Morgunblaðið - 08.08.2001, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 08.08.2001, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. KYOTO-samkomulagiðgerir ráð fyrir að þjóðirheims dragi úr losungróðurhúsalofttegunda um 5,2% miðað við losun árið 1990. Samkvæmt samkomulaginu getur Ísland aukið losun sína um 10% á fyrsta skuldbindingartímabilinu, 2008–2012. Heildarlosunin gæti þá orðið 3,28 milljónir tonna af gróður- húsalofttegundum á ári auk þess sem nú virðast miklar líkur á því að íslenska ákvæðið, sem gerir ráð fyrir að smáþjóðir fái að losa allt upp í 1,6 milljónir tonna af koltvísýringi til viðbótar vegna einstakra stórra verkefna þar sem notast er við end- urnýjanlega orku, verði samþykkt. Heildarlosun Íslendinga á gróður- húsalofttegundum árið 1990 var 2,98 milljónir tonna en samkvæmt nýj- ustu tölum, sem miðast við árið 1999, var heildarlosunin 3,41 milljón tonna. Samkvæmt spá Hollustu- verndar ríkisins frá 1998 fer losunin árið 2010 án nýrrar stóriðju í 3,58 milljónir tonna, sem er 23% hækkun frá árinu 1990 og 307.000 tonn um- fram það sem Íslendingar mega losa á skuldbindingartímabilinu. Í spánni er gert ráð fyrir að aukning í losun frá samgöngum verði 32% á tíma- bilinu og 48% í sjávarútvegi. Í svari umhverfisráðuneytisins við fyrirspurn frá Reyðaráli í maí sl. kemur skýrt fram að álfyrirtæki bera fulla ábyrgð á losun flúor-kol- efna þar sem þau falla ekki undir hið íslenska ákvæði og þeim ber að gera fullnægjandi ráðstafanir til þess að halda henni í lágmarki. Nánar á eftir að útfæra hvað felst í þessari ábyrgð og segir Halldór að það sé einmitt einn þeirra þátta sem stefnumörkun stýrihóps um loftslagsmál, svo- nefnds ráðuneytisstjórahóps, mun fela í sér. Hann vinnur einnig að end- urskoðun á losunarspá Hollustu- verndar. Fimm valkostir Halldór Þorgeirsson, skrifstofu- stjóri sjálfbærrar þróunar hjá um- hverfisráðuneytinu, sem var samn- ingamaður Íslands á framhaldsfundi 6. aðildarríkjaþings loftslagssamn- ingsins í Bonn í síðasta mánuði, segir að það sé við ærin verkefni að fást á þessum vettvangi, jafnvel þótt í það stefni að íslenska ákvæðið fáist sam- þykkt. Ráðuneytisstjórahópurinn er undir formennsku umhverfisráðu- neytisins. Fyrir honum liggur að taka afstöðu til fimm eftirfarandi valkosta við stefnumörkun Íslands gagnvart útfærslu Kyoto-bókunar- innar. 1. Að kvótabinda innanlandsnotkun á þeim sviðum sem það á við. 2. Skattleggja eða gjaldbinda losun. 3. Styrkja beint eða beita skattaíviln- unum vegna aðgerða til þess að draga úr losun og auka bindingu. 4. Fyrirmæli í lögum og reglugerð- um. 5. Frjálsir samningar við atvinnulífið um losunarmarkmið. Halldór segir að síðastnefnda leið- in hafi þegar skilað miklu og nefnir í því sambandi mikinn samdrátt í los- un frá álverinu í Straumsvík. Hann segir að umhverfisskattar hafi þá annmarka að þeir tryggi ekki í öllum tilfellum samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og gætu þvert á móti einungis leitt til viðbót- arálagna á atvinnulífið eða einstak- linga. „Vandamálið felst ekki síst í því að stór hluti Íslendinga hefur ekki valkost gagnvart einkabílnum sem samgöngutæki. Þess vegna eru ýmsir erfiðleikar samfara umhverf- issköttum,“ segir Halldór. Endurskoðun á losunarspánni Fyrsta skrefið í vinnu ráðuneyt- isstjórahópsins er að endurskoða losunarspá Hollustuverndar. „Þessi spá frá árinu 1998, sem gerir ráð fyrir 23% aukningu í losun fram til ársins 2010, tekur t.a.m. ekki tillit til bindingar kolefnis í land- græðslu og skógum. Það markmið var sett fyrir nokkrum árum að auka bindinguna um 100.000 tonn fyrir ár- ið 2000. Það markmið hefur náðst,“ segir Halldór. Hann segir að mörgum Íslending- um hafi reynst erfitt að átta sig á þeim sérstaka vanda sem Ísland stendur frammi fyrir innan Kyoto- bókunarinnar. „Vandinn tengist stærðarhlutföllum milli losunar stór- iðjuvera og heildarlosunar frá land- inu. Nýtt stóriðjuver getur valdið 15–20% stökki í losun á nokkrum dögum. Nota þarf aðrar aðferðir við að setja slíku landi losunarmörk en notuð eru fyrir stærri þjóðir þar sem þetta vandamál er ekki fyrir hendi. Sú leið sem verður farin, að því gefnu að íslenska ákvæðið verði samþykkt, er að einangra stóriðju- áhrifin og halda þeim utan losunar- marka enda leiða þau til samdráttar í losun á heimsvísu. Með þessum hætti verður mögulegt að setja öðr- um geirum markmið óháð stóriðju- losuninni,“ segir Halldór. 1,5 tonn af koltvísýringi fyrir hvert framleitt áltonn Álver sem rekið er með þeirri tækni sem nú tíðkast hérlendis losar tæplega 1,5 tonn af koltvísýringi fyr- ir hvert tonn af áli sem það fram- leiðir. Halldór bendir á að sam- kvæmt íslenska ákvæðinu er losun flúor-kolefna undanskilin, en við framleiðslu á hverju tonni af áli, mið- að við þá tækni sem almennt er beitt í dag, losna um 500 kg af flúor-kol- efnum. Með bestu fáanlegu tækni og rekstri er unnt að draga verulega úr losuninni eins og dæmin frá álverinu í Straumsvík sýna. Þrátt fyrir stækkun álversins þar va losunin frá því minni á síða var árið 1990. Yrði álverið á Grun t.a.m. stækkað í 180.000 t framleiðslu losaði það 355 af gróðurhúsalofttegundum ver á Reyðarfirði með 420. ársframleiðslu myndi losa tonn af gróðurhúsaloftteg ári, eða 630.000 tonn af kol og 188.000 tonn af flúor-k Rétt er að geta þess að ó 420.000 tonna ársframleið hjá Reyðaráli, verði af verk fyrsta skuldbinding Kyoto-samkomulagsins. Á síðustu tíu árum hefur inn í miklum mæli notað sem losa frá sér svokölluð v or-kolefni, sem ekki eyða ó en valda miklum gróðurh um. Umhverfisráðuneytið h gott samstarf við LÍÚ um sem setja upp nýjan bú hvattir til að nota fremur a „Það verður að grípa til vegna spár um 48% aukn unar gróðurhúsalofttegun arútvegi,“ segir Halldór skiptir verulegu máli hver verður að endurnýjun fl Fiskifélagið hefur sýnt fram töluvert betri nýting er á o skipum. Hluti af viðfangsefni rá Frá Svínafelli. Aðildar Markaður með losun- arkvóta til skoðunar Spáð er að gangverð á einu tonni af losunarkvóta verði 1.500–2.000 kr. Sam- kvæmt þessu gæti verðmæti losunarkvóta fyrir 420.000 tonna álver numið rúmum 1,2–1,6 milljörðum kr. Guðjón Guðmunds- son kynnti sér hvað felst í loftlagssamn- ingnum og ræddi við Halldór Þorgeirsson, skrifstofustjóra í umhverfisráðuneytinu. Í SPÁ Hollustuverndar rík gert ráð fyrir að aukning í frá samgöngum verði 32% bilinu og 48% í sjávarútveg 1990 nam koltvísýringslos samgöngum samtals tæpu 626.000 tonnum, 665.000 t árið 1999 og nálægt 670.00 um árið 2000, þar af 92% v umferðar ökutækja á vegu vegna flugs og 3% vegna s Í skýrslu starfshóps sam gönguráðuneytis og Vega Losun gróðurhúsalofttegu samgöngum, er sett fram ö spá sem stangast í grundv aratriðum á við spá Hollus ar, sem var unnin á árinu 1 skýrslunni segir að ýmisle til þess að losun gróðurhús lofttegunda frá bílaumferð landi sé nú í sögulegu hám muni lítt vaxa úr þessu. Ás til þess að ætla að á næstu dragi úr losuninni vegna þ meðaleldsneytisnotkun bif minnkar væntanlega hrað sem nemur vexti heildarum á landinu. Ekki er heldur l losun vegna innanlandsflu heldur muni tækniframfar upp huganlega aukningu í þegaflutningum. Í skýrslunni kemur fram bílaeign þar sem gert er rá að mettun verði við 600 fól hverja 1.000 íbúa sem verð nálægt árinu 2010. Reikna að íbúafjöldi á Íslandi verð um 320.000 í árslok 2030 o Dregur bílum á DÝRKEYPT HÁTÍÐAHÖLD Fregnir af atburðum á útihátíðumverslunarmannahelgarinnareru geigvænlegar. Þegar hafa verið tilkynntar þrettán nauðganir og segir reynslan að búast megi við að slíkum tilkynningum fjölgi á næstu vikum og mánuðum. Að auki var tals- vert um líkamsmeiðingar og ölvun og fíkniefnaneysla ótæpileg. Á Eldborg á Kaldármelum virðist ástandið hafa verið sýnu alvarlegast og fundaði land- læknir sérstaklega með læknum og hjúkrunarkonum, sem þar voru á vakt um helgina, vegna atgangsins þar. Starfsmenn Stígamóta voru með að- stöðu á Eldborgarhátíðinni og á henni einni var tilkynnt um ellefu nauðganir, þar af tvær hópnauðganir, og leikur grunur á að deyfilyf fyrir skepnur, smjörsýra, hafi verið gefið hátíðar- gestum í sakleysislegum drykkjarílát- um til að svipta þá rænu. Sex stúlkur leituðu á neyðarmóttöku Landspítal- ans í Fossvogi. Ein kæra hefur verið lögð fram. Eyrún Jónsdóttir, hjúkrunarfræð- ingur á neyðarmóttöku á Eldborg, seg- ir í Morgunblaðinu í dag að þar hafi verið algert aðstöðuleysi. Um gróf misneytingarmál hafi verið að ræða, þar sem stúlkur hafi ekki getað borið hönd fyrir höfuð sér vegna þess að þær hafi annaðhvort verið ofurölvi eða þeim hafi verið byrlað efni. Aðstæður hafi verið eins og þær gerist verstar á útihátíðum. Það vekur oft furðu að samhliða fréttum af nauðgunum og ofbeldi á útihátíðum heyrist mótshaldarar halda því fram að allt hafi „farið vel fram“, rétt eins og um sé að ræða sjálfsagðan fórnarkostnað. Á mánudag barst fjölmiðlum frétta- tilkynning, sem að sögn var send vegna „óvæginna fréttaflutninga af Eldborg- arhátíðinni á Kaldármelum um versl- unarmannahelgina“ og skipuleggjend- ur hátíðarinnar, lögregla, læknar og björgunarsveit á svæði fimm voru skrifuð fyrir. Þar sagði meðal annars: „Það er óhætt að fullyrða að 99% gesta á Eldborg voru sjálfum sér og fjöl- skyldum sínum til fyrirmyndar og voru saman komin til þess að skemmta sér í sátt og samlyndi.“ Frásagnir af ofurölvi hátíðargest- um, fólki, sem lét glerflöskum og öðr- um munum rigna yfir eina hljómsveit- ina á sviðinu, og að lokum ungmennum, sem brenndu útilegubúnað sinn fyrir brottför, kalla ekki orðin „til fyrir- myndar“ fram í hugann. Það var kominn annar tónn í Einar Bárðarson mótshaldara í gær, en við- tal við hann birtist í Morgunblaðinu í dag: „Eiturlyf og nauðganir eru hins vegar ekki eitthvað sem neinn móts- haldari óskar eftir á svona hátíð og mér þykir það sorglegast. Þetta skyggði á hátíðina en það er mjög erf- itt að eiga við svona mál. Nauðganir og eiturlyfjaneysla eru samfélagsleg vandamál sem verða ekki afgreidd eða leyst á einni útihátíð. Við buðum Stíga- mótakonum á svæðið til okkar þar sem fólk sem taldi sig hafa verið beitt mis- rétti gat leitað sér aðstoðar, enda er mín skoðun sú að fólki hlýtur þó að líða betur að vita af börnum sínum á skipu- lögðu hátíðarhaldi þar sem gæsla fer fram heldur en annars staðar.“ Einar segir 12 til 13 milljónum króna hafa verið varið til að gæta öryggis gesta og hann telji að ekki hafi verið hægt að gera betur en gert var. Það er sorglegt ef þessi staðhæfing er rétt. Þarna eru mörg þúsund manns á litlu svæði og verður að teljast með ólíkindum að meðvitundarleysi svo mikils fjölda sé slíkt að nauðgun fari fram hjá fólki, að ekki sé talað um hóp- nauðgun eins og um virðist hafa verið að ræða í tveimur tilfellum. Getur ver- ið að nauðgun njóti viðurkenningar hjá stórum hópi manna, sem sér ekki ástæðu til að amast við slíkum glæp þótt hann sé fyrir framan nefið á þeim? Nauðgun kann að teljast kynferðis- brot, en þessi glæpur á nákvæmlega ekkert skylt við kynlíf og er nú talið að á bak við þennan hrottalega glæp felist afbrigðileg fýsn gerandans til að sýna vald sitt yfir fórnarlambinu fremur en að fá útrás fyrir kynhvatir með ofbeldi. Nauðgun getur haft margs konar áhrif á fórnarlambið. Í kjölfarið fylgja til- finningar á borð við skömm, niðurlæg- ingu, reiði, ótta og ráðleysi. Fórnar- lömb hafa sagt að þau losni aldrei við tilfinningu saurgunar, finnist þau ekki getað orðið hrein og finni fyrir miklum vanmætti. Oft og tíðum finnst þeim þau hafa svo litla stjórn á lífi sínu að það hefur lamandi áhrif á þau. Iðulega finna fórnarlömb nauðgunar fyrir ótta er þau koma á vettvang glæpsins og veigra sér jafnvel við því að fara í ákveðin hverfi. Mörg óttast að vera elt og eiga erfitt með að stofna til kynferð- islegs sambands. Þá geta afleiðingarn- ar lýst sér í svefntruflunum, átröskun- um og erfiðleikum í vinnunni. Það er misjafnt hvað fórnarlambið er lengi að jafna sig eftir hið andlega áfall, en það getur tekið mörg ár, jafnvel þótt leitað sé aðstoðar sérfræðings. Nauðgunarmál geta verið erfið við- ureignar fyrir dómskerfið. Vandinn þar er sá að eðli glæpsins samkvæmt eru vitni iðulega ekki nema tvö og því hætt við að framburður stangist á. Því eru sýknudómar sennilega algengari í nauðgunarmálum en öðrum ofbeldis- málum. Sú er að minnsta kosti raunin víðast hvar erlendis. Um leið getur fórnarlambið mátt ganga í gegnum enn frekari niðurlægingu í réttarsalnum, þurft að svara nákvæmum spurningum um nauðgunina og upplifa þannig at- burðinn á nýjan leik í vitna viðurvist. Fyrir vikið gætir oft tregðu til að kæra. Þjóðfélagið getur hins vegar gert nauðgurum ljóst, hvað að þeim mun snúa. Um leið á það að vera hafið yfir allan efa að fórnarlambið, sem í langflestum tilfellum er kona, kallar þennan verknað aldrei yfir sig. Engum dytti í hug að beita þeirri málsvörn að hrekklaust fórnarlamb líkamsárásar hefði kallað árásina yfir sig með göngulagi eða klæðaburði og engum ætti að líðast að viðhafa slíkan rök- stuðning í nauðgunarmálum. Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem menn eru agndofa yfir atburðum versl- unarmannahelgar. Það er ljóst að fæstum foreldrum unglinga, sem sækja þessar hátíðir, er rótt meðan á þeim stendur og mörgum líður eins og þeir hafi heimt börn sín úr helju þegar þau koma heil á húfi heim. Hættan er hins vegar sú að eins og venja er fjari umræðan út og að ári hefjist allt fjaðrafokið að nýju, rétt eins og um sé að ræða þjóðfélagshefð. Hátíðahöld verslunarmannahelganna eru hins vegar dýru verði keypt fyrir marga og spurning hvort það sé verjandi að standa aðgerðarlaus hjá ár eftir ár á meðan hryllingurinn gengur yfir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.