Morgunblaðið - 08.08.2001, Page 55

Morgunblaðið - 08.08.2001, Page 55
HIÐ grínaktuga gengi, Jackie Chan og Chris Tucker, sparkaði heilli Apaplánetu úr efsta sæti bandaríska bíólistans um síðustu helgi – og þá væntanlega með snarborulegu flugsparki – er mynd þeirra, Rush Hour 2, tyllti sér á toppinn. Rúmlega sex og hálfur milljarð- ur íslenskra króna rann í kassann af tilefninu, heldur minna en Apaplánetan náði að raka inn helgina á undan er hún var á spor- braut um fyrsta sætið. Eins og lög gera ráð fyrir vestra er þegar byrjað að leggja drög að þriðju Rush Hour-myndinni. Beint í þriðja sætið sest svo ný gamanmynd frá Disney, The Princess Diaries, og þriðja nýja myndin á topp 10 listanum er Original Sin, funheitur rómantíker með Angelinu Jolie og Antonio Banderas í aðalhlutverkum, en hún hafnaði í sjötta sæti eftir upp- gjör helgarinnar. Sá árangur olli víst talsverðum vonbrigðum en áhugaleysi, bæði hjá áhorfendum og gagnrýnendum, sem flestir hafa snúið tveimur þumlum niður, er talið helsta ástæða þessa. Grín og spenna virðist vera það sem virkar á bíógesti á sumrin; eitthvað rólegt og rómantískt verður greinilega bíða eftir haust- laufum og arineldi. Tucker og Chan rjúka á toppinn Ruðst upp úr ræsinu: Chris Tucker og Jackie Chan í hlutverkum sín- um í Rush Hour 2.                                                  !"  #  $  #$  %            !" ! "  !" !" !" !" !" ! " ! " !"    &&'() * +',) -' ) *+&'() ,.'*) &'+) ,*'&) .,'-) (&'() */&'/)   Af æðibunugangi MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 55 MAGNAÐ BÍÓ Hláturinn lengir lífið. VARÚÐ! Þú gætir drepist úr hlátri... aftur! Myndin sem manar þig í bíó Sýnd. 6, 8 og 10.  Kvikmyndir.com  Hausverk.is Geggjuð gamanmynd frá leikstjóra Ghostbusters! Sýnd. 6, 8 og 10. betra en nýtt Dýrvitlaus og drepfyndinn Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 8 og 10 Nýr og glæsilegur salur Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sími 461 4666 samfilm.is FYRIR 990 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ Sýnd kl. 8. Vit nr 243. Sýnd kl. 6. Íslenskt tal. Vit nr. 245 Sýnd kl. 10. Enskt tal Vit nr. 244 www.sambioin.is Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit nr. 261. Keflavík - sími 421 1170 - samfilm.is FYRIR 990 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ www.sambioin.is Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 8 Ísltal.Vit 245Sýnd kl. 10. Vit nr 255 Sýnd kl. 8 Hláturinn lengir lífið. VARÚÐ! Þú gætir drepist úr hlátri... aftur! Ævintýrið góða sem aldrei var sagt frá …fyrr en nú.  DV Mbl Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. l Kvikmyndir.com Hláturinn lengir lífið. VARÚÐ! Þú gætir drepist úr hlátri... aftur! Hláturinn lengir lífið. VARÚÐ! Þú g tir drepist úr hlátri... aftur! Meira miskunnarleysi. Meiri ósvífni. Myndin sem manar þig í bíó Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Ný eyja. Nýjar tegundir. Nýjar hættur. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i.10 ára. Allt er þegar þrennt er. Myndin opnaði með þvílíkum látum í Bandaríkjunum nú fyrir stuttu. Júragarðurinn 1&2 var aðeins upphitun. Nú hefst rússíbanaspennan fyrir alvöru og af fullum krafti. Besta Júragarðsmyndin til þessa. Með Sam Neill (Jurassic Park, Event Horizon), William H. Macy (Fargo, Boogie Nights), Téa Leoni (The Family Man, Bad Boys), Alessandro Nivola (Face/Off) og Trevor Morgan (The Patriot). Leikstjóri: Joe Johnston (Jumanji, Honey, I Shrunk The Kids, The Rocketeer). Sýnd kl. 8. Dýrvitlaus og drepfyndinn Strik.is www.laugarasbio.is MTV-sjónvarpsstöðin fagnar um þessar mund- ir 20 ára útsendingaraf- mæli sínu. Það var eina mínútu yfir miðnætti hinn 1. ágúst árið 1981 sem stöðin fór fyrst í loftið. Fyrstu orðin sem heyrðust voru: „Dömur mínar og herrar, rokk og ról.“ Fyrsta klukkutím- ann voru svo spiluð tón- listarmyndbönd með Rod Stewart, The Who og Cliff Richard svo fá- einir séu nefndir. Sjónvarpsstöðin hefur unnið mikið brautryðj- andastarf á sviði tón- listar og hefur hjálpað ýmsum óreyndum tón- listarmönnum að feta sín fyrstu spor. MTV var upphaflega aðeins í Bandaríkjunum en árið 1987 var byrjað að senda út í Amsterdam og Evrópa kynntist bákninu, sem nú er aðgengilegt í 140 löndum og er áætlað að 340 milljónir manna horfi á. Stöðin hefur einnig staðið fyrir ýmsum merkisviðburðum í gegnum tíðina. Árið 1985 stóð stöðin fyrir Live Aid-góðgerðartónleikunum og vakti athygli á brýnu málefni. MTV-tónlistar- og kvikmynda- verðlaunin eru veitt ár hvert þar sem flestar af skærustu stjörnum samtímans koma saman og taka á móti verðlaunum. Stöðin hefur einnig sýnt sjónvarpsþætti sem notið hafa gífurlegra vin- sælda og ber þar að nefna fremsta í flokki kumpánana Beavis og Butthead. Í tilefni afmælisins tóku starfsmenn stöðv- arinnar saman lista yfir mest umbeðnu tónlistar- myndböndin frá upphafi útsendinga og fylgja þau hér á eftir í réttri röð: 1. „Smells Like Teen Spirit“ með Nirvana. 2. „Like a Prayer“ með Madonnu. 3. „Thriller“ með Micha- el Jackson. 4. „The Real Slim Shady“ með Eminem. 5. „Where the Streets Have No Name“ með U2. 6. „Purple Rain“ með Prince. 7. „Wannabe“ með Spice Girls. 8. „Baby One More Time“ með Britney Spears. 9. „Crazy“ með Aerosmith. 10. „Ray of Light“ með Madonnu. MTV-sjónvarpsstöðin á tímamótum Söngkonan Madonna tekur hér við MTV-verðlaununum fyrir myndband sitt við lagið „Music“. Tveggja tuga tónlistarveisla Reuters

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.