Morgunblaðið - 08.08.2001, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 08.08.2001, Qupperneq 36
MINNINGAR 36 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Haukur Jónssonfæddist í Hafnar- firði 3. júlí 1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 31. júlí síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Sesselju Magnúsdótt- ur frá Skuld, f. 11.10. 1893, d. 29.5. 1975, og Jóns Gests Vigfús- sonar er lengi var gjaldkeri hjá Spari- sjóði Hafnarfjarðar, f. 26.12. 1892, d. 14.10. 1980. Þau hjónin eignuð- ust 13 börn; Steinunni, f. 24.9. 1916, Magnús, f. 14.12. 1918, Ástu Vigdísi, f. 12.5. 1920, d. 10.9. 1999, Sigríði Áslaugu, f. 6.1. 1922, d. 23.9. 1994, Vigfús, f. 24.5. 1923, d. 25.5. 1991, Gunnar Kristján, f. 24.5. 1925, d. 20.4. 1997, Jón Gest, f. 26.9. 1926, Sigrúnu, f. 11.12. 1927, Hauk, f. 1.10. 1929, d. 19.4. 1930, Hauk, f. 3.7. 1931, d. 31.7. 2001, Hörð, f. 24.3. 1934, Guð- mund (Mugg), f. 25.9. 1935, d. 1.3. 1988, og Einar Þóri, f. 16.1. 1938. Haukur kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Guðnýju Lilju Jó- hannsdóttur, f. 1.8. 1935, hinn 26.12. 1953. Þau eignuðust fjögur börn: Jóhann vélfræðingur, f. 18.10. 1953, eiginkona hans er Ingibjörg Lára Harðardóttir sjúkraliði, f. 24.1. 1953. Börn þeirra eru: a) Vilhjálmur Ingi, f. 28.1. 1983. b) Hrafnkell Ingi, f. 18.4. 1985. c) Ólafur Ingi, f. 15.3. 1989. d) Guðný Lilja, f. 4.5. 1991. 2) Halldóra fóstra, f. 14.8. 1957, sambýlismaður hennar er Ófeigur Ófeigsson bóndi, f. 19.9. 1957. Þeirra synir eru: a) Hjalti, f. 5.6. 1986. b) Geir, f. 26.9. 1990. 3) Stein- unn hjúkrunarfræð- ingur, f. 30.11. 1960, eiginmaður hennar er Sigurður Einar Sigurðsson svæf- ingalæknir, f. 10.9. 1960. Þeirra börn eru: a) Haukur, f. 7.5. 1985. b) Valur, f. 8.3. 1989. c) Erla Sig- ríður 14.8. 1997. 4) Sigrún meina- tæknir, f. 2.5. 1964, eiginmaður hennar er Gunnar Erling Vagns- son tannlæknir, f. 27.9. 1960. Þeirra börn eru: a) Sonja, f. 15.4. 1986. b) Karen, f. 24.8. 1990. c) Ellen, f. 8.8. 1995. d) Axel, f. 21.7. 1997. Haukur ólst upp í Hafnarfirði og bjó þar alla tíð. Hann hóf nám í prentiðn og fékk meistararéttindi 1955. Vann lengst af í Prent- smiðju Hafnarfjarðar, síðar hjá Vita- og hafnarmálastofnun, prentsmiðjunni Hólum, hjá Inn- kaupasambandi bóksala og IB blaðadreifingu. Útför Hauks fer fram frá Þjóð- kirkjunni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Það er þriðjudagur 31. júlí, ég stend í flugstöð Leifs Eiríkssonar og bíð eftir systur minni sem er að koma frá Svíþjóð með litlu börnin sín fjög- ur. Innra með mér brjótast um til- finningar sem ég hélt að fyrirfyndust ekki lengur. Ég sé systur mína koma, tek utan um hana og hvísla: „Pabbi er dáinn. Hann er búinn að fá frið- inn.“ Já, stríðinu var lokið, hann var kominn heim; heim til foreldra, ætt- ingja og vina sem hann trúði alltaf að biðu eftir sér og flyttu sig til hins dýrlega endurfundar á himnum sem trúin boðar. Pabbi starfaði lengst sem prentari og verkstjóri í Prentsmiðju Hafnar- fjarðar. Á þeim tíma var prenttækn- in með öðru sniði en í dag, allir stafir steyptir í blý og síðan raðað í ramma, sem mynduðu texta og blaðsíður, og hvergi mátti skeika broti úr milli- metra. Þessi vinnubrögð voru lýs- andi fyrir pabba. Allt sem hann gerði bar vott um útsjónarsemi, snyrti- mennsku og nákvæmni. Pabbi hafði átt við vanheilsu að stríða í nokkur ár og var síðustu mánuðina á Hrafnistu í Hafnarfirði þar sem hann naut góðrar aðhlynn- ingar og hlýju starfsfólks sem á heið- ur skilið. Pabbi var ríkur að eiga góða eiginkonu sem hjúkraði honum heima eins lengi og hún gat. Við systkinin vorum síðan svo lánsöm að geta vakað yfir honum síðustu dag- ana ásamt móður okkar alveg fram í andlátið og vottað honum þannig ást okkar og virðingu. Jóhann Hauksson. Elsku pabbi. Ósköp á ég eftir að sakna þín mikið. Sakna allra skemmtilegu sagnanna um prakk- arastrik ykkar bræðranna þegar þið voruð strákar að alast upp hjá ömmu og afa á Suðurgötunni og af sumr- unum í Sléttuhlíð. Sakna þess að heyra þig segja frá ferðalögunum sem við fórum í þegar við vorum of lítil til að muna eftir því sjálf. Sakna þess að heyra þig segja frá þegar þið mamma byggðuð hús frá grunni eins og svo margir í þá daga. Sakna þess að heyra þig segja frá svo ótal mörgu. Þú hafðir einstakt lag á að segja þannig frá að ég hreifst með og hlust- aði stóreyg á öll þessi ævintýri sem pabbi minn hafði lent í. Ég sá ljóslif- andi fyrir mér krakkahópinn á Suð- urgötunni að bralla eitthvað saman. Hvítur plastpoki sem feyktist um hraunið fyrir neðan Sléttuhlíð í rökk- urbyrjun, þegar þú varst á leiðinni hjólandi upp í bústað sem unglingur, sendi kalt vatn milli skinns og hör- unds. Rennblautur bréfpoki sem rifnaði og langþráður ljósakúpull sem datt í götuna og brotnaði í þús- und mola kallaði fram væg sorgar- viðbrögð. Lýsingar þínar á ferðalög- um okkar kölluðu fram bros og hlátur. Ég gat hlustað á þig segja þessar sögur aftur og aftur og alltaf gastu gætt þær lífi og sveipað at- burðina ævintýraljóma þótt um hversdagslega hluti væri oftast að ræða. Ég á eftir að sakna þess að sitja í stól og þú gengur fram hjá og strýk- ur hendinni ofurlétt yfir hárið á mér. Ég á eftir að sakna þess að finna góð- mennsku þína og heyra þitt álit á hlutunum. Þú hafðir einstakt lag á að sjá björtu hliðarnar á hlutunum og þú trúðir aldrei neinu nema góðu upp á annað fólk. Þú varst búinn að vera mikið veik- ur og þér hrakaði hratt. Ég gat verið hjá þér ásamt mömmu og systkinum mínum síðustu dagana þína. Við reyndum að létta þér þessa daga með því að vera hjá þér, strjúka þér og halda í höndina á þér. Þú hafðir alltaf sagt að þú svæfir best þegar þú heyrðir kjaftamalið í okkur og okkur fannst þú rólegri þegar við vorum að spjalla saman þótt þú værir löngu hættur að geta tekið þátt í samræð- unum og vafamál hvort þú skildir nokkuð af kjaftakliðnum. Þegar ég hélt í hálfkalda hönd þína sem hafði rýrnað svo ótrúlega mikið gat ég ekki annað en hugsað um að þessi hönd hafði áður verið stór og hlý og leitt lítið stelpuskott á sunnu- dagsgöngutúrum. Lítið stelpuskott sem var þess fullviss að hún ætti stærsta, fallegasta og besta pabba í heimi. Það er svo ótrúlega stutt síð- an. Þessi hönd var alltaf sívinnandi að dytta að. Þú varst vanur að klæða þig í vinnugalla á laugardögum og vera eitthvað að vasast í viðgerðum innan- húss og utan og bóna bílinn. En á sunnudögum tókstu þér frí og þá klæddirðu þig upp og naust þess að vera heima í faðmi fjölskyldunnar og borða sunnudagssteikina hjá mömmu sem aldrei brást og bara láta þér líða vel. Þessi hönd var listfeng. Þú gast teiknað mjög lifandi myndir og hafðir mikið yndi af að skera út í tré. Þessi hönd skrifaði listilega vel. Þessi hönd strauk ofurlétt yfir hárið á mér. Það er svo ótrúlega stutt síðan. Þú varst þess alltaf fullviss að fólk- ið þitt sem var farið á undan þér myndi taka á móti þér þegar þinn tími kæmi. Nú ertu hjá þeim og þér líður efalaust vel, elsku pabbi. Góða ferð. Þín dóttir, Steinunn. Elsku pabbi minn; ekki náði ég að kveðja þig áður en þú fórst í ferðina miklu. En ég veit að þar hefur verið tekið vel á móti þér af systkinum og foreldrum, og þú varst líka alveg sannfærður um að svo myndi vera. Síðustu mánuðir voru þér mjög erf- iðir vegna veikinda þinna en núna veit ég að þér líður vel. Það eru svo margar fallegar minn- ingar sem ég á um hann pabba minn, það var alltaf svo gaman að heyra hann segja frá ýmsu sem á daga hans hafði drifið. Sérstaklega var gaman að hlusta á hann segja frá því þegar hann var lítill strákur og öllum æv- intýrunum sem hann lenti í bæði uppi í Sléttuhlíð og í Hafnarfirði. Mér þótti svo skemmtileg sagan um það þegar þú hjólaðir þessa leið milli Sléttuhlíðar og Hafnarfjarðar og gleyptir stóra flugu í einni brekk- unni og þegar þú bjóst þér til segl á hjólið svo þú yrðir fljótari í ferðum. Þar sem þið systkinin voruð svona mörg var alltaf eitthvað verið að bralla og margar sögur voru um prakkarastrikin ykkar. Eftir að ég fór að eldast vildi ég endilega að þú settir þessar sögur niður á blað og ég veit að þær hefðu fyllt heila bók og rúmlega það, en þú gafst þér aldrei tíma til þess og sér maður mikið eftir því núna. Þú varst alltaf svo rólegur og góð- ur og krakkarnir mínir hændust mik- ið að þér, þú varst svo duglegur að fara með þau í göngutúr og púsla með þeim og ég veit að þeirra missir er mikill. Elsku pabbi, ég kveð þig nú með miklum söknuði. Guð geymi þig. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Sigrún Hauksdóttir. Elskulegur afi okkar, Haukur Jónsson, er látinn, nýorðinn sjötug- ur. Okkur langar að minnast hans með fáeinum orðum og kveðja hann. Undanfarin ár höfum við ekki náð mikið saman enda afi orðinn mjög illa haldinn af hinum hræðilega sjúk- dómi Alzheimer. En við eigum marg- ar góðar minningar um afa áður en hann veiktist. Afi og amma bjuggu í Hafnarfirðinum en við norður í landi. Þegar við komum suður með foreldr- um okkar var alltaf það fyrsta sem við gerðum að koma við í Hafnarfirð- inum og hitta þau. Þangað var alltaf gott að koma og ógleymanlegt í minningum okkar. Þau voru sterkir persónuleikar og fastur punktur í okkar tilveru. Heimilið var hlýlegt og fallegt og svo margt sérstakt sem við munum alltaf eftir. Amma var með íslenskar hænur í bakgarðinum. Þær hétu allar sérstökum nöfnum og í kringum þær voru ýmsar sögur og svo lifðu þær í lúxushænsnakofa því afi hafði smíðað hann. Allt sem hann afi smíðaði var einstaklega fallegt og vel gert, dúkkuhúsið hennar Guðnýj- ar eða fallegi brunnurinn í garðinum hjá þeim. Listaverk eftir afa. Afi smíðaði líka sumarbústaðinn í Sléttu- hlíðarlandinu fallega þar sem hann dvaldi öll sumur sem barn með for- eldrum sínum, Jóni Gesti og Sess- elju, og ellefu systkinum. Sumarbú- staður afa og ömmu er uppi í hlíðinni fyrir ofan gamla bústaðinn. Það var ekki létt verk fyrir afa að byggja bú- staðinn og þurfti hann að bera allt efnið í hann í gegnum skóginn sem hefur vaxið á þessum yndislega stað í yfir hálfa öld. Afi átti margar góðar minningar frá Sléttuhlíðinni þegar hann var að alast upp og sagði okkur margar skemmtilegar sögur frá þeim tíma. Oft komum við í sumarbústað- inn til afa og ömmu og nutum þess að vera þar, hlaupa um og leika okkur í þessu yndislega umhverfi sem var eins konar ævintýraheimur. Það var líka svo gott að vera nálægt afa og ömmu. Þegar við vorum lítil og alveg að farast úr óþekkt fékk afi okkur til að greiða á sér hárið. Hann lá þá á sóf- anum í stofunni og við litlu krílin greiddum honum með lítilli greiðu. Þessi athöfn hafði alltaf ótrúlega ró- andi áhrif á okkur en stundum sofn- aði afi. Þá þorðum við ekki að hafa hátt. Nú er afi sofnaður svefninum langa eftir erfið veikindi. Megi góður Guð styrkja ömmu á allan hátt og taka vel á móti afa því þar fer góður maður. Hvíl í friði, elsku afi. Vilhjálmur, Hrafnkell, Ólafur og Guðný Jóhannsbörn. Þegar vinur fellur frá leiðir hug- urinn mann ósjálfrátt til baka og rifj- ar upp góðar minningar um hann. Þegar fundum okkar Hauks bar saman heilsaði hann alltaf með föstu hlýlegu handtaki, fallegum íslensk- um orðum og framkomu eins og hjá sönnum herramanni. Ég er ein af þeim heppnu sem kynntust þessum herramanni þegar sonur minn giftist dóttur hans. Margar stundir áttum við saman, bæði í félagsskap barna okkar, barnabarna og þess utan. Það var alltaf jafnánægjulegt að hitta þau hjón, en þar sem Haukur var þar var og Guðný kona hans og man ég ekki eftir að hann hafi verið nefndur á nafn án hennar, enda voru þau hjón samstíga í lífinu. Haukur veiktist fyr- ir nokkrum árum og þá reyndi á konu hans að hlúa að honum sem hún og gerði með aðdáanlegum hætti þar til yfir lauk. Börn þeirra voru öll sem eitt og studdu við bak foreldra sinna í þessari veikindabaráttu föður þeirra. Haukur auðgaði anda allra sem kynntust honum með fróðleik sínum og fáa hef ég hitt með eins skemmti- lega frásagnargáfu. Lítið efni gat hann gert að stórviðburði í frásögn sinni og húmorinn var oftast fyrir hendi. Hann hafði lága þægilega rödd og talaði fremur rólega, en það gat engum leiðst meðan hann sagði frá og hann hafði óskipta athygli hlustenda sinna. Haukur hafi mikla ánægju af trjágróðri, enda alinn upp við skógrækt í föðurhúsum en faðir hans ræktaði upp mikinn trjágróður í Sléttuhlíð við Hafnarfjörð og eignuð- ust þau systkin nokkurs konar sum- arættaróðal þar sem þau og niðjar þeirra halda við enn í dag. Margar ferðir voru farnar þangað til að njóta fegurðarinnar í faðmi náttúrunnar. Haukur átti góðar bernskuminning- ar frá Sléttuhlíð og stundum sagði hann frá skemmtilegum atburðum frá þeim tíma, enda stór systkina- hópur og af mörgu að taka. Aldrei heyrði ég hann hallmæla nokkrum manni. Haukur talaði oft um börn sín og barnabörn og sagði einu sinni við mig að hann væri þakklátur fyrir það að eiga svona góða fjölskyldu. Áður en Haukur veiktist sagði hann mér að hann hlakkaði til elliár- anna því þá gæti hann sinnt meira áhugamálum sínum eins og t.d. að skera út í tré, lesa góðar bækur, snyrta í kringum húsið sitt og margt fleira, enda snyrtimennskan hjá þeim hjónum, bæði innanhúss og utan, með eindæmum. En hann fékk styttri tíma til að sinna þessum áhugamálum sínum, vegna þess, að stuttu eftir að hann hætti vinnu utan heimilisins veiktist hann. Haukur sagði eitt sinn við mig að það ætti að gefa fólki kost á því að hætta fyrr að vinna fyrir lífsins nauðsynjum og leyfa því að njóta afraksturs erfiðis síns á þann hátt sem það óskaði sér þau ár sem það ætti eftir hér á jörðu. Ég er ekki í vafa um að það eru margir sem taka undir þessi orð Hauks. Ég er þakklát fyrir þau gull- korn sem Haukur stráði á veginn minn. Það er mikil eftirsjá að þessum góða manni en eins og Kahlil Gibran segir í Spámanninum: „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ Ég votta Guðnýju, börnum og öðr- um aðstandendum mínu dýpstu sam- úð. Blessuð sé minning hans. Erla S. Sig. HAUKUR JÓNSSON                                   !" ##$   %&' !#! (( )'" #! ((   ##$  *+ ,  " ##$  -    .#()+ #! ((  !##$    ' $    ' /        !       "      0.12 #  3   ## (45 67) 87  # !$ %      "  &  ' (      )   *   +& +,,  (       9#(!8# '#7 !#! ((/        & 2 +6     )       -   (      $ %  (   +, +,, ' (      .        +/ +&,, )    ##$  &   ##$ $  ' /

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.