Morgunblaðið - 25.08.2001, Side 12
Laxveiðinni afar mis-
skipt milli landshluta
LAXVEIÐINNI er afar misskipt á
milli landshluta. Sums staðar er bein-
línis léleg veiði, annars staðar mjög
góð veiði en segja má þó að rigningin í
vikunni hafi glætt gang mála á svæð-
um þar sem veiði hafði dalað veru-
lega.
Jöfn og góð veiði hefur verið í
Vopnafirði og í Rangánum. Eystri
Rangá slagar nú hátt í 2.400 laxa og er
dagveiðin enn góð þótt mesti slag-
krafturinn sé úr göngunum. Eystri
Rangá gaf tæplega 2.600 laxa í fyrra
sem var metveiði og virðist stefna í
nýtt met þar á bæ. Sama er að segja
um Ytri Rangá, sem á ekki langt í
2.000 laxa markið. Veiði er þar enn
góð og þar sem veitt er í báðum ánum
langt fram á haust er ógerlegt að spá
því hversu háar nýju mettölurnar í
ánum verða.
Gott í Vopnafirði
Mjög góð veiði hefur verið í Selá og
Hofsá og vikurnar verið að gefa 100
laxa í báðum ám. Á fimmtudagsmorg-
un voru komnir um 820 laxar úr Selá
og 620 úr Hofsá. Selá hefur nokkurt
forskot, en veiðin byrjaði betur þar og
kenndu menn um að framan af þegar
fluguveiðiskilyrði voru slök voru
menn að róta upp fiski á maðk og
spón í Selá, en aðeins er veitt á flugu í
Hofsá. Vesturdalsá hefur einnig verið
lífleg eftir slæma byrjun. Nýlega voru
komnir um 130 laxar úr ánni.
Glæddist í dembunni
Rigningin á dögunum var víða kær-
komin, ekki hvað síst vestur í Dölum
þar sem árnar voru „komnar ofan í
grjót,“ eins og veiðimenn komast að
orði. Laxá tók góðan kipp, eitt hollið
var með um 110 laxa og annað rúma
70 fiska. Um miðja vikuna var veiðin
komin í 538 kaxa. Þá hafa tölur í Laxá
í Leirársveit og Laxá í Kjós snar-
hækkað og er bæði að þakka úrkomu
og möðkum. Laxá í Kjós var í vikulok-
in komin í 870 laxa og Laxá í Leir-
ársveit í 680. Í Laxá í Leir var skyndi-
lega „kominn lax í alla pytti,“ eins og
Haukur Geir Garðarsson komst að
orði og merkir að laxinn var fljótur að
dreifa sér þegar vatn jókst.
Fréttir úr ýmsum áttum
Nýverið voru komnir 122 laxar úr
Stóru Laxá í Hreppum og var skipt-
ingin á milli svæða þessi: Svæði 1-2 58
laxar, svæði 3 14 laxar og svæði 4 50
laxar. Þetta er nokkuð góð tala því
langbesti tíminn í ánni er eftir, en
september gefur iðulega á annað
hundrað laxa. Fregnir berast einnig
af góðum skotum á Iðu, þar sem Stóra
Laxá sameinast Hvítá. Þar veiddist
nýlega rúmlega 20 punda hængur á
flugu.
Tannastaðatangi hefur verið lífleg-
ur á köflum að undanförnu. Nýlega
kom þar t.d. veiðimaður og rótaði upp
sex löxum í beit á einni morgunstund.
Svipast um eftir fiski í Brúarhylnum í Lónsá í Þistilfirði.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
ALÞJÓÐLEG ráðstefna sem ber
heitið „Hinir óbifanlegu – ofbeld-
ismenn“ verður haldin dagana 25.
til 27. ágúst á Hótel Loftleiðum.
Samtökin Norrænar konur gegn
ofbeldi eru regnhlífarsamtök
kvennahreyfingarinnar á Norður-
löndum og standa þau að þessari
ráðstefnu. Það eru hins vegar
Stígamót sem undirbúa hana í
samvinnu við Kvennaathvarfið og
Bríeti – félag ungra feminista.
Ráðstefnan mun taka nýja
stefnu í umræðu um kynferðismál
og beina kastljósinu að ofbeldis-
mönnunum, segir í fréttatilkynn-
ingu. Ráðstefnan verður þrískipt.
Haldnir verða fyrirlestrar, tengla-
fundir einstakra hópa og vinnu-
hópar um ýmis þemu. Fyrirlesarar
eru allar þekktir feministar og
fræðikonur.
Maud Eduards, prófessor í
stjórnmálafræði og gestaprófessor
við kynjafræðideildina í Ósló, mun
ræða um karla sem hóp. Fyrirlest-
ur hennar nefnist „Karlar, finnast
þeir?“ Prófessor Liz Kelly hefur
stundað rannsóknir á ofbeldi gegn
konum og börnum. Fyrirlestur
hennar nefnist „Misbrestir á meg-
inlandinu“ og fjallar um árangurs-
lausar lögsóknir á hendur nauðg-
urum í Evrópu. Janice Raymond
er prófessor í kvennafræðum og
læknisfræðilegri siðfræði. Einnig
er hún meðframkvæmdastjóri
samtakanna Bandalag gegn kyn-
lífsþrælasölu. Hún mun fjalla um
„Hvers vegna karlar kaupa konur
til kynlífsathafna: Goðsagnir og
raunveruleikinn“. Að endingu talar
Rosa Logar en hún er einn af
stofnendum fyrsta kvennaat-
hvarfsins í Austurríki. Rosa mun
gera grein fyrir reynslunni af lög-
um í Austurríki um vernd gegn of-
beldi þar sem ofbeldismaðurinn er
fjarlægður af heimilinu en ekki
kona og börn.
Alþjóðleg ráðstefna um ofbeldi
gegn konum hefst í dag
Athyglinni beint
að gerendum
FRÉTTIR
12 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FRIÐRIK Þór Guðmundsson,
einn aðstandenda þeirra sem fórust
í flugslysinu í Skerjafirði í ágúst
2000, hefur sent frá sér samantekt á
samskiptum flugturnsins í Reykja-
vík (TWR) síðustu þrjár mínúturn-
ar fyrir og næsta hálftímann eftir
slysið. Í meðfylgjandi útskrift er
TWR flugturninn, en inn í textann
hefur Friðrik skeytt færslum úr
skýrslum Slökkviliðsins (SLL) og
Landhelgisgæslunnar (LHG).
Útskriftin
20:32:07 TWR „753 [Dornierinn]
númer eitt“.
20:32:10 753 „Númer eitt 753“.
20:32:14 TWR „Teitur Ingi [TF-
GTI] þú mátt halda áfram í vinstri
og koma inn á eftir Dornier sem er
að komast yfir tanka“.
20:32:20 GTI „Tek vinstri og kem
aftur fyrir hann“.
20:32:22 TWR „Teitur Sigurður
[TF-FTS Cessna kennsluvélin] aka
að skýli eitt“.
20:32:26 FTS „Ek að skýli eitt
Teitur Sigurður og þakka fyrir
mig“.
20:32:30 TWR „Íslandsflug 753
hundrað og tuttugu átta heimil
lending braut 20“.
20:32:32 753 „Heimil lending 20,
753“.
20:33:00 753 „753 á stuttri“.
20:33:04 TWR „Roger, heimil
lending“.
20:33:06 753 „Heimil lending
753“.
20:33:32 TWR Samskipti við Að-
flug [Keflavík] (15–17 sekúndna
símtal flugumferðarstjórans, þar
sem hann tekur athyglina af um-
ferðinni og punktar niður upplýs-
ingar um næstu þrjár flugvélar, sem
væntanlegar voru í fyrsta lagi eftir
um 15 mínútur).
20:33:49 GTI „Teitur Ingi yfir
Tjörninni núna“.
20:33:50 TWR „Teitur Ingi núm-
er eitt“. [GRÆNT LJÓS!!]
20:33:52 GTI „Teitur Ingi númer
eitt“.
20:33:56 TWR „753 rýma til
vinstri inn á hlað“.
753 „Roger 753“.
20:34:10 TWR „Teitur Ingi,
hætta við og fljúga umferðarhring“.
20:34:14 GTI „Teitur Ingi“.
20:34:23 TWR „753 aka í hlað
Echo [brautin að Flugfélags-
hlaðinu]
20:34:27 753 „Aka í hlað Echo
753“.
20:34:50 TWR „Dráttarbíll ertu
þarna?“
20:34:54 GTI „Og Teitur Ingi
óska eftir að koma inn á, ég er búinn
að missa mótor“.
20:34:58 TWR „Ertu búinn að
missa mótor?“
20:35:01 TWR „Stysta leið og
heimil lending“.
20:35:04 GTI „Það er stall!, það er
stall!“
20:35:12 XX „Turn það fór vél
niður vestan . . .“ (ökum. dráttar-
bíls)
20:35:xx SLL „Kom tilkynning
frá flugturni og sjónarvottum“.
??:??:?? TWR „Verður að tala við
planið, til að fá farþegafjöldann“.
20:37:00 TWR „Djöfull eru þeir
lengi maður“.
20:37:15 TWR „6 sæta vél, óvitað“
20:37:29 TWR „Er Kalli heima?“
(Kalli = Karl Alvarsson) – hann
beðinn um að koma út á flugvöll
vegna brotlendingarinnar.
20:38:xx LHG Gæslan heyrir
slitróttar „ELT“-sendingar í 45 sek.
20:38:35 TWR „Stélið stendur
upp úr“.
??:??:?? TWR „Fór í sjóinn út af
enda 07“.
20:40:30 „Ertu búinn að láta flug-
stjórn vita?“.
20:41:00 Símtal milli flugturns og
slökkvistöðvarinnar í Skógarhlíð. 6
um borð.
20:43:xx TSK Tilkynningaskyld-
an hringir og segir að Neyðarlínan
hafi hringt til þeirra og sagt að flug-
vél hafi farið í sjóinn á Skerjafirði og
spurt hvort þeir hefðu einhverja
báta á svæðinu. Ekki væri óskað að-
stoðar LHG.
20:43:30 TWR „Ég púllaði hann
upp, hérna, Dornierinn var svo lengi
að rýma“.
20:44:xx LHG LHG hefur sam-
band við Flugstjórn, Bergþór, sem
sagðist lítið vita um málið en hefði
heyrt að flugvél hefði farið í sjóinn,
en það mál væri í höndum Slökkvi-
liðsins og flugturnsins.
20:44:30: TWR „Þetta er aga-
legt“.
20:45:xx LHG Halldór Nellett
upplýstur. „Þar sem ekkert hafði
heyrst frá Neyðarlínu eða slökkvi-
liðinu töldum við að þeir hefðu full
tök á málinu“.
20:46:05 TWR „Friðrik Teitur
Nikulás 130 gráður 10 númer 1 20.
20:46:20? „Ísleifur … ég veit það
ekki“
20:47:30 TWR „Hann var svo
lengi að fara út, Dornierinn, ég gat
ekki réttlætt að púlla honum ekki
upp. Ha?“
??:??:?? TWR „… klikkaði eitt-
hvað neyðarlínan, hún bara kúplaði
út. Kom bara píííííb“.
[flugvélar að lenda]
20:48:xx SLL Tveir kafarar í sjó-
inn.
20:52:45 TWR „Þetta er sonur
hans“ [Líkl. átt við GTO, sem Ísleifs
sonur flaug]
20:53:00TWR „Þetta er rothögg
vallarins. Allez“.
[Svo kemur varðstjóri og tekur
við stjórninni.]
20:54:00 TWR „Til allra þeirra
sem málið skiptir. Nú er bara að
bíða, tökum þessu rólega eins og
hægt er“.
[Andvarp]
20:54:xx TWR „Viktor Bjarni
verð að senda sjúkrabíl yfir braut“.
20:55:00 TWR „Viktor Bjarni
(TF-JVB) heimil lending“.
20:55:38 TWR „Viktor Bjarni
snúa við“.
??:??:?? TWR „Þeir eru komnir
niður, er það ekki?“
??:??:?? TWR „Eru þeir að fara
aftur til baka?“
20:56:20 TWR „Jónas Viktor
Bjarni halda uppi hraða. . „.
20:57:xx SLL „Fyrstu tveir sjúk-
lingar eru komnir í land“.
20:57:xx „Sjúkrabílar hraða
akstri“.
20:57:xx SLL Köfunarpramminn
kominn á slysstaðinn.
??:??:?? TWR „Niður með þá í
einum grænum“. [Væntl. um lend-
andi flugvélar]
??:??:?? TWR „Segðu þeim að
hraða akstri að hlaði“. [Væntl. lent
flugvél]
20:57:25 TWR „Djí…“ [andvarpið
djísös]
20:57:44 TF-GTO fær heimila
lendingu . . flugmaður beðinn um að
hringja í flugturninn eftir lendingu.
20:58:20 TWR „Þú tekur þetta
kannski. Ég fer heim“.
[Meiri andvörp]
20:59:xx Neyðarlínan hringir í
LHG: þyrlu í viðbragðsstöðu, flug-
slys…
Útkall „Alfa“, allir svara strax.
21:01:00 TWR [Enn meira and-
varp]
21:01:xx LHG [Turninn] segir
LHG hvar slysið hafi orðið.
21:01.xx TWR … engin sjónflugs-
umferð meðan á þessu stendur.
21:02:00 TWR HRINGT Í
LANDHELGISGÆSLUNA
LHG „Ég kalla allt út“.
21:02:38 TWR „Jæja“ [andvarp]
21:03:00 HP „Hannes Pétursson
hér, á Dorniervélinni. Ég er bara að
láta heyra í mér, svona ef einhver
vill við mig tala“.
TWR „Nei… taka niður ein-
hverja punkta. Maður verður gjör-
samlega lamaður“.
HP „Já, heyrðu, það er eina…“
[upptaka af spólu endaði hér]
21:04:xx SLL Fimmti og „síðasti“
sjúklingurinn kominn í land.
21:22:xx LHG TF-SIF flugtak
(47 mínútum eftir slysið!)
21:37:xx SIF „Erum á leið inn til
lendingar, engin þörf fyrir okkur
hér“.
21:38:xx SIF SIF lendir við skýli 2.
Útskrift á samskipt-
um flugturns
VEGASAMBAND á Austfjörðum
er óðum að komast á aftur eftir
skemmdir af völdum flóða og
skriðufalla á þriðjudag og miðviku-
dag. Einungis einn vegur er lok-
aður, vegurinn milli Héraðs og
Berufjarðar, en hann skemmdist
talsvert og verður lokaður fram í
næstu viku.
Búið er að opna Suðurbyggða-
veg í Breiðdal og þá er orðið fært
um Mjóafjarðarveg og Helgu-
staðaveg.
Létta átti þungatakmörkunum á
Norðfjarðarárbrú í gær en unnið
hefur verið að bráðbirgðaviðgerð-
um á brúnni frá því brúin
skemmdist á miðvikudag. Umferð
var takmörkuð við þriggja tonna
heildarþunga þar til í gær.
Vinnuflokkur Vegagerðarinnar
byrjar á nýrri brú yfir Norðfjarð-
ará strax í næstu viku en tekin var
ákvörðun um að flýta framkvæmd-
um við hana og ljúka gerð hennar
fyrir áramót í stað næsta sumars.
Vegir að lagast eftir
flóðin á Austfjörðum