Morgunblaðið - 25.08.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BJÖRN Bjarnason mennta-
málaráðherra opnaði í gær nýjan
lífsleiknivef fyrir börn, leikni.is.
Vefurinn er gagnvirkur og er
ætlaður fyrir börn á aldrinum 8–12
ára til notkunar jafnt í skólastarfi
sem leik. Hann er meðal annars ætl-
aður til kennslu í lífsleikni í grunn-
skólum, þar sem farið er út fyrir
hefðbundið námsefni með umfjöll-
un um lífið og umhverfið.
Á leikni.is stjórna börnin fjár-
málum í eign landi, takast á við ým-
is verkefni sem því fylgja og hjálpa
íbúum landsins við rekstur þjóð-
arbúsins. Í gegnum leik kynnast
börnin þannig bæði grunnþáttum
efnahagslífsins og rekstri heimilis-
ins. Ætlunin er að endurnýja vefinn
reglulega með fjölbreyttum verk-
efnum fyrir einn eða fleiri og hent-
ar vefurinn því vel bæði til notk-
unar í skólastarfi og við tölvuna
heima.
Vefurinn leikni.is er byggður á
kennsluaðferð Herdísar Egils-
dóttur kennara, Landnámsaðferð-
inni Nýtt land – Ný þjóð, en hún
hefur notað þessa aðferð við
kennslu allt frá árinu 1975. Bókin
Nýtt land – Ný þjóð, sem kom út
fyrir nokkrum árum, verður gefin
út í Bandaríkjunum á næstunni,
þannig að hróður þessarar að-
ferðar hefur borist víða. Þeir sem
standa að baki leikni.is eru, auk
Herdísar, Listfengi ehf. og Íslands-
banki.
Börn kynnast
grunnþáttum efna-
hagslífsins á leikni.is
Morgunblaðið/Billi
Björn Bjarnason menntamálaráðherra opnar vefinn leikni.is.
Lýsir yfir
framboði
ÓLAFUR Örn Haraldsson alþing-
ismaður hefur ákveðið að bjóða sig
fram í Reykjavíkurkjördæmi norð-
ur í alþingiskosningum 2003, en þá
verður Reykjavík tvö kjördæmi
Reykjavík norður og Reykjavík
suður.
Ólafur Örn sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði oft
verið spurður að því eftir að ljóst
var að kjördæmin yrðu tvö í
Reykjavík hvorum megin hann
myndi bjóða sig fram og hann teldi
tímabært að gefa ákveðnar yfirlýs-
ingar um það nú þegar líf væri að
færast í stjórnmálin eftir sumar-
leyfi og vinna að undirbúningi að
skiptingu félaga Framsóknar-
manna í Reykjavík væri að aukast.
Ólafur sagði að hann hefði fengið
mjög góð viðbrögð frá stuðnings-
mönnum Framsóknarflokksins
vegna þessarar ákvörðunar sinnar
og það stæði þétt að baki hans.
Ólafur Örn hefur setið á Alþingi
frá árinu 1995. Hann var í öðru
sæti á lista Framsóknarflokksins
við alþingiskosningarnar 1999, en
varð fyrsti þingmaður Framsókn-
arflokksins í kjördæminu þegar
Finnur Ingólfsson lét af þing-
mennsku.
Gert við
Mánatind á
Ísafirði
VIÐGERÐIR á togskipinu Mána-
tindi SU 359 munu gerðar hjá
Skipanausti ehf. á Ísafirði, að því
er kemur fram á fréttavef Bæj-
arins besta í gær. Skipið kom til
Ísafjarðar á fimmtudagskvöld.
Eldur kom upp í Mánatindi að-
faranótt miðvikudags og gjöreyði-
lögðust vistarverur skipverja og
má telja mikla mildi að takast
skyldi að slökkva eldinn. Að sögn
Aðalsteins Ómars Ásgeirssonar,
stjórnarformanns Skipanausts
ehf., er reiknað með að viðgerðir
taki tvær vikur. Segir hann að
skemmdirnar séu aðallega af völd-
um vatns og reyks, Skipanaust sjái
um það sem snúi að járnsmíðum og
rafmagni en trésmiðina fái þeir frá
Ágústi og Flosa.
Skipað í tvö
embætti
MENNTAMÁLARÁÐHERRA hef-
ur skipað í embætti forstöðumanns
Fornleifaverndar ríkisins og þjóð-
minjavarðar til fimm ára að telja frá
15. október næstkomandi.
Dr. Kristín Huld Sigurðardóttir er
skipuð í embætti forstöðumanns
Fornleifaverndar ríkisins, en níu
umsóknir bárust um embættið.
Þá hefur Margrét Hallgrímsdóttir
verið skipuð í embætti þjóð-
minjavarðar, en ein umsókn barst
um embættið.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
BJÖRN Högdahl,
fyrrverandi forstjóri
Norðuráls á Grundar-
tanga, lést á sjúkra-
húsi í Ósló 19. ágúst
síðastliðinn, 67 ára að
aldri. Banamein hans
var krabbamein.
Björn var fæddur
22. febrúar 1934 í
Kristiansand í Noregi.
Hann lauk prófi í efna-
fræði frá Tæknihá-
skólanum í Þránd-
heimi og starfaði
nánast alla sína starfs-
ævi hjá Elken í Nor-
egi. Innan þess fyrirtækis gegndi
hann ýmsum ábyrgð-
arstöðum, var meðal
annars verksmiðju-
stjóri álvers Elken í
Mosjöen í Noregi og
síðar yfirmaður ál-
deildar Elken í Nor-
egi. Björn var for-
stöðumaður Norðuráls
frá janúar 1999 fram í
mars 2001.
Björn lætur sig eig-
inkonu, Björgu Hög-
dahl, þrjú uppkomin
börn og tvö barna-
börn. Útför hans fer
fram 6. september
næstkomandi í Ósló.
Andlát
BJÖRN HÖGDAHL
FRÍTEKJUMÖRK almannatrygg-
inga hækka um 6,6% frá næstu mán-
aðamótum, samkvæmt ákvörðun
Jóns Kristjánssonar, heilbrigðis- og
tryggingaráðherra, en launavísitala
Hagstofu Íslands hækkaði um 6,6%
milli áranna 1999 og 2000.
Í frétt frá ráðuneytinu kemur
fram að Tryggingastofnun ríkisins
endurskoðar árlega tekjuviðmið sín
vegna bóta almannatrygginga. Frá
1. september næstkomandi verður
miðað við tekjur ársins 2000 sam-
kvæmt skattframtölum í stað tekna
fyrra árs.
Frítekjumark
hækkar um
6,6%
Almannatryggingar
TVEIR norrænir „þristar“, flug-
vélar af gerðinni DC-3, voru á
flugsýningu í Roskilde í Dan-
mörku um síðustu helgi. Flug-
klúbburinn danskir DC-3 vinir
fagnar 10 ára afmæli um þessar
mundir og var hugmyndin að
stefna til sýningarinnar DC-3-
vélum sem enn eru í notkun á
Norðurlöndunum. Ekki áttu allir
þristarnir heimangengt en stefnu-
mót þeirra er áætlað á næsta ári.
Ráðgert var að flugvél Land-
græðslunnar, Páll Sveinsson, sem
er af þessari gerð, tæki einnig
þátt í sýningunni en af því gat
ekki orðið þar sem annar mótor
hennar bilaði nýverið og ekki
tókst að tryggja nægilegt fjár-
magn til ferðarinnar en Land-
græðslan átti ekki að bera kostn-
að af ferðinni.
Tómas Dagur Helgason flug-
stjóri, einn þeirra sem séð hefur
um áburðarflugið og þjálfun flug-
manna á þristinn, tjáði Morg-
unblaðinu að danski klúbburinn
hefði ákveðið að efna til þessa
stefnumóts norrænu þristanna í
tilefni af 10 ára afmæli klúbbsins.
Einn þristur er til í hverju Norð-
urlandanna nema tveir í Svíþjóð.
Á sýningunni nú voru aðeins
danska vélin og sú norska og segir
Tómas því hafa verið ákveðið að
stefna að stefnumóti allra vélanna
í náinni framtíð. Þá ræddu fulltrú-
ar landanna um ýmis sameiginleg
mál. Meðal annars er ráðgert að
koma upp upplýsingabanka á
tölvutæku formi þar sem skráðir
verða varahlutir sem hvert land
hefur í fórum sínum. Segir Tómas
Dagur það einatt tímafrekt að
leita eftir varahlutum í þessar
gömlu vélar þegar eitthvað bilar
og því geti verið gott að geta
gengið að upplýsingum hjá öðrum
sem reka sams konar vélar. Páll
Sveinsson er eini þristurinn af vél-
unum á Norðurlöndum sem notuð
er í verkefni, þ.e. áburðarflugið,
hinar vélarnar eru eingöngu not-
aðar til skemmtiflugs.
Ásamt Tómasi voru Gunnar
Valdimarsson flugvirki og Pétur
Johnson flugljósmyndari með í
för. Var danska klúbbnum gefin
ljósmynd Péturs af Páli Sveins-
syni á flugi yfir Reykjavík.
Stefnt er að
stefnumóti
þrista næsta ár
Ljósmynd/Pétur Johnsson
Tómas Dagur Helgason og Jane Petersen, formaður danska DC-3-vina-
klúbbsins, við þristina frá Danmörku og Noregi.
VEGNA uppsetningarbreytinga
á vefþjónum mbl.is hafa ein-
hverjir lent í vandræðum við að
ná sambandi við vefinn. Vanda-
málið felst í því hvernig Int-
ernet Explorer vistar vefstill-
ingar og því þurfa þeir sem ekki
ná sambandi við mbl.is að
hreinsa biðminni Explorer-vafr-
ans.
Í gerðum 5 og nýrri af Int-
ernet Explorer er smellt á Tools
og síðan valið Internet Options.
Í tilmælaglugganum sem kemur
upp er síðan smellt á Delete Fil-
es undir liðnum Temporary Int-
ernet Files og síðan á OK-
hnapp og loks á OK til að loka
tilmælaglugganum. Eftir það er
yfirleitt nóg að slökkva á vafr-
anum og ræsa hann aftur en
sumar tölvur þarf að endur-
ræsa. Á eldri gerðum Internet
Explorer er Internet Options að
finna undir View-valliðnum efst
í vafranum.
Vandræði
að tengjast
fréttavef
NÁTTÚRUVERND ríkisins mun
ekki leggja fram kæru vegna nátt-
úruspjalla á viðkvæmum gróðri við
Lakagíga af völdum umferðar
hestamanna þar um slóðir um
verslunarmannahelgina. Ástæðan
er sú að málið er þegar í rannsókn
sýslumannsins á Vík í Mýrdal. Sig-
urður Gunnarsson sýslumaður hef-
ur ekki tekið ákvörðun um hvort
hann muni gefa út ákæru enda er
málið á frumstigi og verið að afla
gagna. Skýrslutökur eru hafnar
auk þess sem óskað hefur verið
eftir umsögn Náttúruverndar rík-
isins.
Að sögn Árna Bragasonar for-
stjóra Náttúruverndar ríkisins
mun stofnunin ekki gera neitt í
málinu annað en að meta faglega
þær skemmdir sem orðið hafa.
Sýslumanni barst upphaflega
kvörtun frá landverði, er starfar í
Lakagígum á vegum Náttúru-
verndar ríkisins, sem sagði að
hestafólkið hefði ekki hlýtt tilmæl-
um sínum og að viðkvæmur gróður
við gígana hefði skemmst. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
voru tildrög atviksins þau að kona
í hestamannahópnum féll af baki
með þeim afleiðingum að hrossa-
hópur í rekstri fældist og hljóp inn
á gróðursvæðið. Hestafólkið sjálft
mun hafa haft frumkvæði að því að
tilkynna landverði um atvikið.
Gróðurspjöll við Lakagíga í rannsókn sýslumanns
Náttúruvernd kærir ekki