Morgunblaðið - 25.08.2001, Blaðsíða 1
192. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 25. ÁGÚST 2001
BOEING 747-400-þotu frá Saudi
Arabian-flugfélaginu var ekið of-
an í frárennslisskurð fyrir mons-
únregnvatn á flugvellinum í
Kúala Lúmpúr í Malasíu og sat
hún þar föst í gær. Engan sakaði.
Verið var að aka vélinni, sem
vegur um 800 tonn, að brottfar-
arhliði þar sem 319 farþegar biðu
þess að stíga um borð og var
ferðinni heitið til Jeddah. Af óút-
skýrðum ástæðum misstu flug-
mennirnir stjórn á vélinni og
rann hún niður í skurðinn. Sex
manna áhöfn var um borð og yf-
irgaf vélina um neyðarútgang. Að
sögn talsmanns flugfélagsins
verður vélin þar sem hún er nið-
urkomin uns sérfræðingar koma
frá Jeddah og rannsaka málið.
Reuters
Ók ofan
í skurð
NATO vildi ekki gefa upp í gær
þann fjölda vopna sem skæruliðar
væru reiðubúnir að afhenda, en haft
var eftir vestrænum erindrekum í
Makedóníu að hermenn bandalagsins
myndu taka við um 3.000 vopnum.
Samkomulagið var kynnt stjórnvöld-
um í Makedóníu síðdegis í gær og
áttu viðræður um það að halda áfram
í dag.
Óvíst er um fjölda þeirra vopna
sem skæruliðar hafa undir höndum,
en innanríkisráðuneyti Makedóníu
telur þau vera allt að 85.000. Því var
talið líklegt að harðlínumenn innan
makedónsku stjórnarinnar yrðu treg-
ir til að fallast á þá tölu, sem hermt er
að samið hafi verið um í gær. Atlants-
hafsbandalagið fullyrðir hins vegar
að tölur innanríkisráðuneytisins séu
of háar og Gunnar Lange, yfirmaður
liðs NATO í Makedóníu, sagði í gær
að sá fjöldi sem samkomulag náðist
um væri í samræmi við mat banda-
lagsins.
Hermenn frá 15 NATO-ríkjum
héldu áfram að streyma til Makedón-
íu í gær, en stjórn bandalagsins ákvað
á miðvikudag að senda alls um 4.500
manna lið til að hafa umsjón með af-
vopnunarþætti friðarsamkomulags-
ins sem náðist fyrr í þessum mánuði.
Áformað að afvopnun hefjist
í byrjun næstu viku
Áformað er að NATO hefji afvopn-
un skæruliða í byrjun næstu viku, en
hermenn bandalagsins hafa aðeins
umboð til að taka við vopnum sem
skæruliðar eru fúsir að afhenda, ekki
gera vopn upptæk. Stefnt er að því að
ljúka verkefninu á innan við 30 dög-
um.
Stjórnmálaskýrendur segja af-
vopnun skæruliðanna fyrst og fremst
þjóna því táknræna hlutverki að sýna
fram á að þeir séu reiðubúnir að
framfylgja friðarsamningum. Bent
hefur verið á að skæruliðar eigi hægt
um vik að vígbúast á ný og eins hafa
borist fregnir af því að vopnum hafi
verið smyglað yfir landamærin til
Kosovo, þar sem þau verði geymd uns
aðgerð NATO er yfirstaðin.
NATO og skæruliðar í Makedóníu ná samkomulagi
Samið um fjölda
afhentra vopna
Skopje. AFP, AP.
TUGÞÚSUNDIR manna fylgdust í
gær með stærstu hersýningunni í
sögu Úkraínu, sem haldin var í til-
efni þjóðhátíðardags landsins.
Úkraínumenn minntust þess í
gær að áratugur var liðinn síðan
úkraínska þingið lýsti yfir sjálfstæði
frá Sovétríkjunum, en landið fékk
formlegt sjálfstæði síðar sama ár.
Voru Vladímír Pútín Rússlands-
forseti og Borís Trajkovskí, forseti
Makedóníu, viðstaddir hátíðahöldin
í boði Leoníds Kútsjma, forseta
Úkraínu. Sagði Kútsjma í ávarpi
sínu að versta erfiðleikaskeiðið væri
að baki, en skoðanakannanir sýna
að mikill meirihluti landsmanna
hefur orðið fyrir vonbrigðum með
þróun mála síðasta áratug.
Á myndinni sjást herflugmenn
fylkja liði eftir Kreschatik-stræti,
aðalgötunni í höfuðborginni Kiev.
Reuters
Hersýning á
sjálfstæðisafmæli
IAIN Duncan Smith, sem keppir um
það við Kenneth Clarke að verða
næsti leiðtogi breska Íhaldsflokksins,
átti heldur í vök að verjast í gær er
upplýst hafði verið, að einn ráðgjafa
hans tengdist þjóðernissinnuðum
öfgaflokki.
Ráðgjafinn, Edgar Griffin, var rek-
inn úr Íhaldsflokknum er í ljós kom,
að sonur hans, Nick Griffin, er for-
maður Breska þjóðarflokksins. Er
Jean, eiginkona Edgars Griffins,
einnig félagi í flokknum og var raun-
ar í framboði fyrir hann í kjördæmi
Duncans Smiths í síðustu þingkosn-
ingum. Þá er því haldið fram í síðdeg-
isblaðinu Mirror, að Edgar Griffin
hafi sjálfur svarað í síma þar sem
veittar voru upplýsingar um starf-
semi Breska þjóðarflokksins.
Griffin var varaformaður kosn-
inganefndar Duncans Smiths í Wales
og er þetta mál mjög vandræðalegt
fyrir hann sökum þess, að hann hefur
sjálfur margsinnis þurft að vísa á bug
ásökunum um „pólitískar öfgar“.
Duncan Smith sakaði í gær Kenn-
eth Clarke um að reyna að nýta sér
þessa uppákomu en Clarke neitaði
því og sagði, að hann fagnaði því, að
Griffin hefði verið rekinn.
Í skoðanakönnun, sem birt var í
fyrradag, hafði Evrópusambands-
andstæðingurinn Duncan Smith
heldur vinninginn yfir Evrópu-
sinnann Clarke en baráttan milli
þeirra hefur harðnað mikið síðustu
daga.
Sammála þjóðarflokknum
Edgar Griffin neitaði því harðlega,
að hann væri félagi í Breska þjóð-
arflokknum. Hann kvaðst hins vegar
í viðtali við BBC vera sammála
flokknum um það, að það ætti að
reyna að fá blökkumenn og fólk af as-
ískum ættum til að fallast á brott-
flutning frá Bretlandi. „Þetta eru
skoðanir hins venjulega íhaldsmanns.
Það er ekkert sérstakt við skoðanir
mínar að þessu leyti,“ sagði Griffin og
bætti við, að hann harmaði, að starfi
sínu fyrir Íhaldsflokkinn í 53 ár
skyldi ljúka með þessum hætti.
Leiðtogabaráttan í breska Íhaldsflokknum fer harðnandi
Kosningaráðgjafi rekinn
London. AFP.
SÍESTAN, eftirmiðdagshvíldin
sem tíðkast í hinum spænska
menningarheimi, hefur á norð-
lægari slóðum oft verið talin til
marks um leti og litla vinnusemi.
Ný rannsókn leiðir þvert á móti í
ljós að síestan er afkastahvetj-
andi og eykur framleiðni.
Rannsóknin er gerð af spænsk-
um vísindamönnum og voru nið-
urstöður hennar kynntar í gær.
Þar kemur fram að 10–40 mín-
útna blundur í eftirmiðdaginn
veitir heilanum og vöðvum líkam-
ans mikilvæga hvíld. Eftir síest-
una sé fólk endurnært, einbeit-
ingin sé betri og vinnuþrekið
meira. Vísindamennirnir vara þó
við því að eftirmiðdagslúrinn vari
lengur en í 40 mínútur.
„Síestan“
eykur
framleiðni
Sevilla. AFP.
HARALDUR Noregskonungur
sagði í gær í viðtali við norskt dag-
blað að hann gerði sér grein fyrir
því að sumir landa hans hefðu efa-
semdir um brúðkaup Hákonar
krónprins og Mette-Marit Tjessem
Høiby, en þau verða gefin saman í
dómkirkjunni í Ósló í dag.
„Ég reyndi þetta sjálfur á sínum
tíma. Þá var það sami hópurinn og
nú sem var andvígur hjónabandi
mínu. Ég held þó að það hafi bara
gengið vel,“ sagði Haraldur í viðtali
við VG. Sagði hann að Hákon, son-
ur sinn, væri mun þroskaðri en
hann hefði verið 28 ára gamall.
Hældi hann einnig Mette-Marit á
hvert reipi og kvaðst hafa áttað sig
á því mjög fljótlega að þeim Hákoni
væri full alvara með sambandinu.
Reuters
Reyndi það
sama og
Hákon
ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ (NATO) og albanskir skæruliðar
í Makedóníu komust í gær að samkomulagi um fjölda þeirra vopna
sem skæruliðar hyggjast láta af hendi í tengslum við friðarsamninga.