Morgunblaðið - 25.08.2001, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 25.08.2001, Blaðsíða 50
DAGBÓK 50 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Laugarnes kemur í dag, Baldvin Þorsteinsson fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sigas Commander kem- ur og fer í dag, Rán fór í gær. Viðeyjarferjan. Tíma- áætlun Viðeyjarferju: Mánud. til föstudaga til Viðeyjar kl. 13, 14 og 15, frá Viðey kl. 15.30 og 16.30. Laugar- og sunnudaga: Fyrsta ferð til Viðeyjar kl. 13, síðan á klukkustundar fresti til kl. 17, frá Viðey kl. 13.30 og síðan á klukku- stundar fresti til kl. 17.30. Kvöldferðir eru föstu- og laugardaga: til Viðeyjar kl. 19, 19.30 og 20, frá Viðey kl. 22, 23 og 24. Sérferðir fyrir hópa eftir samkomulagi. Viðeyjarferjan, sími 892 0099. Lundeyjarferðir dag- lega, brottför frá Við- eyjarferju kl.10.30 og 16.45, með viðkomu í Viðey u.þ.b. 2 klst. Sími 892 0099 Fréttir Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, opinn þriðjud. og fimmtud. kl. 14–17. Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Hamraborg 20a. Fataúthlutun kl. 17–18. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sól- vallagötu 48. Skrifstofan er opin alla miðvikud. frá kl. 14–17. S. 551 4349. Fataúthlutun og fatamóttaka er opin annan og fjórða hvern miðvikud. í mánuði, frá kl. 14–17, s. 552 5277. Sumarlokun í júlí og ágúst. Félag frímerkjasafn- ara. Opið hús laug- ardaga kl. 13.30–17. Mannamót Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Ganga kl. 10 frá Hraun- seli. Rúta frá miðbæ kl. 9.50. Á mánudag verður félagsvist kl. 13.30. Á þriðjudag hefjast saum- ar aftur eftir sumarfrí. Innritun á myndlist- arnámskeið er hafin. Félag eldri borgara Kópavogi. Púttað verð- ur á Listatúni í dag, laugardag, kl. 11. Mæt- um öll og reynum með okkur. Garðabæ. Miðvikudag- inn 29. ágúst er ferð í Elliðaárdal. Rúta frá Kirkjuhvoli kl.13.30. Rafveitustöðin skoðuð. Gerðuberg, félagsstarf. Sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug mánu- daga og fimmtudaga kl. 9.30 (ath. breyttan tíma), kennari Edda Baldursdóttir, boccia þriðjudaga kl. 13 og föstudaga kl. 9.30, kl. 15.30 dans hjá Sigvalda á mánudaginn (ekkert skráningargjald). Gjábakki, Fannborg 8. Leikfimin hefst í Gjá- bakka þriðjudaginn 4. sept., skráning er hafin. Fyrirhugað er að kenna kínverska leikfimi í Gjá- bakka í vetur. Áhuga- samir skrái þátttöku sem fyrst. Vesturgata 7. Búta- saumur hefst þriðjud. 4 sept. Myndmennt og postulínsmálun hefst miðvikud. 5 sept. Kór- æfingar hefjast mánud. 17. sept. Félag fráskilinna og einstæðra. Fundur verður í kvöld kl. 21 í Konnakoti, Hverfisgötu 105. Nýir félagar vel- komnir. Munið gönguna mánu- og fimmtudaga. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Skagfirðingafélagið í Reykjavík verður með félagsvist í Drangey, Stakkahlíð 17, þriðju- daginn 28. ágúst kl. 20, kaffiveitingar. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum í Reykjavík: Skrifstofu LHS, Suð- urgötu 10, s. 552-5744, 562-5744, fax 562-5744, Laugavegs Apóteki, Laugavegi 16, s. 552-4045, hjá Hirti, Bónushúsinu, Suður- strönd 2, Seltjarnarnesi, s. 561-4256. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Vesturlandi: Á Akranesi: í Bóka- skemmunni, Stillholti 18, s. 431-2840, Dalbrún ehf., Brákarhrauni 3, Borgarnesi og hjá Elínu Frímannsd., Höfða- grund 18, s.431-4081. Í Grundarfirði: í Hrann- arbúðinni, Hrannarstíg 5, s. 438-6725. Í Ólafsvík hjá Ingibjörgu Pétursd., Hjarðartúni 1, s. 436-1177. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Vestfjörðum: Á Suðureyri: hjá Gesti Kristinssyni, Hlíðavegi 4, s. 456-6143. Á Ísafirði: hjá Jóni Jóhanni Jónss., Hlíf II, s. 456-3380, hjá Jónínu Högnad., Essó- versluninni, s. 456-3990 og hjá Jóhanni Káras., Engjavegi 8, s. 456- 3538. Í Bolungarvík: hjá Kristínu Karvelsd., Mið- stræti 14, s. 456-7358. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Norðurlandi: Á Blönduósi: blómabúð- in Bæjarblómið, Húna- braut 4, s. 452-4643. Á Sauðárkróki: í Blóma- og gjafabúðinni, Hóla- vegi 22, s. 453-5253. Á Hofsósi: Íslandspóstur hf., s. 453-7300, Strax, matvöruverslun, Suð- urgötu 2–4, s. 467-1201. Á Ólafsfirði: í Blóma- skúrnum, Kirkjuvegi 14b, s. 466-2700, og hjá Hafdísi Kristjánsdóttur, Ólafsvegi 30, s. 466-2260. Á Dalvík: í Blómabúðinni Ilex, Hafnarbraut 7, s.466- 1212, og hjá Valgerði Guðmundsdóttur, Hjarðarslóð 4e, s. 466- 1490. Á Akureyri: í Bókabúð Jónasar, Hafn- arstræti 108, s. 462- 2685, í bókabúðinni Möppudýrinu, Sunnu- hlíð 12c, s. 462-6368, Pennanum Bókvali, Hafnarstræti 91–93, s. 461-5050, og í blóma- búðinni Akur, Kaup- vangi, Mýrarvegi, s. 462-4800. Á Húsavík: í Blómabúðinni Tamara, Garðarsbraut 62, s. 464- 1565, í Bókaverslun Þórarins Stefánssonar, s. 464-1234, og hjá Skúla Jónssyni, Reykjaheið- arvegi 2, s. 464-1178. Á Laugum í Reykjadal: í Bókaverslun Rann- veigar H. Ólafsd., s.464- 3191. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Austfjörðum. Á Seyðisfirði: hjá Birgi Hallvarðssyni, Botna- hlíð 14, s. 472-1173. Á Neskaupstað: í blóma- búðinni Laufskálanum, Kristín Brynjarsdóttir, Nesgötu 5, s. 477-1212. Á Egilsstöðum: í Blómabæ, Miðvangi, s. 471-2230. Á Reyðarfirði: hjá Grétu Friðriksd., Brekkugötu 13, s. 474-1177. Á Eskifirði: hjá Aðalheiði Ingimund- ard., Bleikárshlíð 57, s. 476-1223. Á Fáskrúðs- firði: hjá Maríu Ósk- arsd., Hlíðargötu 26, s. 475-1273. Á Hornafirði: hjá Sigurgeir Helga- syni, Hólabraut 1a, s. 478-1653. Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Stangarhyl 1, 110 Reykjavík. S. 570 5900. Fax: 570 5901. Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum Kvenna- deildar RRKÍ á sjúkra- húsum og á skrifstofu Reykjavíkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568-8188. Minningarkort Hvíta- bandsins fást í Kirkju- húsinu, Laugavegi 31, s. 562-1581, og hjá Krist- ínu Gísladóttur, s. 551-7193, og Elínu Snorradóttur, s. 561- 5622. Minningarkort Sjúkra- liðafélags Íslands eru send frá skrifstofunni, Grensásvegi 16, Reykja- vík. Opið virka daga kl. 9–17. S. 553-9494. Í dag er laugardagur 25. ágúst, 237. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Er Ísbóset sonur Sáls frétti, að Abner væri dauður í Hebron, féllust honum hendur, og allur Ísrael varð óttasleginn. (II Sam. 4, 1.–2.) MIKIÐ var um dýrðir á menningarnótt Reykjavík- urborgar sl. helgi. Þar var fjölbreytnin í fyrirrúmi, söngur, dans og gleði var áberandi á götum miðbæj- arins, fólkið almennt af- slappað, þræddi verslanir og gallerí, dillaði sér með skrautklæddum dönsurum og tók lagið með okkar bestu söngvurum. Margt var óvenjulegt og spennandi að sjá á menning- arnóttinni, meðal þess var eldskúlptúr Tedda í gömlu járnsmiðjunni á horni Klapparstígs og Skúlagötu. Þar hefur Teddi vinnuað- stöðu og að gefnu tilefni var hann með sýningu í portinu og sendi listagyðjunni kveðju að hætti víkinga. Teddi reisti bálköst mikinn er minnti á skip og kl. 22.20 steig fley Tedda til himins. Á meðan eldurinn vann á viðnum hljómaði söngur gregorískra munka um svæðið og myndaðist yfir- veguð stemmning. Veður var gott og gengu menn og konur um svæðið og skoðuðu verk Tedda á meðan barkurinn brann til kaldra kola. Fólk var al- mennt sammála um að gjörningurinn hefði heppn- ast vel. Guðmundur. Hvert er hlutverk dómsmálaráðherra? ER það ekki í þínum verka- hring að standa vörð um þegna landsins? Hvernig má það vera að svo glæp- samlegt athæfi eins og fram kemur í fréttum um sýning- ar á misþyrmingu barna og hvers kyns ofbeldi á fólki sé látið óáreitt, fái að viðgang- ast jafnvel árum saman og auðvelt sé að nálgast efnið. Jafnvel sé þessum óþverra ýtt að fólki t.d. í blöðum með tilvísun á netslóðir sem inni- halda þessi efni. Ég fer fram á að allt sé gert, hæstvirtur dómsmálaráðherra, til að uppræta þessar síður og draga þá menn til ábyrgðar sem að þessu standa. Ef vilji er fyrir hendi og allir sem einn taka höndum saman gagnvart þessari yfirþyrm- andi illsku mun þetta tak- ast. Flest okkar vilja búa við frið og náungakærleik. Það erum við, fólkið í landinu, sem ákveðum hvaða gildi mannlífs eru í heiðri höfð. Fréttamenn og almenn- ingur, stöndum saman vörð gegn hvers konar spillingu, svo gott sé að búa í landinu okkar. Kæri dómsmálaráðherra, ég bið þig að svara þessu bréfi. Hvernig hyggst þú taka á þessum málum? Virðingarfyllst, Kristbjörg Stella Þorsteinsdóttir. Fyrirspurn – Ægisíða LESANDI blaðsins hafði samband við Velvakanda og var hann að velta því fyrir sér hvort götuheiti Ægisíðu í Reykjavík sé rétt stafsett á götuskilti, en þar er nafnið ritað með einu s. Lesandinn hélt að götunafnið væri dregið af orðinu „ægir“ og ætti þar af leiðandi að vera skrifað með tveimur s-um. Er einhver sem gæti gefið lesanda skýringu á þessu? Þakkir MIG langar enn og aftur að þakka því góða fólki og fyr- irtækjum, sem hafa sent mér penna undanfarið. En alltaf er hægt að taka við meiru. Ég er mjög áhuga- söm um pennasöfnun og set þá alla í möppur og raða eft- ir númerum og frá hverjum pennarnir eru. Kærar þakkir, Helga Bergmann, Hátúni 12, Rvík. Tapað/fundið Bronco-drengjahjól í óskilum BRONCO-drengjahjól fannst á svæði 104 í byrjun ágúst. Upplýsingar í síma 568-7993. Bonzo-sandalar og anórakkur í óskilum RAUÐIR Bonzo-barna- sandalar og grænn anó- rakkur eru í óskilum í Esso- skálanum á Patreksfirði. Upplýsingar í síma 456- 1599. Giftingarhringur fannst á Laugarvatni GIFTINGARHRINGUR fannst í sundlauginni á Laugarvatni fyrir u.þ.b. ½ mánuði. Upplýsingar í síma 486-1251. Dýrahald Gosi er týndur GOSI er 10 ára fress til heimilis á Blómvallagötu 10. Hann hefur verið týndur í rúma viku. Gosi er svartur að lit en aðeins farinn að grána. Hann er eyrna- merktur útiköttur, en hræð- ist fólk úti við. Þeir sem hafa orðið varir við Gosa eru beðnir um að hafa samband í síma 551-7881 eða 587- 3171. Högni í óskilum UNGUR svartur og hvítur högni er í óskilum í Álf- heimahverfinu. Vinsamlega hafið samband í síma 553- 5251. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Menningar- nótt 2001 Víkverji skrifar... MEÐAL áhugamanna um knatt-spyrnu hefur lánleysi Íslands- meistara KR á þessu keppnistímabili verið eitt helsta umræðuefnið, sem von er. Fáir bjuggust við að liðið myndi lenda í þeirri stöðu í lok Ís- landsmótsins að heyja baráttu upp á líf og dauða fyrir sæti sínu í deild hinna bestu enda hefur gamla „vest- urbæjarstórveldið“ átt velgengni að fagna á undanförnum árum og var spáð áframhaldandi velgengni í ár. Staða liðsins nú minnir okkur hins vegar á hversu gæfan er fallvölt og stutt milli hláturs og gráturs, ekki síður í knattspyrnunni en á öðrum sviðum mannlífsins. Ekki er þó öll nótt úti enn og góður sigur KR á Grindavík nú í vikunni hefur sjálfsagt blásið þeim svarthvítu auknum baráttuanda í brjóst fyrir þau átök sem framundan eru. En hvort sem KR-ingum tekst að halda sér uppi í deildinni eða ekki geta þeir eflaust dregið ýmsa lærdóma af nöt- urlegri reynslu þessarar leiktíðar. Eitt er til dæmis að stilla ávallt vænt- ingum í hóf og annað að leita ekki langt yfir skammt varðandi leik- menn. Víkverji vill ennfremur vekja at-hygli á þeim misskilningi, sem stundum kemur upp í umræðunni um botnbaráttuna, að því fylgi óheyrileg- ur ferðakostnaður og óþægindi að falla í fyrstu deild. Staðan nú bendir þvert á móti til að sú deild verði á næsta sumri „heimilislegt“ samsafn rótgróinna knattspyrnuliða af höfuð- borgarsvæðinu með tveimur til þrem- ur undantekningum. Akureyrarliðin KA og Þór fara að öllum líkindum upp í efstu deild og tvö lið af höfuð- borgarsvæðinu fara niður í staðinn þar sem botnbaráttan stendur milli Breiðabliks, KR, Fram og Vals. Úr annarri deild koma væntanlega Haukar frá Hafnarfirði og Aftureld- ing úr Mosfellsbæ. Í fyrstu deild verða fyrir Þróttur, Víkingur, Stjarn- an og hugsanlega nær ÍR að halda sér uppi á kostnað Tindastóls. Af dreif- býlisliðunum verða þá aðeins eftir í fyrstu deildinni Leiftur frá Ólafsfirði og knattspyrnulið Dalvíkur. Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Stuðningsmenn þeirra liða sem falla í fyrstu deild í ár geta altént huggað sig við að næsta sumar geta þeir farið hjólandi á flesta úti- leiki, eða eins og Pollýanna sagði: „Verra gæti það verið...“ x x x VÍKVERJI hefur með stolti fylgstmeð glæsilegum sigrum Bjark- ar Guðmundsdóttur á listabrautinni á undanförnum árum, enda alltaf ánægjulegt þegar landinn stendur sig vel á alþjóðavettvangi. Nú er nýhafin hljómleikaferð hennar um Evrópu þar sem hún kemur fram með sin- fóníuhljómsveit og grænlenskum stúlknakór og samkvæmt heimildum frá París hlaut hún afar lofsamlega dóma í frönskum fjölmiðlum eftir opnunartónleikana þar nýverið. Í þessu sambandi langar Víkverja, svona til gamans, að skjóta því hér inn að þegar hann var í sumarleyfi í Barcelona í júlí síðastliðnum kom frétt í borgarsjónvarpinu þess efnis að Björk myndi halda tónleika í Lic- eu-óperuhúsinu í Barcelona í nóvem- ber næstkomandi. Að það skuli hafa þótt fréttnæmt í júlí að von væri á söngkonunni til borgarinnar eftir fjóra mánuði segir auðvitað sína sögu um frægð og vinsældir Bjarkar á al- þjóðavettvangi. LÁRÉTT: 1 klúrs, 4 nabbar, 7 kvæði, 8 lofum, 9 erfiði, 11 dægur, 13 grenja, 14 skriðdýrið, 15 drukkin, 17 þefa, 20 heiður, 22 fim, 23 faðms, 24 drykkjurút- ar, 25 magrar. LÓÐRÉTT: 1 óþétt, 2 logið, 3 geð, 4 húsgagn, 5 fugl, 6 lang- loka, 10 snagar, 12 álít, 13 elska, 15 hófdýr, 16 fiskilínan, 18 fífl, 19 áhöld, 20 guð, 21 mjög. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 lundarfar, 8 súgur, 9 gutla, 10 gin, 11 rorra, 13 skapa, 15 pakki, 18 spöng, 21 lok, 22 spons, 23 önduð, 24 langskera. Lóðrétt: 2 urgur, 3 durga, 4 ragns, 5 aftra, 6 ásar, 7 gata, 12 rok, 14 kóp, 15 písl, 16 krota, 17 ilsig, 18 skökk, 19 öldur, 20 gæði. K r o s s g á t a 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.