Morgunblaðið - 08.08.2001, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 08.08.2001, Qupperneq 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 39 ✝ Sigurpáll Guð-jónsson fæddist á Neðri-Þverá 7. októ- ber 1921. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Ljósheimum á Selfossi 27. júlí síð- astliðinn. Sigurpáll var sonur hjónanna Guðjóns Árnasonar, bónda á Neðri- Þverá, f. 8. febrúar 1886, d. 7. nóvember 1954, og Sigríðar Sigurðardóttur, f. 23. júlí 1894, d. 26. ágúst 1977. Þau Guðjón og Sigríður voru ættuð úr Fljótshlíð og undan Eyjafjöll- um. Systkini Sigurpáls eru Elín, húsfreyja í Reykjavík, f. 2. apríl 1918, d. 17. ágúst 1983, Þórunn, húsfreyja í Borgarholti í Ása- hreppi, f. 12. júní 1919, Sigurður Ingi, bóndi á Neðri-Þverá, f. 24. október 1923, Árni, lögfræðingur á Ísa- firði, f. 23. október 1928, og Magnús, raf- virkjameistari í Kópavogi, f. 3. nóv- ember 1936. Sigurpáll kvæntist 5. júlí 1975 Kristínu Aradóttur, ættaðri úr Reykjavík, f. 5. júlí 1955, og eignuðust þau fimm börn: Ara Bergþór, f. 26.9. 1975, d. 25.12. sama ár, Árna, f. 16. maí 1977, unnusta hans er Helga Stefánsdóttir og eru þau nú tekin við búsforráðum á Neðri- Þverá, Sigurð Inga, f. 18. júní 1978, Esther, f. 23. október 1981, og Einar Bjarna, f. 1. janúar 1985. Útför Sigurpáls fer fram frá Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Sigurpáll Guðjónsson átti því láni að fagna að fæðast og alast upp á góðu sveitaheimili í skjóli ástríkra og velmegandi foreldra, þeirra Guðjóns og Sigríðar á Neðri-Þverá, trausts og vandaðs bændafólks er hafði í heiðri fornar dyggðir og sá til þess að börn- in skorti ekkert, hvorki mat, klæði né kærleiksríka umönnun. Guðjón lést snögglega árið 1954 og stóðu þeir Sigurpáll og Sigurður Ingi bróðir hans síðan fyrir búi móður sinnar, uns hún lést árið 1977. Þeir Sigurpáll og Ingi reyndust góðir og umhyggju- samir synir og í skjóli þeirra – og síð- ar tengdadótturinnar Kristínar Ara- dóttur – átti Sigríður góða elli eins og hún hafði sjálf sáð til í bernsku og æsku barna sinna með kærleika og fórnfýsi. Heill og hamingja barna- hópsins var æðsta takmark Sigríðar og henni tókst vel það ætlunarverk að koma börnum sínum til manns, því að öll urðu þau systkinin sómafólk og nýtir þjóðfélagsþegnar. Sigurpáll var af þeirri kynslóð ís- lensks sveitafólks sem óx upp úr fá- sinni og harðri lífsbaráttu inn í tækni- væddan heim nútímalifnaðarhátta. Engin kynslóð íslenskra bænda hefur lifað aðrar eins breytingar á lifnaðar- háttum og félagslegu umhverfi og Sigurpáll og samtímamenn hans. Frá orfi og hrífu til sláttu- og heybindi- véla, frá dráttar- og áburðarklárum til tröllaukinna dráttarvéla, úr köld- um torfkofum þar sem kýr voru handmjólkaðar til stórra verksmiðju- fjósa með kælibúnaði og mjaltavél- um. Þessar breytingar eru aðeins brot af þeirri þróunarsögu sem Sig- urpáll og jafnaldrar hans upplifðu og voru þátttakendur í, og sú saga er í sjálfu sér stórbrotið og ótrúlegt æv- intýri. Og þeim mönnum fer nú óðum fækkandi sem sagt geta þá sögu frá fyrstu hendi. Á nítjándu öld og fram yfir miðja tuttugustu öld var það algengt í sunn- lenskum sveitum að ungir bændasyn- ir – og jafnvel bændur – færu að heiman á vertíð í Vestmannaeyjum eða öðrum sunnlenskum sjávarpláss- um til að afla sér aukinna tekna við sjómennsku eða fiskverkun. Sigurpáll var einn þeirra ungu bændasona sem hleyptu heimdrag- anum og fóru á vertíð í „Eyjum“. Alls fór Sigurpáll á vertíð um 16 ára skeið og þá annað hvert ár til skiptis við Inga bróður sinn, þar sem ekki var heppilegt að báðir bræðurnir væru að heiman í einu. Man ég glöggt þegar þeir bræður höfðu viðdvöl á heimili foreldra minna í Reykjavík á leið sinni til og frá „Eyjum“ í vertíðar- byrjun og vertíðarlok, því annan veg varð ekki komist milli lands og eyja í þá daga. En aldrei held ég að það hafi hvarflað að Sigurpáli að ílendast við sjávarsíðuna og gera sjósókn eða fiskvinnslustörf að ævistarfi, þó að vel væri hann liðtækur til þeirra starfa. Sveitin hans fagra og sögu- ríka, Fljótshlíðin, kallaði á starfs- krafta hans óskipta og þar var nóg að gera sem svalaði stórhug hans og framkvæmdavilja. Oft heyrði ég Palla, eins og hann var oftast nefndur af frændfólki, sveitungum og vinum, minnast Vest- mannaeyjaára sinna og þá jafnan með gleði og ef til vill nokkrum sökn- uði. Auðvitað var það ævintýri líkast fyrir hinn unga og óreynda sveitapilt að kynnast sjávarplássinu, þessari miklu andstæðu sveitarinnar, önnum þess og iðandi mannlífi. Og Sigurpáll bar Eyjamönnum ávallt vel söguna, því að þar eignaðist hann ýmsa nýja kunningja, bæði meðal heimamanna og aðkomufólks og ósjaldan rifjaði hann upp þau kynni. Sigurpáll mun hafa starfað að fiskverkun í Hrað- frystistöð Vestmannaeyja, sem þá var stórveldi í Eyjum, og búið í leigu- herbergi í húsinu Viðey. Sigurpáll var glæsimenni á yngri árum, hávaxinn og grannur, eins og hann var raunar alla tíð, beinn í baki og andlitsfríður. Hann var karlmann- legur á velli, hafði krafta í kögglum og var dugnaðarmaður að hverju sem hann gekk. Ungur byrjaði hann að taka til hendi á búi foreldra sinna og í fyllingu tímans gerðist hann ásamt Inga bróður sínum bóndi á föðurleifð sinni, þar sem faðir hans og afi höfðu búið á undan þeim bræðrum. Sigur- páll reyndist góður og farsæll bóndi, eins og hann hefði orðið dugandi maður á hverju því sviði sem örlögin hefðu úthlutað honum, því hann var þeirrar gerðar, heilsteyptur maður og grómlaus. Sigurpáll var ekki fæddur bóndi, en hann var fæddur inn í bændastétt og fetaði dyggilega í fótspor feðra sinna. En hann átti sér ýmis áhugamál utan brauðstritsins og var bókhneigður og fjölvís; dulræn efni áttu mjög hug hans og einnig ættfræði, en tómstundir hins önnum kafna sveitabónda á barnmörgu heimili voru að sjálfsögðu af skornum skammti. Á yngri árum las hann tals- vert skáldsögur og ljóð og lét sig dreyma eins og títt er um ungt fólk, en eftir því sem árin liðu færðust áhugamálin yfir á önnur svið, svo sem áður segir. Í sambúðinni við búfénaðinn, mál- leysingjana, nutu mannkostir Sigur- páls sín vel, því að hann var einstak- lega hirðusamur og natinn bóndi. Búfénaður þeirra bræðra, Inga og hans, var ávallt vel hirtur og arðsam- ur, því að sómatilfinning þeirra og réttlætiskennd bauð ekki upp á ann- að. Á Neðri-Þverá var aldrei heyja vant og þrifnaður og góð umgengni við skepnurnar ávallt í heiðri höfð. Aldrei var slakað á þeirri kröfu að sem best væri að búfénaðinum búið, að því er varðaði fóður og húsakost, og óhætt er að segja að þeir bræður voru meðal fremstu bænda í Fljóts- hlíð. Í búskapartíð þeirra voru unnin stórvirki í byggingum og ræktun á Neðri-Þverá og nágrannajörðinni Nikulásarhúsum, en þá jörð höfðu þeir bræður undir. Þó að Sigurpáll væri kannski aldrei „hestamaður“ eins og það er nefnt, hafði hann lifandi áhuga sveita- mannsins á góðum hrossum, kunni að temja þau og umgangast og sat hesta sína með prýði. Hann var óragur að fást við baldna fola, enda frá blautu barnsbeini alinn upp í nánu samfélagi við hesta og kunni lagið á óþægum og dyntóttum ótemjum. Hann átti oftast góða reiðhesta sem hann tamdi gjarnan sjálfur og minnist ég þá sér- staklega Prata, smávaxins en hnar- reists rauðs fola með hvíta stjörnu í enni. Það var ógleymanleg sjón að sjá Prata skeiða undir Palla á heiðbjört- um sólskinsdögum þegar hleypt var eftir grænum og sléttum grundum í hópi æskuglaðra félaga, og jörðin glumdi af hófaslætti og háværum hlátrum. Það var ævintýri líkast að vera sveitapiltur á Íslandi um og eftir 1940, þó að sönnu væri ekki bjart um- horfs í heiminum. Fólk hugðist skapa betra þjóðfélag og réttlátara á rúst- um torfbæja og þurrabúða þar sem fátæktin hafði ríkt, einangrunin og þægindaleysið. Rækta, byggja upp, færa út kvíarnar; það var sá boðskap- ur sem forvígismenn landbúnaðarins létu frá sér fara á æskudögum Sig- urpáls. Íslenska gróðurmoldin og hafið við strendurnar skyldu fram- fleyta ört vaxandi þjóð um alla fram- tíð og sérhvert mannsbarn skyldi hreppa hamingjuna við ræktun og uppbyggingu hins víðfeðma lands er ónumið beið við túnfótinn. Og þessu trúði og treysti unga fólkið og fylkti liði um helgar – þegar það átti frí frá búskaparönnum – við gróðursetn- ingu, íþróttaiðkanir og önnur jákvæð og heilbrigð tómstundastörf. En nú eru gróðurlundir ungmennafélag- anna í niðurníðslu og litlu samkomu- húsin úti á landsbyggðinni, sem reist voru af stórhug en naumum efnum fyrir atbeina þessa æskufólks, hálf- hrundir hjallar með sprunginni steypu og fúnum viðum. Já, þannig fór um sjóferð þá. Sigurpáll var að eðlisfari fáskiptinn maður og dulur, jafnvel einrænn í lund, svo að þeim sem ekki þekktu hann gat virst hann nokkuð þegjandalegur. En sú var alls ekki raunin, því að þegar inn fyrir skelina var komið var Sigurpáll hlýr og tilfinninganæmur maður. Og í hópi ættingja og vina gat hann leikið á als oddi og verið svo skrafhreifinn og glaðvær að orð var á haft. Hann var maður athugull og gagnrýninn að eðl- isfari og hafði að ýmsu leyti fastmót- aðar skoðanir á mönnum og málefn- um en lagði aldrei illt til neins og unni fólki sannmælis. Yfirborðsmennska og oflátungsháttur voru honum lítt að skapi og hann reyndi aldrei að ota sér fram eða vekja á sér athygli þrátt fyr- ir góða hæfileika og sterka dóm- greind. Störf sín rækti hann í kyrrþey til heilla heimili sínu og fjölskyldu svo sem títt er um menn af hans gerð. En þó að Sigurpáll væri enginn félagsmálagarpur er ekki þar með sagt að hann hafi ekki fylgst með sveitarstjórnar- og þjóðmálum og málefnum bændastéttarinnar og haft sínar skoðanir á þeim. Viðhorf hans til stjórnmála voru alltaf vinstra meg- in við miðju, líklega lengra en gekk og gerðist um íslenska bændur, þótt af flestum væri hann talinn framsókn- arbóndi. Samúð hans og samkennd var með vinnandi fólki til sjávar og sveita og hann lagðist gegn misskipt- ingu auðs og valda. Hann gerði held- ur aldrei tilraun til að hrifsa til sín meira en honum bar eða skara eld að sinni köku, en var sáttur við að vera gildur bóndi og góður heimilisfaðir við umsvifamikinn búrekstur á barn- mörgu heimili. Það var hans heimur og þar lifði hann sínar bestu stundir í sambúð við kærleiksríka eiginkonu, tryggan bróður og samverkamann og efnileg og vel gefin börn. Kristín Aradóttir reyndist Sigur- páli góð eiginkona og var hjónaband þeirra farsælt og hamingjusamt. Og Ingi bróðir hans stóð við hlið hans frá barnsaldri til hinstu stundar og aldrei bar skugga á vináttu og samvinnu þeirra bræðra. Kristín bjó þeim fag- urt og hlýlegt heimili sem hún veitti forstöðu af sínum alkunna myndar- skap. Var þar oft gestkvæmt og öllum vel tekið. Og Sigurpáll kunni sann- arlega að meta það sem lífið hafði fært honum að gjöf. Hann unni konu sinni og börnum af heilum hug og kom það glöggt fram þegar hann opn- aði hug sinn og hjarta í hópi vina og ættingja. Hann var sáttur við Guð og menn að leiðarlokum og kvaddi lífið þakklátum huga. Því var friður yfir ásjónu hans á dánarbeði, þó að síð- asta skeið ævinnar hefði reynst hon- um erfitt sökum vaxandi vanheilsu. Blessuð sé minning Sigurpáls Guð- jónssonar. Megi hann hvíla í friði. Guðjón Albertsson. SIGURPÁLL GUÐJÓNSSON ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. LEGSTEINAR Komið og skoðið í sýningarsal okkar eða fáið sendan myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 7(  ( *  4    4%    (        K /.    87          "   %   2$ = 1    .#( #(##$  9#!8#8# ! ((   6#(#! ((  #(#! (( #L/  !##$  9 < !#(#! (( )'#(#! (( /#( ##$  .+#(##$  6 ) =( #! ((   '     '  $      ' / )   *     %  (  *           $* (        &  0.& 2   $     0   *  1(   %     "( "1        3  ;  !$    =       $  "    # !$  $% > %     9  *(  (  *     (    (          (    =       38& #! (( &  7 @<= ##$    )'7& #! (( 9# .  & #! (( & #! (( , =(*/& ##$  7 @<=  )  #$  8.  #! ((/  *( %  4   4" %                    (   1,>1,  7< 8 7! / 0   *        # !$ % ) 1          (  )'  )  #$   # .#(8  )' #! (( 9#(+,  -##$  )   )' ##$   (+ #! (( *+   )' ##$  13  ) 7  )' ##$   6187#! (( 9#(  )' )' #! (( )' .#( ##$  )'  3 )' ##$   ( 8 ,  -#! (( )   )' #! ((  &- 8# #7 ##$   !  < ! )' #! (( #0  !$    ' $    ' /

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.