Morgunblaðið - 08.08.2001, Side 42
42 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Starfsmaður í
grænmetisvinnslu
Hollt og Gott ehf. óskar eftir að ráða starfs-
mann til framtíðarstarfa í vinnslu fyrirtækisins
í Reykjavík. Vinnutími er frá kl. 07.00 til 15.00.
Nánari upplýsingar veitir Gunnlaugur Reynis-
son, verkstjóri í síma: 575 6054.
FRÁ SNÆLANDSSKÓLA
Við Snælandsskóla eru laus til umsóknar
eftirtalin störf:
Gangavarða/ræsta í 50% og 100% störf
næsta skólaár
Matráðs (vegna forfalla) í 50% starf til ára-
móta
Launakjör skv. kjarasamningi Eflingar og Launa-
nefndar sveitarfélaga.
Upplýsingar gefa Hanna Hjartardóttir skólastjóri
eða Arnar Andersen húsvörður í síma 554 4911.
Starfsmannastjóri
KÓPAVOGSBÆR
Árborg, fræðslu- og menningarsvið aug-
lýsir lausar stöður:
Sandvíkurskóli á
Selfossi
Laus er til umsóknar staða enskukennara á
unglingastigi. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst
2001. Nánari upplýsingar gefa skólastjóri og/
eða aðstoðarskólastjóri í síma 482 1500.
Barnaskólinn á Eyrar-
bakka og Stokkseyri
Kennara vantar í almenna kennslu á miðstigi.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma
483 1208 eða 483 1141.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk.
Fræðslustjóri Árborgar.
Hjúkrunarfræðingar
Nú þegar er laus staða hjúkrunarfræðings í
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.
Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem hefur
þekkingu og skilning á heildrænni hjúkrun.
Áhersla er lögð á heilbrigðiseflingu, forvarnir
og endurhæfingu. Unniðer eina helgi í mánuði.
Lítið við á heimasíðu okkar: www.hnlfi.is
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í símum
483 0300 eða 690 1241.
Heilsustofnun NLFÍ, Hveragerði.
Viltu verða
sendibílstjóri
á eigin sendibíl?
Ef svo er þá getum við bætt við nokkrum
greiðabílum í afgreiðslu.
Upplýsingar gefur Sigurður á skrifstofu eða
í síma 567 4560 milli kl. 11 og 17.
Atvinnu- og
ferðamálafulltrúi
Hagfélagið ehf., sem er atvinnuþróunarfélag
í Húnaþingi vestra, auglýsir eftir atvinnu- og
ferðamálafulltrúa til starfa. Starfið felst m.a.
í aðstoð við atvinnurekendur, einstaklinga og
félagasamtök við athuganir á nýjum viðfangs-
efnum í atvinnulífi og markaðssetningu héraðs-
ins.
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur brennandi
áhuga og þekkingu á atvinnu- og ferðamálum.
Umsóknir sendist Hagfélaginu ehf., bt. Þorvarð-
ar Guðmundssonar framkvæmdastjóra, Höfða-
braut 6, 530 Hvammstanga, sími 455 2515 eða
898 5154, netfang hagfelag@simnet.is, en
hann veitir einnig nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 18. ágúst nk.
Hagfélagið ehf.
Matráður og ræstingar
Nú þegar eru laus til umsóknar eftirfarandi
störf við Flensborgarskólann:
Matráður eða matselja
í mötuneyti kennara
Um er að ræða 85% starf m.v. ársráðningu.
Upplýsingar veita skólameistari eða aðstoðar-
skólameistari í síma 565 0400.
Ræstingar - nokkur störf laus
Upplýsingar veitir Hreinn Sæmundsson,
umsjónarmaður, í síma 565 0400.
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði er jákvæður vinnustaður
í mikilli sókn.
Umsóknarfrestur um störfin er til 14. ágúst. Ekki er þörf
á sérstökum umsóknareyðublöðum.
Um launakjör fer eftir samningum opinberra starfsmanna
og þeirra félaga sem við eiga um hvert starf.
Skólameistari.
Röskan starfsmann
í lager og sölu
vantar í heildsölu sem allra fyrst. Starfið felst
í sölu á gjafavörum og leikföngum, taka niður
pantanir, söluferðum út á land, lagervinnu og
útkeyrslu. Umsóknir sendist til augl.deildar
Mbl. fyrir 15. ágúst merkt: „Með allt á hreinu".
Miðasala
Starfsmaður óskast í miðasölu Þjóðleikhússins.
Til greina kemur að ráða tvo starfsmenn í 50%
starf hvorn. Umsækjendur þurfa að vera vanir
að vinna við tölvuskráningu.
Unnið er á vöktum. Laun fara eftir kjarasamn-
ingi SFR við ríkissjóð.
Umsóknir þurfa að berast skrifstofu Þjóðleik-
hússins Lindargötu 7, fyrir 20. ágúst nk.