Morgunblaðið - 08.08.2001, Side 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 25
KVARTETTINN Út í vorið og
Signý Sæmundsdóttir óperu-
söngkona halda tónleika á
Austurlandi; í Eskifjarðar-
kirkju annað kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl. 20.30 og á laug-
ardag kl. 16 í Hafnarkirkju á
Höfn í Hornafirði.
Á efnisskránni má finna vin-
sæl kvartett- og kvintettlög,
syrpu af lögum eftir Jón Múla
og Jónas Árnason og sönglög
útsett fyrir sópran og karla-
raddir.
Söngkvartettinn Út í vorið
skipa Ásgeir Böðvarsson, Ein-
ar Clausen, Halldór Torfason,
Þorvaldur Friðriksson, Bjarni
Þór Jónatansson og Magnús
Ragnarsson. Signý Sæmunds-
dóttir hefur verið raddþjálfari
karlakvartettsins Út í vorið um
árabil. Öll hafa þau verið félag-
ar í Kór Langholtskirkju undir
stjórn Jóns Stefánssonar í
lengri eða skemmri tíma.
Út í vorið
á Austur-
landi
NÆSTU tónleikar í tónleikaröð
Bláu kirkjunnar á Seyðisfirði
verða í kvöld, miðvikudagskvöld,
kl. 20.30 en þá leikur tónlist-
arhópurinn Alba keltneska tón-
list. Hópurinn er skipaður Tenu
Palmer söngkonu, Eggerti Páls-
syni, söngvara, gítar- og trommu-
leikara, Dan Cassidy, fiðlu- og
gítarleikara, og Wilmu Young,
fiðluleikara með meiru. Þau leika
aðallega tónlist frá Skotlandi og
Írlandi.
Keltnesk
tónlist á
Seyðisfirði
NÚ stendur yfir myndlistarsýning
Sæunnar Ragnarsdóttur í Hlöðu í
Hvassahrauni, sjö kílómetrum sunn-
an við álverið.
Á sýningunni, sem er sölusýning,
eru m.a. myndverk unnin á striga
með handunnum blómum, pálma,
snæri, spón og kampstáli. Einnig eru
myndverk með útsaum og bútasaum.
Sýningin er opin alla daga frá kl.
14-22, um helgar kl. 10-22 fram í
september.
Myndlist í
Hvassahrauni
MORTÉL
Sjá nánar í
sjónvarpsþættinum
Kokkur án klæða
Klapparstíg 44
sími: 562 3614
NÚ stendur yfir sýning Önnu
Hrefnudóttur myndlistarkonu í List-
húsinu í Laugardal. Á sýningunni
eru akrylmálverk sem öll eru máluð
á þessu ári og ljóð.
Flest verkin voru gerð í Gesta-
vinnustofu Gilfélagsins á Akureyri
sl. vetur, og lauk þeirri dvöl með sýn-
ingu í Deiglunni.
Sýningin er opin virka daga frá kl.
9–19, laugardaga kl. 10–19, til 31.
ágúst.
Málverk og
ljóð í Listhúsinu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦