Morgunblaðið - 08.08.2001, Page 29

Morgunblaðið - 08.08.2001, Page 29
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 29 AÐ einhver sé í dag- vist hefur oft neikvæða meiningu í hugum fólks. Fólk líkir því oft við leikskóla. Að ein- hver sé í gæslu á dag- inn. Sem á auðvitað við um börn en passar ekki við fullorðna ein- staklinga. Stundum hugsa menn að dagvist hljóti að vera bara fyr- ir mjög fullorðið fólk sem getur ekki verið eitt en það er heldur ekki rétt, því það eru líka til dagvistir fyrir ungt fólk. Ein slík er dagvist og endurhæf- ingamiðstöð MS-sjúklinga, en þang- að kemur ekki bara fólk sem er með MS-sjúkdóminn heldur yngra fólk sem hefur fengið aðra sjúkdóma, heilablæðingar eða lent í slysum. Allt á þetta fólk það sameiginlegt að hafa þurft að hætta að fást við sín fyrri störf vegna þeirrar fötl- unar sem sjúkdómurinn/skaðinn hefur valdið. Sjúkdómar fara ekki í manngreinarálit. Í dagvist koma einstaklingar með ólíkan bakgrunn, kerfisfræðingar, ljósmæður, smiðir, húsmæður, kennarar, bændur, mál- arar, íþróttamenn, bankastarfs- menn, forstjórar, prestar... Allt þetta fólk á sér sína sögu og gerði ráð fyrir að hún héldi áfram nokk- urn veginn óbreytt en svo allt í einu eru þau stödd í einhverri allt ann- arri sögu sem þau völdu ekki sjálf og langaði ekkert til að vera þátt- takendur í. Við vitum hvaða merkingu flestir leggja í vinnuna sem athöfn og hvernig vinnan tengist sjálfsmynd manna. Hún er til að halda ákveð- inni stöðu í samfélag- inu. Ennfremur er vinnan talin leið til að halda sjálfsvirðingu og fá viðurkenningu og virðingu annarra. Starfið skapar manni ákveðna ímynd og hlutverk í samfélag- inu. Það að hætta að vinna eða sinna þeim störfum sem fólk er vant og sætta sig við ólæknandi sjúkdóm eða fötlun, þýðir afar breyttar aðstæður og getur hæglega leitt til einangrunar, sem þýð- ir að vera útilokaður frá félagsleg- um samskiptum og eiga lítið per- sónulegt samneyti við annað fólk. Til að koma í veg fyrir einangrun hjá þeim sem hafa þurft að breyta algjörlega um lífsstíl og þurft að sleppa takinu á því lífi sem það lifði getur því verið nauðsynlegt að koma í dagvist einu sinni til fimm daga vikunnar. Bara það að fara að heiman og koma heim aftur er mik- ilvægur þáttur, það eitt að breyta um umhverfi. Eins að það á einhver von á þér og þín er saknað ef þú kemur ekki. Ekki síður er mikil- vægur þáttur að í dagvist fær fólk alla þá ummönnun sem það þarf og getur þar af leiðandi búið lengur heima. Eitt af störfum iðjuþjálfans er að hjálpa fólki til þess að sætta sig við þessar nýju aðstæður og hjálpa fólki að takast á við lífið á annan hátt og vera til staðar þegar nýir erfiðleikar koma upp á. Það að vera þarfur og virkur eru grunnleggjandi þættir fyrir góðri heilsu. Reynslan sýnir að ef fólk kemst í þær aðstæður að geta ekki sinnt þeirri iðju sem því er mik- ilvæg, þá hefur það neikvæð áhrif á heilsu þesss og líðan. Rík áhersla í iðjuþjálfun er því að skapa nýjar áherslur þar sem við vitum að leikir og tómstundaiðja er sprottin af innri löngun og hefur fyrst og fremst þann tilgang að veita gleði og vellíðan. Hér er t.d. átt við listsköpun, handíðir, félags- störf og útiveru. Í upphafi þarf að gera mat á getu og áhuga skjólstæðingsins og síðan eru verkin löguð að honum. Skjól- stæðingurinn skipuleggur sjálfur sína íhlutun og fær svo þá aðstoð sem hann þarf til þess að ljúka verkinu. Stór hluti af starfi iðjuþjálfa í dagvist er að panta hjálpartæki. Þörf fyrir hjálpartæki þarf stöðugt að vera að skoða, því færni fólks með ólæknandi sjúkdóma er alltaf að breytast og því mikilvægt að vera vakandi yfir því að sækja um ný hjálpartæki ef þörfin breytist. Hjálpartæki þýðir ekki meiri fötl- un heldur gefur möguleika á auk- inni færni, meira sjálfstæði, sparar orku og kemur oft í veg fyrir ein- angrun. Hjálpartæki geta verið t.d. grip- tangir, hnífapör, vinnustólar til þess að nota í eldhúsi, hjólastólar og rafmagnshjól sem njóta sívax- andi vinsælda sem hafa gert fötl- uðum kleift að komast um utandyra án mikillar fyrirhafnar – og þar með aukið lífsgæði einstaklingsins. Iðjuþjálfi fer líka í heimilisathug- nir heim til fólks, þar sem lögð er áhersla á hvort einhverju þurfi að breyta og meta þörf fyrir hjálp- artæki, allt til að auðvelda þeim sem eiga við skerta hreyfifærni að stríða að komast um heima hjá sér. Það sparar heilmikla krafta að hag- ræða hlutunum aðeins. T.d. það að nota vinnustól og geta setið við vinnu í eldhúsi eða nota salernis- upphækkun sem auðveldar fólki að standa upp af salerni. Í dagvist vinnur iðjuþjálfi náið með öðrum starfsstéttum eins og sjúkraþjálfara, hjúkrunarfræðingi, félagsráðgjafa og lækni og saman mynda þau öflugt teymi í kringum hvern skjólstæðing með það að markmiði að hæfa og endurhæfa með þarfir skjólstæðingsins í huga. Ljóst er að að mörgu er að hyggja í starfi iðjuþjálfa á dagvist og mörg spennandi verkefni þar fyrir iðju- þjálfa framtíðarinnar. Iðjuþjálfun í dagvist Elsa Þorvaldsdóttir Endurhæfing Breyttar aðstæður geta leitt til einangr- unar, segir Elsa S. Þorvaldsdóttir, en dagvist nokkrum sinnum í viku getur komið í veg fyrir það. Höfundur er yfiriðjuþjálfi á dagvistar- og endurhæfingarmiðstöð MS-heimilisins. Mörkinni 3, sími 588 0640 G læ si le g hú sg ög n Sérpantanir Opið virka daga frá kl. 12-18. Toppárangur með þakrennukerfi þakrennukerfi Fagm enns ka í fyrir rúmi BLIKKÁS EHF. SKEMMUVEGUR 36 200 KÓPAVOGUR SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111 Söluaðilar um land allt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.