Morgunblaðið - 08.08.2001, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Áskorun hugljómunar
(Enlighcenment intensive)
Hugleiðslunámskeið í Bláfjöllum
23.-26. ágúst. Viltu raunverulega
vita hver eða hvað þú ert?
Hvað lífið er? Eða hvað annar er?
Kynningarfundur verður haldinn
í Stangarholti 5 þann 12. ágúst
kl. 20.00.
Leiðbeinandi er Guðfinna Steinunn Svavars-
dóttir. Nánari upplýsingar og skráning í símum
562 0037 og 869 9293.
Fáðu sendan bækling.
TIL SÖLU
Greiðslumark í mjólk
Til sölu er samtals um 230 þúsund lítra mjólk-
urgreiðslumark sem gildir frá 1. sept. nk.
Tilboð sendist til Búnaðarsamtaka Vesturlands,
Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi, merkt:
„Greiðslumark“, eigi síðar en 15. ágúst nk.
Tilgreina skal magn og verð. Réttur áskilinn til
að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
STYRKIR
Styrkur
Orkuveita Reykjavíkur, auglýsir styrk til konu
sem stundar eða hyggst hefja í haust nám í
verkfræði eða tæknifræði.
Einungis nám til fyrstu prófgráðu í greininni
er styrkhæft. Styrkurinn verður veittur um
mánaðarmótin ágúst - sept nk.
Styrkupphæðin er 300 þúsund krónur.
Umsóknum með náms- og starfsferli ásamt
upplýsingum um fyrirhugað nám og staðfest-
ingu á skráningu skilist til Orkuveitu Reykjavík-
ur, Suðurlandsbraut 34, 5. hæð (sími 585 6773),
108 Reykjavík fyrir 15. ágúst nk.
Orkuveita Reykjavíkur hefur það sem lið í jafn-
réttisáætlun sinni að hvetja konur til náms í
tæknigreinum og reyna þar með að stuðla að
auknu framboði af vel menntuðum konum á
þeim sviðum sem best nýtast Orkuveitunni.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Framsóknarfélögin
í Reykjavík
Sumarferð framsóknar-
félaganna í Reykjavík
Hin árlega sumarferð okkar verður farin laugar-
daginn 11. ágúst nk. og verður að þessu sinni
ferðinni heitið um Suðurland.
Ekið verður sem leið liggur um Hveragerði,
Ljósafossvirkjun, Fljótshlíð, Vík og Laugarvatn.
Brottför frá BSÍ kl. 08.00 og áætluð heimkoma
um kl. 22.00.
Nánari dagskrá á hrifla.is .
Verð kr. 3.800.
Frekari upplýsingar og farmiðapantanir
í síma 552 4020.
Fulltrúaráð framsóknar-
félaganna í Reykjavík.
HÚSNÆÐI Í BOÐI
Húsnæði óskast
Par óskar eftir stóru einbýlishúsi eða tveggja
fölskyldna húsi á svæði 104 eða 108.
Svör sendist til auglýsingadeildar Mbl., merkt:
“H-11467“.
Til leigu
Til leigu húsnæði við Höfðatún, 990 fm, sem
skiptist í kjallara, verslunarhæð og iðnaðar- eða
skrifstofuhúsnæði á annarri hæð.
Húsnæðið leigist í heilu lagi eða hlutum.
Upplýsingar í síma 864 6767.
Frá tónleikanefnd
Háskóla Íslands
Eins og á›ur stendur tónleikanefnd H.Í. fyrir
hádegistónleikum í Norræna húsinu á vetri
komanda. Þeir sem hafa áhuga á að koma fram
á tónleikunum geta nálgast umsóknareyðublöð
á aðalskrifstofu H.Í.
Umsóknarfrestur er til 12. september. Umsóknir
berist Margréti Jónsdóttur, herbergi 414 í Árna-
garði, sími 525 4439, netfang mjons@hi.is; hún
veitir einnig frekari upplýsingar.
Gott einbýlishús til leigu
til leigu er 164 fm einbýlishús á tveimur
hæðum á góðum stað í Garðabæ. Þrjú svefn-
herb. á efri hæð, stofur og eldhús á neðri hæð.
Upplýsingar um nafn, síma og verðhugmyndir
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 20. ágúst
merkt: „Ábyrgir leigjendur“.
160 fm einbýlishús
í Fossvogi ásamt 30 fm bílskúr til leigu frá 15.
ágúst til 1. júlí. Eignin sem skiptist í þrjú herb.,
tvær stofur og sjónvarpshol er öll nýuppgerð,
nýjar innréttingar, parket og flísar á gólfum.
Stór garður. Eignin leigist einungis pari eða
rólegu fjölskyldufólki. Leiguverð 95 — 100 þús.
Upplýsingar í síma 863 7969, Ólöf.
KENNSLA
SMÁAUGLÝSINGAR
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og
huglæknarnir Lára Halla Snæ-
fells, Þórhallur Guðmundsson,
Bíbí Ólafsdóttir, Erla Alexand-
ersdóttir, Margrét Hafsteins-
dóttir og Garðar Björgvinsson
michael-miðill starfa hjá félag-
inu og bjóða félagsmönnum
og öðrum uppá einkatíma.
Upplýsingar um félagið, einka-
tíma og tímapantanir eru alla virka
daga ársins frá kl. 13—18. Utan
þess tíma er einnig hægt að skilja
eftir skilaboð á símsvara félags-
ins.
Netfang mhs@vortex.is .
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama
stað.
SRFR.
KENNSLA
■ www.nudd.is
FÉLAGSLÍF
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
8. ágúst kl. 19.30
Óvissugönguferð á vegum félags-
ins. Brottför frá BSÍ og komið við í
Mörkinni 6. Verð kr. 1.500, en kr.
1.200 fyrir félaga F.Í.
10. ágúst kl. 19.00
Fimmvörðuhálsganga. Helgar-
ferð yfir Fimmvörðuháls. Verð kr.
8.900, en kr. 7.200 fyrir félaga F.Í.
Brottför frá BSÍ kl. 19.00.
Fjölskylduhelgi í Básum
10.—12. ágúst.
Fjölbreytt dagskrá fyrir unga
sem aldna. Leikir, gönguferðir,
pylsugrill, kvöldvaka og margt
fleira.
Fimmvörðuhálsganga
11.—12. ágúst.
Laus sæti í trússferðir um
nýja gönguleið Útivistar,
Strútsstíg, 4 dagar, brottför
9. og 12/8.
Lakasvæðið, jeppaferð
24.—26. ágúst.
Nýtt fyrir Útivistarfélaga:
Ævintýraferð um fjallastíga
Majorku 10.—17. sept. í sam-
vinnu við Göngu-Hrólfa.
Sjá heimasíðu: utivist.is .
Háaleitisbraut 58—60.
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Ingveldur Ragnarsdóttir og Lilja
S. Kristjánsdóttir tala.
Allir hjartanlega velkomnir.
ÞAÐ er gaman að vera ungur og
það vita þessi börn sem brugðu á
leik í trjásafninu í Hallormsstað-
arskógi. Guðbjörg, lengst til vinstri,
Guðrún, Rannveig og Jón léku listir
sínar og héngu í sverum trjábol-
unum í skóginum. Jón hefur fótað
sig á milli tveggja trjáa og er við
það að sveifla sér. Hann heldur sér í
örmjóa grein en ekki er víst að hún
dugi jafn vel og tágar í alvöru
frumskógi.
Að leika
listir
Morgunblaðið/Ragnhildur
Í trjásafninu í Hallormsstaða-
skógi, Guðbjörg, Guðrún, Rann-
veig og Jón.
„ÍSLENSKAR friðarhreyfingar
standa að kertafleytingu á Reykjavík-
urtjörn fimmtudaginn 9. ágúst nk.
Athöfnin er í minningu fórnar-
lamba kjarnorkuárásanna á japönsku
borgirnar Hírósíma og Nagasakí 6.
og 9. ágúst um leið og lögð er áhersla
á kröfuna um kjarnorkuvopnalausan
heim.
Safnast verður saman við suðvest-
urbakka Tjarnarinnar (við Skothús-
veg) klukkan 22:30 og verður þar
stutt dagskrá. Þetta er 17. árið sem
kertum er fleytt á Tjörninni af þessu
tilefni. Að venju verða flotkerti seld á
staðnum,“ segir í fréttatilkynningu.
Kertafleyting
á Tjörninni
FYRIRHUGAÐ er að halda skák-
mót á Hrafnseyri við Arnarfjörð
laugardaginn 11. ágúst nk. á veg-
um Hrafnseyrarnefndar og Vest-
firska forlagsins. Teflt verður eftir
Monrad-kerfi. Öllum er heimil
þátttaka.
Verðlaun verða veitt þremur
efstu mönnum. Teflt verður á úti-
pallinum við Burstabæ Jóns Sig-
urðssonar ef veður leyfir. Þátttak-
endur þurfa að hafa með sér töfl
og skákklukkur. Þátttökutilkynn-
ingar berist fyrir 9. ágúst til Sig-
urðar G. Daníelssonar eftir kl. 20 á
kvöldin og veitir hann einnig nán-
ari upplýsingar.
Sumar-
skákmót á
Hrafnseyri
♦ ♦ ♦
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Línuhönn-
un hf. og er hún undirrituð af Rík-
harði Kristjánssyni framkvæmda-
stjóra:
„Undanfarna daga hefur verið
undarlega yfirgripsmikil umfjöllun
um það að gleymst hafi að tilkynna
til byggingaryfirvalda um viðhalds-
aðgerðir sem hafa verið í gangi á
Flensborgarskóla í Hafnarfirði.
Raunar var það svo að búið var að
kippa málinu í liðinn þegar umfjöll-
unin hófst en þar sem svo virtist í
fyrstu sem Framkvæmdasýslunni
væri um að kenna vakti málið athygli
Morgunblaðsins.
Framkvæmdasýslan vísaði hins
vegar málinu alfarið á verkfræðiráð-
gjafann í málinu en það var Línu-
hönnun hf. sem raunar er lang-
atkvæðamesti ráðgjafinn á þessu
sviði. Þetta gerði Framkvæmdasýsl-
an með fullum rétti þar sem Línu-
hönnun átti samkvæmt samningum
við stofnunina að sjá um að tilkynna
viðhaldsaðgerðirnar til yfirvalda.
Það hafði hins vegar farist fyrir þar
sem verkinu hafði verið frestað og
þegar það fór aftur af stað hafði
Línuhönnun orðið að skipta um
mann í verkinu og hann reiknaði með
að eftirlitsaðili hefði tilkynnt um
verkið en sá háttur er mjög algengur
í verkum okkar. Þegar í ljós kom að
svo hafði ekki verið var málið leiðrétt
með hraði.
Þegar blaðamaðurinn í lok viðtals-
ins spyr svo hvað gera skuli við ráð-
gjafann svarar forstjóri Fram-
kvæmdasýslunnar: „Ekki neitt, það
er enginn skaði skeður.“
Það hefði raunar mátt ætla það að
sú yfirlýsing hefði átt að gefa blaða-
manni tilefni til að sleppa því að eyða
dýrmætu plássi Morgunblaðsins
undir „ekkifrétt“ og láta þekktum
útvarpsfréttamanni slíkar fréttir eft-
ir.
Nú er það svo að Línuhönnun tel-
ur sig að fullu ábyrga fyrir misskiln-
ingi af þessu tagi og hefði bætt skað-
ann ef einhver væri.
Raunar má segja að það sé viss
skaði að dýrmætu blaðaplássi hafi
verið eytt því að við hefðum vænt-
anlega orðið að greiða hálfa milljón
fyrir hálfsíðuauglýsingu sem við
raunar höfum oft sett í þetta ágæta
blað. Vonandi þurfum við þó ekki að
bæta þann skaða.
Hitt er svo annað mál að tilkynn-
ingar viðhaldsaðgerða til yfirvalda
eru í algjörum ólestri og undirrituð-
um er mjög til efs að almenningur og
margir iðnaðarmenn viti að sam-
kvæmt byggingareglugerð ber að til-
kynna allar viðhaldsaðgerðir eins og
sprunguviðgerðir og múrviðgerðir
til yfirvalda og skila inn teikningum
af klæðningum, endursteyptum svöl-
um o.fl.
Nýlega er búið að saga allt Morg-
unblaðshúsið upp og kítta í sprungur
og vonandi hefur eigandi látið til-
kynna þær aðgerðir til byggingaryf-
irvalda og undirrituðum er ekki til
efs að svo hafi verið.
Undirritaður væri hins vegar
mjög ánægður ef þessi neikvæðu
skrif um Línuhönnun sem nýtur
mjög góðs orðspors á erfiðum við-
haldsmarkaði, neikvæð skrif sem
áttu sér lítið sem ekkert tilefni, yrðu
til þess að tilkynningar viðhaldsað-
gerða til yfirvalda færðust í löglegt
horf og yfirvöld gætu þar með sinnt
eftirlitsskyldu sinni.“
Aths. ritstj.:
Heimild Morgunblaðsins fyrir
umræddri frétt er fundargerð bygg-
ingarnefndar Hafnarfjarðar frá 24.
júlí sl. Þar segir m.a.:
„Byggingarnefnd átelur Fram-
kvæmdasýslu ríkisins og byggingar-
stjóra fyrir að hefja framkvæmdir án
þess að tilskilin leyfi séu fyrir
hendi.“
Framkvæmdastjóri Línuhönnun-
ar ætti því að beina spjótum sínum
að byggingarnefndinni en ekki
Morgunblaðinu.
Yfirlýsing frá Línuhönnun hf.
Á NORÐURSTÍG í Reykjavík á
milli kl. 12 og 16.30 hinn 2. ágúst
sl. var ekið á bifreiðina OD-474
sem er Hyundai grá fólksbifreið
þar sem hún stóð kyrr og mann-
laus. Sá sem það gerði fór hins
vegar af vettvangi án þess að til-
kynna það lögreglu eða hlutaðeig-
anda. Því er hann eða aðrir sem
geta gefið frekari upplýsingar
beðnir að snúa sér til lögreglunnar
í Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum