Morgunblaðið - 08.08.2001, Síða 16
SUÐURNES
16 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Á DÖGUNUM fór fram alþjóðlegt
kajakmót í fossastökki á Lagarfossi
og var það þriðja og stærsta mótið af
þessum toga sem haldið hefur verið á
Íslandi.
Gunnlaugur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri flúðasiglingafyrirtæk-
isins Arctic Rafting, sem stóð fyrir
mótinu, sagði keppendur hafa verið
23 talsins. Komu þeir frá Bretlandi,
Bandaríkjunum, Noregi og Nepal,
auk Íslendinga. Hann sagði að í
stigagjöf sé horft á tækni og tíðni
ýmissa hreyfinga ræðarans og báts-
ins. Sem dæmi má nefna að sigla aft-
ur á bak, áfram og á hlið, snúning um
360° og að endastinga bátnum. Kaj-
akarnir í keppninni voru mismun-
andi að gerð en allir mjög litlir.
Keppni fór fram í tveimur flokkum
ræðara. Í opnum flokki sigraði Bret-
inn Pies, Mick Turner frá Bandaríkj-
unum varð í öðru sæti og í því þriðja
Mariann Saether frá Noregi en hún
tók ein kvenna þátt í mótinu. Í ís-
lenska flokknum sigraði Reynir Óli
Þorsteinsson, Reykjavík, Gunnlaug-
ur var í öðru sæti og Garðar Jó-
hannsson í þriðja. Fjöldi manns sótti
mótið og voru margir siglingamenn á
fljótinu keppnisdaginn. Gunnlaugur
sagði mikið hafa verið í gangi kring-
um keppnina. „Við vorum að sigla
árnar hérna í kring daginn áður og
eftir, höfðum heljarmikla grillveislu
eftir mótið og sérstaka verðlaunaaf-
hendingu og matarboð á Hótel Hér-
aði.“
Aðspurður um aðstæður á Lagar-
fossi segir Gunnlaugur Lagarfoss
bjóða upp á aðstæður á heimsmæli-
kvarða. „Við yfirfallslokur Lagar-
fossvirkjunar er hægt að búa til öldu
sem er ótrúlega góð. Núna voru tvær
lokur opnar og skilyrðin voru gríð-
arlega góð í keppninni.“
Mót sem þessi eru haldin um allan
heim og er mjög líklegt að kajakmót
verði árlegur viðburður á Lagar-
fossi.
Arctic Rafting er á fimmta starfs-
ári og gengur reksturinn nú orðið vel
að sögn Gunnlaugs. Siglt er á Ey-
vindará, Jökulsá á Fljótsdal og
Grímsá og er sú síðasttalda meðalá
sem hentar fyrir fjölskyldur, en hin-
ar töluvert fjörugri. Íslendingar eru
í meirihluta siglara þetta sumarið.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Alþjóðlegt kajak-mót var nýlega haldið á Lagarfossi á Fljótsdalshéraði.
Ræðararnir sigldu af djörfung niður flúðirnar og hlaut sá keppandi
flest stig sem sýndi fjölbreyttastar hreyfingar og siglingatækni.
Aðstæður eru á
heimsmælikvarða
Egilsstaðir
Arctic Rafting með alþjóðlegt
kajakmót á Lagarfossi
ÞAÐ var mikið um að vera á síðasta
degi Daladaga í Búðardal fyrir
skömmu. Við höfnina var „bryggju-
port“ þar sem allir sem vildu gátu
boðið fram allt til sölu. Margt var um
manninn í gömlu pokaverksmiðjunni
þar sem bryggjuportið fór fram. Ætl-
unin er að gera upp þetta gamla hús
og nota sem safn Leifs Eiríkssonar.
Það verður merkilegt safn þegar það
er orðið að veruleika.
Hugmyndaflugið var mikið. Margt
var í boði og mikið að skoða. Einnig
var hægt að setjast niður í rólegheit-
unum og fá sér kaffisopa og með því.
Hægt var að fá næstum allt sem hægt
var að láta sér detta í hug, t.d. var
þarna hægt að finna tombólu, aðrir
voru að selja rabarbara og svo höfðu
einhverjir tekið til í geymslunum sín-
um og þar er nú oft margt merkilegt
að finna. Gaman væri ef þetta yrði ár-
legur viðburður því þetta var
skemmtilegt og margir á ferli og
fréttaritari hitti ferðamenn sem voru
mjög hrifnir og höfðu gert frábær
kaup. Þeir héldu glaðir af stað áfram
ferð sinni um landið okkar.
Morgunblaðið/Óskar
Skemmtilegar vörur voru í boði.
Bryggjuport við
höfnina í Búðardal
Búðardalur
AALBORG Portland hyggst reisa
annan 5.000 tonna sementstank í
Helguvík í vetur. Fyrirtækið hefur
náð tæplega fjórðungi af sements-
markaðnum á því rúma ári sem það
hefur starfað hér á landi.
Aalborg Portland a/s stofnaði dótt-
urfyrirtæki hér á landi á síðasta ári,
Aalborg Portland Ísland hf. Það hóf
innflutning um vorið og opnaði sem-
entstank í Helguvík síðari hluta sept-
embermánaðar.
„Við höfum náð góðum viðskiptum
og í heildina hefur starfsemin gengið
mjög vel og í samræmi við björtustu
áætlanir,“ segir Bjarni Óskar Hall-
dórsson framkvæmdastjóri. Mest
munar um að fyrirtækið náði samn-
ingum við stóra steypustöð, Stein-
steypuna hf. í Hafnarfirði, um sem-
entskaup. En fyrirtækið hefur selt
sement til fjölda annarra viðskipta-
vina og fer fjöldi þeirra vaxandi, að
sögn Bjarna.
Hann áætlar að Aalborg Portland
hafi náð tæplega fjórðungi sements-
markaðarins hér á landi. „Starfs-
mennirnir hafa lagt á sig mikla vinnu
til að stuðla að því að markmið okkar
náist,“ segir Bjarni þegar leitað er
skýringa á þessari velgengni. Hann
telur einnig að danskt sement hafi
gott orð á sér og hafi lengi verið not-
að í hús hér á landi. Þá segir Bjarni
að viðskiptavinirnir séu ánægðir með
vöruna. Sementið sé sterkt og steyp-
an taki sig fljótt í mótunum og hefur
hann eftir múrurum að sérstaklega
gott sé að nota það í steypu sem not-
uð sé í gólfplötur húsa. Þá bjóði fyr-
irtækið ýmsar aðrar gerðir af sem-
enti, meðal annars hvítt sement sem
Danir flytji mikið út.
Samkeppni er hörð á markaðnum,
að sögn Bjarna Óskars. Hann segir
að Aalborg Portland hafi ekki gert út
á lág verð. Hins vegar hafi þurft að
bregðast við verðlækkun Sements-
verksmiðjunnar á Akranesi sem til-
kynnt hafi verið þegar fyrir lá að Aal-
borg myndi hefja hér starfsemi.
Hagkvæmara að
flytja meira í einu
Aalborg Portland byrjaði á því að
byggja einn sementstank í Helguvík,
til að athuga hvernig markaðurinn
myndi taka vörunni. Nú hefur verið
ákveðið að byggja annan jafnstóran
tank við hliðina. Verður það gert í
haust og væntanlega tekinn í notkun
í lok febrúarmánaðar.
Segir Bjarni að það auki afhend-
ingaröryggi að hafa tvo sement-
stanka, ef einhverjar bilanir kæmu
upp í búnaði. Hagkvæmni innflutn-
ingsins ráði þó mestu um að ákveðið
var að ráðast í framkvæmdina. Það
sé hagkvæmt að geta flutt meira
magn til landsins í einu.
Fram til þessa hafa komið skip
með sement til landsins á um það bil
mánaðarfresti. Sementinu er dælt
beint upp í tankinn og síðan með
tankbílum til kaupenda. Ferðum
skipanna fækkar þegar hægt verður
að taka á móti meira magni í einu.
Aalborg Portland er með þrjá
stóra sementsflutningabíla í notkun.
Tveir þeirra eru í stöðugum ferðum
allan daginn og að sögn Óla K.
Hrafnssonar verkstjóra er vaxandi
notkun á þriðja bílnum. Sá fjórði
verður tekinn í notkun á næstunni.
Bílarnir taka um 30 tonn í ferð.
Aðeins eru fjórir fastráðnir starfs-
menn hjá Aalborg Portland Ísland
hf. en fyrirtækið hefur aðgang að
aukamönnum þegar mikið er að
gera.
Ágæt samvinna í Helguvík
Bjarni Óskar lætur vel af að vera
með starfsemi í Helguvík, hafnarað-
staðan sé ágæt og telur hann að við-
mótið sem fulltrúar danska fyrirtæk-
isins fengu hjá Reykjanesbæ á sínum
tíma hafi gert útslagið um að ákveðið
var að byggja starfsemina upp þar.
Varnarliðið er með starfsemi í
Helguvík. Þar er fiskimjölsverk-
smiðja og fleiri fyrirtæki væntanleg.
Bjarni segir að ekki hafi orðið
árekstrar við aðra starfsemi, frekar
megi segja að fyrirtækin vinni vel
saman.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Þrír af fjórum starfsmönnum Aalborg Portland á Íslandi, frá vinstri Óli K. Hrafnsson, verkstjóri og bílstjóri,
Bjarni Óskar Halldórsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, og Björn Birkir Berthelsson bílstjóri.
Aalborg Portland með tæplega fjórðung markaðarins
Byggja annan sem-
entstank í haust
Helguvík
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ Voga verð-
ur haldin næstkomandi laugardag,
11. ágúst. Þar verður ýmislegt á dag-
skrá, bæði fyrir börn og fullorðna.
Fjölskylduhátíðin hefst með dorg-
veiðikeppni klukkan 11 um morgun-
inn. Eftir hádegið verða opnuð leik-
tæki frá Sprell á tjaldsvæðinu við
íþróttamiðstöðina, auk heimatilbúins
sprells, að því er Lena Rós Matth-
íasdóttir tómstundafulltrúi Vatns-
leysustrandarhrepps upplýsir.
Síðdegis verður grillað ofan í gest-
ina og dansað úti um kvöldið. Hátíð-
inni lýkur með flugeldasýningu um
miðnættið.
Fjölskyldu-
hátíð á
laugardag
Vogar
VERKTAKI hefur lokið endurnýj-
un flugbrautarljósa á Keflavíkur-
flugvelli. Framkvæmdir hafa staðið
yfir í rúmt ár og kostnaðurinn nem-
ur um 450 milljónum króna, miðað
við gengi Bandaríkjadals nú.
Íslenskir aðalverktakar fengu
vinnu við endurnýjun flugbrautar-
ljósanna að loknu alþjóðlegu útboði
þar sem þeir voru lægstbjóðendur.
Bandaríkjaher er verkkaupi fyrir
hönd Atlantshafsbandalagsins.
Framkvæmdir hófust í maí á síðasta
ári. Um sumarið var unnið við norð-
ur-suður flugbrautina og um 350
kílómetrar af háspennustrengjum
endurnýjaðir ásamt 3000 spennu-
breytum á vellinum og sett upp 100
akbrautaljós.
Í vetur voru svo lagnir endurnýj-
aðar ásamt öllum spennustillum og
vélasalur með nýjum ljósavélum
byggður við spennistöðina.
Í sumar var unnið við austur-
vestur flugbrautina, aðflugsljósa-
kerfið endurnýjað og unnið að frá-
gangi.
Þegar mest var unnu milli 25 og
30 starfsmenn Íslenskra aðalverk-
taka að verkinu. Gekk það mjög vel,
að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá fyrirtækinu og varð
engin röskun á flugsamgöngum
meðan á framkvæmdum stóð.
Endurnýjun flug-
brautarljósa lokið
Keflavíkurflugvöllur