynsla en innandyra
hjá okkur og við erum tilbúnir að
þjálfa slökkviliðsmenn sem koma til
með að nota bátana. Það er bara
spurning hvar menn vilja láta stað-
setja þessi tæki.“
Höfum verið að
þróa samninginn
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri
segir að ávallt hafi legið fyrir að bát-
urinn yrði endurnýjaður.
„Margt hefur verið tekið úr sam-
hengi í fjölmiðlum þar sem talað hef-
ur verið um ágreining þegar ákveð-
inn meiningarmunur hefur verið á
túlkun samningsins. Svona samstarf
er nýtt af nálinni og menn hafa verið
að þróa það. Öll þessi atriði hafa hins
vegar verið leyst.“
Segir hann að mismunandi túlkun
þess efnis hver hafi átt að greiða bát-
inn hafi ekki tafið fyrir kaupunum á
honum.
Nýr björgunarbátur fyrir Reykjavíkurflugvöll
Verði kominn í
gagnið í ársbyrjun
RANNSÓKN á orsökum flugslyss-
ins í Garðsárdal inn af Eyjafirði á
sunnudag gengur vel, að sögn Stein-
ars Steinarssonar hjá rannsóknar-
nefnd flugslysa. Hann sagði að rann-
sókn á vettvangi væri lokið og því of
snemmt að segja hvað gerðist.
Tveir menn sluppu ómeiddir þeg-
ar eins hreyfils flugvél nauðlenti.
Flugvélin er af gerðinni Piper Toma-
hawk og er með einkennisstafina
TF-JMB. Flugmaðurinn tilkynnti kl.
16.36 að hann þyrfti að nauðlenda
þar sem hreyfillinn hefði misst afl.
Tæpum hálftíma síðar fékk flug-
stjórn í Reykjavík staðfestingu á að
flugvélin hefði nauðlent í mýri og
henni hvolft en flugmaður og farþegi
sloppið ómeiddir. Mennirnir gengu
til móts við björgunaraðila en þyrla
Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, sótti
þá og flutti til Akureyrar.
Flugturninn á Akureyri tilkynnti
Slökkviliði Akureyrar um atvikið kl.
16.40 sem lét lögreglu vita og voru
tveir sjúkrabílar og tækjabíll ásamt
lækni sendir í átt að slysstaðnum.
Ekki er hægt að aka alla leið í Garðs-
árdal og voru tveir slökkviliðsmenn
sem eiga torfæruhjól því sendir á
staðinn og hlúðu þeir að mönnunum
þar til þyrlan kom. Fór þyrlan með
lögreglu og fulltrúa frá rannsóknar-
nefnd flugslysa á vettvang.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Flugvélin sem nauðlenti í Garðsárdal á sunnudag er nokkuð löskuð eins
og sést á þessari mynd sem tekin var á vettvangi.
Rannsókn á nauð-
lendingu hafin
FJÖLMENNT var á minningarat-
höfn við Skerjafjörð í gærkvöldi í til-
efni þess að ár var liðið frá flugslys-
inu í Skerjafirði 7. ágúst árið 2000.
Kveikt var á kertum í grýttu fjöru-
borðinu og margir skildu eftir blóm
til minningar um þá sem fórust, flug-
mann og fimm farþega. Athöfnin
hófst á nákvæmlega sama tíma og
flugvélin TF-GTI, í eigu leiguflugs
Ísleifs Ottesen, skall í sjóinn fyrir
ári, eða kl. 20.35. Aðstandendur
þeirra sem fórust stóðu að athöfninni
og fluttu nokkur orð við upphaf
hennar, þeirra á meðal Sami Daglas,
bróðir Mohamads Daglas, flug-
mannsins sem fórst með vélinni.
Sami hefur verið hér á landi síð-
ustu daga ásamt einum bræðra sinna
en Mohamad lét eftir sig móður, sex
bræður og tvær systur. Flestir úr
fjölskyldunni búa í Jórdaníu en Sami
hefur verið búsettur í Bandaríkjun-
um sl. tíu ár. Hann er lærður flug-
maður og dvaldi hér á landi í fimm ár
áður en hann fór til Bandaríkjanna.
Leitum sannleikans en
erum ekki í hefndarhug
Sami sagði við Morgunblaðið að
þeir bræður væru ekki hér á landi til
að leita hefnda. Þeir hefðu komið til
að aðstoða við leit að sannleikanum í
málinu. Fjölskylda Mohammads ætl-
aði einnig að styðja aðra aðstandend-
ur fórnarlamba flugslyssins og
styðja fjárhagslega þá óháðu rann-
sókn á slysinu sem breskir sérfræð-
ingar gera.
„Við erum ekki sátt við niðurstöð-
una í skýrslu rannsóknarnefndar
flugslysa. Þar er of mikilli sök varpað
á bróður okkar og ljóst að fleiri aðilar
eiga hlut að máli en hann. Miðað við
það sem við höfum kynnt okkur hefði
þessi flugvél aldrei átt að vera í loft-
inu. Samt hafði hún lofthæfiskírteini
og við veltum því fyrir okkur hversu
margar svona vélar eru að fljúga í
dag. Við fylgdumst með flugumferð-
inni í gær [fyrradag] og allt gekk vel
en því miður var ekki svo fyrir ári.
Núna var eftirlitið til dæmis til fyr-
irmyndar en þannig var málum ekki
háttað í fyrra,“ sagði Sami.
Hann og Ali, bróðir hans, hafa síð-
ustu daga verið að kynna sér máls-
atvik og skýrslur sem komið hafa út
vegna slyssins. Sami sagði þann mun
sláandi sem væri á frumskýrslu flug-
slysanefndar og lokaskýrslunni
sjálfri. Mikið af upplýsingum væri að
finna í frumskýrslu sem ekki sæist í
lokaskýrslu og svo virtist sem flug-
málayfirvöld væru að reyna draga úr
bæði ábyrgð sinni og flugrekandans.
„Við komum ekki hingað til að ýfa
upp sár, það viljum við ekki. Við er-
um hér til að reyna að hreinsa mann-
orð bróður okkar og fá fram sann-
leikann í málinu. Ef mistök hafa
verið gerð viljum við reyna að koma í
veg fyrir að þau endurtaki sig, ekki
að einhverjir séu hafðir fyrir rangri
sök. Við viljum tryggja öryggi far-
þega og flugmanna þannig að við
missum ekki fleiri mannslíf í öðru
flugslysi á borð við það sem átti sér
stað í Skerjafirði á síðasta ári,“ sagði
Sami Daglas.
Minningarathöfn í gærkvöldi vegna flugslyssins í Skerjafirði fyrir ári
Fórnarlamba minnst
Morgunblaðið/Billi
Fjölmargir lögðu leið sína í Skerjafjörð í gærkvöldi til að minnast fórn-
arlamba flugslyssins 7. ágúst í fyrra.
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra fór vestur um haf til Wash-
ington í Bandaríkjunum í gær til
fundar við Colin Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna. Þeir munu
eiga formlegan fund í dag, fyrir há-
degi að staðartíma, þar sem rætt
verður um málefni NATO og varn-
arsamstarf þjóðanna.
Halldór
hittir Col-
in Powell
BROTIST var inn í bíl og ljósmynda-
búnaði, að verðmæti 600 þúsund
krónur, stolið við golfvöllinn í Graf-
arholti í Reykjavík í gær. Að sögn
Margeirs Vilhjálmssonar, fram-
kvæmdastjóra Golfklúbbs Reykja-
víkur, hefur það færst í aukana að
brotist sé inn í bíla við golfvelli og
verðmætum stolið. Margeir segir að
golfspilurum hafi verið bent á að
hafa engin verðmæti sýnileg í bílun-
um þar sem þjófarnir virðist aðeins
brjótast inn í bíla þar sem verðmæti
liggi á glámbekk. Hann segir að
einnig hafi verið í umræðunni að
koma fyrir eftirlitsmyndavélum á
bílastæðinu en hann segir það mjög
kostnaðarsamt.
Innbrotum í
bíla við golf-
velli fjölgar
♦ ♦ ♦