Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 50
DAGBÓK
50 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
ÞESSI alkunna setning
flaug mér í huga, þegar ég
las í Morgunblaðinu 7. júlí
sl. smáfrétt með myndum
af tómstundastarfi eldri
borgara í Reykjanesbæ.
Þar gaf að líta myndir sem
sýndu hóp eldri borgara
með golfkúlur og kylfur að
leik á iðjagrænum og slétt-
um púttvelli, þeir eru raun-
ar fleiri en einn er mér tjáð,
ætlaðir einkum eldri borg-
urum til afnota. Það var
samanburður við tilsvar-
andi aðstöðu í Reykjavík,
sem vakti upphafsorðin í
huga mér.
Fyrir nokkrum árum
voru að minnsta kosti fjórir
slíkir vellir í Reykjavík,
tveir í Laugardalnum, einn
á Miklatúni og einn ofan
við Rafstöðina í Elliðaár-
dal. Vellir þessir voru í
umsjá og hirtir af manni að
nafni Sigurður Hafsteins-
son. Þar var fagmaður að
verki og vandvirkur, enda
var mikil aðsókn að völlum
þessum á góðviðrisdögum.
En hvernig er ástandið í
þessum málum nú? Annar
völlurinn í Laugardalnum
fór undir byggingu, um það
er ekki að sakast. Enda
væri vel hægt að nýta ann-
að nálægt svæði í hans
stað. Hinn völlurinn í
Laugardalnum er orðinn
að óræktarskika, sem
stingur mjög í augu vegfar-
enda, innan um vel hirtan
gróður í fögru umhverfi.
Völlurinn í Elliðaárdalnum
hefur til skamms tíma ver-
ið notaður, en er nú að
„syngja sitt síðasta“ sakir
vanhirðu og er þá fokið í
flest skjól fyrir okkur eldri
borgurum, sem óskum að
njóta sumarsins í góðum
leik.
Borgin leggur mikið fé í
íþróttamannvirki fyrir þá
yngri og er það vel. En
megum við þeir eldri,
einskis biðja?
Karl í krapinu.
Er það rétt?
ÞAÐ er talað um að gömlu
strætisvagnamiðarnir falli
úr gildi 1. september næst-
komandi. Er það rétt? Ég
er öryrki og var svo forsjáll
að kaupa mér þrjú auka-
kort fyrir hækkunina. Ef
þetta er rétt, sé ég fram á
að þessi fjárfesting mín var
ekki til góðs. Ég hefði alveg
eins getað kastað aurunum.
Guðjón Jónasson.
Hvað er að gerast
í björgunarmálum
við Íslandsstrendur?
RÆKJUBÁTURINN Una
í Garði sökk 28 mílum
norður af Siglufirði. Lands-
björg á Siglufirði er með
björgunarbát sem hefði
verið 60 til 90 mínútur á
slysstað, en er ekki látinn
vita né haft samband við
þyrluna. Annað hefði verið
uppi á teningnum ef um
hefði verið að ræða ferða-
mann uppi á öræfum.
Menn eru látnir velkjast
um í fimm klukkutíma,
gegnblautir og þar af einn
slasaður. Í um 15-20 mílna
fjarlægð eru togarar, en
enginn er látinn vita. Bátur
kemur að þeim, báturinn
Húni frá Blönduósi, og fer
með mennina í sjö tíma
siglingu til Blönduóss í stað
þess að sigla með þá
þriggja klukkutíma sigl-
ingu til Siglufjarðar. Ég
spyr: Hvað er að gerast í
björgunarmálum við Ís-
landsstrendur?
Einar Grétar Björnsson
fyrrverandi sjómaður.
Þakka fyrir mig
ÉG er ein af þeim sem er
með brjóskeyðingu í
mjöðm og hné. Ég var búin
að vera ansi lengi á biðlista
í Reykjavík að bíða eftir að-
gerð. Þá var mér ráðlagt að
hringja á Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri og biðja
um aðgerð þar. Viti menn,
eftir sex mánuði fékk ég
aðgerð gerða á mjöðm. Það
var Guðni Arinbjarnar,
sem gerði aðgerðina 15.
febrúar sl. og hans starfs-
fólk annaðist mig frábær-
lega vel. Fjórum mánuðum
seinna var gerð hnjáliðaað-
gerð á sama sjúkrahúsi,
sem gekk mjög vel. Það var
Ari H. Ólafsson sem gerði
þá aðgerð. Hjartans þakkir
til allra á bæklunardeild
FSA.
Eftir báðar aðgerðirnar
fékk ég að koma á Sankti-
Jósefsspítalann í Hafnar-
firði í sjúkraþjálfun í tvær
vikur. Það var gott að kom-
ast heim, þar er frábært
starfsfólk. Hjartans þakkir
á Sankti-Jósefsspítala og
guð blessi ykkur öll.
Ég er ellilífeyrisþegi og
ekkja og bað Trygginga-
stofnun ríkisins að taka
þátt í fluginu norður og
svarið var, nei við tökum
ekki þátt í því, þú þarft
bara að bíða fyrir sunnan
eftir aðgerð.
Jónína G. Andrésdóttir
kt. 271132-4179.
Tapað/fundið
Peysur týndust
HVÍT flíshettupeysa með
bláu munstri framan á
týndist í fyrrasumar og
mosagræn ullartreyja frá
Benetton týndist nú í sum-
ar. Þeir sem hafa orðið var-
ir við peysurnar hafi sam-
band í síma 847-1507.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Nú er hún
Snorrabúð
stekkur
Víkverji skrifar...
ALLTAF er Víkverji jafnforviðaá tækninni sem liggur að baki
bankalínunni, hraðbönkum og
þessu sjálfvirka dóti öllu sem bank-
arnir bjóða uppá nú til dags og er
til mikilla þæginda. Að geta hringt
í bankalínuna og spurt hversu mik-
ið fé er til ráðstöfunar á reikningi
sínum (eða hversu mínusinn er
mikill!), hvernig hægt er að milli-
færa eða borga gíróseðla eða fara í
hraðbankann og sækja reiðufé, hér-
lendis eða erlendis.
Víkverja finnst eiginlega ennþá
merkilegra að geta sótt þar til
gerðan gjaldeyri í Háaleitisútibú
Landsbankans þótt hann sé stadd-
ur einhvers staðar í fjarlægu landi.
Það virðist miklu merkilegra en
heimsækja hraðbanka á Íslandi.
Bara renna kortinu í, stimpla inn
leyninúmerið og seðlarnir vella úr
vélinni.
Þegar hringt er í bankalínuna
veit hann Bjarni Vestmann alltaf
hversu mikið fé Víkverji á inni og
hann virðist aldrei þreytast á að
standa vaktina. Ekki það að Vík-
verji haldi að Bjarni sé alltaf sjálf-
ur við skjáinn og fletti upp stöðunni
þegar maður hringir en allaf þylur
hann upp upphæðirnar og alltaf
virðist það stemma og Víkverji skil-
ur hreint ekki svona galdraverk
tæknimanna og tölvumanna. En
hann þarf heldur ekki að skilja það
til að geta notað það. Kannski verð-
ur Bjarni næst látinn þylja upp fyr-
ir mann ráðgjöf í peningamálum, að
minnsta kosti þegar mínusinn er
orðinn langur og mikill.
x x x
VÍKVERJI getur líka hælt ann-arri þjónustu bankanna sem
hann notfærir sér, en hún er í Bún-
aðarbankanum. Það er sem sé
heimilislínan sem þeir nefna svo.
Kannski hefur Víkverji áður hælt
þessari þjónustu en það gerir ekk-
ert til að minnast á hana aftur. Hún
er þannig vaxin að við áramót setur
Víkverji upp áætlun um allt það
sem borga þarf reglulega yfir árið,
lán, orkureikninga, tryggingar,
sparnaður (ef hann væri nú fyrir
hendi!) og jafnvel símareikningar.
Öllu þessu má demba í heimilislín-
una og síðan er reiknuð út með-
alupphæð á mánuði sem Víkverji
þarf að standa skil á til að dæmið
gangi upp. Engu skiptir hversu háa
upphæð samanlagðir reikningar
gera á mánuði, hvort greiða þarf
5.000, 50.000 eða 100.000 á mánuði,
bankinn jafnar þessu út (og tekur
auðvitað vexti ef hann þarf að
hlaupa undir bagga í stærstu mán-
uðunum) og alltaf greiðir Víkverji
sömu upphæð. Hann losnar þá
sjálfur við að myndast við að sýna
þá fyrirhyggju að eiga umræddar
upphæðir sjálfur á reikningi sínum,
það er miklu auðveldara að fá
bankann til að hlaupa undir bagga í
erfiðu mánuðunum. Um hver mán-
aðamót sendir bankinn viðeigandi
kvittanir og þannig er hægt að
fylgjast með að allt gangi upp sam-
kvæmt áætluninni sem sett var í
upphafi árs. Ef eitthvað kemur
uppá má líka endurskoða eða að-
laga hana þótt á miðju ári sé og allt
er þetta mjög sveigjanlegt og þægi-
legt. Oft er það líka sama fólkið
sem sinnir þessari þjónustu þannig
að hún verður persónulegri fyrir
vikið.
Eftir að Víkverji tók að nota
þessa þjónustu snarfækkaði ferð-
unum í bankann. Þótt bankaferðir
þurfi ekki endilega að vera leið-
inlegar (enda margt huggulegt
starfsfólk í bönkum) er þó margt
skemmtilegra hægt að gera en
standa þar í biðröðum.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Kristrún og Jo Elm
koma í dag. Haukur,
Kyndill, Plitvice og
Clipper Adventurer
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Ozherelye og Haukur
komu í gær.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrif-
stofan er opin alla
miðvikud. frá kl. 14–17.
S. 551 4349. Fataút-
hlutun og fatamóttaka
er opin annan og fjórða
hvern miðvikud. í mán-
uði, frá kl. 14– 17 s.
552 5277. Sumarlokun í
júlí og ágúst.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í síma
Krabbameinsráðgjaf-
arinnar, 800 4040 frá kl.
15–17.
Mannamót
Norðurbrún 1, Furu-
gerði 1 og Hæð-
argarður 31. Fimmtu-
daginn 9. ágúst nk.
verður farið í ferð til
Borgarfjarðar um
Kaldadal að Húsafelli.
Ekið verður að Barna-
fossum og Hraun-
fossum að Reykholti
þar sem snæddur verð-
ur léttur hádeg-
isverður. Þaðan verður
svo ekið um Geld-
ingadraga og Hvalfjörð
til Reykjavíkur. Lagt
verður af stað frá
Norðurbrún 1 kl. 8.30
og síðan teknir farþeg-
ar í Furugerði og Hæð-
argarði. Skráning í
Norðurbrún í síma 568-
6960, í Furugerði í síma
553-6040 og í Hæð-
argarði í síma 568-3132.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–12
opin handavinnustofan,
kl. 13 frjáls spila-
mennska, kl. 13–16.30
opin smíðastofan, kl.
10-16 púttvöllurinn op-
inn.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–16 al-
menn handavinna og
fótaaðgerð, kl. 9.30
morgunkaffi/dagblöð,
kl. 10 banki, kl. 11.15
matur, kl. 13 spiladag-
ur, kl. 15 kaffi. Vegna
mikillar þátttöku verð-
ur önnur borgarferð
farin fimmtudaginn 16.
ágúst, Ekið um borgina
og nýju hverfin skoðuð.
Kaffi í Golfskála
Reykjavíkur, Graf-
arholti. Lagt af stað kl.
13. Skráning í síma
568-5052 í síðasta lagi
fyrir 13. ágúst. Allir
velkomnir. Fimmtudag-
inn 23. ágúst kl. 8 verð-
ur skoðunarferð í
Hrauneyjarfossvirkjun
og nágrenni. Heim-
sækjum Þjóðveld-
isbæinn, Vatnsfells-
svæðið, Hrauneyjar-
fossvirkjun og
Sultartangastöð, komið
við hjá Hjálparfossi.
Hádegisverður, kjöt og
kjötsúpa, snæddur í
Hálendismiðstöðinni.
Hlýr klæðnaður og
nesti. Upplýsingar og
skráning í síma 568-
5052 eigi síðar en
mánudaginn 20. ágúst.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félagsstarf aldraðra á
Suðurnesjum. Í dag
miðvikudaginn 8. ágúst
dagsferð í Þórsmörk.
Lagt af stað kl. 8 frá
SBK. Fólk taki með sér
nesti. Dagana 27.–29.
ágúst er ferð í Skaga-
fjörð. Lagt af stað frá
SBK kl. 9, gist að Hól-
um í Hjaltadal, tvær
nætur með fæði.
Þriðjudaginn 4. sept.
hálfsdagsferð í Borg-
arfjörð, m.a. farið að
Hvanneyri, Borg á
Mýrum og í Borgarnes.
Lagt af stað frá SBK
kl. 12.30. Þeir sem
áhuga hafi á ferð til
Kanaríeyja hafi sam-
band sem fyrst, dvalið
verður á íbúðarhótelinu
Los Tilos, farið verður
um mánaðamótin janú-
ar-febrúar.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl
16.30–18.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting
og verslunin opin til kl.
13, kl. 11.30 matur, kl.
13 föndur og handa-
vinna, kl. 15 kaffi.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Félagsheimilið Hraun-
sel verður opnað aftur
eftir sumarfrí starfs-
fólks mánudaginn 13.
ágúst með félagsvist kl.
13.30 og kynning-
arfundi Pragfara kl. 15.
Þorsteinn Magnússon
kynnir ferðina og tekur
við lokagreiðslum.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–11
morgunkaffi, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 9–12
hárgreiðsla, 11.30–13
hádegismatur, kl. 15–16
eftirmiðdagskaffi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin alla virka daga frá
kl. 10 til 13. Matur í há-
deginu. Göngu-Hrólfar
fara í létta göngu frá
Ásgarði í dag kl. 10.
Fimmtudag: brids kl.
13 og verðlaunafhend-
ing fyrir stigamótið.
Dagsferð 18. ágúst.
Fjallabaksleið syðri í
samvinnu við FEB og
Ferðaklúbbinn Flæki-
fót. Brottför frá
Glæsibæ kl. 8. Leiðsögn
Pálína Jónsdóttir o.fl.
Dagsferð 28. ágúst.
Veiðivötn – Hraun-
eyjar. Brottför frá
Glæsibæ kl. 8. Leiðsögn
Tómas Einarsson. Silf-
urlínan er opin á mánu-
dögum og mið-
vikudögum frá kl. 10 12
fh. í síma 588-2111.
Upplýsingar á skrif-
stofu FEB kl. 10.00 til
16.00 í síma 588-2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæf-
ingar á vegum ÍTR í
Breiðholtslaug á þriðju-
dögum og fimmtudög-
um kl. 9.30. Púttvöll-
urinn er opin virka
daga kl. 9–18, Kylfur
og boltar í afgreiðslu
sundlaugarinnar til
leigu. Allir velkomnir.
Veitingabúð Gerðu-
bergs er opin mánu-
daga til föstudaga kl.
10–16. Félagsstarfið
lokað vegna sumarleyfa
frá 2. júlí–14. ágúst.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
kl. 10.30 boccia, kl. 13
félagsvist, kl. 17 bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. handavinnustofan
opin kl. 9–16. Leiðbein-
andi á staðnum frá kl.
10–17.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin vinnustofa, almenn
handavinna, bútasaum-
ur. kl. 9–17 hárgreiðsla,
kl. 11 banki, kl. 11–12
pútt, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir,
hárgreiðsla.
Mosfellingar, Kjalnes-
ingar og Kjósverjar 60
ára og eldri. Halldóra
Björnsdóttir íþrótta-
kennari er með göngu-
ferðir á miðvikudögum,
lagt af stað frá Hlað-
hömrum: Ganga 1: létt
ganga kl. 16 til 16.30.
Gönguhópur 2: kl.
16.30.
Norðurbrún 1. Fótaað-
gerðastofan opin frá kl.
9–14, kl. 13–13.30 bank-
inn, kl. 14 félagsvist,
kaffi og verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.25
sund, kl. 9 dagblöð og
kaffi, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 11.45
matur, kl. 14.30 kaffi.
Hálfsdagsferð miðviku-
daginn 15. ágúst, lagt
af stað kl. 13, ekið um
Hellisheiði og Grímsnes
að Ljósafossvirkjun.
Þar verður skoðuð
tréútskurðarsýning á
vegum Þjóðminjasafns
Íslands. Ekið um
Grafning til Þingvalla
að Hótel Valhöll. Glæsi-
legt kaffihlaðborð.
Fræðslufulltrúi Þjóð-
garðsins, Einar A. E.
Sæmundsson, tekur á
móti hópnum. Fræðsla
um staðhætti og Þing-
vallakirkja skoðuð.
Leiðsögumaður Nanna
Kaaber. Upplýsingar
og skráning í síma 562-
7077. Athugið Tak-
markaður sætafjöldi.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
hárgreiðsla, kl. 9.30 al-
menn handmennt, kl.
10 morgunstund, fóta-
aðgerðir og bókband
11.45 matur, kl. 13.30
bókband, kl. 13 kóræf-
ing, kl. 14.30 versl-
unarferð, kl. 14.30 kaffi.
Minningarkort
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrif-
stofutíma. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
MS-félag Íslands.
Minningarkort MS-
félagsins eru afgreidd
á Sléttuvegi 5, Reykja-
vík, og í síma 568-8620
og myndrita sími 568-
8688.
Í dag er miðvikudagur 8. ágúst,
220. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Réttið því úr máttvana höndum
og magnþrota knjám.
(Hebr. 12, 12.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 tónverk, 8 klippur, 9
skýra, 10 liðin tíð, 11
ferðalag, 13 sárum, 15
sæti, 18 skyggnist um, 21
dimmviðri, 22 dökk, 23
blaðs, 24 yfirburða-
manns.
LÓÐRÉTT:
2 órói, 3 þolna, 4 bumba,
5 kjánum, 6 reykir, 7
fang, 12 sjávardýr,
14 dveljast, 15 sæti, 16
login, 17 smá, 18 kalt veð-
ur, 19 sori, 20 gangsetja.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 mælum, 4 hæfur, 7 tíkin, 8 lítri, 9 dót, 11 róar,
13 ókát, 14 áleit, 15 hass, 17 taut, 20 ógn, 22 róður, 23
æskan, 24 Arnar, 25 torga.
Lóðrétt: 1 mætur, 2 lokka, 3 mund, 4 holt, 5 fátæk, 6
reist, 10 ódeig, 12 rás, 13 ótt, 15 horfa, 16 súðin, 18 ask-
ur, 19 tinda, 20 órar, 21 nægt.