Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 34
UMRÆÐAN 34 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ Þ að virðist því miður fréttnæmt að þegar fjöldinn heldur burt frá lögheimilum sín- um til þess að njóta náttúrunnar – hver á sinn hátt – skuli enginn farast í bílslysi, eng- inn vegna eiturlyfjaneyslu ein- hvers staðar úti í móa og enginn vegna ofbeldis af einhverjum toga. Útihátíðir um verslunar- mannahelgi eru eflaust góðar í sjálfu sér; hins vegar er hætt við að fólk komi óorði á samkom- urnar og brennivínið eins og svo oft áður. En þá sem býsnast yfir framkomu landans er rétt að minn á að unga kynslóðin fann ekki upp útihátíðirnar og drykkjusiði þessarar skrýtnu þjóðar. Ungur nemur, gam- all temur. Sá sem hér slær tákn á tölvu hefur aldrei verið duglegur við að sækja útihátíðir. En þegar vel er að gáð er óþarfi að mæta á mörg þúsund manna samkomur þessa mestu skemmtanahelgi ársins til að kynnast siðferðisvitund, skemmtanahefð og lífsviðhorfum íslensku þjóðarinnar í hnotskurn. Hefðbundnar föstudagskvölda- og laugardagskvöldahátíðir í hin- um ýmsu þéttbýliskjörnum árið um kring duga. Akureyringar brydduðu upp á þeirri nýjung að stunda fjölda- söng á íþróttaleikvangi bæjarins á sunnudagskvöldið. Fjöldi fólks mætti og tók lagið í myrkrinu, og undirritaður hóf m.a. upp raust sína. Tók undir þegar hvert lagið af öðru hljómaði og fór allt í einu að hugsa um söngtextana; fólk á öllum aldri sat sem sagt þarna eða stóð, og söng um fyllirí, kvennafar, framhjáhald og annað þjóðlegt. Mikið lifandis, skelfingar ósköp er gaman að vera svolítið hífaður, söng ég – bláedrú og með yngstu dóttur mína í fang- inu, í stúku íþróttavallarins. Það sæmir mér ekki sem Ís- lending, sungum við líka, að efast um þjóðskáldsins staðhæfing, og söngvararnir voru allir sammála um að vilja ekki skrælna úr þurrki og því vökvuðu þeir lífs- blómið af og til. Í framhaldinu er greint frá því að sú skoðun þekk- ist og þyki fín, að þetta vort jarðlíf sé ekkert grín, menn eigi að lifa hér ósköp trist og öðlast í himninum sæluvist. Þess vegna er tekið út forskot á sæluna, því fyrir því fæst ekkert garantí að hjá guði ég komist á fyllirí! Svona eftir á að hyggja trúi ég því varla að hafa sungið þetta! Harðsnúna Hanna hélt við hann Gvend, kyrjaði maður há- stöfum hér í eina tíð þegar sú merkilega hljómsveit Ðe Lónlí Blú Bojs var vinsæl. Og hvað er um að vera í Kötu- kvæði? Það var um kvöld eitt að Kötu ég mætti. Hún var að koma af engjunum heim. Þetta var fyrsti fundur þeirra; hann segist að minnsta kosti aldrei hafa séð hana fyrr. Hann tók hlýtt í hönd á Kötu, horfði í augun djúp og blá. Þau gengu burt af götu og náttmyrkrið geymdi þau. En þegar eldaði aftur og birti í hjarta ákafan kenndi ég sting, og fyrir augum af angist mér syrti. Hún var með einfaldan gifting- arhring. Þetta sungum við líka, ég og þúsundir annarra á Akureyr- arvelli og klappað var fyrir for- söngvurunum. Einhvern tíma hefði svona nokkuð verið kallað framhjáhald. Anna litla er einnig afar at- hyglisvert kvæði: Anna litla, létt á fæti – Eins og gengur, eins og gengur, segir svo í viðlaginu sem margur Ís- lendingurinn hefur sungið á góðri stundu – lagði af stað í berjamó. Þar sátu fjórir ungir, sætir sveinar á grænni tó. Einn af þeim var ósköp feiminn en kyssti Önnu þó. Annar talsvert áræðnari, af Önnu skýlu og svuntu dró. Sá þriðji enn meiri hugdirfð hafði og um hana í mjúkri lautu bjó. „Eitthvað fékk sá fjórði að gera nú finnst mér vera kveðið nóg,“ segir í sjötta erindinu, og í því sjöunda: „Því hvað hann gerði ef vissir, væna þú vildir strax í berjamó.“ Gætu vondir menn jafnvel haldið því fram að þarna hefði átt sér stað hópnauðgun? Eða var Anna bara svona lausgyrt? Og hvað með Því hvað hann gerði ef vissir, væna þú vildir strax í berjamó? Eruð þið ekki ánægðar með þetta, stelpur? Og svo er það hún Sigga Geirs, sem sexappíl hefur flest- um meira. Hlýtt og notalegt er hennar ból hverjum sem býður hún næturskjól. Það vita: Kalli Jóns og Gústi læknisins og Nonni Sæmundar og Halli rakarans og Fúsi Sig- urleifs og Palli á Goðanum og Denni í Efstabæ – og einnig ég. Sigga þessi blessunin eignast svo krakka í kvæðinu og sagt er að prestinum hafi brugðið þegar hún skyldi tilnefna barnsföður, og nefndi alla þá sem áður er getið. Yfirvöld urðu að skera úr og sögumanni er dæmdur snáð- inn – en hinir skunda kátir á næsta bar! En að sögumanni læðist þó stundum efi, þegar hann lítur litla skinnið: Hann líkist Kalla Jóns og Gústa læknisins og Nonna Sæmundar og Halla rak- arans og Fúsa Sigurleifs og Palla á Goðanum og Denna í Efstabæ – en ekki mér! Ekki er hægt að skilja Einsa kalda úr Eyjunum útundan. Það var karl í krapinu; hann var inn- undir hjá meyjunum, þær slóg- ust um hann á Spáni, í Þýska- landi vildu þær allar eiga hann og austur á fjörðum báðu þær hans einar fimm. Það er sama hvar hann drepur niður fæti, meyjarnar bíða alls staðar spenntar, en hugsi þær um hjónaband í hasti ég flý land. Vonandi að svo lauslátur náungi, og Hönnur, Önnur og Kötur dagsins í dag, hafi að minnsta kosti haft vit á að fjárfesta í smokkum. Sigga Geirs gleymdi því og að minnsta kosti ein- hverjir þeirra gaura sem hún bauð næturskjól. Atti katti nóa Atti katti nóa emissa demissa dolla missa dei... Atti katti nóa . . . Ból Siggu Geirs er hlýtt og notalegt. Það vita: Kalli Jóns og Gústi læknisins og Nonni Sæmundar og Halli rakarans og Fúsi Sigurleifs og Palli á Goðanum og Denni í Efstabæ – og einnig ég. VIÐHORF Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is ÁRNI R. Árnason sá sig knúinn til að svara grein minni í Morgunblaðinu þriðju- daginn 17. júlí sl. Eins og við var að búast reynir hann að halda uppi vörnum fyrir for- sætisráðherra. Eigi að síður andmælir hann engu sem ég hélt fram í minni grein en reynir þess í stað að gera undirritaða lítt trú- verðuga þegar kemur að umræðu um sjávar- útvegsmál. Þar skín í gegn að greinarhöf- undur telur að konur, sem séu þar að auki ríkisstarfs- menn, hafi ekkert vit á sjávarútvegi. Nú er því þannig varið að undirrituð hefur verið tengd sjávarútvegi vel á þriðja áratug og átt allt sitt undir því hvernig afkoma sjávarútvegsins hefur verið. Ég neita því alfarið að í skrifum mínum þann 7. júlí sl. hafi á ein- hvern hátt verið gert lítið úr vægi sjómannaverkfallsins á íslenskt efnahagslíf. Ég leyfi mér þvert á móti að halda því fram að allir þeir, sem komnir eru nokkuð til vits, viti að sjávarútvegur er undirstöðuat- vinnugrein landsmanna og því mik- ilvægt fyrir þjóðarbúið að þar sé vel á spilunum haldið. Það sem ég vildi vekja athygli á, og Árni mælir ekki á móti, er það að forsætisráðherra Íslands skyldi leyfa sér að kalla ákveðnar stéttir launafólks til ábyrgðar fyrir versnandi efnahags- ástandi í landinu. Forsætisráðherra gerði engan greinarmun á verkfalli sjómanna og kennara í þjóðhátíðarávarpi sínu og kallaði verkföll „þjóðaríþrótt“, hann hefur kannski ekki gert sér grein fyrir þessum mun sem Árni talar um og því er brýnt að hann geri for- sætisráðherra þennan mun ljósan hið allra fyrsta. Í kjarasamningun- um sem gerðir voru í vetur sýndu ríkis- starfsmenn, svo ekki verður um villst, að þeir voru tilbúnir að taka fullan þátt í að viðhalda þeim stöðugleika sem náðst hafði undanfarin ár. Kröfum um stórfelldar kauphækkanir var mjög stillt í hóf en því meiri áhersla lögð á menntunarmál félagsmanna. Einnig náðust fram verulegar leið- réttingar til þeirra sem starfa við umönnun og höfðu lítið notið góð- ærisins margumrædda. Meðan samningaviðræður stóðu yfir sáust blikur á lofti í efnahagslífinu og á það bent af samtökum launþega en því var alfarið mótmælt af fulltrúum ríkisstjórnarinnar að hætta væri á ferðum. Ummælum Árna, um lítinn vilja forystu SFR til að viðhalda stöðugleikanum, er hér með vísað á bug og ég hvet hann til að kynna sér málin betur. Í fréttum undanfarna daga hefur komið fram að laun á Íslandi hafi hækkað verulega umfram laun í við- skiptalöndum okkar. Fróðlegt væri að vita hve mikill munurinn er orð- inn á sambærilegum störfum á milli landa. Ísland verður að vera sam- keppnishæft við önnur lönd og geta boðið unga fólkinu, sem hefur aflað sér menntunar, þau laun sem boðin eru í samkeppnislöndum okkar. Samtök launafólks mega ekki sitja þegjandi hjá og horfa á ungt fólk flýja þau lífskjör sem í boði eru á Ís- landi. Launafólk á Íslandi á þá kröfu á ráðamenn að þeir standi við þau orð sem sögð voru í vetur þegar þeir fullyrtu að ekkert væri að. Íslenskt launafólk getur ekki eitt og sér fært fórnir þegar harðnar á dalnum. Það má ekki líðast að kjarabætur und- anfarinna ára brenni á verðbólgu- báli eins og margt bendir til ef ekk- ert verður að gert. Í stað þess að leita sökudólga verður ríkisstjórnin að finna leiðir sem duga til að snúa við á þeirri óheillabraut sem hún er komin á. Öllu lengur getur ríkisstjórn undir forsæti „mesta stjórnmálaskörungs síðustu aldar“ ekki setið hjá. Yfirklór Árna R. Ína H. Jónasdóttir Efnahagsmál Í stað þess að leita söku- dólga, segir Ína H. Jónasdóttir, verður rík- isstjórnin að finna leiðir sem duga til að snúa við á þeirri óheillabraut sem hún er komin á. Höfundur er varaformaður SFR MEÐ ríflega 5 þús- und undirskriftum var vakin athygli á nauðsyn úrbóta á Suðurlands- vegi um Hellisheiði og Þrengsli. Bent var á lýsingu og breikkun í brekkum ásamt lag- færingum á vegöxlum. Þessi atriði eru augljós þeim sem aka þessa leið enda hefur úrbót- um verið lofað. Staða þessara end- urbóta er sögð erfið vegna þess að Suður- landsvegur um Hellis- heiði og Þrengsli er ekki á vegaáætlun næstu fjögurra ára né næstu 10 ára. Á þetta benti samgönguráðherra er honum voru afhentar undirskriftirn- ar. Þetta vekur undrun þar sem um- ferð um Suðurlandsveg er stöðugt vaxandi og er ótvírætt einn umferð- arþyngsti vegur landsins. Á meðan stórbrotnar upphæðir í milljörðum voru samþykktar til úrbóta á Reykjanesbraut var ekki króna í þennan hluta Suðurlandsvegar til úrbóta þrátt fyrir að á álagstímum, um helgar allt árið um kring og yfir sumartímann sé þetta umferðar- þyngsti þjóðvegur landsins með mun meiri umferð en Reykjanesbraut. Lýsingin er nú komin á dagskrá Vegagerðarinnar og útboð hönnunar verður innan tíðar. Því útboði þarf að fylgja ákvörðun um framkvæmdir. Lýsingin á Suðurlandsvegi um Hellisheiði og Þrengsli eykur öryggi með því að auðvelda umferð að vetr- arlagi og í dimmviðri ásamt því að hún þjónustar ferðaþörf fólks í skammdeginu þannig að dimmviðri verður ekki eða síður fyrirstaða. Það þýðir ekkert fyrir talsmenn Vegagerðarinnar að reyna að tala lýsinguna út af borðinu með því að hún sé einhver óþörf þjónusta. Ef svo er skulu þeir hinir sömu leggja til að slökkt sé á lýsingu Reykjanes- brautar. Góðir vegir, lýsing og vega- viðhald er sjálfsögð þjónusta við um- ferðina til öryggis, hagkvæmni og þæginda. Allir þeir sem fara Suðurlandsveg um Hellisheiði eða Þrengsli sjá hvar þörf er á endurbótum. Með því að breikka veginn í brekkunum, í þrjár akreinar og með því að breikka veg- axlirnar með malbiki er komið til móts við hægfara ökutæki, flutn- ingabíla og bíla með aftanívagna og þeim auðveldað að hleypa umferð fram úr. Einnig auðvelda rúmgóðar vegaxlir ökutækjum að víkja fyrir forgangsumferð lögreglu og sjúkra- bíla þegar umferð er mikil. Núna eru vegaxlirnar stórhættulegar, með ónýtu slitlagi, skörpum brúnum og óárennilegum malarkanti. Vegfar- endur, vegagerðarfólk og ráðandi aðilar eru beðnir að gefa vegöxlun- um gaum. Reyndar er það svo með Þrengslaveginn að hann bókstaflega æpir á breikkun. Þar er hreinlega vandi að mæta stórum bílum. Getur verið að ástæðan fyrir því að ekkert er aðhafst í málefnum Suð- urlandsvegar um Hellisheiði og Þrengsli sé að Vegagerðin miði við þriggja ára gamlar umferðartölur í áætlunum sínum eins og við höfum heimildir um. Ekki verður fram hjá því litið að um þennan veg fara mestu þungaflutningar á landinu, þar sem eru stórbrotnir malarflutn- ingar með fyllingarefni fyrir höfuð- borgarsvæðið og vöruflutningar fyr- ir Suðurland og Austurland ásamt eldsneytisflutningum fyrir Suður- land. Þá er á þessari fjölförnu leið um fjallveg að fara sem kallar á meiri aðgæslu og betri veg. Það er viðurkennt af vegfarendum og Vegagerðarmönnum að leiðin frá Litlu kaffistofunni að Hveradala- brekkunni með stórhættulegum Þrengslavegamótum þarfnast end- urbóta. Beinast liggur við að breyta vegarstæðinu og leggja veglínuna frá Hveradalabrekkunni í boga með- fram hraunkantinum og tengjast veginum við Litlu kaffistofuna. Reyndar mun sú veglína vera til á blaði. Þau atriði sem hér er minnst á eru lítil skref í þá veru að gera veginn öruggari og kostnaðurinn er ekki nema brot af því sem ausið er í Reykjanesbrautina. Í einhverri framtíð verður sjálfsagt kominn upplýstur tvíbreiður vegur milli Reykjavíkur og byggðanna austan Hellisheiðar, tengslin milli þessara byggðarlaga munu stóreflast á kom- andi árum og umferðin aukast um leið. Við hvetjum ökumenn til varkárni í umferðinni. Lýsum og breikkum veg um Hellisheiði og Þrengsli Guðmundur Sigurðsson Umferðin Um helgar og yfir sum- artímann, segja Sig- urður Jónsson og Guð- mundur Sigurðsson, er þetta umferðarþyngsti þjóðvegur landsins. Höfundar eru búsettir á Selfossi og eru talsmenn samtakanna Vinir Hellisheiðar. Sigurður Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.