Morgunblaðið - 25.08.2001, Qupperneq 43
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 43
MINNINGAR
ÞAU börn sem ætla að fermast vorið
2002 í Háteigskirkju eru boðuð til
messu og skráningar kl. 11 á sunnu-
dag. Fyrsta fræðslusamvera verður
miðvikudaginn 29. ágúst.
Eins og kynnt var á fundi með
væntanlegum fermingarbörnum,
foreldrum og forráðamönnum í vor
verður fermingarstarfi hagað á
nokkuð annan veg en áður í Háteigs-
söfnuði. Vetrinum er skipt í fjórar
annir.
Á fyrstu fjórum vikunum, sem við
nefnum inngang, munu börnin kynn-
ast hvert öðru, námsefninu og helgi-
haldinu.
Samskipti nefnist annar hlutinn,
og verður þá dvalið um helgi í Kald-
árseli þar sem lögð verður sérstök
áhersla á samveru og samskipti okk-
ar í þessu nána samfélagi sem hóp-
urinn er, einnig verður fjallað um
samfélagið í kirkjunni.
Þriðji þáttur, úrvinnslan, einkenn-
ist af umfjöllun um þemu, sem ung-
lingarnir sjálfir leggja drög að í helg-
arferðunum.
Á lokasprettinum eftir áramót
mynda þau hóp, sem fermast saman,
þar sem unnið verður með þau þemu
sem ekki tekst að ljúka fyrir áramót,
auk þess verður ein lengri samvera á
laugardegi (kvikmynd, popp og
grand).
Væntanleg fermingarbörn fá Litlu
messubókina á sunnudaginn.
Hlökkum til samstarfsins.
Starfsfólk fermingarstarfs
í Háteigskirkju.
Sr. Pálmi
Matthíasson í
Akraneskirkju
FYRIR hálfu ári hittust sóknar-
nefndir Akraneskirkju og Bústaða-
kirkju og áttu saman skemmtilega
kvöldstund í Safnaðarheimilinu
Vinaminni á Akranesi. Þá var ákveð-
ið að kirkjurnar yrðu vinakirkjur og
myndu eiga ýmis samskipti og sam-
starf á kirkjulegum vettvangi í nán-
ustu framtíð. Kirkjunefnd Akranes-
kirkju hefur nú þegar heimsótt
Kvenfélag Bústaðakirkju og barna-
og bjöllukór síðarnefndu kirkjunnar
hefur sungið og leikið í guðsþjónustu
á Akranesi.
Annað kvöld, sunnudagskvöld,
verður framhald á þessum samskipt-
um safnaðanna. Þá mun sr. Pálmi
Matthíasson, sóknarprestur Bú-
staðakirkju, prédika í guðsþjónustu
á Akranesi og þjóna fyrir altari
ásamt heimapresti. Hluti af kór Bú-
staðakirkju syngur við athöfnina
ásamt kór Akraneskirkju. Guðsþjón-
ustan hefst kl. 20:30. Heitt verður á
könnunni í safnaðarheimilinu á eftir.
Akurnesingar eru hvattir til þess
aðfjölmenna í guðsþjónustuna. Tök-
um vel á móti góðum gestum!
Sóknarprestur Akranesi.
Safnaðarferð
Fríkirkjunnar
í september
FÓLK úr söfnuði Fríkirkjunnar í
Reykjavík mun halda í sína árlegu
safnaðarferð sunnudaginn 2. sept-
ember en ekki helgina áður eins og
tilkynnt hefur verið. Allir aldurshóp-
ar sameinast í ferð á Suðurnes.
Ferðin hefst sunnudagsmorguninn
kl. 11:00 með stuttri fjölskylduguðs-
þjónustu í Fríkirkjunni við tjörnina,
þar sem barnastarf vetrarins hefst
og dagsferðin er lögð í Guðs hendur.
Síðan verður haldið suður á bóg-
inn þar sem merkar kirkjur Suður-
nesjamanna verða heimsóttar og
skoðaðar. Má þar nefna gömlu höf-
uðkirkjuna Útskálakirkju og einnig
Hvalsneskirkju sem er eins konar
Hallgrímskirkja Suðurnesjamanna.
En þar þjónaði séra Hjörtur Magni
áður en hann kom til starfa í Frí-
kirkjunni í Reykjavík. Einnig verður
nýtt safnaðarheimili Keflavíkur-
kirkju skoðað og Bláa Lónið heim-
sótt ef tími leyfir.
Síðar verður auglýst hvar hópur-
inn mun snæða saman og drekka
kaffi.
Fararstjórar verða Hjörtur Magni
Jóhannsson, safnaðarprestur, og
Hreiðar Örn Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri safnaðarins.
Þeir sem óska eftir frekari upplýs-
ingum og ætla að taka þátt í þessari
ferð eru vinsamlegast beðnir að skrá
sig í síma safnaðarheimilisins 552-
7270, mánudag til fimmtudags kl.
10–12.
Safnaðarstarf Fríkirkjunnar.
Skólamessa við
þvottalaugarnar
í Laugardal
NÚ mörkum við lok sumarstarfs
Laugarneskirkju og horfum samein-
uð fram á veginn við skólamessu sem
haldin verður við þvottalaugarnar í
Laugardal kl. 17:00 á sunnudaginn.
Þá mun nýr skólastjóri Laugarnes-
skóla, Helgi Grímsson, sérstaklega
boðinn velkominn til starfa og mun
hann flytja ritningartexta dagsins.
Barnastarf kirkjunnar verður kynnt
fyrir börnum og fullorðnum með að-
stoð óvæntra gesta sem krakkarnir
þekkja frá síðasta vetri og Þorvaldur
Halldórsson mun syngja glaða og
góða kirkjusöngva með okkur öllum.
Sr. Bjarni Karlsson leiðir sam-
veruna.
Við búumst við góðu veðri, en ef
alls ekki viðrar til útiveru mun skóla-
messan flytjast inn undir þak kirkj-
unnar. Annars spáum við góðu veðri
og minnum á að við útimessu er gott
að hafa með sér teppi til að sitja á.
Hvetjum við Laugarnesbúa til að
fjölmenna og njóta góðrar hverfis-
stemningar með nágrönnum á öllum
aldri.
Kolaportsmessa
HELGIHALD þarfnast ekki hús-
næðis heldur lifandi fólks. Kirkja
Jesú Krists er ekki steypa, heldur
lifandi steinar, manneskjur af holdi
og blóði. Þess vegna er hægt að fara
út úr kirkjubyggingum með helgi-
hald og fagnaðarerindið og mæta
fólki í dagsins önn. Í tilefni af því
bjóðum við til messu í Kolaportinu
sunnudaginn 26. ágúst kl.14:00.
Jóna Hrönn Bolladóttir, miðborg-
arprestur, Kjartan Jónsson, fram-
kvæmdarstjóri KFUM og K, og
Ragnheiður Sverrisdóttir, djákni,
þjóna í messunni. Þorvaldur Hall-
dórsson leiðir lofgjörðina. Áður en
Kolaportsmessan hefst kl.13:40 mun
Þorvaldur Halldórsson flytja þekkt-
ar dægurperlur. Þá er hægt að
leggja inn fyrirbænarefni til þeirra
sem þjóna í messunni.
Í lok stundarinnar verður fyrir-
bæn og smurning. Messan fer fram í
kaffistofunni hennar Jónu í Kola-
portinu sem ber heitið Kaffi port,
þar er hægt að kaupa sér kaffi og
dýrindis meðlæti og eiga gott sam-
félag við Guð og menn.
Það eru allir velkomnir.
Miðborgarstarf KFUM og K.
Sr. Bjarni Þór í
Grafarvogskirkju
NK. sunnudag kl. 11 mun sr. Bjarni
Þór Bjarnason messa í Grafarvogs-
kirkju. Sr. Bjarni Þór mun gegna
prestsstarfi í Grafarvogskirkju
næsta ár í fjarveru Sigurðar Arnar-
sonar. Sr. Bjarni Þór hefur starfað
síðustu 2½ ár innan ensku biskupa-
kirkjunnar. Kaffi og kleinur eftir
messu.
Grafarvogskirkja.
Fermingarstarf
Grensáskirkju
FERMINGARSTARF Grensás-
kirkju hefst að þessu sinni með guðs-
þjónustu í kirkjunni sunnud. 26.
ágúst kl. 11 árdegis. Mælst er til
þátttöku þeirra unglinga, sem ætla
að fermast í Grensáskirkju næsta
vor, og fjölskyldna þeirra. Að guðs-
þjónustu lokinni verður stuttur
kynningarfundur um fermingar-
starfið.
Eins og undanfarin ár byggist
fermingarundirbúningurinn á þrem-
ur meginþáttum. Fræðslustundir í
minni hópum eru vikulega frá hausti
fram að fermingum. Allur stóri hóp-
urinn fer saman tveggja daga og
einnar nætur ferð í Vatnaskóg síðar í
haust til fræðslu og skemmtunar. Þá
er gert ráð fyrir þátttöku í guðsþjón-
ustum og helgihaldi kirkjunnar.
Stuðningur og þátttaka foreldra
er mikilvægur og sjálfsagður liður í
fermingarundirbúningnum enda
læra börnin, í þessu efni sem öðrum,
fyrst og fremst af fordæmi hinna
eldri.
Á mótunarárunum er hverjum
einstaklingi gott og hollt að dýpka
vitundina um Guð og eignast traust
til nálægðar hans í öllum aðstæðum
lífsins. Þeim trúarlegu gildum er
miðlað í fermingarstarfi kirkjunnar.
Með því að boða þá trú sem stenst í
lífinu er lagður grunnur að lífi í trú
sem við getum átt og rækt ævina á
enda.
Safnaðarstarf
Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar
kl. 12-12:30. Veronique Leguen frá
Frakklandi leikur.
Lágafellskirkja. Mánudagur: Fjöl-
skyldusamvera fyrir foreldra og
börn þeirra frá kl. 13:30-15:30 í safn-
aðarheimilinu, Þverholti 3, 3. hæð.
Upphaf ferm-
ingarstarfs
Háteigskirkja í Reykjavík.
Bóbó var leigubílstjóri að atvinnu og
annaðist margvíslega snúninga, sótti
alls konar gögn og afhenti. Skemmst
er frá því að segja að hann sinnti því
af slíkri trúmennsku og alúð að ekki
varð á betra kosið. Hann hafði geisl-
andi og hárbeitta kímnigáfu án þess
þó að hún bitnaði á náunganum.
Hann var glettinn og hvarvetna
aufúsugestur. Svo sem að líkum læt-
ur var hann vinmargur og vinhlýr og
hélt þétt utan um fjölskyldu sína og
aðra vandamenn. Þegar SP-fjár-
mögnun var stofnuð 1995 varð það
eitt af mínum fyrstu verkum að fá
Bóbó til þess að annast margvísleg
viðvik sem hann og gerði á sinn ljúfa
hátt allt þar til veikindi buguðu hann.
Bóbó var viðræðugóður um marg-
vísleg áhugamál sín – eftir vinnu-
tíma. Hann fylgdist grannt með fót-
bolta heima og erlendis og ræddi
gjarnan við sálufélaga sína um þá
íþrótt, en ekki fyrr en verkefnum
dagsins var lokið. Fram var hans lið,
og Man. Utd. á erlendri grund.
Bóbó kom fólki sífellt á óvart með
alls konar glettum. Einu sinni sátum
við saman á skrifstofunni minni í
góðu tómi og hann segir: „Kjartan,
þekkir þú hana Agnesi?“ „Hvaða
Agnesi?“ spurði ég. „Hana Aganesi
dóttur hennar Maddýjar,“ svaraði
Bóbó. Jú, víst þekkti ég hana, enda
náskyld mér. Þögn um hríð unz ég
spurði: „Hvernig þekkir þú hana?“
„Ég er kvæntur henni,“ sagði Bóbó
meinhægt, hógvær að vanda.
Nú hefur hún séð á bak bónda sín-
um og við í SP-fjármögnun sendum
henni og strákunum hugheila sam-
úðarkveðju.
Æ, brothætt eins og
smákæna er líf mannsins.
Léttum árum rær
hann til hafs – og í dögun
ekki tangur né tetur –
Þessi litla ljóðaþýðing Helga Hálf-
danarsonar er til vitnis um hverful-
leika lífsins. Við vissum ekki betur –
lengi vel – en að hann Bóbó gengi
heill til skógar. Nú er hann allur og
þá er skarð fyrir skildi. Við munum
sakna hans hér í SP-fjármögnun og
ég veit að viðskiptavinir okkar eru
sama sinnis.
Guð blessi minningu Bergþórs
Bergþórssonar.
Kjartan Georg Gunnarsson.
Ég hitti Bóbó á Borgarbíl í tröpp-
unum framan við Þórskaffi. Það var
mánudagsnótt eftir dansleik um
sumar og fólkið hópaðist í Brautar-
holtið. Ég var nýskriðinn úr Gaggó
Aust og hann leysti af á Borgarbíla-
stöðinni. Fundum okkar bar fyrst
saman í skarkala miðbæjarins þegar
húmaði um helgar. Bóbó tók mér
með kostum og kynjum á Þórskaffis-
tröppunum:
„Ég er ríkasti maður við Lauga-
veg og þó víðar væri leitað!“ sagði
hann og hnykkti höfðinu: „Eltu mig, í
einfaldri röð, eins og í hernum!“ Svo
tók hann á rás skálmandi yfir götuna
og steig ölduna í skrefunum, lyfti
hendinni frá mittisstað og upp fyrir
höfuð í valdsmannslegri sveiflu.
Gekk þvert á umferðina að gula
Opelnum sínum með hvíta þakinu og
lausmerkið slökkt í framglugganum.
Bauð mér inn í taxann við annan
mann og sá þriðji ók sem leið lá niður
Laugaveginn: „Það eru tveir menn í
heiminum sem búa í hvítu húsi!“
sagði Bóbó og benti á gult hús við
miðjan Laugaveginn: „Kennedy og
ég.“
Bóbó ríki var hógvær maður, hann
nefndi sjálfan sig á eftir forsetanum.
Nóttin var ævintýranótt fyrir ný-
svein við hirðina og mér er hún í
fersku minni núna fjörutíu árum
seinna.
„Þið drekkið mig ekki út á gadd-
inn!“ sagði hann ögrandi og veitti
höfðinglega í gula taxanum fram
undir morgun. Ég skynjaði í morg-
unsárið að nú væri ég vígður inn í
félagslíf borgarinnar.
Bergþór Bergþórsson var stjórn-
arformaður Reykjavíkur á þessum
árum og hélt um taumana við borðið
sitt handan við dansgólfið í Þórs-
kaffi, með vinstri höndina upp á litla
veggnum andspænis sviðinu hvar
Lúdó sextett spilaði.
En nú er Bóbó allur og eftir stend-
ur minningin um ríkidæmið sem náði
langt út fyrir Laugaveginn og var
fyrst og fremst fólgið í honum sjálf-
um sem vinaföstum og góðum dreng,
glaðværum og gamansömum, oft há-
værum og stundum óútreiknanleg-
um.
Hugurinn dvelur hjá fjölskyldu
hans þessa dagana og vissulega
verður hann Bóbó alltaf ríkur.
Ásgeir Hannes.
Mánudaginn 13.
ágúst síðastliðinn lést
Elín Pétursdóttir í
Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi eftir hetju-
lega baráttu við svo til
ósigrandi sjúkdóm, sem hún var þó
búin að berjast svo hetjulega við. Ég
kynntist Dellu fyrir um þremur ár-
um, þegar hún og Stjáni eiginmaður
hennar buðu mig velkomna í fjöl-
skylduna. Ég sá strax að Della var
engin venjuleg kona, hún átti alltaf
svör við öllu, það var alveg sama
hvað var í gangi, hún gat alltaf leitt
mann á rétta braut aftur. Della var
svo blíð og góð og það var mjög auð-
velt að gleðja hana og hún var alltaf
svo þakklát ef maður gerði eittvað
fyrir hana, lakka táneglurnar eða
baka köku fyrir Stjána, en þannig er
henni einmitt rétt lýst, hún hugsaði
alltaf fyrst og fremst um aðra, að
öðrum liði vel. Í sumarbústað þeirra
hjóna í Borgarfirðinum undi hún sér
vel, og var manni alltaf tekið opnum
örmum þegar maður leit inn til
þeirra í bústaðinn Akurgerði, á leið
um Borgarfjörðinn. En þar vorum
við einmitt stödd með Dellu og
Stjána um verslunarmannahelgina.
Della var eitthvað slöpp en samt
kvartaði hún ekki, ekki frekar en á
ELÍN
PÉTURSDÓTTIR
✝ Elín Pétursdótt-ir fæddist á Ak-
ureyri 9. júní 1944.
Hún lést í Landspít-
ala – háskólasjúkra-
húsi mánudaginn 13.
ágúst síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Grafar-
vogskirkju 23. ágúst.
öllum þeim tíma sem
hún barðist við þennan
miskunnarlausa sjúk-
dóm. En hver hefði get-
að trúað að þessi helgi
yrði sú síðasta með
Dellu í bústaðnum?
Örugglega enginn en
svo var nú raunin því að
á mánudagskvöld er
hún lögð inná spítala og
þar fer henni bara
versnandi þar til þrótt-
ur hennar var búinn
eftir mikla og hetjulega
baráttu í marga daga.
En núna er hún farin
og ég veit að hún er á góður stað á
meðal fjölskyldu og vina sem fara
með hana eins og prinsessu því að á
meðan hún var meðal okkar þá var
hún sönn prinsessa. Elsku Della, ég
er mjög þakklát fyrir að hafa kynnst
þér, þó ég hefði viljað hafa þig lengur
hjá mér. Þín er mjög sárt saknað og
ég mun aldrei gleyma þér, því minn-
ingin um þig mun að eilífu lifa í
hjarta mínu.
Einn dag er okkur gefið líf
en annan er það tekið aftur,
líkt og við höfum aðeins
fengið það að láni.
Við erum aðeins blóm
í garði lífsins
sem eiga sitt sumar,
og sitt haust.
Ég veit að þú ert farin
en þú ert samt hjá mér,
því ég mun aldrei,
gleyma þér.
(Ingunn Bjarnad.)
Með kveðju og söknuði,
Björg Arna Elfarsdóttir.