Morgunblaðið - 08.08.2001, Qupperneq 20
ERLENT
20 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BOOTS
ÚTSALA
Suðurlandsbraut 54 (Bláu húsin) - Opnunartími virka daga frá kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 10-16. Póstsendum samdægurs. Sími 533 3109.
50%
AFSLÁTTUR
HUGO Banzer, fyrrverandi einræð-
isherra Bólivíu, veifar til stuðnings-
fólks í borginni Sucre á mánudag,
þjóðhátíðardegi Bólivíu, en þá
sagði hann formlega af sér sem lýð-
ræðislega kjörinn forseti landsins.
Í gær sór síðan Jorge Quiroga,
varaforseti Banzers, eið sem nýr
forseti, en hann hefur gegnt emb-
ættisskyldum forseta frá því 1. júlí
sl., er Banzer hélt til Washington til
að gangast undir krabbameins-
meðferð.
Banzer fór fyrir herfor-
ingjastjórn í Bólivíu á árunum
1971–1978 en var í framboði í öllum
lýðræðislegum kosningum sem
haldnar voru í landinu á níunda og
tíunda áratugnum. Hann náði loks
kjöri sem forseti árið 1997, og átti
hann rétt ár eftir af kjörtímabilinu
er hann sagði af sér. Hann er nú 75
ára og með lungnakrabbamein sem
hefur dreifzt í lifrina.
Í forsetatíð Banzers var ræktun
kóka-plöntunnar, sem kókaín er
unnið úr, svo gott sem útrýmt í
Bólivíu, en jafnhliða þessum ár-
angri gengur efnahagslífið mjög
erfiðlega. Sex af hverjum tíu Bóli-
víumönnum lifa undir fátækt-
armörkum.
AP
Banzer
kveður
LÖGFRÆÐINGUR yngsta
sonar Suhartos, fyrrverandi
Indónesíuforseta, sagði í gær,
að hann hefði hvatt hann til að
gefa sig fram við lögregluna.
Hefur hann farið huldu höfði
síðan hann var dæmdur fyrir
spillingu en hefur nú að auki
verið sakaður um að bera
ábyrgð á morði hæstaréttar-
dómara.
Nudirman Munir, lögfræð-
ingur Hutomo Mandala Putra
eða Tommys eins og hann er
kallaður, sagði í viðtali við indó-
nesíska sjónvarpsstöð, að hann
myndi hvetja Tommy til að gefa
sig fram. Hann var dæmdur í
18 mánaða fangelsi í fyrra fyrir
spillingu og fór í felur 3. nóv-
ember sl. þegar forsetinn neit-
aði að gefa honum upp sakir.
Lögreglan í Jakarta sakaði
Tommy um helgina um að hafa
lagt á ráðin um morð á einum
hæstaréttardómaranna, sem
dæmdu hann, og auk þess er
hann bendlaður við vopn og
sprengiefni, sem lögreglan hef-
ur fundið.
Talið er, að Suharto-fjöl-
skyldan hafi komið undan tug-
milljörðum króna í valdatíð
sinni en Tommy er sá eini, sem
enn hefur verið dæmdur.
Suharto-
sonur
hvattur til
uppgjafar
Jakarta. AFP.
NAPOLEON Beazley kom auga á
bíl sem honum fannst flottur, elti
hann og skaut eigandann þegar
hann ók inn í bílskúrinn. Eiginkona
fórnarlambsins horfði á atburðinn
gerast.
Beazley var einungis 17 ára,
lagalega flokkaðist hann að flestu
leyti sem barn. En í Texas, líkt og
ýmsum öðrum ríkjum Bandaríkj-
anna, má ákæra börn, sem væru
þau fullorðin, fyrir tiltekna glæpi
og Texas er meðal 23 ríkja þar sem
heimilt er að kveða upp dauðadóm
yfir 17 ára manni hafi hann verið
fundinn sekur um morð.
Í fimmtán þeirra 38 ríkja í
Bandaríkjunum þar sem dauða-
dómar eru notaðir má ekki kveða
þá upp yfir sakborningum sem eru
yngri en 18 ára. Sama á við um upp-
kvaðningu dauðadóma á vegum
bandaríska alríkisdómskerfisins.
„Börn eru börn“
Þótt táningar séu færir um að
gera greinarmun á réttu og röngu
eru þeir of óþroskaðir og áhrifa-
gjarnir til að rétt sé að beita þá
hörðustu refsingu sem möguleg er,
sagði Carl Bell, geðlæknir við Há-
skólann í Illinois. „Börn eru börn.
Þau skilja þessa hluti alls ekki,“
sagði hann.
ABA eru áhrifamestu samtök
lögmanna í Bandaríkjunum. Þau
hafa enga opinbera afstöðu til
dauðarefsinga yfirleitt en eru and-
víg því að henni sé beitt á fólk undir
18 ára. Í vinnuhópi ABA sem hjálpa
á lögfræðingum sem hafa slík mál
með höndum voru engir sem
hlynntir eru slíku. Þá hafa ABA
enn fremur skrifað bréf til ríkis-
stjórans í Texas, Rick Perrys, og
beðið um að Beazley verði þyrmt.
Bandaríkin eru svo að segja eina
landið í heiminum sem leyfir að
fólk, sem er of ungt til að mega
reykja, drekka, kjósa eða ganga í
herinn, sé dæmt til dauða, sagði
Anne James, framkvæmdastjóri al-
þjóðaverkefnis í mannréttindamál-
um við lagadeild American-háskól-
ans. „Maður má ekki fá sér
Budweiser hérna fyrr en maður er
21 árs en það má drepa mann þegar
maður er orðinn 16 ára? Það er
ekkert vit í þessu.“
Kveðst sekur
Beazley varð 25 ára sl. sunnudag.
Hann var dæmdur til dauða fyrir að
hafa myrt John Luttig í Tyler í
Texas árið 1994. Tveir aðrir, sem
ákærðir voru með honum, báru að
hann hefði tekið í gikkinn, lófafar
hans fannst á bifreið Luttigs og
blóðug fótspor hans fundust á
heimkeyrslunni hjá Luttig.
Mikið hefur verið rætt um glæp-
inn meðal íhaldssamra lögmanna
því að John Luttig var faðir J.
Michaels Luttigs, dómara við alrík-
isáfrýjunardómstól og eins virtasta
lögspekings meðal íhaldssamra.
Í viðtali í síðasta mánuði sagði
Beazley að hann væri reiðubúinn til
að deyja. Þegar hann var spurður
beint hvort hann væri saklaus svar-
aði hann: „Nei.“ Saksóknarinn í
málinu segir að líflát sé réttmæt
refsing fyrir Beazley og hingað til
hefur enginn dómstóll viljað fresta
eða milda úrskurðinn.
Beazley hefur farið fram á að
Hæstiréttur Bandaríkjanna fresti
aftökunni sem fara á fram 15. ágúst
nk.
Andstæðingar dauðarefsinga
hafa látið í sér heyra vegna máls
Beazleys og ítrekað gagnrýni sína á
að táningar séu dæmdir til dauða.
Amnesty International vakti at-
hygli á málinu í nýlegri skýrslu og
sagði þar að Bandaríkin væru
„utanvelturíki hvað varðar dauða-
refsingar.“
Norðmenn hafa farið þess á leit
við ríkisstjórann í Texas að lífi
Beazleys verði þyrmt og Evrópu-
ráðið hvatti til að aftökunni yrði
frestað. Lögmenn á ársþingi ABA
sögðu að svo kunni að fara að
Bandaríkjamenn beygi sig fyrir al-
þjóðlegum þrýstingi, eða þá að ein-
stök ríki fara að endurskoða lög-
gjöfina um dauðarefsingar og ógildi
lög um dauðarefsingar yfir táning-
um.
Samkvæmt upplýsingum frá
Upplýsingamiðstöð um dauðarefs-
ingar og Varnar- og menntunar-
sjóði samtaka um bætt hlutskipti
litaðra í Bandaríkjunum (NAACP)
var 81 þeirra sem nú gista dauða-
deildir dæmdur á táningsaldri. All-
ir voru sextán eða sautján ára þeg-
ar þeir frömdu glæpinn og flestir
eru nú á þrítugsaldri.
Síðan Hæstiréttur Bandaríkj-
anna leyfði, árið 1976, að aftur yrði
farið að beita dauðarefsingum hafa
18 dæmdir morðingar verið teknir
af lífi fyrir glæpi sem þeir frömdu
þegar þeir voru yngri en 18 ára.
Allir voru orðnir eldri en 18 ára
þegar dómunum var fullnægt.
Dauðadómar yfir táning-
um til endurskoðunar
Chicago. AP.
AP
Napolean Beazley var dæmdur
til dauða fyrir morð sem hann
framdi þegar hann var 17 ára.