Morgunblaðið - 08.08.2001, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 08.08.2001, Qupperneq 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ HREGGVIÐUR Norðdahl, jarðfræðingur á Raunvísinda- stofnun Háskóla Íslands, tel- ur að innan ekki langs tíma verði að fara með öll gömul malarnám í skoðun. Í lögum um umhverfismat nr. 106 sem tóku gildi 25. maí 2000 segir að framkvæmdir samkvæmt leyfum útgefnum fyrir 1. maí 1994 séu ekki háð- ar mati á umhverfisáhrifum séu þær hafnar fyrir árslok 2002. Segir enn fremur að ef áætluð efnistaka raski 25 þús- und fermetra svæði eða stærra eða er 50 þúsund rúm- metrar eða meiri þá þurfi svæðið að fara í umhverfis- mat. Þá segir í lögum um náttúruvernd nr. 44, sem tóku gildi 1. júlí 1999, að efnistöku- svæði skuli ekki standa ónot- að og ófrágengið lengur en í þrjú ár. Blaðamaður Morgunblaðs- ins fór ásamt Hreggviði til að kanna aðstæður þar sem efn- istaka fer fram við jökulgarð- inn sem liggur í mynni Hval- fjarðar á mörkum Kjalarnes- hrepps og Kjósarhrepps. Jökulgarðurinn er á náttúru- minjaskrá Náttúruverndar ríkisins í flokknum aðrar minjar. Steypustöðin ehf. keypti landið Mörðukot fyrir um 10 til 15 árum að sögn Halldórs Jónssonar, framkvæmda- stjóra fyrirtækisins. Segir hann að það hafi verið mal- arnáma þarna fyrir og hafi fyrirtækið keypt landið til þess að nýta efnið. Dýrmætustu minjarnar í neðri hluta melsins Hreggviður segir að það hafi verið jökull í Hvalfirðin- um fyrir um 12 þúsund árum en hversu langt út fjörðinn hann náði sé ekki vitað. „Aðalatriðið er að hér eru ákveðnar jarðsögulegar minj- ar og skiptist óseyrin í nokkra kafla. Dýrmætast í þessum náttúruminjum er í neðri hluta melsins sem liggur að sjónum og því verður senni- lega aldrei raskað þar sem efnið þar er ekki eins eftir- sóknarvert. Malarnámið fer aðallega fram í yngsta og efsta hluta þessarar myndun- ar þar sem þar er nýtanleg- asta malar- og sandefnið.“ Hann segir að ef malarnám væri að hefjast þarna í dag þá myndi það án nokkurs vafa fara í umhverfismat. „Lögin eru hins vegar mjög ung en malarnám hefur verið stundað í áratugi. Mér segir svo hugur um að ekki innan langs tíma þá verði að fara með öll gömul malarnám í skoðun. Hvort halda megi áfram eða hvort breyta eigi einhverju.“ Finna þarf leið til að gera hvort tveggja Hreggviður segir að malar- og sandefni, hvort sem þau eiga að nýtast til húsbygginga eða vegagerða, séu hluti af jarðsögulegum minjum og því þurfi leið til að gera hvort tveggja. Spurður segir hann að um- gengnin við þessa tilteknu námu sé ekkert verri heldur en við aðrar námur hér á landi. En er það gott eða slæmt? „Það fer allt eftir því hvaða augum maður lítur á það. Ég get séð ýmislegt í öðrum nám- um á Íslandi sem betur mætti fara. Almennt séð finnst mér að efnistökumál mættu vera í fastari farvegi. Það er mikil framför með nýjum lögum sem hafa komið til á liðnum árum. Þar hafa verið stigin mikilvæg skref en mér finnst persónulega að það mætti ganga lengra. Fyrst og fremst finnst mér að það þurfi að huga meira að virðisaukn- ingu efnanna. Að ekki sé mok- að efni í húsgrunn sem er bet- ur til þess fallið að búa til steinsteypu úr eða gera mal- bik. Það eru dýrustu fram- kvæmdirnar.“ Er um að ræða miklar skemmdir á sjónrænni nátt- úruperlu? „Þetta er um það bil hæsti punktur melanna. Áframhald- andi malarnám kemur til með að lækka þessa sjónlínu og mér finnst að taka þurfi það til athugunar. Ef þetta mal- arnám myndi halda áfram niður að sjó þá fáum við skarð í melinn. Þá mun útlit hans breytast en það er ekki þar með sagt að við höfum glatað þeim jarðsögulegu minjum sem fólgnar eru í mynduninni. Ef þetta er gert þokkalega þá getur það verið viðunandi.“ Ætlum að moka þessu öllu í burtu Halldór Jónsson segir að Steypustöðin hafi tekið efni á þessum stað jafnt og þétt síð- ustu 15 ár en í vaxandi mæli síðustu árin. „Við tökum um 15–20 þús- und rúmmetra á ári en það er bara einn bíll í þessu og er hann aðeins yfir frostlausu mánuðina.“ Að sögn Halldórs er Steypustöðin einnig með námu við Esjuberg en á þess- um tveimur stöðum er að finna besta steypuefnið sem völ er á. Sérðu fram á að fyrirtækið muni halda áfram efnistöku á þessum stað um ókomna tíð? „Já, það ætla ég að vona. Við erum með námuleyfi þarna og við ætlum að moka þessu öllu í burtu, alveg niður að sjó. Við munum taka allt það efni sem er nýtanlegt. Á einhverju verður höfuðstað- urinn að byggjast á og ég hef enga aðra leið.“ Halldór segir að efnið á svæðinu sé mjög þykkt og því verði mjög langt þangað til þeir komist að sjónum. Hann vildi benda á að auðvelt væri að rækta upp undirlagið á ný þegar efnistöku væri lokið. Ekki væri verið að eyðileggja náttúruna heldur væri aðeins um lækkun á landi að ræða. Komandi kynslóðir myndu því ekki sjá neinn mun þegar búið væri að ganga frá nám- unum. Efnistökumál þurfa að vera í fastari farvegi að mati Hreggviðs Norðdahl Telur að fara verði með gömul malarnám í skoðun innan tíðar Kjalarnes Morgunblaðið/Rax Hreggviður Norðdahl jarðfræðingur og Brynhildur Magnúsdóttir jarðfræðingur á verk- fræðistofnun Háskóla Íslands virða fyrir sér malarnám í Hvalfirðinum. MEIRIHLUTI Reykjavíkur- lista í borgarráði hefur fellt breytingartillögu minnihluta Sjálfstæðisflokks varðandi gjaldskrá fyrir tóbakssölu- leyfi í Reykjavík. Í 3. grein gjaldskrárinnar segir að vegna tóbakssölu- leyfis skuli borgarstjórn inn- heimta 12.250 krónur fyrir tóbakssöluleyfi og við endur- nýjun leyfisins eða við eig- endaskipti skuli greiðast 7.350 krónur. Sjálfstæðis- menn lögðu hins vegar til að í stað 12.250 króna yrðu inn- heimtar 5.000 krónur og í stað 7.350 króna yrðu innheimtar 3.000 krónur. Breytingartillaga sjálf- stæðismanna var hins vegar felld og var gjaldskráin sam- þykkt með fjórum atkvæðum R-lista. Gjaldskrá fyrir tóbakssölu Tillaga sjálfstæð- ismanna felld Reykjavík Malbikunarframkvæmdir munu standa yfir í dag, mið- vikudag, á eystri hluta Kringlumýrarbrautar (Kópa- vogur-Listabraut). Ein akrein verður tekin fyrir í einu og verður umferð á meðan beint inn á þær akreinar sem ekki er verið að vinna á. Vegfar- endur eru vinsamlegast beðn- ir um að virða hraðatakmark- anir og umferðarmerkingar. Malbikað á Kringlu- mýrarbraut Reykjavík VIÐBYGGING verður reist næsta vetur við Hlíðaskóla í Reykjavík og mun húsnæði skólans þá stækka um 1.900 fermetra, að sögn Árna Magnússonar, skólastjóra Hlíðaskóla. Árni segir að verkið hafi þegar átt að vera hafið, en til standi nú að byggja skólann í vetur. Búið er að taka gömlu smíðastof- urnar sem voru á lóð skólans. Að sögn Árna er megin- markmiðið með nýju bygging- unni að koma á einsetningu í skólanum. „Hlíðaskóli er einn af fáum skólum sem enn eru tvísetnir en stefnt er á einsetningu skólans 2002. Svo er skólinn að sameinast Vesturhlíðar- skólanum sem er skóli fyrir heyrnarlaus börn. Þar eru um 20 nemendur en nemendur Hlíðaskóla eru alls 550. Það er ýmislegt sem gæta þarf að við sameiningu skólanna og nýja húsið er hannað með tilliti til þess,“ segir Árni Magnússon ennfremur. Á þessari afstöðumynd sést hvernig viðbyggingin tengist eldri byggingum Hlíðaskóla, en dökklitaða svæðið á myndinni sýnir útlínur nýbyggingarinnar við skólann. Byggt við Hlíða- skóla í vetur Reykjavík Morgunblaðið/Þorkell Hér sést staðsetning viðbyggingarinnar á lóð Hlíðaskóla. Fremst á myndinni er það svæði sem til stendur að aðalnýbyggingin standi á og þá verða þeir tveir húshlutar sem sjást til vinstri á myndinni, framlengdir út á lóðina í átt að Hamrahlíð. ♦ ♦ ♦ Í SÍÐUSTU viku héldu nem- endur og kennarar í íslensku fyrir útlendinga hjá Náms- flokkum Reykjavíkur loka- hóf þar sem tónlist og dans voru í hávegum höfð. Nokkr- ir nemendur sýndu skemmti- atriði sem tengdust heima- landi þeirra eða Íslandi og fengu nemendur og kenn- arar með því móti ágætt tækifæri til að kynnast menningu hinna ýmsu landa. Einn hópur, byrjendur í ís- lenskunámi frá Ástralíu, Bandaríkjunum, Frakklandi, Ítalíu og Mexíkó, tók sig til og kvað rímur eftir að hafa æft sig vel fyrir flutninginn með því að lesa sér til um rímur og hlusta á geisladisk- inn Raddir. Flutt voru erindi úr Andrarímum eftir Gísla Konráðsson og sr. Hannes Bjarnason. Þrátt fyrir nokkuð flókinn orðaforða í rímunum urðu þær fyrir valinu þar sem hrynjandin í þeim þótti þægileg til flutnings. Rímna- atriðið samanstóð af kynn- ingu á rímum, bæði á ís- lensku og ensku og gerðu nemendurnir að umtalsefni líkindin milli nútímarapps og rímna. Byrjendur í íslensku, frá vinstri: Jean-Baptiste frá Frakk- landi, Haydeé frá Mexíkó, Philippa frá Ástralíu, Elizabeth frá Bandaríkjunum og Maurizio frá Ítalíu. Útlendingar í íslenskunámi hjá Námsflokkunum Kváðu rímur af miklum móð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.