Morgunblaðið - 08.08.2001, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 08.08.2001, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 31 ar heildar- asta ári en ndartanga tonna árs- 5.000 tonn m á ári. Ál- .000 tonna a 818.000 gundum á ltvísýringi kolefnum. óvíst er að ðsla náist kefninu, á gartímabili r skipaflot- kælimiðla vetnis-flú- ósonlaginu húsaáhrif- hefur haft m að þeir únað séu ammoníak. l aðgerða ningu los- da í sjáv- r. Einnig rnig staðið otans, en m á það að olíu í nýrri áðuneytis- stjórahópsins er einnig að skoða breytingar á þungaskatti og upp- töku olíugjalds, sem hvetur til notk- unar á litlum dísilbílum. Sameiginleg framkvæmd og markaður með losunarkvóta Halldór kveðst ekki geta fullyrt á þessu stigi að Íslendingar þurfi að kaupa losunarkvóta í nánustu fram- tíð. Hins vegar gæti verið hagkvæmt fyrir Íslendinga að taka þátt í svo- kallaðri sameiginlegri framkvæmd með öðrum iðnríkjum, einkum fyrr- verandi austantjaldsríkjum. Með því gætum við staðið að samstarfi með þessum ríkjum í uppbyggingu á hita- veitum og talið okkur til tekna hluta af þeim samdrætti sem af því leiðir í viðkomandi landi. Með þessu gætu einnig skapast nýir möguleikar í út- flutningi á íslenskri þekkingu og tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki að markaðssetja þá sérþekkingu sem þau hafa byggt upp hér á landi og um leið fengist meiri losunarkvóti. Halldór nefnir í þessu sambandi verkefni sem Íslendingar tóku þátt í á vegum Norræna umhverfisfjár- festingarsjóðsins í Slóvakíu, sem leiddi til 200.000 tonna samdráttar í losun. Halldór segir að nágrannalöndin stefni að því að setja upp kvótamark- að með losunarheimildir innanlands. Sú vinna er langt á veg komin að setja upp evrópskan kvótamarkað á vegum Evrópusambandsins. Af þessum sökum sé orðið brýnt að skoða þetta mál af alvöru hérlendis. „Kosturinn við að beita kvótakerfi af þessu tagi er sá að þeir sem nú losa tiltekið magn og geta dregið saman fá til þess efnahagslegan hvata. Fyrirtæki, t.a.m. fiskimjöls- verksmiðjur og svipuð fyrirtæki, geta m.ö.o. bætt sína tækni og verða að því loknu hugsanlega aflögufær með losunarheimildir.“ Halldór segir að umræður um þetta séu á algjöru frumstigi. Norð- menn séu þó talsvert langt komnir og hafa drög að slíku kerfi verið kynnt fyrir norska stórþinginu. Hann segir að erfiðust úrlausnar í þróun slíkra kvótakerfa sé úthlutun heimilda í upphafi. „Þarna er um tvær leiðir að ræða, og ESB hefur ekki náð samstöðu um hvora leiðina á að fara, þ.e. úthlutun miðað við los- un á árinu 1990 eða uppboðskerfi. Einnig eru til útfærslur af nokkurs konar millileið þar sem úthlutað er miðað við framleiðslu en ekki losun, sem gæti skapað hvata til þess að halda losun í lágmarki. Við munum töluvert byggja okkar niðurstöðu á því hvaða leiðir þær þjóðir fara sem standa okkur næst.“ Halldór bendir á að annar kostur samfara kvótakerfi sé sá að með því gæti bindingin orðið markaðsvara. Einfaldara yrði að beina fjármagni til bindingar. Landeigendur gætu samið við fyrirtæki sem þurfa á los- unarheimildum að halda. Útfærsla á viðskiptum með losun- arheimildir á alþjóðavísu er langt komin og er talið nokkuð víst að endahnútur verði á það bundinn á 7. aðildarríkjaþingi loftlagssamnings- ins í Marakesh í nóvember. Ekki er komið endanlegt gangverð á kvót- ann enda eru viðskipti ekki hafin. Því hefur verið spáð að verð á einu tonni koltvísýrings gæti orðið 1.500–2.000 kr. á ári. Þó er búist við að verðið fari lækkandi þar sem ljóst er orðið að Bandaríkjamenn ætla sér að standa utan Kyoto-samkomulagsins og þar með dregur verulega úr eftirspurn- inni. Samkvæmt þessari spá um gang- verð gæti verðmæti losunarkvóta fyrir 420.000 tonna álver numið 1.227.000.000 til 1.636.000.000 kr. Halldór segir að binding kolefnis hér á landi miðað við núverandi að- stæður sé fyllilega samkeppnishæf í verði við kaup á losunarheimildum á 1.500–2.000 kr. per tonn. Hann telur líklegt að Íslendingar verði ekki stórir aðilar á þessum markaði. Komi til kaupa á losunar- kvóta sé líklegt að hann verði keypt- ur á sameiginlegum markaði ESB en markmið sambandsins er að hafa sama verð á kvótanum í öllum aðild- arríkjunum. Vinna að undirbúningi innanlands hefur ekki verið í fullum gangi und- anfarið vegna þeirrar óvissu sem hefur verið um heildarútfærsluna. Þar sem skilaboðin voru mjög skýr frá Bonn-samkomulaginu fer stefnu- mörkun í öllum aðildarríkjum núna í fullan gang. „Stefnt er að því að stefna Íslands gagnvart útfærslu Kyoto-bókunarinnar liggi fyrir á vordögum,“ segir Halldór. Morgunblaðið/Rax rríki geta talið sér til tekna landgræðslu og skógrækt því gróðurinn bindur kolefni. kisins er í losun % á tíma- gi. Árið sun frá um tonnum 00 tonn- vegna um, 5% skipa. m- agerðar, unda frá önnur all- stuvernd- 1998. Í egt bendi sa- ð á Ís- marki og stæða er árum þess að freiða ðar en mferðar líklegt að ugs aukist rir vega í far- m spá um áð fyrir lksbíla á ður náð að er með ði orðinn og fjöldi fólksbíla verði þá um 192.000 mið- að við fyrrgreind mettunarmörk. Skýrsluhöfundar telja ólíklegt að losunin eigi eftir að fara mikið yfir 700.000 tonn á ári. Þeir spá því að losun frá bílaumferð verði 600- 620.000 tonn á ári árið 2010, og heildarlosunin um 660.000 tonn sem er rúmlega 5% aukning frá 1990. Ef öðrum gróðurhúsaloftteg- undum er bætt við er því spáð að heildarlosun árið 2010 verði um 690.000 tonn koltvísýringsígilda. Skýrsluhöfundar benda á að töluverð óvissa sé tengd þessari spá og telja nauðsynlegt að sett verði markmið um sértækar að- gerðir til að draga enn frekar úr losuninni, t.a.m. að auka hlut dís- ilbíla og hlutur þeirra af árlegum innflutningi minni fólksbíla verði 45% árið 2010. Þetta hefði í för með sér 50.000 tonna minni koltví- sýringslosun en verður með óbreyttu hlutfalli bensín- og dís- ilbíla. Losun frá dísilvélum er 25– 30% minni en frá bensínvélum mið- að við jafnþunga bíla. Samkvæmt langtímaáætlun í vegagerð verður lagt bundið slit- lag á um 780 km af malarvegum til ársins 2010 sem minnkar koltvísýr- ingslosun um u.þ.b. 3.000 tonn mið- að við óbreyttan akstur. Skýrslu- höfundar telja að unnt sé að ná fram 15% eldsneytissparnaði með upplýsingum, fræðslu og þjálfun ökumanna. Þetta geti skilað 3% minni losun á landsvísu eða um 20.000 tonnum. r úr losun frá á næstu árum LÖNDIN sem liggja að Kaspíahafi; Aserbaíd-sjan, Íran, Kasakstan,Rússland og Túrkmenist- an, hafa deilt um lögsögu í vatninu allt frá falli Sovétríkjanna árið 1991. Miklir hagsmunir eru í húfi, því þetta stærsta stöðuvatn heims býr yfir auðugum olíulindum. Und- anfarið hefur gætt vaxandi spennu á svæðinu, en engu að síður eru bundnar vonir við að þokast muni í samkomulagsátt á fyrirhuguðum leiðtogafundi ríkjanna fimm í Túrk- menistan í október. Aðstoðarutanríkisráðherra Írans, Ali Ahani, kom í gær til Moskvu til viðræðna við rússneska ráðamenn um málefni Kaspíahafs, en í gærmorgun höfðu Ígor Ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, og ír- anskur starfsbróðir hans, Kamal Kharazi, rætt saman í síma. Hvöttu þeir báðir til þess að reynt yrði að ná samkomulagi um skiptingu vatnsins, sem væri „í þágu allra ríkjanna“ sem að því liggja. Samtal Ívanovs og Kharazis í gær fylgdi í kjölfar þess að Rússar fordæmdu sl. fimmtudag valdbeit- ingu Írana í viðleitni til að vernda olíuhagsmuni sína í Kaspíahafi. Valdi beitt í fyrsta sinn Á mánudag í síðustu viku sendu írönsk stjórnvöld herskip inn á svæði í Kaspíahafi, sem bæði Íran- ar og Aserar gera tilkall til. Beindi herskipið byssum að olíurannsókn- arskipi á vegum ríkisolíufélags Aserbaídsjans og skipaði því að yf- irgefa svæðið, þar sem það væri innan íranskrar lögsögu. Rann- sóknaskipið, Geophysic-3, hélt á brott eftir að áhöfnin hafði ráðfært sig við aserska embættismenn. Er þetta í fyrsta sinn sem valdi hefur verið beitt í hinni áratugar- löngu deilu um yfirráð í Kaspíahafi. Stjórnvöld í Aserbaídsjan mót- mæltu aðgerðum Írana harðlega og sögðu þær koma sérstaklega á óvart í ljósi þess að aðeins þremur dögum áður hefði yfirmaður ír- anska þjóðaröryggisráðsins hvatt til bættra samskipta landanna í op- inberri heimsókn til Bakú. Íranar kváðust hins vegar hafa verið í full- um rétti og brugðust ókvæða við mótmælum. Vöruðu þeir olíufyrir- tæki ennfremur við því um helgina að hart yrði brugðist við starfsemi þeirra innan íranskrar lögsögu, ef tilskilin leyfi væru ekki fyrir hendi. Olíufyrirtækið BP Amoco, sem rekur rannsóknaskipið Geophys- ic-3, ákvað í kjölfar atviksins að hætta starfsemi á umræddu svæði, sem Aserar kalla Alov-Sharg-Aras en Íranar Alborz. Stjórnvöld í Bakú telja fyrirtækið hins vegar bundið af samningi um olíurannsóknir og hafa krafist þess að það endurskoði ákvörðun sína. Aserar saka Írana einnig um að hafa ítrekað rofið aserska lofthelgi að undanförnu. Stjórnvöld í Teheran hafa staðfast- lega vísað því á bug. Málefni Kaspíahafs komu til um- ræðu á óformlegum fundi leiðtoga fyrrum Sovétlýðvelda í bænum Sochi við Svartahafsströnd Rúss- lands í síðustu viku. Vladímír Pútín Rússlandsforseti sagði að loknum viðræðum við forseta Kasakstans og Aserbaídsjans á fimmtudag að leysa yrði deilurnar um yfirráð í Kaspíahafi með friðsamlegum hætti, og kvað hann Rússa vera reiðubúna að miðla málum. Ólík sjónarmið Kaspíahaf er sem fyrr segir stærsta stöðuvatn heims, 1.200 km langt og að meðaltali um 320 km breitt. Vatnið er 386.400 km² að flatarmáli – stærra en Japan – og þar eru gríðarlegar auðlindir. Talið er að í Kaspíahafi og á svæðinu í kring megi bora eftir allt að 250 milljörðum olíutunna og 600 billj- ónum rúmfeta af gasi. Á Sovéttímanum reyndi Moskvu- stjórnin að hagnýta sér þessar auð- lindir en skortur á fjármagni, slæ- leg stjórnun og úreltur tæknibúnaður urðu þess valdandi að framleiðslan á olíu varð aldrei mikil og fór minnkandi á árunum fyrir hrunið. Á þeim áratugi sem liðinn er síðan Aserar, Kasakar og Túrkmenar fengu sjálfstæði hafa erlendar fjárfestingar í olíu- og gas- iðnaði hins vegar vaxið hratt, eink- um í fyrrnefndu ríkjunum tveimur. Fyrir 1991 lágu aðeins tvö ríki að Kaspíahafi, Sovétríkin og Íran, og milli þeirra giltu samningar frá 1921 og 1940 um skiptingu þess. Með sundurliðun Sovétríkjanna skapaðist hins vegar algjör óvissa um lögsögu í vatninu. Ríkin fimm deila nú um yfirráð yfir ýmsum svæðum og það hefur staðið frekari fjárfestingum og rannsóknum fyrir þrifum. Íranar standa fast á því að samn- ingarnir frá 1921 og 1940 gildi þar til nýtt samkomulag hafi náðst. Þeir krefjast þess að öll ríkin sem liggja að Kaspíahafi fái yfirráð yfir jafn- stórum hluta af vatninu, 20%, og eru Túrkmenar sama sinnis. Rússar, Aserar og Kasakar telja hins vegar að lögsaga ríkjanna eigi að ráðast af lengd strandlengju þeirra. Með slíkri skiptingu fengju Íranar einungis yfirráð yfir 13% vatnsins. Leiðtogafundur fyrirhugaður Erfiðlega hefur gengið að fá ríkin fimm að samningaborðinu og fundi leiðtoga þeirra var í tvígang frestað fyrr á þessu ári. En forseti Túrk- menistans, Saparmurad Niyazov, hefur nú boðað til fundar í höfuð- borginni Ashgabat í lok október og vonast er til að leiðtogarnir þekkist allir boðið og að þokast muni í sam- komulagsátt. Heydar Aliev, forseti Aserbaídsjans, sagði ennfremur eftir fundinn í Sochi í síðustu viku að Rússar hygðust boða Asera, Kasaka og Túrkmena til viðræðna áður. Auk deilnanna um yfirráð í Kaspíahafi ríkir ágreiningur og óvissa um lagningu olíu- og gas- leiðslna frá vinnslustöðvunum við vatnið. Ýmsir eiga hagsmuna að gæta og mikið er í húfi. Mörg ríkjanna á þessu svæði búa við póli- tískan óstöðugleika og óttast er að ótryggt kunni að reynast að leggja svo mikilvægar leiðslur yfir þau landsvæði. En vonir eru bundnar við að til langframa muni bættar út- flutningsleiðir stuðla að bættum lífskjörum í þessum heimshluta og leiða þannig til aukins stöðugleika. Dregur til tíð- inda í deilunni um Kaspíahaf AP Verkamenn á leið til vinnu í olíuvinnslustöð í Kasakstan.           , ),,!                    Almaty, Bakú, Moskva, Teheran. AFP, AP. aith@mbl.is Vaxandi spennu hefur gætt að undanförnu milli ríkjanna fimm sem liggja að Kaspíahafi. Þau hafa í áratug deilt um lögsögu í þessu stærsta stöðuvatni heims og þar með um nýtingarrétt á auðugum olíulindum, segir Aðalheiður Inga Þorsteinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.