Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 22
ERLENT
22 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MIKILVÆGT skref í þá átt að
gera Rauða khmera ábyrga
fyrir dauða 1,7 milljóna manna
var stigið í gær er stjórnar-
skrárráðið í Kambódíu lagði
blessun sína yfir lagafrumvarp
þar að lútandi. Þarf það nú að-
eins að fá samþykki Norodoms
Sihanouks konungs en áður
hafði þingið samþykkt það
næstum einróma. Fyrirhugað
er að draga helstu foringja
Rauðu khmeranna, þá, sem enn
eru á lífi, fyrir rétt en morðæði
þeirra stóð í rúm þrjú ár, frá
1975 til 1978. Þá ráku Víetnam-
ar þá frá völdum og leiðtoga
þeirra, Pol Pot. Hann er nú lát-
inn.
Vopnahlé á
Filippseyjum
STJÓRNVÖLD á Filippseyj-
um og ein helsta aðskilnaðar-
hreyfing múslímskra skæru-
liða, MILF, hafa undirritað
samkomulag um vopnahlé og er
stefnt að undirritun friðar-
samninga síðar. Margt er þó
óunnið í því efni en þessum
áfanga hefur verið fagnað
mjög. Vopnahléssamningurinn
tekur ekki Abu Sayyaf-skæru-
liðahreyfingarinnar en hún hef-
ur enn á valdi sínu 21 gísl, þar á
meðal tvo Bandaríkjamenn.
Vopnafyrir-
tæki verði
ekki saksótt
GIAN Luigi Ferri gekk inn í
háhýsi í San Francisco 1993 og
hóf að skjóta þar átta manns til
bana og særði sex áður en hann
stytti sjálfum sér aldur. Þeir,
sem lifðu af, fóru í mál við Na-
vegar, framleiðanda byssn-
anna, sem Ferri beitti, og
kröfðust skaðabóta vegna þess
að fyrirtækið hefði höfðað sér-
staklega til glæpamanna er það
markaðssetti vopnin. Því máli
var vísað frá en fyrir tveimur
árum fengu þeir aftur leyfi til
að höfða mál. Nú hefur hæsti-
réttur Kaliforníu úrskurðað að
ekki sé unnt að saksækja fyr-
irtæki þótt framleiðsla þeirra
sé notuð með ólögmætum
hætti.
Hótanir
vegna NATO-
fundar
ANDSTÆÐINGAR alheims-
væðingar hafa hótað að efna til
uppþota í Napólí á Ítalíu í
næsta mánuði er varnarmála-
ráðherrar NATO-ríkjanna
koma þar saman til fundar.
„Við munum ráðast gegn fund-
inum og stöðva hann,“ sagði
Francesco Caruso, leiðtogi al-
heimsvæðingarandstæðinga í
viðtali við ítalska dagblaðið La
Stampa.
Amado
látinn
JORGE Amado, frægasta
skáld Brasilíu, er nú látinn.
Hann lést í fyrradag úr hjarta-
og lungnabilun, 88 ára að aldri .
Bækur Amado voru þýddar á
48 tungumál.
STUTT
Rauðir
khmerar
fyrir rétt?
BILL Clinton, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, hefur samið um út-
gáfu endurminninga sinna við út-
gáfufyrirtækið Alfred A. Knopf.
Fyrirhugað er, að endurminningarn-
ar komi út árið 2003, og segir stór-
blaðið Washington Post á fréttavef
sínum, að Clinton fái strax 10 millj-
ónir dollara, um einn milljarð ís-
lenskra króna, fyrir skrifin.
Útgáfufyrirtækið sjálft gaf ekkert
upp um þóknunina til Clintons en ef
fullyrðingar Washington Post eru
réttar, þá er um um að ræða mestu
fyrirframgreiðslu fyrir eina bók,
aðra en skáldsögu, sem gefin hefur
verið út í Bandaríkjunum. Fyrra
metið var um 850 milljónir króna fyr-
ir endurminningar Jóhannesar Páls
páfa II árið 1994.
Hillary Clinton, fyrrverandi for-
setafrú, samdi um útgáfu endur-
minninga sinna við Simon and
Schuster í desember síðastliðnum og
talið er, að hún hafi fengið um 800
milljónir króna fyrir útgáfuréttinn.
Er bókar hennar beðið með mikilli
eftirvæntingu enda er þar að vænta
hreinskilnislegrar lýsingar á hjóna-
bandi þeirra Bills og árunum í Hvíta
húsinu. Þegar sá orðrómur komst á
kreik að frásögn fyrrverandi for-
setafrúarinnar yrði einlæg og per-
sónuleg upphófst mikið stríð á milli
útgáfufyrirækja blaða sem vilja
verða fyrst til að segja frá því sem
mun koma fram í bókinni.
Snýst að mestu um
árin í embætti
Talsmaður Knopf-útgáfunnar,
sem þykir mjög vönd að virðingu
sinni, sagði að Clinton myndi vinna
að endurminningunum í samvinnu
við Robert Gottlieb en hann hefur
fyrir hönd fyrirtækisins haft hönd í
bagga með ýmsum frægum höfund-
um, til dæmis Katharine Graham,
Toni Morrison og Barböru Tuch-
man. Kvaðst Clinton hlakka til sam-
starfsins og Sonny Metha, forstjóri
Knopf og aðalritstjóri, var ekki síður
ánægður. Sagði hann, að Clinton
hefði verið einn af mestu áhrifa-
mönnum okkar tíma, maður, sem
hefði lifað viðburðaríku lífi og hefði
frá mörgu að segja.
Munu endurminningarnar fyrst
og fremst snúast um árin hans í for-
setaembætti. „Endurminningar
hans verða nákvæm og einlæg frá-
sögn af lífi hans þar sem einblínt
verður á árin í Hvíta húsinu,“ sagði
Metha.
Vintage, systurfyrirtæki Knopfs,
mun gefa út endurminningar Clin-
tons í kiljuformi 2004 en bæði fyr-
irtækin heyra undir Random House,
sem er aftur í eigu þýska fjölmiðla-
risans Bertelsmanns.
Endurminningar Bills Clintons frá forsetaárunum
Fær milljarð króna
fyrir útgáfuréttinn
Washington. AFP.
Reuters
Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, sést hér veifa til stuðnings-
manna sinna við opnun nýrrar skrifstofu hans í Harlem 30. júlí sl.
JÓHANNES Páll páfi II hitti í gær
erkibiskupinn, Emmanuel Milingo,
sem kvæntist hinn 27. maí sl. og
rauf þar með skírlífsheit sitt. Erki-
biskupinn kvæntist í fjöldabrúð-
kaupi eins og þeim sem tíðkast í
hreyfingu Sun Myung Moons, en
páfi hefur hótað honum bannfær-
ingu skilji hann ekki við eiginkonu
sína fyrir 20. ágúst næstkomandi.
Hér gefur Milingo blaðamönnum
merki um að hann gefi ekkert upp
um hvað honum og páfa fór á milli
að loknum fundi þeirra í gær.
Reuters
Kvæntur
erkibiskup
„NORSKI herinn hefur engar
áætlanir um að verjast árásum
á Netinu. Komi til þeirra mun-
um við standa uppi gersamlega
ráðalausir,“ segir Jan Erik Lar-
sen en hann á sæti í norska
herráðinu.
Aftenposten skýrði frá þessu
og sagði að Larsen, sem fer með
öryggismál í herráðinu, hafi
setið í þingnefnd sem lagði fram
á síðasta ári tillögur um hvernig
bregðast skyldi við þeirri raf-
eða stafrænu ógn sem að land-
inu steðjar. „Stríðsvagnar á
landamærunum dyljast engum
en stafrænu ógninni er erfitt að
verjast. Hún gerir engin boð á
undan sér og það er ekki einu
sinni auðvelt að sjá hvaðan hún
kemur,“ segir Larsen.
Netárásir
ógna
hernum